Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Síða 6
þriðjudagur 28. júlí 2009 fréttir
KR-sport telur sig eiga kröfu á hendur þrotabúi Samsonar vegna vangoldinna styrkja
við félagið. Þrotabú Samsonar hefur stefnt KR-sport vegna þess að skiptastjóri þess
telur Samson hafa lánað KR-sport milljónir. KR-sport telur hins vegar að um styrki
hafi verið að ræða sem Samson greiddi mánaðarlega til félagsins. Peningarnir voru
notaðir til að fjármagna starf annars flokks KR, svonefndrar Akademíu.
KR-sport telur sig eiga útistandandi
kröfu á hendur þrotabúi Samsonar,
eignarhaldsfélags Björgólfsfeðga,
upp á um 10 milljónir króna vegna
vangreiddra styrkja til fótbolta-
deildar KR, samkvæmt heimild-
um DV. Líkt og DV greindi frá í síð-
ustu viku hefur þrotabú Samsonar
stefnt KR-sport fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur vegna þess að skipta-
stjóri þrotabúsins, Helgi Birgisson,
telur að KR-sport skuldi þrotabú-
inu tæpar ellefu milljónir króna.
Samkvæmt stefnunni var fjár-
hæðin bókfærð sem lán í bókhaldi
Samsonar en KR-sport telur að
aldrei hafi verið um lán að ræða
heldur styrkveitingu, samkvæmt
heimildum DV, og leit á fjárveiting-
arnar sem slíkar.
Staðið við greiðslurnar
fram að hruni
Samson hafði staðið við skuld-
bindingar sínar gagnvart félaginu
í um tvö ár þar til við bankahrun-
ið í október, samkvæmt heimild-
um DV. Eftir það hættu greiðslurn-
ar að berast frá Samson en félagið
var sett í greiðslustöðvun þegar
Landsbankinn var yfirtekinn af
Fjármálaeftirlitinu þann 7. október
og stærsta eign félagsins, tæplega
helmingshlutur í Landsbankan-
um, varð verðlaus. Málatilbúnað-
ar KR-sport mun líklega byggjast á
því, samkvæmt heimildum DV, að
félagið eigi inni fé í þrotabúi Sam-
sonar vegna þess að greiðslurnar
hafi hætt að berast til félagsins þeg-
ar það varð gjaldþrota. Um er að
ræða verulegt fjárhagslegt tap fyrir
KR-sport því Samson var einn að-
alstyrktaraðili þess.
Engir samningar eru hins vegar
til um fjárveitingarnar frá KR-sport
til Samsonar, samkvæmt heimild-
um DV, en greiðslurnar bárust með
jöfnum hætti til félagsins í hverjum
mánuði. Greiðslurnar voru heldur
ekki bundnar við einhvern ákveð-
inn samningstíma heldur var litið
á greiðslurnar sem ótímabundnar
samkvæmt samkomulagi Samson-
ar og KR-sport. Forsvarsmönnum
KR-sport var því ekki kunnugt um
að greiðslurnar væru bókfærðar
sem lán í bókhaldi Samsonar.
Erfitt gæti því verið að reikna
út hversu mikinn skaða KR-sport
muni bera af gjaldþroti Samsonar
auk þess sem erfiðlega gæti gengið
hjá KR-sport að sanna að um styrki
hafi verið að ræða en ekki lán.
Notað fyrir Akademíuna
Styrkveitingar Samsonar til KR-
sport voru mánaðarlegar á síðustu
tveimur árum fyrir bankahrunið
og námu nokkur hundruð þúsund
krónum í hvert skipti, samkvæmt
heimildum DV. Peningarnir voru
fyrst og fremst notaðir til að fjár-
magna starf 2. flokks karla, KR
Akademíuna eins og hún er köll-
uð, sem ætlað er að vera útung-
unarstöð fyrir framtíðarleikmenn
meistaraflokks félagsins.
Aðalástæðan fyrir stuðningi
Samsonar við KR-sport kann að
vera sú að Björgólfur Guðmunds-
son, annar eigandi Samsonar,
er dyggur stuðningsmaður KR
og fyrrverandi stjórnarformaður
KR-sport. Slíkur stuðningur auð-
manna við uppáhaldsíþróttafé-
lögin sín var nokkuð algengur á Ís-
landi á árunum fyrir bankahrunið
en sem dæmi má nefna að Hann-
es Smárason styrkti Fram og Pálmi
Haraldsson styrkti Þrótt svo um
munaði.
Lögmaður KR-sport í málinu
er Hörður Felix Harðarson hæsta-
réttarlögmaður en ekki náðist í
hann við vinnslu fréttarinnar. Við
þingfestingu málsins í apríl síðast-
liðnum fékk KR-sport frest fram
á haust til að skila greinargerð í
málinu. Málið verður tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í haust
og mun þá skýrast hvort KR-sport
þarf að endurgreiða upphæðina
eða ekki og jafnframt hvort þrota-
bú Samsonar mun þurfa að greiða
KR styrkina vangoldnu eða ekki.
INgI F. VIlhjálmSSoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Eldheitur KR-ingur Félag Björgólfs,
greiddi KR-sport mánaðarlega
fjárhæð á síðustu tveimur árunum.
Byssumaðurinn á Barðaströnd er laus úr haldi lögreglunnar:
Treystir sér ekki til að tala
„Að svo stöddu viljum við ekki tjá
okkur. Við treystum okkur ekki í það
núna,“ segir Vilborg Gunnarsdóttir.
Eiginmaður hennar, Haraldur Ein-
arsson, var yfirbugaður af sérsveit-
inni aðfaranótt laugardags á Barða-
strönd á Vestfjörðum. Þar hafði hann
gengið berserksgang í húsi systra
sinn á jörðinni Haukabergi vopnað-
ur skotvopni.
Lögreglan á Vestfjörðum ósk-
aði eftir aðstoð sérsveitar ríkislög-
reglustjóra sem naut aðstoðar þyrlu
Landhelgisgæslunnar við að kom-
ast á vettvang. Haraldur var ölvaður
og var sleppt eftir yfirheyrslur. Lög-
reglan á Vestfjörðum segir hann ekki
hafa skotið úr byssunni en vill ekki
segja hvers konar skotvopn hann var
með á sér.
Vilborg segir þau hjónin ekki ætla
að tjá sig um málið og láta það sem
birtist á visir.is á sunnudag nægja.
Þar svaraði Vilborg, fyrir hönd þeirra
hjóna, ásökunum mágs Harald-
ar, Þórs Árnasonar, í hans garð. Þór
sagði í samtali við visir.is allt vera í
rúst í húsinu á Haukabergi. Þá sagði
Þór að Haraldur hefði hótað þeim
systrum síðan þær keyptu húsið.
Vilborg sagði á visir.is á sunnu-
dag að henni sárnuðu ummæli Þórs
og málið ætti sér mun lengri sögu.
Hún sagði ekkert afsaka gjörðir eig-
inmanns síns og líðan hans væri góð
miðað við aðstæður.
Haraldur hefur áður gengið ber-
serksgang, þá vopnaður haglabyssu.
Það var á heimili hans á Álftanesi
árið 2002. Lögreglan í Hafnarfirði
og víkingasveitin sátu í þrjá tíma um
svæðið og reyndu að tala hann til
áður en ráðist var til atlögu sem end-
aði með því að víkingasveitin yfir-
bugaði hann. Gleðskapur hafði verið
í húsinu og Haraldur var undir áhrif-
um áfengis. Fátt benti til þess að Har-
aldur hefði hleypt af skotum í húsinu
eins og í fyrstu var talið.
liljakatrin@dv.is
Yfirbugaður af sérsveit Sérsveit ríkislögreglustjóra yfirbugaði Harald. Myndin
tengist efni fréttarinnar ekki beint.
KR telur Samson
SKULDA SÉR fÉ
47 milljóna gróði
á djamminu
Sá sem vann tæpar 47 milljónir
króna í Lottóinu á laugardag er
ungur maður sem keypti mið-
ann þegar hann var að koma
heim frá því að skemmta sér
aðfaranótt laugardags. Miðann
keypti hann á N1 í Hafnarfirði.
Vinningshafinn ungi vitjaði
vinnings síns á skrifstofu Ís-
lenskrar getspár í gær og var þá,
að sögn starfsmanna hennar,
varla búinn að jafna sig á því
að vera einn með allar tölurnar
réttar í sexföldum Lottópotti og
þar með 47 milljónum króna rík-
ari. Hann hyggst nota peninginn
til að fara í nám.
Krónan stendur
í stað
Gengisvísitala krónunnar er því
sem næst sú sama og hún var
daginn sem Alþingi samþykkti
að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu. Stuðningsmenn
aðildar höfðu sumir hverjir sagt
að krónan myndi styrkjast um
leið og aðildarumsókn yrði sam-
þykkt en það hefur ekki gengið
eftir. Hins vegar lækkaði skulda-
tryggingaálag eftir samþykktina.
Gengisvísitalan stóð í 231,65
í gær en var 231,89 16. júlí, þegar
aðildarumsókn var samþykkt.
Krónan hefur styrkst gagnvart
dollara og pundi síðan aðildar-
umsókn var samþykkt en það
skýrist af veikingu þeirra gjald-
miðla frekar en styrkingu krón-
unnar.
Svínaflensa á
fótboltamóti
Ellefu ný tilfelli af nýju inflúens-
unni A(H1N1) hafa greinst á
Íslandi á síðustu tveimur sólar-
hringum, að því er segir á vef
Landlæknisembættisins. Frá því
í maí hefur flensan, oftast kölluð
svínaflensa, greinst í 34 einstakl-
ingum hér á landi.
Þau smituðu eru tveir 15
ára piltar sem komu af fót-
boltamóti í Gautaborg, 17 ára
spænsk stúlka sem tekið hafði
þátt í skátamóti hér á landi, 28
ára stúlka sem kom frá Ástr-
alíu, 5 ára drengur sem kom
frá Taílandi, 29 ára karlmaður
sem kom frá Kína nýverið. Auk
þeirra 17 ára stúlka, þrír 27 til
39 ára karlmenn og 27 ára kona
en ekkert þeirra hefur ferðast til
útlanda og óljóst er um tengsl
þeirra við smitaða einstaklinga.