Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Blaðsíða 16
Ögmundur Jónasson
heilbrigðisráðherra
Ögmundur Jónasson heilbrigðis-
ráðherra hefur verið í sviðljósinu að
undanförnu vegna Icesave-samn-
ingsins en hann er í hópi þeirra
þingmanna sem hafa lagt áherslu á
sem víðtækasta samstöðu Alþingis
í þessu mikla hagsmunamáli þjóð-
arinnar, eins og fram kemur í ítar-
legu viðtali við hann í síðasta helg-
arblaði DV.
Ögmundur fæddist í Reykjavík
17.7. 1948 og ólst þar upp. Hann
var við nám í London 1966-67, lauk
stúdentsprófi frá MR 1969, MA-
prófi í sagnfræði og stjórnmála-
fræði frá Edinborgarháskóla 1974
og var við sagnfræðirannsóknir þar
1974-1978.
Ögmundur var kennari við
Grunnskóla Reykjavíkur 1971-72,
stundakennari í sagnfræði við HÍ
frá 1979, fréttamaður RÚV, útvarps
1978 og sjónvarps frá 1978, var
fréttamaður RÚV á Norðurlönd-
um 1986-88, hefur verið formaður
BSRB frá 1988, var alþingismaður
Reykvíkinga fyrir Alþýðubandalag-
ið og óháða frá 1995 og fyrir vinstri
græna frá 1999. Hann er heilbrigð-
isráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur frá 2009.
Ögmundur var formaður Starfs-
mannafélags sjónvarpsins með hlé-
um 1980-88, var einn af stofnend-
um Stefnu, félags vinstri manna,
hefur setið í fjölda nefnda og ráða
á vegum verkalýðshreyfingarinnar
innan lands og utan og tekið þátt í
margvíslegu öðru félagsstarfi.
Ögmundur var formaður þing-
flokks óháðra 1998-1999, formaður
þingflokks Vinstri hreyfingarinnar
- græns framboðs 1999-2009, sat í
allsherjarnefnd Alþingis 1995-97
og 1998-99, heilbrigðis- og trygg-
inganefnd 1995-96, félagsmála-
nefnd 1997-98, kjörbréfanefnd
1999-2007, sérnefnd um stjórnar-
skrármál 1999-2003, 2004 og 2005-
2007, í efnahags- og viðskiptanefnd
1999-2007, efnahags- og skatta-
nefnd 2007-2009, félags- og trygg-
ingamálanefnd 2007-2009 og í Ís-
landsdeild þingmannanefndar
EFTA 1999-2003.
Fjölskylda
Ögmundur kvæntist 2.8. 1974 dr.
Valgerði Andrésdóttur, f. 12.1. 1949,
erfðafræðingi á tilraunastöð HÍ á
Keldum. Foreldrar Valgerðar eru
Andrés Björnsson, fyrrv. útvarps-
stjóri, og k.h., Margrét Helga Vil-
hjálmsdóttir húsmóðir.
Börn Ögmundar og Valgerðar
eru Andrés, f. 14.6. 1974; Guðrún,
f. 17.3. 1979; Margrét Helga, f. 24.1.
1981.
Systkini Ögmundar eru Jón
Torfi, f. 9.6. 1947, prófessor við HÍ,
kvæntur Bryndísi Ísaksdóttur bóka-
safnsfræðingi; Ingibjörg, f. 12.11.
1950, fræðslustjóri en hennar mað-
ur er Guðmundur Gíslason, fyrrv.
framkvæmdastjóri; Björn, f. 20.6.
1954, útgefandi, kvæntur Elísabetu
Guðbjörnsdóttur lögfræðingi.
Foreldrar Ögmundar eru Jónas
B. Jónsson, f. 8.4. 1908, d. 1.4. 2005,
fyrrv. fræðslustjóri í Reykjavík, og
Guðrún Ö. Stephensen, f. 30.10.
1914, húsmóðir.
Ætt
Föðurbræður Ögmundar: Guð-
mundur, skólastjóri á Hvanneyri;
Björn, veðurfræðingur og læknir;
Jóhann Frímann, umsjónarmaður
hjá Reykjavíkurborg, og Ingimund-
ur og Torfi, b. á Torfalæk. Jónas var
sonur Jóns, b. á Torfalæk á Ásum,
hálfbróður Páls Kolka læknis, og
Mörtu, ömmu Helga H. Jónsson-
ar, fyrrv. fréttastjóra. Jón var sonur
Guðmundar, b. á Torfalæk, bróður
Sigfúsar, langafa Ingimundar sendi-
herra. Guðmundur var sonur Guð-
mundar, b. í Nípukoti Jónssonar,
bróður Sveins, langafa Guðmund-
ar Björnssonar læknaprófessors.
Móðir Jóns var Sigurlaug Jóns-
dóttir, b. á Sauðanesi Sveinssonar.
Móðir Jóns var Halldóra Sigurðar-
dóttir, b. í Grundarkoti Jónssonar,
Harðabónda í Mörk Jónssonar.
Móðir Jónasar var Ingibjörg,
systir Guðmundar landlæknis og
Sigurðar brúarsmiðs, afa Guðfríðar
Lilju Grétarsdóttur, alþm. og þing-
flokksformanns Vinstri hreyfingar-
innar – græns framboðs. Ingibjörg
var dóttir Björns, b. á Marðarnúpi
í Vatnsdal Guðmundssonar. Móð-
ir Björns var Guðrún Sigfúsdóttir
Bergmann, ættföður Bergmanns-
ættar. Móðir Ingibjargar var Þor-
björg Helgadóttir, systir Sigurðar,
afa Sigurðar Nordal.
Móðursystkini Ögmundar:
Hans, múrarameistari; Þorsteinn
leikari og leiklistarstjóri Ríkis-
útvarpsins; Sigríður, húsmóðir í
Hólabrekku; Stefán, fyrrv. formaður
Prentarafélagsins og fyrsti formaður
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu, og Einar, fyrrv. formað-
ur Landssambands vörubifreiðar-
stjóra. Guðrún er dóttir Ögmundar
H. Stephensen, b. að Hurðarbaki í
Kjós og síðar Hólabrekku á Gríms-
staðaholti í Reykjavík Hanssonar,
b. að Hurðarbaki, bróður Sigríðar,
ömmu Helga Hálfdanarsonar og
langömmu Hannesar Pétursson-
ar skálds og Stefáns, afa séra Þóris,
föður Ólafs, ritstjóra Morgunblaðs-
ins. Hans var sonur Stefáns, pr. á
Reynivöllum í Kjós Stefánssonar,
amtmanns á Hvítárvöllum Ólafs-
sonar, ættföður Stephensensættar
Stefánssonar. Móðir Hans var Guð-
rún, systir Þuríðar, langömmu Vig-
dísar Finnbogadóttur. Önnur systir
Guðrúnar var Rannveig, langamma
Þórunnar, móður Gylfa Þ. Gísla-
sonar ráðherra, föður Vilmundar
ráðherra, Þorsteins heimspekings
og Þovaldar hagfræðiprófessors.
Þriðja systirin var Sigríður, lang-
amma Önnu, móður Matthíasar
Johannessen, skálds og ritstjóra.
Guðrún var dóttir Þorvalds, próf-
asts og skálds í Holti Böðvarssonar,
og Kristínar Björnsdóttur, pr. í Ból-
staðarhlíð Jónssonar. Móðir Guð-
rúnar var Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
b. á Högnastöðum í Þverárhlíð Pét-
urssonar, bróður Hjálms, langafa
Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþm.
Móðir Þorsteins var Ingibjörg Ein-
arsdóttir, systir Sigvalda, afa Sig-
valda Kaldalóns.
Arnaldur fædd-
ist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann
var í Ísaksskóla og
Hlíðaskóla, lauk
stúdentsprófi frá
MH og prófi í tölv-
unarfræði við HR
2004.
Arnaldur starf-
aði í Sportvörugerðinni á unglings-
árunum, var forritari hjá Dohop
2007-2009 og er nú forritari hjá
Calidris frá því skömmu eftir ára-
mót.
Arnaldur er áhugamaður um
hjólreiðar og stundar þær með
Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. Þá er
hann áhugamaður um útvist og
skotveiðar.
Fjölskylda
Kona Arnalds er Þorgerður Páls-
dóttir, f. 11.12. 1979, verkfræðing-
ur hjá Actavis.
Sonur Arnaldar og Þorgerðar
er Hilmir Páll Arnaldsson, f. 4.11.
2007.
Alsystkini Arnaldar eru Ágúst
Hilmisson, f. 27.1. 1969, sjúkra-
þjálfari í Reykjavík; Hlíf Hilmis-
dóttir, f. 19.1. 1981, verslunarmað-
ur í Reykjavík.
Hálfsystir Arnaldar er Kristín
Ásgeirsdóttir, f. 22.10. 1991, nemi.
Foreldrar Arnaldar eru Elín
Fanney Guðmundsdótti, f. 17.10.
1952, verslunarmaður í Kópavogi,
og Hilmir Ágústsson, f. 9.2. 1952,
sjúkraþjálfari og kennari í St. Aug-
ustin í Bandaríkjunum.
Bryndís fæddist á Ak-
ureyri, ólst þar upp
og hefur verið þar bú-
sett alla tíð. Hún var í
Lundaskóla og Gagn-
fræðaskóla Akureyr-
ar, stundaði nám við
Verkmenntaskólann
á Akureyri og lauk
þaðan sjúkraliða-
prófi árið 1993.
Bryndís hóf störf sem sjúkraliði
við Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri
að prófi loknu árið1993 og hefur
starfað þar síðan..
Fjölskylda
Eiginmaður Bryndísar er Guð-
mundur Óli Jónsson, f. 24.1.
1969, starfsmaður hjá fyrirtækinu
Kjarnafæði á Akureyri.
Sonur Bryndísar er Bryn-
leifur, f. 19.1. 1988, nemi í
mjólkurfræði í Odense í Dan-
mörku.
Synir Bryndísar og Guð-
mundar eru Andri Þór, f. 15.1.
1997; Atli Þór, f. 25.4. 2005.
Dóttir Guðmundar er Val-
dís Eva, f. 28.4. 1988, nemi.
Bræður Bryndísar eru Birgir
Brynleifsson, f. 21.3. 1972, búsett-
ur á Akureyri; Benedikt Brynleifs-
son, f. 31.1. 1979, tónlistarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Bryndísar eru Bryn-
leifur Hallsson, f. 5.6. 1948, mjólk-
urfræðingur á Akureyri, og Emma
Magnúsdóttir, f. 16.6. 1951, tann-
tæknir á Akureyri.
Arnaldur Hilmisson
forritari í reyikjavík
Bryndís Ásta Brynleifsdóttir
sjúkraliði á akureyri
30 ára í dag 40 ára í dag
30 ára
n Ewa Moniuszko Eyrarvegi 7, Grundarfirði
n Gyða Minny Sigfúsdóttir Hraundal 11, Reykja-
nesbæ
n Sveinn Guðmundsson Ásvallagötu 65, Reykjavík
n Gunnar Smári Tryggvason Selvogsgrunni 11,
Reykjavík
n Desapriya V. R. Arachchilage Víðihlíð 4,
Reykjavík
n Sigrún Huld Skúladóttir Bankastræti 11,
Reykjavík
n Tinna Lind Gunnarsdóttir Skipholti 7, Reykjavík
n Hjörtur Sveinsson Hlíðarhjalla 65, Kópavogi
40 ára
n Erla Dögg Ragnarsdóttir Steinahlíð 4a, Akureyri
n Jóna María Ákadóttir Stigahlíð 54, Reykjavík
n Andrea Gerður Dofradóttir Kvisthaga 1,
Reykjavík
n Guðrún Una Valsdóttir Suðurmýri 22, Seltjarn-
arnesi
n Lilja Össurardóttir Smárarima 4, Reykjavík
n Ólafur Sigurðsson Þórðarsveig 2, Reykjavík
n Selma Hrönn Maríudóttir Klapparstíg 4,
Sandgerði
n Elín Ólafsdóttir Tjarnarmýri 13, Seltjarnarnesi
50 ára
n Helena Björk Hannesdóttir Borgargerði 2,
Stöðvarfirði
n Kristín Guðný Sigurðardóttir Kirkjustétt 9,
Reykjavík
n Gerður Sólveig Thoroddsen Skildinganesi 28,
Reykjavík
n Ingimar Hallgrímur Victorsson Tómasarhaga
41, Reykjavík
n Halla Eiríksdóttir Hákonarstöðum 3, Egilsstöðum
n Reynir Þór Finnbogason Langeyrarvegi 20,
Hafnarfirði
n Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir Ytra-Kálfsskinni,
Dalvík
n Úlfar Daníelsson Ölduslóð 20, Hafnarfirði
n Steinunn Hrund Jóhannsdóttir Vesturbergi
51, Reykjavík
n Hólmfríður I Jóhannsdóttir Dalbrún 13, Eg-
ilsstöðum
n Heiða Hilmarsdóttir Drafnarbraut 6, Dalvík
n Þorsteinn Marel Júlíusson Akurholti 8, Mos-
fellsbæ
n Jómundur Ólason Hreimsstöðum, Borgarnesi
n Konráð Þór Sigurðsson Hlíðarvegi 48, Ólafsfirði
n Ólafur Ásgeirsson Kvistalandi 14, Reykjavík
n Sverrir Kristfinnsson Fensölum 10, Kópavogi
60 ára
n Hulda Pétursdóttir Kristnibraut 18, Reykjavík
n Brynjar Sigtryggsson Ársölum 1, Kópavogi
n Jón Hartmann Álfholti 14a, Hafnarfirði
n Anna K Marteinsdóttir Bræðraborgarstíg 30,
Reykjavík
n Hlíf Kristófersdóttir Fannafold 115, Reykjavík
n Guðrún Sveinbjörnsdóttir Króksseli, Skaga-
strönd
n Finnur Sigurgeirsson Snorrabraut 35a, Reykjavík
n Ingibjörg Ingólfsdóttir Hálsum, Borgarnesi
70 ára
n Gunnar Klingbeil Baldursgötu 19, Reykjavík
n Guðmundur Guðlaugsson Beykilundi 12,
Akureyri
n Ragnar Hólm Bjarnason Birkilundi 8, Akureyri
n Karl Bergsson Víðivöllum 25, Selfossi
n Svana Jónsdóttir Leynisbraut 36, Akranesi
n Jón Ægir Guðmundsson Sóleyjarima 15,
Reykjavík
n Valborg Guðmundsdóttir Dalalandi 9, Reykjavík
n Árni Vestergaard Hrauntúni 12, Breiðdalsvík
n Heiðar S Valdimarsson Sörlaskjóli 50, Reykjavík
75 ára
n Birgir Magnússon Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði
80 ára
n Ragnar Guðmundsson Hraunbæ 111, Reykjavík
n Oddný Jónsdóttir Skálagerði 6, Akureyri
n Margrét Albertsdóttir Austurbyggð 5, Akureyri
85 ára
n Sveinbjörg Rósantsdóttir Hjallalundi 15a,
Akureyri
n Guðbjörg H Beck Hamraborg 36, Kópavogi
90 ára
n Björg V Ásmundsdóttir Lindargötu 61, Reykjavík
Til
hamingju
með
afmælið!
fólk í fréTTum
16 þriðjudagur 18. ágúst 2009 ættfræði