Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Blaðsíða 6
6 þriðjudagur 18. ágúst 2009 fréttir
Meirihluti sveitastjórnar Rangárþings
eystra klofnaði í afstöðu sinni til ráðn-
ingar skólastjóra Hvolsskóla, grunn-
skólans á Hvolsvelli. Utanaðkomandi
sérfræðingar komust að þeirri niður-
stöðu að tveir fjögurra umsækjenda
væru „vel hæfir,“ þau Friðþjófur Helgi
Karlsson, settur skólastjóri Hjallaskóla
í Kópavogi, og Halldóra Kristín Magn-
úsdóttir, aðstoðarskólastjóri Hvols-
skóla. Halldóra var þó talin hæfust
þar sem hún hefur „meiri stjórnunar-
reynslu sem og þekkingu og reynslu af
skólaþróunarstarfi,“ eins og segir í rök-
stuðningi. Friðþjófur var ráðinn.
Ólafur Eggertsson, oddviti sveitar-
stjórnar, harmar mjög niðurstöðuna.
„Þetta er dapurt,“ segir hann. Á fundi
sveitarstjórnar á fimmtudag greiddi
hann einn sveitarstjórnarmanna at-
kvæði með því að Halldóra yrði ráð-
in. Ólafur er fulltrúi Samherja, óháðs
framboðs, sem myndar meirihluta
ásamt sjálfstæðismönnum. Upphaflega
var gengið til viðræðna við Halldóru og
lagði hún þá til skipulagsbreytingar á
skólastarfinu sem voru samhljóða til-
lögum fráfarandi skólastjóra. Sjálfstæð-
is- og framsóknarmenn í sveitastjórn
voru tillögunum ósammála og ráðn-
ing Halldóru endurskoðuð. Skipti engu
að hún féll frá tillögunum. Ólafur seg-
ist mjög undrandi á þessu. „Gjörsam-
lega. Ég hefði talið það gríðarlega mik-
ið hagsmunamál að halda Halldóru
áfram við skólann okkar,“ segir hann.
Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri Rang-
árþings eystra og fulltrúi sjálfstæðis-
manna í sveitastjórn, segir endanlega
niðurstöðu meðal annars hafa verið
tekna í ljósi ferils málsins og erfitt sé að
skýra það nánar.„Þetta endaði með því
að okkur samdi ekki. Ég get eiginlega
ekki svarað þessu öðruvísi,“ segir hann.
Aðstoðarskólastjóri Hvolsskóla var ekki ráðinn skólastjóri:
Þeirri hæfustu var hafnað
Ólga í Hvolsskóla Halldóra K. Magn-
úsdóttir féll frá breytingartillögum
sínum eftir að ljóst var að sveitastjórn
var þeim mótfallin. Þrátt fyrir það var
henni hafnað í stöðu skólastjóra.
Endurskinsmerki
á hestana
Nokkuð var um það í síðustu viku
að tilkynnt væri um laus hross
til lögreglunnar á Hvolsvelli. Í
dagbók lögreglunnar segir að
undanfarin sumur hafi hlotist
nokkur slys vegna þess að ekið
hafi verið á hrossin í myrkrinu.
Viðrar varðstjóri lögreglunnar þá
hugmynd hvort ekki sé spurning
um að hestaeigendur setji end-
urskinsmerki á hrossin svo þau
sjáist betur.
Annars bar hæst að bát hvolfdi
við Bakkafjöru eftir að mótorinn
bilaði. Þeir sem í bátnum komust
ómeiddir í land þó hraktir væru.
Björgunarsveitarmenn voru
sendir eftir konu sem ökklabrotn-
aði á Fimmvörðuhálsi.
Búa sig undir
heimssýningu
Benedikt Jónsson, ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins, og
Birkir Hólm Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Icelandair, und-
irrituðu í gær samstarfssamn-
ing í tengslum við þátttöku
Íslands á heimssýningunni
EXPO 2010, sem haldin verður
í Shanghæ í Kína á næsta ári.
Ferðamál, orka og hugvit eru
aðaláherslur Íslands á sýn-
ingunni og munu utanríkis-
ráðuneytið, Ferðamálastofa og
Icelandair nýta þátttökuna til
sérstakrar kynningar á Íslandi
sem áfangastað fyrir kínverska
ferðamenn í júní á næsta ári.
Fleiri nemar en
nokkru sinni fyrr
Heildarfjöldi nema í Háskóla
Íslands í haust verður á sextánda
þúsund. Um 14 þúsund stúdent-
ar hafa þegar staðfest skólavist
vegna náms við Háskóla Íslands
á næsta misseri en á annað þús-
und umsóknir eru enn í vinnslu.
Umsóknum um nám í Háskól-
ann fjölgaði um 20 prósent milli
áranna 2008 og 2009 og hefur
mjög stór hluti þeirra sem sóttu
um nám staðfest skólavist. Aldrei
hafa fleiri nemar verið skráðir í
Háskóla Íslands frá upphafi.
Fjármálaeftirlitið hefur sent mál
Kaupþingsfélagsins Black Sunshine
til sérstaks saksóknara, samkvæmt
heimildum DV. Málið hefur verið til
rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu í
nokkurn tíma.
Talið er að forsvarsmenn Kaup-
þings hafi árið 2007 fært lán eins dótt-
urfélags bankans, New Bond Street
Asset Management, upp á um 80
milljarða króna inn í Black Sunshine
og bókfært gjörninginn sem lán Kaup-
þings til félagsins. Þegar lánin voru
færð frá Kaupþingi voru þau orðin
verðlítil því veðin fyrir lánunum voru
léleg en meðal annars var um að ræða
hlutabréf í gjaldþrota fyrirtækjum sem
og bandarísk húsnæðisbréf.
Losnuðu við afskriftir
Grunur leikur á að Kaupþing hafi
gert þetta til að fegra stöðu bankans
en með því að færa lánið yfir til Black
Sunshine gat Kaupþing hækkað eigið
fé bankans sem nam lánsfjárhæðinni
sem og losað bankann við verðlítil
lán í stað þess að afskrifa þau. Eigið fé
Kaupþings hafi því aukist um 80 millj-
arða króna þrátt fyrir að verðmæti lán-
anna hafi í reynd verið miklu minna
sökum lélegra veða. Eigið fé bankans
var því 80 milljörðum hærra fyrir
vikið og bankinn þurfti ekki að af-
skrifa lánin.
Ekki er vitað hver stofnaði
Black Sunshine en félagið er í eigu
sjálfseignarstofnunar sem skráð er
í Lúxemborg.
Mögulega bókhaldsbrot
Talið er að gerningurinn á
bak við Black Sun-
shine geti verið
bókhaldsbrot og
jafnvel sýndar-
viðskipti. Ein
af afleiðing-
um flutn-
ingsins á
lánun-
um yfir
til Black
Suns-
hine er talin vera að fyrir vikið hafi
rangar upplýsingar um stöðu Kaup-
þings skilað sér til eftirlitsaðila fjár-
málamarkaðarins á Íslandi, sam-
kvæmt heimildum DV. Einnig myndi
slíkt brot mögulega
flokkast sem brot
á lögum um fjár-
málafyrirtæki.
Einn heimildar-
maður DV, sem
vill ekki láta nafn
síns getið, segir að
svo virðist sem til-
gangur Black Sun-
shine hafi ver-
ið að
fegra stöðu bankans. „Í svona tilfell-
um er verið að reyna að láta bókhald
bankans líta betur út en það raunveru-
lega gerir,“ segir heimildarmaðurinn.
Fjármálaeftirlitið hefur heimildir
til að yfirheyra menn ef svo ber undir
en ekki er vitað hvort einhver var yfir-
heyrður í tengslum við rannsóknina á
Black Sunshine.
Þrír af stjórnendum og stærstu
hluthöfum Kaupþings, þeir Hreiðar
Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson
og Ólafur Ólafsson, hafa nú þegar öðl-
ast réttarstöðu grunaðra í rannsókn
sérstaks saksóknara.
Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðs-
son við vinnslu fréttarinnar en nær
öruggt má telja að hann hafi komið
að Black Sunshine-málinu þar sem
hann var forstjóri Kaupþings á þess-
um tíma.
Fjármálaeftirlitið hefur sent mál Kaupþingsfé-
lagsins Black Sunshine til sérstaks saksókn-
ara. Black Sunshine er félag í Lúxemborg sem
tók við 80 milljarða króna verðlitlum lánum
úr Kaupþingi. Talið er að Kaupþing hafi fært
lánin yfir til Black Sunshine til að losna við
að afskrifa þau. Mögulegt að um sýndarvið-
skipti og bókhaldsbrot hafi verið að ræða.
KAUPÞINGSBRASK TIL
SÉRSTAKS SAKSÓKNARA
„Í svona tilfellum er verið
að reyna að láta bókhald
bankans líta betur út en
það raunverulega gerir“
IngI F. VILHjáLMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Annað Kaupþingsmál til saksóknara
Mál Black Sunshine hefur verið sent frá
Fjármálaeftirlitinu til sérstaks saksóknara
samkvæmt heimildum DV. Nokkur
mál tengd Kaupþingi eru nú komin til
saksóknara. Hreiðar Már Sigurðsson var
forstjóri Kaupþingssamstæðunnar.
nýkomið til Ólafs Mal Black Sunshine er nýkomið frá Fjármálaeftirlit-
inu til Ólafs Haukssonar, sérstaks saksóknara íslenska efnahagshrunsins.
Forsvarsmenn Kaupþings eru taldir hafa losað bankann við 80 milljarða
króna verðlítil lán með því að koma þeim yfir á félagið Black Sunshine.