Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Side 21
á þ r i ð j u d e g i
Kvennahatarar vinsælastir
Karlar sem hata konur rauk beint á topp aðsóknarlista kvikmynda-
húsanna um helgina en myndin var frumsýnd á föstudaginn. Ríf-
lega níu þúsund og eitt hundrað manns sáu myndina um helgina
sem telst mjög gott á íslenskan mælikvarða. Sjálfum Harry Potter
var þar með rutt úr efsta sætinu en nýjasta myndin um hann hafði
aðeins verið þar í eina viku. Þriðja Ísaldarmyndin er í þriðja sæti.
Þetta reddast!
á FacebooK
Myndir frá tökum íslensku gam-
anmyndarinnar Þetta reddast! eru
komnar á Facebook-síðu mynd-
arinnar. Myndinni er leikstýrt af
Berki Gunnarssyni sem áður hefur
gert myndina Sterkt kaffi en er lík-
lega þekktastur fyrir að hafa starfað
fyrir NATO í Írak og skrifað bókina
Hvernig ég hertók höll Saddams sem
kom út í fyrra. Stefnt er að frumsýn-
ingu Þetta reddast! næsta sumar en
aðalhlutverkin eru í höndum Bjarn-
ar Thors, Guðrúnar Bjarnadóttur,
Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og
Jóns Páls Eyjólfssonar.
áttu Fjar-
stýringuna
úr sódómu?
Manstu eftir húfu Nóa Albínóa,
ísmolanum úr James Bond, riffl-
inum úr Skyttunum, kokteila-
hristaranum úr Stellu í orlofi
eða fjarstýringunni úr Sódómu
Reykjavík? Alþjóðleg kvikmynda-
hátíð í Reykjavík og Norræna
húsið óska eftir leikmunum,
búningum og öðrum munum
sem tengjast kvikmyndasögu Ís-
lands fyrir föstudaginn 14. ágúst.
Þessir munir öðlast nýtt hlutverk
á sýningu sem sett verður upp á
sérstökum Bíóbar í sýningarými
kjallara Norræna hússins með-
an á hátíðinni stendur 17. til 27.
september næstkomandi. Þeir
sem lána muni á sýninguna fá
frímiða á Alþjóðlega kvikmynda-
hátíð.
Fyrsta úthverFi
reyKjavíKur?
Síðasta Kvosarganga júlímánaðar
fer fram á fimmtudaginn. Í göng-
unni verður farið um Grjótaþorp-
ið og skoðaðar þær fjölbreytilegu
birtingarmyndir íbúðarhúsa sem þar
eru, allt frá lágreistum timburhúsum
til splunkunýrra glæsihúsa. Sumir
vilja meina að Grjótaþorpið sé fyrsta
úthverfi Reykjavíkur þar sem það
heyrði ekki beinlínis undir þorpið
Reykjavík þegar það byrjaði að byggj-
ast. Það er að minnsta kosti sannar-
lega fyrsta íbúðarhverfi borgarinnar.
Leiðsögumaður verður Guja Dögg
Hauksdóttir arkitekt. Lagt er af stað
úr Grófinni á milli Tryggvagötu 15 og
17. Gangan hefst klukkan 20 og tekur
um klukkustund. Þátttaka er ókeypis.
Bækurnar um galdradrenginn Harry
Potter eru einhverjar þær vinsæl-
ustu og mest lofuðu bækur síðustu
ára en sömu sögu er ekki að segja
um tölvuleikina. Á meðan mynd-
irnar hafa verið nokkuð fínar hafa
tölvuleikirnir yfirleitt verið slakir.
Harry Potter and the Half-Blood
Prince er þar engin undantekning
þó svo að kvikmyndin þyki sú besta
hingað til.
Ef þú hefur ekki lesið bókina og
ert ekki Harry Potter-nörd dauðans
þá er saga leiksins frekar ruglingsleg
og slök. Hún heldur áhuga manns
engan veginn gangandi og manni
er nokkuð sama um hvað kemur
næst. Eins og í öðrum Potter-leikjum
samanstendur hann mest af litlum
smáleikjum og þrautum sem fleyta
manni áfram. Í þessum leik ertu í
raun að gera sömu þrjá hlutina aftur
og aftur, sem verður mjög þreytandi.
Í fyrsta lagi þarf maður að gera
töfraseið eða blanda galdraformúl-
ur. Í fyrstu er þetta ágætisáskorun en
eftir því sem líður á leikinn fer þetta
bara að verða kvöð og pína. Í öðru
lagi þarf maður að elta litla gullbolt-
ann í töfrakústarallinu Quidditch.
Það reynir lítið á hæfileika manns
með stýripinnann og er alltof ein-
falt og auðvelt til að teljast almenni-
leg áskorun. Í þriðja lagi er það svo
baráttan við óvinina þar sem maður
þarf að fara með sömu töfraþulurn-
ar aftur og aftur til þess að sigra þá.
Maður fær það fljótt á tilfinning-
una að leikurinn sé ekki gerður af
sömu ástríðu og myndin eða bókin.
Heldur meira eins og partur af ein-
hverju framleiðsluplani til þess að
græða enn meiri pening.
Ásgeir Jónsson
Harry enn þá slakur
Það má með sanni segja að Banda-
ríkjamenn hafi á síðustu árum misst
taktinn þegar kemur að því að gera
slagsmálamyndir. Í raun hafa þeir
ekki haft neitt til málanna að leggja
síðan faxið á Steven Seagal feykti
mönnum til og frá um miðjan síð-
asta áratug. Austurlenskar bardaga-
myndir hafa hinsvegar blómstrað á
sama tíma undir handleiðslu manna
eins og Donnie Yen, Tony Jaa og Jet
Li (sem gerir miklu betri og flott-
ari myndir í Asíu en nokkurn tíma í
Bandaríkjunum). Hins vegar hefur
orðið mikil sprenging í áhuga ungra
karlmanna á bardagaíþróttum frá því
að MMA fór að ryðja sér til rúms á
vinsældalistunum.
Fyrst kom glimmersprengjan
Never Back Down, svo Mamet-nú-
tíma-samúræja-sagan Redbelt og nú
loks kemur Fighting. Þar erum við
dregin inn í heim götuslagsmála í
New York, þar sem veðmangarar fara
mikinn. Ber þá að nefna að sá heimur
er með ótrúverðugra móti og dansar
í raun á landamærum þess yfirdrifna
annars vegar og hins fáranlega hins
vegar. Hvort það hafi haft einhver
áhrif að MMA skuli enn vera bannað
í New York kemur ekki fram. Chann-
ing Tatum leikur Shawn MacArthur,
ungan dreng frá miðríkjum Banda-
ríkjanna, sem flúði vandamál sín til
New York. Þegar svo gamall krimmi
(bílasalatýpa leikin af Terrence How-
ard) sér hann lemja nokkra, vill
hann ólmur koma honum að í veð-
mála-slagsmálin og auðvitað vindur
það upp á sig. Hann kynnist stelpu,
kynnist krimmanum, kynnist strák-
um, kynnist sjálfum sér. Hittir gaml-
an andstæðing frá því í háskóla og
allt saman með bros á vör.
Málið með Channing Tatum er að
hann er svo ósympatískur sem leik-
ari að það hálfa væri nóg. Hins veg-
ar á hann nokkra spretti, þar sem
hann virkilega virðist vera ógeðslega
sæti, en algjörlega persónuleikalausi
strákurinn og þá erum við að tala
saman. Terrence Howard er auðvit-
að frábær í sínu hlutverki, en það er
samt sem áður mjög leiðinlegt að sjá
jafn góðan leikara leggja nafn sitt við
jafn slappa mynd. Aðrir eru óeftir-
minnilegir.
Það er í raun ekkert gott við
Fighting, en ekkert slæmt heldur,
nema slagsmálaatriðin sjálf, sem er
bardagakvikmynd ekki til framdrátt-
ar. Mikið er gert úr glímuhæfileik-
um Channing, en sjaldan sjáum við
hann nota þau.
Hver einasti maður sem hann
keppir á móti minnir mann rækilega
á að þarna eru líklega einhver hörku-
tól á ferðinni, á meðan hinn er leikari.
Þó var gaman að sjá hinn afskaplega
hæfileikaríka Chung Lee, og hans at-
riði er með þeim sterkari. Annars er
hér ekkert nýtt undir sólinni, vilji fólk
sjá verulega flotta slagsmálamynd er
Ip Man alveg málið.
Dóri DNA
harKan sex
Lala „Það er í raun ekkert gott
við Fighting, en ekkert slæmt
heldur, nema slagsmálaatriðin
sjálf, sem er bardagakvikmynd
ekki til framdráttar.“
FóKus 28. júlí 2009 ÞriÐjudagur 21
MYND Lára Ósk
Harry Potter
and tHe Half-Blood Prince
Tegund: Ævintýraleikur
spilast á: Nintendo Wii
tölvuleikir
Harry Potter
Það vantar alla sál í leikinn.
figHting
Leikstjóri: Dito Montiel
aðalhlutverk: Terrence Howard og
Channing Tatum.
kvikmyndir
Ósympatískur Tatum er
„svo ósympatískur sem
leikari að það hálfa væri nóg.“