Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. júlí 2009 fRéttIR
Leiðrétting
Allir styrkir sem heitið var
til skólastarfs í Gíneu-Bissá í
tengslum við glæsilega veislu
sem íslenskir auðmenn héldu
til styrktar UNICEF í desem-
ber 2005 skiluðu sér til UNIC-
EF. Í úttekt í helgarblaði DV um
veisluna sagði: „Líklega hafa
ekki allir peningarnir skilað
sér...“ DV hefur nú fengið stað-
fest hjá UNICEF að allir pening-
arnir skiluðu sér. Fons greiddi
sitt fyrir fram. FL Group og
Baugur borguðu sinn skerf einn-
ig áður en fyrirtækin fóru í þrot.
Björgólfur Thor Björgólfsson og Karl Wernersson segja það ekki satt að þeir hafi flutt
peninga frá Straumi og í skattaskjól í lok september í fyrra. Stöð 2 hélt þessu fram í
gær. Björgólfur segist íhuga málsókn gegn Stöð 2 út af fréttaflutningnum. Formaður
skilanefndar Straums kannast ekki við millifærslurnar. Magnús Þorsteinsson skuld-
ar Straumi rúman milljarð króna og gjaldféll lánið í september.
BJÖRGÓLFUR ÍHUGAR
MÁLSÓKN GEGN STÖÐ 2
Björgólfur Thor Björgólfsson, fyrr-
verandi aðaleigandi fjárfestinga-
bankans Straums-Burðaráss, segir
að það sé lygi að hann hafi flutt pen-
inga úr Straumi-Burðarás til skatta-
skjóla um það leyti sem íslenska
efnahagshrunið var að hefjast með
þjóðnýtingu Glitnis í lok september
síðastliðins. Stöð 2 hélt þessu fram í
kvöldfréttum í gær. Inntak fréttarinn-
ar var að Björgólfur Thor, Björgólfur
Guðmundsson, Magnús Þorsteins-
son og Karl Wernersson hefðu flutt
milljarða af innistæðum sínum úr
Straumi og til skattaskjóla.
„Ég botna hvorki upp né nið-
ur í þessari frétt... Þetta er lygi. Ég
færði enga peninga frá Íslandi og í
skattaskjól á þessum tíma. Það er á
hreinu,“ segir Björgólfur Thor í sam-
tali við DV. Björgólfur segir aðspurð-
ur að hann hafi ekki fært neina pen-
inga frá Íslandi fyrir eða eftir íslenska
efnahagshrunið.
Karl Wernersson hafði sömuleið-
is samband við Stöð 2 í kjölfar frétta-
rinnar þar sem hann sagði fréttina
fjarstæðu og að hann hefði aldrei átt
neinar innistæður í Straumi. Heim-
ildir DV herma að innistæðueigend-
ur í Straumi hafi verið fremur fáir,
um það bil tuttugu talsins, enda var
bankinn fyrst og fremst fjárfestinga-
banki.
Engir peningar á Íslandi
Björgólfur Thor segir að ein af ástæð-
unum fyrir því af hverju það geti ekki
staðist að hann hafi millifært pen-
inga frá Straumi til skattaskjóla sé
sú að hann hafi ekki átt neinar pen-
ingainnistæður hér á landi. „Í fyrsta
lagi, og við skulum ekki gleyma því,
voru engir peningar [innskot blaða-
manns: peningar Björgólfs] á Íslandi.
Ef eitthvað var þá færði ég peninga til
Íslands á þessum tíma,“ segir Björg-
ólfur Thor.
Aðspurður hvort hann ætli að fara
í mál við Stöð 2 út af fréttinni seg-
ir Björgólfur: „Ég mun skoða þetta
ofan í kjölinn á morgun [innskot
blaðamanns: í dag, þriðjudag]... Ég
býst við því. Það er ekki hægt að líða
þetta því það er verið að búa eitthvað
til úr engu. Þetta er út í hött.“
Skilanefndin kannast ekki við
millifærslurnar
Reynir Vignir, formaður skilanefndar
Straums-Burðaráss, segist í samtali
við DV aldrei hafa heyrt um milli-
færslurnar eða séð neinar upplýsing-
ar um þær í bókhaldi bankans. Hann
segist hins vegar ætla að kanna mál-
ið í dag, þriðjudag. Skilanefndin hef-
ur aðgang að upplýsingum um slík-
ar millifærslur og getur skorið úr um
hvort þær hafi átt sér stað eða ekki.
Samkvæmt upplýsingum frá nú-
verandi forsvarsmönnum Straums
kannast þeir í fljótu bragði ekki held-
ur við millifærslurnar en að þeir
muni athuga það betur í dag.
Ólíklegt að Magnús hafi átt
innistæður
Þeir Björgólfur og Karl hafa því báð-
ir neitað því að hafa átt innistæður í
Straumi og millifært fé þaðan í hrun-
inu. Eins er afar ólíklegt að Magnús
Þorsteinsson hafi átt slíkar innistæð-
ur. Ástæðan fyrir því er sú að Straum-
ur-Burðarás keyrði Magnús í þrot í
maí síðastliðnum vegna vanefnda
við bankann.
Magnús skuldar Straumi rúman
milljarð króna vegna sjálfskuldar-
ábyrgðar sem hann skrifaði upp á
árið 2007 þegar hann keypti BOM-
fjárfestingar af fjárfestingafélag-
inu Sjöfn. BOM-fjárfestingar
fengu lánið frá Straumi-Burða-
rás árið 2005 og tók Magnús
það yfir.
Straumur gerði ítrekaðar
tilraunir til að fá skuldina
greidda upp eftir að hún
hafði gjaldfallið í byrj-
un september árið 2008,
samkvæmt úrskurði
Héraðsdóms Norður-
lands frá því í maí. Þegar
það gekk ekki fór bank-
inn í hart við Magn-
ús og stefndi honum.
Ef Magnús hefur átt
innistæður í Straumi
hefur fjárfestinga-
bankinn heim-
ilað honum að
millifæra fé sitt
af reikningum
bankans um
sama leyti
og skuld
hans við
bankann
gjaldféll.
IngI F. VIlhjálMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Ég botna hvorki upp
né niður í þessari frétt...
Þetta er lygi.“
Segja frétt Stöðvar 2 ranga Björgólfur
Thor Björgólfsson og Karl Wernersson
neita því að hafa flutt peninga af reikn-
ingum sínum í Straumi og til skattaskjóla
skömmu fyrir efnahagshrunið í haust.
Hæpið er að Magnús Þorsteinsson hafi átt
innistæður í bankanum sem setti hann í
þrot vegna vanefnda í maí.
Miðstöð fjármagnsflutninganna
Samkvæmt fréttinni áttu peningarnir að
hafa verið fluttir af reikningum í Straumi-
Burðarási.
Björgólfur og
Magnús Sagðir hafa
flutt mikið fé úr landi.
Fluttu hundruð
milljóna úr landi
Lárus Welding og Bjarni Ár-
mannsson fluttu hvor um sig í
kringum 300 milljónir króna úr
landi skömmu áður en bankinn
var ríkisvæddur. Þetta kom fram
í kvöldfréttum Útvarpsins í gær.
Þar var byggt á skýrslum end-
urskoðunarfyrirtækja sem voru
fengin til að skoða bankana eftir
hrun þeirra.
Í annarri skýrslunni kom
fram að Lárus Welding hefði tek-
ið nær allt fé sitt út af reikning-
um í bankanum, 318 milljónir
króna, og í hinni skýrslunni kom
fram að kona hans hefði flutt
325 milljónir króna úr landi. Þá
kom fram að Bjarni Ármanns-
son hefði tekið út rúmlega 260
milljónir króna og að hann hefði
í einni færslu flutt um 700 þús-
und norskar krónur á reikning í
Noregi.
Ísland rætt á
mánudag
Yfirstjórn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins fundar um málefni Ís-
lands og endurskoðun efna-
hagsáætlunar sjóðsins hér á
landi á mánudag, frídag verslun-
armanna. Upphaflega stóð til að
þessi endurskoðun færi fram í
febrúar en hefur frestast ítrekað
vegna þess að skilyrði fyrir að
taka endurskoðun efnahagsá-
ætlunarinnar fyrir og greiða út
lán hafa ekki verið uppfyllt.
Rafmagnið
verður dýrara
Rafmagnsreikningur lands-
manna hækkar á næstunni
því orkufyrirtækin hækka
gjaldskrá sína um mánaða-
mót.
Hækkunin er mismikil frá
einu orkufyrirtæki til annars
að því er kom fram í fréttum
Ríkisútvarpsins í gærkvöldi.
Ræðst það nokkuð af því
hvort kaupandi er í þéttbýli
eða dreifbýli. Þannig hækkar
meðalrafmagnsreikning-
urinn um 140 krónur hjá
Orkuveitu Reykjavíkur en
900 krónur hjá þeim sem eru
með rafhitun frá Orkusölunni
á landsbyggðinni.