Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Blaðsíða 2
þriðjudagur 28. júlí 2009 fréttir
Hollendingurinn Peter Rabe, sem er
grunaður um að vera forsprakkinn í
Papeyjarsmyglinu, segist hafa leigt
skútuna Sirtaki í þeim tilgangi að
fara í tveggja vikna skemmtisiglingu
í kjölfar þess að hús hans í Hollandi
brann til kaldra kola. Aðalmeðferð í
málinu gegn sexmenningunum sem
eru grunaðir um að hafa smyglað 109
kílóum af kannabisefnum, amfeta-
míni og e-töflum til landsins með
skútunni Sirtaki í apríl hófst fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fram
hefur komið að áætlað götuvirði efn-
anna er um hálfur milljarður króna.
Rúnar Þór Róbertsson, Árni Hrafn
Ásbjörnsson og Peter Rabe voru um
borð í skútunni Sirtaki sem er tal-
in hafa flutt efnin upp að Íslands-
ströndum, þangað sem slöngubát-
ur með Jónasi Árna Lúðvíkssyni í
fararbroddi kom til móts við þá og
flutti efnin í land. Jónas Árni, Pét-
ur Kúld Pétursson og Halldór Hlíð-
ar Bergmundsson voru handteknir á
leið með efnin frá Djúpavogi til Sel-
foss. Þremenningarnir segjast allir
hafa talið að um fjórar töskur af efn-
um væri að ræða, en magnið reynd-
ist vera um fjórfalt meira. Þeir sögð-
ust hafa haldið að þeir væru að flytja
stera til landsins.
Huldu-gleðikonur
Grunur leikur á að skútumenn-
irnir hafi falsað listann með nöfn-
um áhafnarmeðlima, en auk Peters
Rabe, Árna Hrafns og Rúnars voru
nöfn þriggja kvenna á áhafnarlist-
anum. Þar af voru tvær með íslensk
nöfn. Hafi það verið gert til að vekja
síður grunsemdir yfirvalda. Enginn
skútumannanna vildi kannast við að
hafa sett nöfn kvennanna á listann,
en ein þeirra var skráð til heimilis á
sama stað og Rabe. Ekkert þessara
nafna hefur hins vegar fundist í þjóð-
skrá hér á landi eða í Hollandi. Rabe
sagðist hafa fengið nöfnin hjá fylgd-
arþjónustu, en á endanum hafi þeir
hætt við að taka gleðikonurnar með
í ferðina.
Hann neitar því að hafa nokkru
sinni komið inn fyrir íslenska 12
mílna refsiréttarlögsögu og því hafi
hann ekki hlýtt skipun Landhelgis-
gæslunnar um að snúa skútunni við,
heldur siglt í átt til Færeyja. Þá hafi
veður á hafi úti verið mjög slæmt. Um
borð í skútunni fannst fartölvutaska
með snúrum í, en engin fartölva.
Rabe sagði að tölvan og gervihnatta-
sími, sem grunur leikur á að hafi
verið notaður um borð í skútunni,
hafi orðið eldi að bráð. Í fórum hans
fannst hins vegar minnislykill sem
innihélt textaskjal á hollensku um
hvernig tengja mætti GPS-tæki við
fartölvu. Rabe hafði sem sagt tölvu-
snúrur, fartölvutösku og minnislykil,
en enga tölvu um borð. Í framburði
hans kom enn fremur fram að Ís-
lendingarnir hefðu átt hugmyndina
að því að leigja skútuna, en belgískt
eða hollenskt vegabréf hafi þurft til
að leigja hana og því hafi hann gert
það.
Hollenskir tollgæslumenn
um borð
Fram kom í framburði skútumann-
anna að hópur hollenskra tollgæslu-
manna kom um borð í skútuna
skammt frá ströndum Hollands og
skoðaði bæði skútuna og vegabréf
mannanna. Þeir hefðu ekki fundið
neitt óeðlilegt og því haldið för sinni
áfram.
Rúnar Þór sagði fyrir dómi að
hann og Rabe hefðu haft uppi áform
um að stofna fyrirtæki ytra, en þau
áform hefðu orðið að engu vegna
eldsvoðans. Þeir hefðu því ákveðið
að fara í skútusiglinguna sem hugs-
anlegan undirbúning fyrir skútu-
siglingakeppni á milli Frakklands og
Íslands, sem fram fer í sumar. Rún-
ar bar við fyrir dómi að hann hefði
aldrei séð slöngubát koma að bátn-
um til að sækja meintan farm.
Kom frá Danmörku
Árni Hrafn neitaði einnig sök í mál-
inu. Hann var búsettur í Danmörku
þegar Rúnar Þór hafði samband við
hann um að koma til Hollands til að
leggja hönd á plóginn við fyrirtækið
sem þeir höfðu í hyggju að stofna.
Hús Rabes brann hins vegar í milli-
tíðinni, en Árni segist engu að síður
hafa komið með í skútuferðina þar
sem hann hafi réttindi til að sigla
skútu.
Sakborningar voru mikið spurðir
út í gervihnattasíma og fartölvu sem
lögregla telur að hafi verið um borð
en þeir kastað í sjóinn á einhverj-
um tímapunkti. Enginn þeirra vildi
kannast við að fartölva eða gervi-
hnattasími hefði verið um borð.
Sem fyrr segir sigldi skútan und-
ir belgísku flaggi og sagði Árni Hrafn
að hann hefði séð margar skútur á
leið sinni yfir hafið. Aðspurður hvaða
flaggi þær hefðu siglt undir sagð-
ist Árni hafa talið að ein þeirra sigldi
undir þýsku flaggi.
Auðveldlega má ruglast á belg-
íska og þýska fánanum úr fjarlægð
og því gerðu verjendur því skóna að
hugsanlega hefðu aðrar skútur ver-
ið á svæðinu sem líktust þeirri sem
þremenningarnir voru handteknir
um borð í, enda neituðu slöngubáts-
mennirnir að bera kennsl á þá sem
afhentu þeim efnin.
Óttast aftur hefnd
Jónas Árni, sem er ákærður fyrir að
sigla á slöngubáti út til að sækja efn-
in, sagði fyrir dómi að hann vildi
ekki gefa neitt upp um afhendingu
efnanna vegna hótana. Hann segist
óttast manninn sem hótaði að hon-
um væri hollast að halda kjafti. Hann
vildi ekki játa að hafa hitt þremenn-
ingana á skútunni. Í bíl sem notað-
ur var til að flytja efnin fannst talstöð
og í skútunni fundust pakkningar
utan af sambærilegri talstöð. Hann
sagði fyrir dómi að hann hefði feng-
ið talstöðina erlendis, en vildi ekki
greina frá því hver lét hann hafa tal-
stöðina. Fyrir dómi vildi hann ekki
svara spurningum um hversu margir
hefðu verið um borð eða hverjir það
hefðu verið.
Jónas Árni og Rúnar Þór hafa áður
verið ákærðir fyrir innflutning á fíkni-
efnum. Þeir voru sýknaðir árið 2007
af ákæru um að hafa smyglað tæpum
4 kílóum af kókaíni til landsins. Fyrir
dómi þá vildi Jónas heldur ekki gefa
upp nafn mannsins sem hann sagði
hafa skipulagt smyglið af ótta við
ENGINN VILDI BENDA
Á SKÚTUMENNINA
valgeir örn ragnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
aðalmeðferð Enginn sakborninga
vill gangast við því að hafa staðið
fyrir innflutningi á efnunum.
MynD rÓbert
sirtaki Peter Rabe var skipstjóri á Sirtaki. Hann neitaði að snúa skútunni til hafnar og hélt að eigin sögn í átt til Færeyja. Hann
segist hafa verið í skemmtisiglingu. MynD sigtryggur ari