Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Page 3
fréttir 28. júlí 2009 þriðjudagur
Sjávarútvegsfyrirtækið Samherji
ætlaði sér að kaupa stóran hluta
þeirra hlutabréfa í Glitni og FL
Group sem síðar fóru inn í einka-
hlutafélagið Stím, samkvæmt heim-
ildum DV. Samherji hætti hins veg-
ar við og skýrir það af hverju félag í
eigu Glitnis varð stærsti hluthafinn
í félaginu með 32,5 prósenta eign-
arhluta. Þetta var hluturinn sem
Samherji ætlaði sér að kaupa. Glitn-
ir sat hins vegar uppi með hlutinn
þegar Samherji gekk úr skaftinu og
ekki tókst að finna annan kaupanda
þrátt fyrir að Glitnir hafi sett sig í
samband við fjölmarga aðra fjár-
festa.
Stím var einkahlutafélag í eigu
ýmissa fjárfesta sem keypti hluta-
bréf í Glitni og FL Group fyrir um 25
milljarða króna í nóvember 2007,
þar af voru tæpir 20 fengnir að láni
frá Glitni. Um var að ræða kúlulán
til 12 mánaða á 20 prósenta vöxtum.
Félagið keypti í Glitni fyrir tæpa 16,5
milljarða og í FL Group fyrir rúma
6,5 milljarða.
Eignarhlutur Stíms í Glitni varð
hins vegar að engu í bankahruninu í
haust og eignarhluturinn í FL Group
varð nánast verðlaus. Glitnir sjálfur
átti meirihluta þeirra bréfa sem seld
voru inn í Stím og hélt þriðjungi
þeirra eftir, eins og áður segir.
Samherji íhugaði kaup
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, segir að Samherji
hafi velt því fyrir sér á þessum tíma
að kaupa hlutabréf í Glitni og FL
Group: „Við skoðuðum einhvern
tímann einhver mál sem sjálfsagt
síðar meir kunna að hafa orðið að
Stími. En það voru ekki forsend-
ur fyrir okkur að fara út í það... Við
skoðuðum kaupin á bréfunum en
keyptum ekki bréfin í þessu tilfelli,“
segir Þorsteinn.
Hann bætir því við að hann viti
ekki hvernig Stím varð síðar til: „Þú
sérð að ég er aðeins að fara í kring-
um þetta... Við skoðuðum einhver
hlutabréfakaup. Svarið var: Við
gerðum það ekki [innskot blaða-
manns: keyptu ekki bréfin]. Hvað
gerðist síðar meir veit ég ekki,“ segir
Þorsteinn.
Samherji keypti svo
á miklu lægra gengi
Þremur mánuðum eftir kaup Stíms
á hlutabréfunum í Glitni og FL
Group var Þorsteinn Már Baldvins-
son gerður að stjórnarformanni
Glitnis, að ósk Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar sem var stærsti hluthafinn í
Glitni í gegnum FL Group. FL Group
var stærsti hluthafinn í Glitni. Í apr-
íl þetta sama ár keypti Kaldbak-
ur, fjárfestingafélag Samherja, 12,5
prósenta hlut í FL Group af Baugi á
genginu 7,28. Baugur tapaði meira
en 12 milljörðum króna á kaupun-
um.
Þessi þróun mála á fyrri hluta
árs 2008 kann að renna enn frekari
stoðum undir að Samherji, eða fé-
lag tengt því, hafi í árslok 2007 velt
því fyrir sér að kaupa bréfin sem
síðar fóru inn í Stím. Þorsteinn Már
vill hins vegar ekki fara nánar út í af
hverju félagið keypti ekki Stímbréf-
in en reikna má með að hluti skýr-
ingarinnar sé sá að bréfin í Glitni
og FL Group voru margfalt dýrari í
nóvember 2007 en í apríl 2008 þeg-
ar Samherji keypti loks í FL Group
og þannig óbeint í Glitni.
Stím borgaði samtals tæplega
24,8 milljarða fyrir bréfin í Glitni og
FL Group en kaupin á fyrrnefnda
félaginu voru á genginu 25,5 en í
því síðarnefnda á 22,5. Gengið á
bréfunum í FL Group lækkaði því
úr 22,5 frá því að Stím keypti bréf-
in í nóvember og þar til Kaldbak-
ur keypti bréfin í FL Group í apríl.
Eitt af því sem kann að skýra þenn-
an mikla mun á gengi bréfanna í FL
Group er að félagið var nærri orðið
gjaldþrota í árslok 2007 en þá var fé-
lagið endurfjármagnað til að bjarga
því frá þroti. Verðið á bréfunum í
félaginu náði hins vegar aldrei aftur
að verða eins hátt og það var þegar
Stím keypti hlutinn í félaginu.
Ákvörðun Samherja um að
kaupa ekki bréfin á þeim tíma
verður því að teljast góð þegar litið
er til baka.
Stím enn til rannsóknar
Kaup Stíms á hlutunum í FL Group
og Glitni hafa lengi verið til rann-
sóknar hjá Fjármálaeftirlitinu en
spurningin er sú hvort tilgangur
sölunnar til Stíms hafi mögulega
verið að hafa áhrif á gengi hluta-
bréfa í Glitni og FL Group. Slíkt gæti
flokkast sem markaðsmisnotkun
og þar með refsiverð háttsemi. Af
einhverjum ástæðum hefur Fjár-
málaeftirlitið hins vegar ekki séð
tilefni til að senda málið áfram til
sérstaks saksóknara íslenska efna-
hagshrunsins, líkt og embættið hef-
ur gert við tvö sams konar mál úr
hinum stóru viðskiptabönkunum,
kaup sjeiksins Al-Thanis á hluta-
bréfum í Kaupþingi sem og kaup
Imons á hlutabréfum í Landsbank-
anum. Í þeim málum áttu hluta-
bréfakaupin sér stað skömmu fyrir
efnahagshrunið í haust.
Hins vegar má fastlega reikna
með því að Stímmálið verði á end-
anum sent frá Fjármálaeftirlitinu
og til embættis sérstaks saksókn-
ara, samkvæmt heimildum DV.
SAMHERJI
ÍHUGAÐI
AÐ KAUPA
STÍMBRÉFIN
Samherji íhugaði að kaupa hlutabréfin í Glitni og FL Group sem síðar voru
sett inn í eignarhaldsfélagið Stím. Glitnir þurfti að halda bréfunum eftir þegar
Samherji ákvað að taka ekki þátt í Stími. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, segir að hlutabréfakaupin hafi verið til skoðunar.
IngI F. VIlhjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Stím og Samherji Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, segir að félagið hafi íhugað að kaupa
hlutabréf í Glitni og FL Group sem síðar fóru inn í
einkahlutafélagið Stím. Félagið Stím hefur verið til
rannsóknar vegna mögulegrar markaðsmisnotkunar.
hefndaraðgerðir. Rúnar Þór sagðist
þá óttast um öryggi sitt og fjölskyldu
sinnar og vildi heldur ekki upplýsa
um meintan höfuðpaur.
Jónas sagði fyrir dómi í gær að
hann hefði logið að Pétri Kúld og
Halldóri Hlíðari til að fá þá með sér
austur á Djúpavog. Hann hefði boðið
þeim í veiðiferð á slöngubátnum og
að hinir tveir hefðu ekki vitað um til-
gang ferðarinnar.
Jónas sagðist hafa orðið reiður
þegar hann sá hversu margar töskur
þeir áttu að flytja í land, en þær voru
um fjórfalt fleiri en honum hefði ver-
ið tjáð í upphafi. Hann hefði hins
vegar allan tímann staðið í þeirri trú
að í töskunum væru sterar.
átti að fá krossara
Halldór Hlíðar sagði fyrir dómi að fyrst
þegar hann var kominn út á sjó hefði
hann vitað að þeir ættu að sækja stera.
Honum hefði verið boðið í veiði- og
skemmtiferð. Fyrir dómi tók hann
það fram að hann ætti von á tveimur
börnum. Hann vildi heldur ekki tjá sig
hverjir voru um borð í skútunni, en í
framburði rannsóknarlögreglumanns
kom fram að Halldór Hlíðar hefði
líklega ekki komið að skipulagningu
smyglsins og verið samvinnufús í yf-
irheyrslu lögreglu. Hann tók það fram
fyrir dómi að honum fyndist hann
hafa verið blekktur.
Pétur Kúld flaug til Amsterdam 10.
mars síðastliðinn með sömu flugvél
og Rúnar Þór. Hann segir að sér hafi
verið brugðið þegar hann sá hversu
mikið var af efnum í bátnum en hann
hafi átt að fá krossara eða 250 þúsund
krónur fyrir að flytja sterana.
Aðalmeðferð í málinu verður hald-
ið áfram í dag.
ENGINN VILDI BENDA
Á SKÚTUMENNINA
Fyrir dómi vildi hann
ekki svara spurning-
um um hversu marg-
ir hefðu verið um
borð eða hverjir það
hefðu verið.