Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Page 16
Marta Guðjónsdóttir
formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í reykjaVík
Marta fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp, í Þingholtunum og Vesturbæn-
um. Hún var í Melaskóla, Hagaskóla,
lauk stúdentspróf frá MS og stund-
aði nám í bókmenntafræði og stjórn-
málafræði við HÍ.
Á unglings- og námsárunum starf-
aði Marta m.a. hjá Leikfélagi Reykja-
víkur í Iðnó, fyrir ferðaskrifstofuna
Land og sögu, var kokkur á sand-
dæluskipinu Perlunni og sinnti verk-
efnastjórn og prófarkalestri. Hún hóf
kennslu við Hagaskólann í Reykja-
vík 1985 og hefur kennt við borgar-
rekna og einkarekna skóla, síðast við
Tjarnarskóla í Reykjavík. Hún sinnti
dagskrárgerð við Bylgjuna 1989-‘90,
starfaði við DV um skeið og hefur nú
umsjón með þættinum Borgarlíf við
sjónvarpsstöðina ÍNN.
Marta sat í stjórn Heimdallar 1979-
‘80 og var framkvæmdastjóri félagsins
um skeið, sat í stjórn Félags sjálfstæð-
ismanna í Nes- og Melahverfi frá 1996,
var formaður félagsins 2004-2007 og
hefur verið formaður Varðar, fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
fyrst kvenna, frá 2007. Hún hefur setið
í miðstjórn og flokksráði Sjálfstæðis-
flokksins frá 2007.
Marta hefur setið í borgarstjórnar-
flokki Sjálfstæðisflokksins frá 2002, er
varaborgarfulltrúi frá 2006, sat í um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd Reykja-
víkur 2002-2006, í Hverfisráði Kjalar-
ness frá 2003 og verið formaður þess
frá 2006, situr í menntaráði Reykja-
víkur frá 2006, hefur setið í menn-
ingar- og ferðamálaráði Reykjavík-
ur, í Íþrótta- og tómstundaráði og er
formaður Mannréttindaráðs Reykja-
víkurborgar. Hún var varaformað-
ur Delta - Kappa - Gamma, félags
kvenna í fræðslu og menningarstörf-
um 2003-2006.
Fjölskylda
Eiginmaður Mörtu er Kjartan Gunnar
Kjartansson, f. 27.6. 1952, heimspek-
ingur og blaðamaður. Hann er sonur
Kjartans Magnússonar, f. 15.7. 1917,
d. 3.12. 1998, kaupmanns í Reykjavík,
og k.h., Guðrúnar H. Vilhjálmsdóttur,
f. 3.11. 1922, húsmóður og kennara.
Börn Mörtu og Kjartans Gunnars
eru Vilhjálmur Andri Kjartansson, f.
20.9. 1982; Steinunn Anna Kjartans-
dóttir, f. 1.2. 1984, en maður hennar
er Hallbjörn Magnússon og er dóttir
þeirra Vigdís Anna Hallbjarnardóttir,
f. 7.4. 2008.
Dóttir Kjartans Gunnars frá því
áður er Perla Ósk, f. 6.4. 1979, og er
sonur hennar Rúnar Lee Winsh, f.
27.12. 2003.
Systkini Mörtu eru Steinar Þór
Guðjónsson, f. 20.5. 1955 en kona
hans er Jolanta Polanska og eiga þau
tvær dætur; Hilmar Guðjónsson, f.
28.12. 1957 en kona hans er Agnes
Henningsdóttir og eiga þau þrjú börn;
Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir, f.
28.7. 1959 en maður hennar er Ágúst
Einarsson og á hann þrjú börn.
Foreldrar Mörtu eru Guðjón Þ.
Andrésson, f. 29.3. 1933, fyrrv. for-
stöðumaður í Reykjavík, og k.h., Árna
Steinunn Rögnvaldsdóttir, f. 5.5. 1932,
húsmóðir í Reykjavík.
Ætt
Guðjón er sonur Andrésar, skipstjóra
og b. í Berjanesi undir Eyjafjöllum
Andréssonar, b. í Steinum Pálsson-
ar. Móðir Andrésar í Berjanesi var
Katrín, systir Jóhönnu, ömmu Þórð-
ar Tómassonar, safnvarðar í Skógum.
Katrín var dóttir Magnúsar, b. í Þor-
lákshöfn Magnússonar.
Móðir Guðjóns Andréssonar var
Marta Guðjónsdóttir, b. á Raufarfelli
Vigfússonar, b. á Raufarfelli, bróður
Sveins í Selkoti, langafa Höllu Mar-
grétar Árnadóttur óperusöngkonu,
og langafa Jóns, föður Evu Maríu dag-
skrárgerðarmanns. Vigfús var sonur
Jóns, b. á Lambafelli, bróður Guð-
laugar, langömmu Ingibjargar, móð-
ur Davíðs Oddssonar, fyrrv. forsætis-
ráðherra. Jón var einnig bróðir Jóns,
langafa Jóns Helgasonar, fyrrv. ráð-
herra frá Seglbúðum. Móðir Vigfúsar
var Guðný Vigfúsdóttir. Móðir Mörtu
í Berjanesi var Þorbjörg Jónsdóttir, b.
í Miðbæli Einarssonar, b. á Minni-
Borg Péturssonar, bróður Erlends,
langafa Oddgeirs Kristjánssonar
tónskálds og séra Sigurðar Einars-
sonar í Holti. Móðir Þorbjargar var
Margrét Jónsdóttir. Móðir Margrét-
ar var Margrét Ögmundsdóttir, systir
Guðmundar, langafa Ása í Bæ, föður
Kristínar Ástgeirsdóttur, fyrrv. alþm.
Árna Steinunn er dóttir Rögnvald-
ar, verkstjóra í Slippnum í Reykjavík
Guðbrandssonar, b. í Sælingsdals-
tungu Ormssonar, b. í Berserkja-
hrauni í Helgafellssveit Brandssonar,
hreppstjóra á Hvoli í Saurbæ, bróður
Vigfúsar, langafa Björns Guðfinns-
sonar prófessors, föður Fríðu, fyrrv.
framkvæmdastjóra Blaðamanna-
félags Íslands, en systir Björns var
Agnes, móðir Björns Jónssonar, fyrrv.
skólastjóra Hagaskóla. Annar bróð-
ir Brands var Guðmundur, langafi
Kristjönu, ömmu Garðars Cortes
óperusöngvara, föður Garðars Thors
Cortes óperusöngvara. Þriðji bróð-
ir Brands var Sigurður, langafi Rósa-
mundu, ömmu Ingibjargar Þorbergs
söngkonu. Fjórði bróðir Brands var
Jón, langafi Eggerts, langafa Birgis
Ármannssonar alþm. Brandur var
sonur Orms, ættföður Ormsættar
Sigurðssonar. Móðir Rögnvaldar var
Guðríður Sólmundardóttir, b. á Mjó-
hóli Jónssonar, og Guðrúnar Guð-
brandsdóttur.
Móðir Árnu Steinunnar var Stein-
unn, systir Ingveldar, ömmu Hel-
enu Eyjólfsdóttur söngkonu. Bróðir
Steinunnar var Árni, faðir Sigurðar,
fyrrv. skipherra, föður Steinunnar,
fatahönnuðar og borgarlistamanns
2009. Steinunn eldri var dóttir Þor-
kels, b. í Lambhaga Árnasonar,
bróður Guðrúnar, langömmu Víg-
lundar Þorsteinssonar forstjóra.
Móðir Steinunnar var Ingveldur, syst-
ir Sigurbjargar, ömmu Guðmundar
Björnssonar læknaprófessors. Önn-
ur systir Ingveldar var Sigríður, lang-
amma Harðar Sigurgestssonar, fyrrv.
forstjóra Eimskips. Ingveldur var
dóttir Jóns, hreppstjóra og ættföð-
ur Setbergsættar Guðmundssonar,
ríka í Miðdal Eiríkssonar, hálfbróð-
ur Einars á Álfsstöðum, langafa Guð-
mundar frá Miðdal, föður Errós og
Ara Trausta. Einar var einnig langafi
Sigríðar, móður Vigdísar Finnboga-
dóttur.
Ragnhildur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún var í Melaskóla
og Hagaskóla, lauk stúdentsprófi
frá FB, BA-prófi í sagnfræði frá HÍ,
diplómaprófi í hagnýtri fjölmiðl-
un og prófi í uppeldis- og kennslu-
fræði frá HÍ.
Ragnhildur hefur kennt á öllum
skólastigum og kennir nú við Fjöl-
brautaskólann við Ármúla. Hún
var stundakennari við KHÍ og er
umsjónarmaður þáttarins Neyt-
endavaktin á sjónvarpsstöðinni
ÍNN. Hún er annar höfunda Fjár-
ans, námsefnis í fjármála- og neyt-
endafræðslu fyrir framhaldsskóla.
Ragnhildur var varaþingmaður
í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 2007-2009, sat
í stjórn Hvatar, í stjórn SUS, og er
formaður Félags sjálfstæðismanna
í Hóla- og Fellahverfi frá 2007. Hún
sat í nefnd Norræna ráðherraráðs-
ins um neytendafræðslu á Norður-
löndum 1996-2004, sat í nefnd iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytisins
um útgáfu námsefnis í lífsleikni, er
varaformaður Hverfisráðs Breið-
holts, situr í Fjarskiptaráði, situr í
Orkulaganefnd, er formaður Fé-
lags lífsleiknikennara í framhalds-
skólum, hefur setið í stjórn Neyt-
endasamtakanna frá 1986 og er
varaformaður þeirra frá 2003.
Fjölskylda
Eiginmaður Ragnhildar er Ágúst
Einarsson, f. 18.8. 1948, viðskipta-
fræðingur. Hann er sonur Einars
G. Guðmundssonar, f. 21.1. 1905,
d. 1.4. 1992, skrifstofumanns í
Reykjavík, og Margrétar S. Ágústs-
dóttur, f. 15.3. 1909, d. 24.7. 1992,
húsmóður.
Börn Ágústs eru Jóhannes, f.
22.6. 1966, kaupmaður í 12 tónum;
Hreinn, f. 16.11. 1976, kerfisfræð-
ingur í Reykjavík; Andrea Brabin,
f. 25.12. 1968, framkvæmdastjóri
Eskimo, og á hún tvö börn.
Foreldrar Ragnhildar eru Guð-
jón Þ. Andrésson, f. 29.3. 1933, fyrrv.
forstöðumaður í Reykjavík, og k.h.,
Árna Steinunn Rögnvaldsdóttir, f.
5.5. 1932, húsmóðir í Reykjavík.
Ragnhildur heldur upp á dag-
inn með fjölskyldu sinni, tvíbura-
systur og fjölskyldu hennar.
Birgitta fæddist á Húsavík og ólst þar
upp til átján ára aldurs er hún flutti
til Reykjavíkur. Hún var í Barnaskóla
Húsavíkur, stundaði nám við Fram-
haldsskólann á Húsavík og síðan við
Framhaldsskólann á Laugum, hef-
ur stundað nám við HR. Hún lauk
söngnámi við Complete Vocal Inst-
itute í Kaupmannahöfn árið 2008
og stundar nú söngkennaranám við
sama skóla.
Birgitta hóf ung að syngja á Húsa-
vík, á jólasamkomum og barna-
skemmtunum, hóf síðan söngfer-
il sinn fyrir alvöru er hún tók þátt í
söngsýningunni ABBA á Broadway
árið 1998, hefur verið söngkona með
hljómsveitinni Írafár og sungið á eig-
in vegum síðan.
Birgitta tók þátt í Söngvakeppni
framhaldsskólanna 1998, tók þátt í
Eurosivion-keppninni fyrir hönd Ís-
lands í Riga í Lettlandi 2003 og söng
aðalhlutverkið í söngleiknum Grease
í Borgarleikhúsinu 2003. Hún hefur
sungið inn á þrjár plötur með hljóm-
sveitinni Írafár og sent frá sér þrjár
sólóplötur auk þess sem hún hefur
komið að flutningi fjölda annrarra
hljómplatna hinna ýmsu tónlistar-
manna.
Birgitta er virkur félagi í FTT, Fé-
lagi textahöfunda og tónskálda, og
hefur setið þar í ýmsum nefndum.
Fjölskylda
Eiginmaður Birgittu er Benedikt Ein-
arsson, f. 22.10. 1981, lögfræðing-
ur. Foreldrar hans er Einar Sveins-
son, f. 3.4. 1948, fyrrv. forstjóri Sjóvár
- Almennra trygginga hf, og Birna
Hrólfsdóttir, f. 4.2. 1948, grunnskóla-
kennari.
Sonur Birgittu og Benedikts er
Víkingur Brynjar Benediktsson, f.
25.6. 2009.
Systkini Birgittu: Reynir Garðar
Brynjarsson, f. 1974, rafvirki og spil-
maður hjá Landhelgisgæslunni; Sig-
urbjörn Sigurðsson, f. 1975, d. 1993,
nemi; Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir,
f. 1988, nemi.
Foreldrar Birgittu eru Anna Hauk-
dal Jónsdóttir, f. 9.8. 1957, starfsmað-
ur Landsbankans, og Brynjar Vík-
ingsson, f. 24.6. 1956, húsasmiður.
Birgitta ætlar að njóta afmæl-
isdagsins í faðmi fjölskyldunnar
með eiginmanni og nýfæddum syni
þeirra.
Ragnhildur B. Guðjónsdóttir
menntaskólakennari
Birgitta Haukdal
söngkona
50 ára í dag 30 ára í dag
30 ára
n Kjartan Guðmundsson Stigahlíð 22, Reykjavík
n Fiona Elizabeth Oliver Hraunbæ 158, Reykjavík
n Dipa Rana Gurung Laufbrekku 1, Kópavogi
n Sigríður Jóna Guðmundsdóttir Hörðukór 3,
Kópavogi
n Björn Guðjónsson Fléttuvöllum 25, Hafnarfirði
n Lilja Gísladóttir Miðgarði 4, Egilsstöðum
n Sveinn Ingi Steinþórsson Hamravík 24, Reykjavík
n Hulda Emilsdóttir Brávöllum 10, Egilsstöðum
n Ásta Guðlaug Þorkelsdóttir Efstahjalla 1a,
Kópavogi
n Soffía Ösp Bæringsdóttir Miðtúni 52, Reykjavík
n Tryggvi Jónasson Veghúsum 25, Reykjavík
n Mikael Þór Viðarsson Sólvöllum 10, Egilsstöðum
n Dagný Skarphéðinsdóttir Fellsmúla 2, Reykjavík
n Reynir Alfreð Sveinsson Baugakór 20, Kópavogi
n Laila Sif Cohagen Hringbraut 84, Reykjavík
n Íris Mjöll Valdimarsdóttir Árbakka 11, Selfossi
n Halldóra Valgerður Steinsdóttir Hraunbæ 98,
Reykjavík
n Robert Przekupien Eyrarvík, Akureyri
n Ulaiwan Phiobaikham Víkurbraut 32, Grindavík
40 ára
n Teresa Kowalska Fífumóa 3c, Reykjanesbæ
n Ryszard Bronislaw Grzybowski Berjavöllum 1,
Hafnarfirði
n Ragnheiður Jóna Ármannsdóttir Akraseli 6,
Reykjavík
n Þóra Björk Kristjánsdóttir Mosprýði 4, Garðabæ
n Bjarni Þór Ólafsson Súluhöfða 17, Mosfellsbæ
n Guðrún Björk Þrastardóttir Langagerði 76,
Reykjavík
n Garðar Jónsson Hraunbæ 23, Reykjavík
n Helgi Jónsson Hraunbæ 23, Reykjavík
n Jón Arnar Magnússon Smáragrund 10,
Sauðárkróki
n Charlotte Vest Pedersen Hverfisgötu 10,
Hafnarfirði
n Andrzej Wisniewski Hlíðardalsskóla, Ölfusi
n Beata Sylwia Onichimowska Miklubraut 78,
Reykjavík
50 ára
n Einar Bogi Sigurðsson Hvammsgerði 13, Reykjavík
n Anna Björg Haukdal Bæjargili 85, Garðabæ
n Hannes Rútsson Hofteigi 52, Reykjavík
n Guðmundur Einarsson Langagerði 98, Reykjavík
n Jón Viðar Matthíasson Heiðarási 5, Reykjavík
n Elín Kristín Björnsdóttir Birkibergi 2, Hafnarfirði
n Níels Níelsson Seilugranda 3, Reykjavík
60 ára
n Sigurlaug Hauksdóttir Akurgerði 14, Reykjavík
n Helga Hjálmtýsdóttir Grenimel 7, Reykjavík
n Bryndís Guðbjartsdóttir Borgartúni 34, Reykjavík
n Guðlaug Magnúsdóttir Presthúsabraut 33,
Akranesi
n Guðmunda Wiium Túnbrekku 12, Ólafsvík
n Gunnar Þórólfsson Núpalind 2, Kópavogi
n Hafdís Jónsdóttir Jöklaseli 23, Reykjavík
n Valdimar Þórhallsson Mýrartúni 4, Akureyri
n Sigrún Ingvarsdóttir Héðinshöfða 2a, Húsavík
n Ómar Bragi Walderhaug Kirkjuvegi 16, Ólafsfirði
n Jón Barðason Engjaseli 58, Reykjavík
70 ára
n Guðný Kristjana Vilhjálmsdóttir Litlagerði 6,
Hvolsvelli
n Jenný Karlsdóttir Víkurgili 19, Akureyri
75 ára
n Ólafur Bjarki Ragnarsson Engihjalla 17, Kópavogi
n Guðrún Einarsdóttir Blikahólum 2, Reykjavík
n Elín Guðmannsdóttir Mávabraut 1a, Reykjanesbæ
n Sigríður Gísladóttir Gilsárstekk 3, Reykjavík
n Kristín Jóhannsdóttir Hvannalundi 11, Garðabæ
80 ára
n Magnea Hólmfríður Magnúsdóttir Bæjartúni
13, Ólafsvík
n Halldór Geir Halldórsson Fossvogsbletti 2a,
Reykjavík
n Árni Hermannsson Gullsmára 9, Kópavogi
n Dóróthea Júlía Eyland Víðimýri 8, Akureyri
85 ára
n Katla Magnúsdóttir Árskógum 6, Reykjavík
n Pálína Jónsdóttir Fannborg 5, Kópavogi
n Jón Ágústsson Höfðabraut 5, Hvammstanga
Til
hamingju
með
afmælið!
50 ára í dag
16 þriðjudagur 28. júlí 2009 ættfræði