Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Blaðsíða 4
4 þriðjudagur 18. ágúst 2009 fréttir
Kristín Pétursdóttir, eigandi og for-
stjóri fjármálafyrirtækisins Auðar
Capital, seldi meirihlutann af hluta-
bréfum sínum í Kaupþingi sumarið
2005 og hætti hjá bankanum í árslok
2006. Hún stofnaði svo Auði Capital
ásamt Höllu Tómasdóttur árið 2007.
Leiða má að því líkur að Kristín
hafi notað ágóðann af sölu hlutabréf-
anna í Kaupþingi til að stofna Auði en
hún hafði starfað hjá bankanum frá
árinu 1997, síðast sem aðstoðarfor-
stjóri dótturfélags Kaupþings, Singer
og Friedlander í London. Samkvæmt
heimildum DV hafði Kristín fengið
álíka hátt kúlulán og Kristján Arason
þegar hún hætti hjá bankanum en
Kristján hafði fengið tæpar 900 millj-
ónir króna frá bankanum til að fjár-
festa í hlutabréfum sumarið 2006.
Kristín var ekki með kúlulánið í
einkahlutafélagi því lánið kemur ekki
fram í ársreikningum eina einka-
hlutafélagsins sem skráð er á hana.
Slíkt gilti um langflesta af þeim starfs-
mönnum Kaupþings sem fengu kúlu-
lán hjá bankanum á þessum tíma,
enda var starfsmönnum fjármálafyr-
irtækja óheimilt að stofna einkahluta-
félög utan um hlutabréfaeign sína og
lántökur fyrr en árið 2006.
Tjáir sig ekki um málið
Nokkra athygli vakti að þegar DV fjall-
aði um lánabók Kaupþings fyrr í sum-
ar var nafn Kristínar ekki að finna á
listanum yfir þá starfsmenn bankans
sem voru með útistandandi kúlu-
lán í bankanum til hlutabréfakaupa.
Lánabókin sem DV fjallaði um var frá
sumrinu 2006 en Kristín var enn þá
starfandi í bankanum á þeim tíma.
Ástæðan fyrir því er þá sú að Kristín
var búin að selja hlutabréf sín í bank-
anum sumarið 2005 og hafði ætlað að
hætta í bankanum.
Kristín Pétursdóttir vill aðspurð
ekki svara því hversu mikið hún átti
í Kaupþingi þegar hún hætti og seldi
hluti sína í bankanum. „Ég hef eng-
an áhuga á að tjá mig um þetta mál.
Þetta eru mín prívat fjármál og ég ætla
ekki að tjá mig um þau,“ segir Krist-
ín sem var upptekin á tíundu holu
á golfvellinum þegar DV náði tali af
henni. Kristín vill heldur ekki tjá sig
um það hvort hún hafi notað gróðann
af hlutabréfasölunni í Kaupþingi til
að stofna Auði Capital. „Ég bara ætla
ekki að tjá mig um þetta mál. Þetta er
ekki frétt og ég ætla ekki að tjá mig um
málið,“ segir Kristín.
Græddu vel á að hætta
Samkvæmt heimildum DV hafði
Kristín ætlað að hætta í starfi sínu
sem framkvæmdastjóri fjárstýring-
ar Kaupþings þá um sumarið 2005
en var beðin að taka að sér aðstoðar-
forstjórastarfið í London og þekktist
hún það. Í lok ágúst 2005 var tilkynnt
að Kristín ætlaði að taka við starfinu í
London. Kristín virðist ekki hafa tek-
ið þá ákvörðun að kaupa hluti í bank-
anum þegar hún tók við starfinu því,
eins og áður segir, er nafn hennar ekki
í lánabók Kaupþings frá sumrinu 2006
sem DV hefur undir höndum. Kristín
starfaði því sem einn af æðstu stjórn-
endum bankans í meira en ár án
þess að kaupa sér umtalsverða hluti í
bankanum.
Kristín er annar af tveimur starfs-
mönnum Kaupþings sem hættu í
bankanum, seldu hlutabréf sín í hon-
um og stofnuðu eigið fjármálafyrir-
tæki skömmu síðar. Hinn fyrrverandi
starfsmaðurinn er Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson sem var látinn hætta hjá
bankanum í september árið 2006 eftir
að hafa farið fram úr þeim heimildum
sem hann hafði til fjárfestinga, sam-
kvæmt heimildum DV. Þorvaldur er
skráður með rúmlega 1.600 milljóna
króna kúlulán í lánabók Kaupþings
frá sumrinu 2006 og stofnaði hann
fjármálafyrirtækið Saga Capital á Ak-
ureyri eftir að hann hætti hjá Kaup-
þingi. Að minnsta kosti tvö fjármála-
fyrirtæki sem starfa enn á markaði
voru því stofnuð af fyrrverandi starfs-
mönnum Kaupþings sem grætt höfðu
vel á að selja hlutabréf sín í bankan-
um og hætta að starfa þar.
Nokkrir af þeim fyrrverandi starfs-
mönnum Kaupþings sem fengu kúlu-
lán sem ekki liggur ljóst fyrir hvernig
verða gerð upp hafa sagt í samtölum
við blaðamenn DV að þegar þeir líti
til baka sjái þeir eftir því að hafa ekki
hætt í bankanum líkt og Kristín og
Þorvaldur því þá hefðu þeir getað selt
hlutabréf sín í honum og grætt afar vel
líkt og þau.
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, var einn af þeim bankastarfsmönnum
sem innleystu mikinn kúlulánsgróða á dögum íslenska góðærisins. Hætti í bankanum
í árslok 2006 eftir að hafa selt hlutabréfin sín í bankanum sumarið 2005. Kristín er ann-
ar af tveimur fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings sem stofnuðu fjármálafyrirtæki
fyrir kúlulánsgróðann.
STOFNAÐI AUÐI MEÐ
KÚLULÁNSGRÓÐA
„Ég hef engan áhuga á
að tjá mig um þetta mál.
Þetta eru mín prívat
fjármál og ég ætla ekki
að tjá mig um þau.“
Kaupþingsgróði skapaði Auði Kristín Péturs-
dóttir, forstjóri Auðar Capital og eigandi fyrirtækis-
ins, var ein þeirra sem græddu umtalsverða fjármuni
á kúlulántökum hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum
fyrir hrunið í haust. Hún seldi hlutabréf sín í
Kaupþingi sumarið 2005 og stofnaði Auði 2007.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
MP Banki fékk 42,5 milljóna króna
verk hjá Reykjavíkurborg, án þess að
leitað væri tilboða hjá öðrum bönk-
um. Fulltrúar Samfylkingar og vinstri
grænna í borgarráði gagnrýna meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks í borgarstjórn fyrir að að
leita til MP Banka um skuldabréfa-
útboð sem bankinn sá um fyrir hönd
Reykjavíkurborgar í maí.
Á borgarráðsfundi fyrr í þessum
mánuði bókuðu fulltrúar minni-
hlutans að þeirri spurningu væri í
raun ekki svarað hvers vegna MP
Banki hefði orðið fyrir valinu sem
þjónustuaðili og hvers vegna öðrum
fjármálafyrirtækjum, svo sem VBS
fjárfestingabanka, Saga Capital fjár-
festingabanka og nýju ríkisbönkun-
um, sem höfðu innan sinna vébanda
starfsfólk sem kunni til verka, hefði
ekki verið boðið að bjóða í verk-
ið. Borgin hafi greitt 42,5 milljón-
ir króna fyrir verkið, en fjármálafyr-
irtækið Virðing bauð 17,5 milljónir í
sama verk. „Sú röksemd er langsótt
að verkið hafi ekki verið boðið út
í desember vegna þess að borgar-
ráð hafi ákveðið 31. október 2008 að
fresta öllum áformum um útboð á
bankaþjónustu vegna umræddra að-
stæðna,“ segir í bókun vinstri grænna
og Samfylkingar.
Borgarráðsfulltrúar Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks svöruðu
því til að þessi gerð fjármálaþjón-
ustu hafi ekki verið útboðsskyld. Sér-
stakt ástand á fjármálamarkaði eftir
bankahrunið hafi einnig gert útboðs-
leið algerlega óraunhæfa. Þá seg-
ir að fráleitt hafi verið að bera sam-
an þóknun MP Banka og Virðingar,
þar sem síðarnefnda fyrirtækinu hafi
boðist að taka verkefnið en gefið það
frá sér að selja skuldabréfin án veð-
réttar í eignum borgarinnar, því hafi
verið leitað til MP Banka.
valgeir@dv.is
MP Banki fékk 42,5 milljóna verk hjá Reykjavíkurborg án útboðs:
Enginn annar fékk að bjóða í verkið
mP Banki Sér um skuldabréfaútboð
fyrir hönd borgarinnar. Fékk fyrir vik-
ið 42,5 milljónir króna, ekki var leitað
til annarra banka vegna verksins.
Kærði mislukkuð
fíkniefnaviðskipti
Ungur maður varð fyrir því að
vera rændur tíu þúsund krón-
um í Reykjavík um helgina.
Hann mætti á lögreglustöðin við
Hverfisgötu í miklu uppnámi og
kærði verknaðinn. Viðurkenndi
hann fullum fetum að hafa
hitt tvo menn af erlendu bergi
brotna sem vildu selja honum
e-pillur en þeir hafi tekið við
seðlunum frá honum og hlaupið
á brott.
Maðurinn, sem er á milli tví-
tugs og þrítugs, kvaðst hafa rétt
mönnunum tíu þúsund krón-
ur og þeir látið sig hverfa inn
á skemmtistað sem þeir stóðu
fyrir utan og aldrei látið sjá sig
aftur. Hann vildi kæra þessa
óprúttnu náunga sem gáfu sig út
fyrir að vera fíkniefnasala en að
sögn lögreglu var honum vísað
út með kæruefnið.
Kjötþjófar
komust undan
Þeir vissu greinilega hvað þeir
voru að gera þjófarnir sem
nú undir morgun sprengdu
upp öflugan lás á frystigámi
er stendur fyrir utan fyrirtæki
við Smiðjuveg í Kópavogi.
Þeir komust í feitt í gámnum,
þar sem mikið magn kjöts var
geymt, og höfðu með sér á
brott allt að 800 kíló af frosnu
kjöti.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu komust mennirnir
undan og er þeirra nú leitað.
Algjört hrun í
bílainnflutningi
Það sem af er árinu hafa
3.732 ökutæki verið nýskráð
samanborið við 15.345 öku-
tæki eftir jafnmarga daga á
síðasta ári. Þetta kemur fram
í upplýsingum frá Umferðar-
stofu en um er að ræða 75,68
prósenta fækkun milli ára.
Eigendaskiptum hefur
einnig fækkað verulega það
sem af er árinu samanbor-
ið við síðasta ár. Eigenda-
skipti hafa verið gerð á 47.356
ökutækjum samanborið við
69.809 á sama tíma í fyrra.
Þetta er 32 prósenta fækkun
milli ára.
Fellir sig við nið-
urstöðuna
Ögmundur Jónasson heilbrigð-
isráðherra segist geta fellt sig
við fyrirvara fjárlaganefndar um
Icesave-skuldbindingarnar. „Best
hefði verið að hafna samningn-
um, en það er ekki í boði. Miðað
við aðstæður er þetta það besta
sem við getum gert og ég styð
þessa niðurstöðu.“
Spurður um andstöðu Fram-
sóknarflokksins segist Ögmund-
ur ekki vilja gagnrýna flokkinn.
„Framsóknarmenn lögðu sig
fram um að ná þessari niður-
stöðu. Þeir meta það svo að þetta
gangi ekki nægilega langt og ég
vil ekki gagnrýna þá fyrir það.
Aðalatriðið er að þeir unnu einn-
ig að lausn málsins eins og aðrir
og samstaðan er nú breiðari en
margir þorðu að vona.“