Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Qupperneq 17
Armstrong þriðji
á dAuðum fiðrildum
sport 28. júlí 2009 þriðjudagur 17
Bandaríska hjólreiðagarpinum
Lance Armstrong tókst ekki hið ótrú-
lega, að sigra í Frakklandshjólreiðun-
um, Tour de France, í áttunda skiptið
eftir fjögurra ára hlé. Hann þurfti að
sætta sig við þriðja sætið sem er þó
ómannlegur árangur miðað við æf-
ingar síðustu mánuði, fáar keppnir
í undirbúningi og að hafa viðbeins-
brotnað fyrr á árinu. Hann hjólaði
í mark á afar sérstöku hjóli, þöktu
dauðum fiðrildum, og þurfti að horfa
upp á samherja sinn, Alberto Conta-
dor, fagna sigri. Þeim er ekki vel hvor-
um við annan. Armstrong kveður nú
hið geysisterka Astana-lið og mætir á
næsta ári með sitt eigið.
Í mark á dauðum fiðrildum
Spánverjinn Alberto Contador, sem
sigraði í Frakklandshjólreiðunum
þetta árið, var meira og minna bú-
inn að tryggja sér sigur á næstsíðasta
degi með ótrúlegri frammistöðu á
einum erfiðasta fjallaáfanga keppn-
innar. Þrátt fyrir að bera sigur úr být-
um í þessari stærstu hjólreiðakeppni
heims þurfti Contador að sætta sig
við að allt snerist um Lance Arm-
strong. Á lokadeginum vakti Arm-
strong mikla athygli þegar hann
notaðist við hjól gert af frægum lista-
manni, Damien Hirst, sem var þakið
myndum af dauðum fiðrildum.
„Ég bað Damian um að gera hjól
fyrir mig sem hann sættist á. Ég safna
verkum eftir hann og á mörg,“ sagði
Armstrong um hjólið sem verður
síðan selt á uppboði. „Þegar þetta
hjól verður selt verður það dýrasta
hjól sem nokkurn tíma hefur verið
keypt,“ sagði Armstrong enn frem-
ur en peningurinn fer í að styrkja
krabbameinsrannsóknir. Dýravin-
um í París á lokadeginum fannst
þetta þó ekki sniðugt og sögðu þetta
ógeðfellt.
Nýtt lið á næsta ári
Armstrong og Contador eru allt ann-
að en vinir og ásakaði Bandaríkja-
maðurinn samherja sinn um að fara
ekki eftir liðsreglum á lokaáföng-
um keppninnar. Þegar hann átti að
halda hraða gaf hann í og stakk alla
af. „Mér leið bara svo vel á þessum
áföngum að ég ákvað að nýta mér
það og stinga keppinauta mína af,“
sagði Contador sem er aðeins einn
af fimm mönnum sem hafa unnið
allar stóru hjólreiðarnar, Spánar, Ít-
alíu og Frakklands.
Armstrong var hrókur alls fagn-
aðar við endamarkið en eftir að hann
steig af verðlaunapallinum fór hann
ekki einu sinni í sigurveislu Conta-
dors og Astana-liðsins. Hann fór út
að borða með fjárfestum sínum úr
rafmagnstækjabúðinni Radioshack
en nýtt lið með því nafni er í burð-
arliðnum og mun Armstrong mæta
undir sínu eigin merki á næsta ári.
Hann viðurkenndi fúslega að
honum hefði einfaldlega verið skák-
að í ár. „Ég gerði mitt besta en hérna
voru bara menn sem voru einfald-
lega betri en ég. Þriðja sætið er samt
frábær árangur miðað við það sem
á undan hefur gengið hjá mér. Þetta
eru búnar að vera erfiðar þjár vikur
eins og venjulega og nú fer ég í frí.
Svo sannarlega,“ sagði Lance Arm-
strong.
Lance Armstrong varð þriðji í Frakklandshjól-
reiðunum, Tour de France, sem lauk um helgina.
Hann þurfti að horfa á eftir sigrinum til síns helsta keppinautar
en þó samherja síns, Albertos Contador. Þetta er þó magnað-
ur árangur hjá Bandaríkjamanninum sem notaði afar sérstakt
hjól á lokadeginum.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Meistarinn Alberto Contador sigraði í Frakklandshjólreiðunum en hann og
Armstrong eru engir vinir.
Dauðu fiðrildin Lance Armstrong
endaði í þriðja sæti í Frakklandshjól-
reiðunum. Hann kom í mark á afar
áhugaverðu hjóli.
ALLT FYRIR NEYTANDANN