Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2009, Síða 22
Hvað það merkir að dreyma
Ingólf Margeirsson, rithöfund
með meiru, er óvíst. Hvað sem
því líður segir Dr. Gunni frá því á
bloggi sínu að hann hafi dreymt
Ingólf á dögunum, án þess að
segja nokkuð nánar frá því fyr�
ir utan að hann tekur fram að
Ingólfur hafi verið mjög brúnn
í draumnum. Gunni vindur sér
þess í stað beint yfir í frásögn
af heimsókn sinni á Árbæjar�
safnið sem hann mærir mjög.
Óneitanlega er hægt að lesa það
út úr þessu að Gunni sé að setja
Bítlaaðdáandann roskna og Ár�
bæjarsafn undir einn og sama
hatt. Einhverjir hafa nefnilega
haft á orði að Ingólfur sé svolítið
fastur í gamla tímanum, meðal
annars í gegndarlausri aðdáun
sinni á Bítlunum. Nú síðast var
hann með nostalgíska lofræðu
um tónleika með Paul McCartn�
ey í Sunnudagsmogganum um
nýliðna helgi.
Bretar eru ekki þeir fyrstu sem
koma upp í hugann ef velt er vöng�
um yfir því hvaða þjóðir teljast
okkur enn vinveittar eftir fíaskó
undanfarinna mánaða. Þó er það
svo að Breti nokkur að nafni Ben
Hopkins hefur sett á laggirnar vef�
síðu á slóðinni icelandonscreen.�
wordpress.com þar sem hann
fjallar um íslenskar kvikmyndir og
sjónvarpsþætti.
Logs.is segir frá því að Hop�
kins hafi verið á leiðinni til Íslands
og viljað „lesa“ sér til um landið í
gegnum kvikmyndir þess. Þá hafi
hann rekið sig á að upplýsingar á
ensku um íslenskar kvikmyndar
væru af skornum skammti. Hop�
kins einhenti sér því í verkefn�
ið og þegar þetta er skrifað hefur
hann fjallað um á síðunni: Cold
Fever, Mýrina, 101 Reykjavík, Næt�
urvaktina og Sódómu Reykja�
vík. Umsagnir Hopkins hingað til
hafa verið alljákvæðar ef frá er tal�
in Sódóma. Hann segir hana þó
lengstum skemmtilega á að horfa
en að handritið sé þunnt og leikur�
inn misjafn.
Hopkins býr í London og hef�
ur umsjón með kvikmyndahluta
tónlistartímaritsins Clash. Í stuttu
viðtali við Logs.is segist hann op�
inn fyrir uppástungum ef íslensk�
ir kvikmyndagerðarmenn vilji fá
dóm um myndina sína á vefnum.
kristjanh@dv.is
tjallinn og íslenska bíóið
Mýrarboltinn 2009:
Svala Björgvinsdóttir og félagar
hennar úr raftónlistargrúpp�
unni Steed Lord leika í einni af
nýjustu auglýsingum heyrn�
artólaframleiðandans WESC
Headphone. Þessu greinir vefur�
inn monitor.is frá en þar má sjá
myndband með auglýsingunni
sem þykir flott. Í henni sést ungt
fólk svífa, líða og skríða um með
heyrnartól frá WESC. Nú styttist
í að meðlimir Steed Lord verði
allir fluttir af landi brott. Svala og
Einar og Eðvarð Egilssynir eru
að fara flytja til New York en Er�
lingur Egilsson býr í London.
22 þriðjudagur 28. júlí 2009 fólkið
Bretanum Ben Hopkins fannst vanta meiri upplýsingar um íslenska kvikmyndagerð:
101 Reykjavík Ein þeirra mynda sem
Hopkins hefur skrifað um á netsíðunni.
„Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í
þessari grein í mýri eftir því sem við
komumst næst,“ segir Jóhann Bær�
ing Gunnarsson einn skipuleggjenda
hins árlega mýrarbolta sem fer fram
um verslunarmannahelgina. Þar
verður í fyrsta skipti keppt í kvenna�
burði í mýri þar sem karlmenn
hlaupa með konur á bakinu yfir mýr�
lendi. „Það er hefð fyrir þessu í Finn�
landi en þar keppa þeir ekki í mýri.“
Jóhann, sem er oftar en ekki kall�
aður drullusokkur vegna tengsla
sinna við mýrarboltann, segir að um
sé að ræða sýningargrein. „Það er ekki
hægt að skrá sig í þessa grein núna
en hver veit hvernig þetta verður á
næsta ári.“ Þegar er búið að prufu�
keyra greinina. „Við prófuðum þetta
á þurrum velli áðan og þá datt ann�
ar keppandinn þannig að það verð�
ur spennandi að sjá hvernig gengur
þegar búið er að bleyta vel í þessu.“
Sápubandí er önnur sýningargrein
sem boðið verður upp á í fyrsta skipti
en þar er spilað hefðbundið bandí á
plastdúk sem búið er að bera á sápu�
vatn. Þar af leiðandi verður undirlag�
ið meira en lítið sleipt með tilheyr�
andi látum.
„Markmiðinu er löngu náð,“ segir
Jóhann um fjölda keppenda sem hafa
skráð sig til leiks í mýrarboltamótinu
sjálfu en þeir eru nú á milli fimm og
sex hundruð. „Þetta er þegar orðið
fjölmennasta mótið hingað til en við
ætlum að bæta um betur og skrán�
ingin er opin fram á fimmtudags�
morgun klukkan tíu.“ Verið er að búa
til fleiri velli undir mótið en Jóhann
segir að mótssvæðið muni mest bera
990 keppendur ef öll áform ganga
eftir. „Hvort svo margir skrái sig til
leiks verður svo að koma í ljós.“
Mýrarboltamenn ætla að bjóða
upp á enn eina nýjungina þetta árið
en í fyrsta skipti verða tónleikar á
mótssvæðinu. „Þeir eru haldnir í
samstarfi við Securitas og Kimi Rec�
ords. Hljómsveitin Reykjavík! mun
meðal annars koma fram ásamt fjöl�
mörgum hljómsveitum héðan.“ Það
kostar 5.000 krónur fyrir einstakl�
inginn að taka þátt í mótinu og
mest mega vera 15 manns í
liði. Það eru þó ekki bara
þeir sem ætla að keppa
sem flykkjast vestur
því ekki er síður
gaman að horfa
á mótið. „Við
búumst við
því að það
verði að
minnsta
kosti
3.000
manns
hérna
á
svæðinu,“ segir Jó�
hann að lokum en
hægt er að kynna
sér málið nánar á
myrarbolti.com.
asgeir@dv.is
leika
í auglýsingu
DREYMDI
BRÚNAN
INGÓLF
KvENNABuRðuR
í mýrialdrei hafa fleiri verið skráðir til leiks á hinu árlega mýrarboltamóti á ísafirði um verslunarmannahelgina. keppt verð-ur í kvennaburði í mýri í fyrsta skipti en
einnig verður keppt í svokölluðu sápu-
bandí. í fyrsta skipti verður boðið upp á
tónlist á mótssvæðinu og er búist við að
gestir verði 3000 eða fleiri.
Jóhann Bæring
Einn skipuleggjenda
mýrarboltans.
Aldrei fleiri Þegar hafa milli 500
og 600 manns skráð sig til leiks.
Augnayndi Fólk flykkist einnig vest-
ur til þess að fylgjast með mótinu.