Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2009, Blaðsíða 14
Kónarnir sem bera ábyrgð á IceSave og öllu því rugli eru hver um annan þveran að varpa af sér ábyrgð. Iðrunar-
lausir þrjótar sem kyntu undir brjálæð-
inu, sem nú hefur sett landið á hliðina,
stíga nú fram og þykjast saklausir. Kjart-
an Gunnarsson, fyrrverandi bankaráðs-
maður Landsbankans, er líklega sá for-
hertasti allra þeirra sem ábyrgð báru á
sjálftöku bankans á sparifé útlendinga.
Í stað þess að biðja þjóðina afsökunar
á óráðsíunni sem þjóðinni er nú gert að
borga sver þessi brúarsmiður spilling-
arinnar af sér þátttöku í einu versta fjár-
plógsmáli samstímans. Kjartan ritaði
grein í dagblað um síðustu helgi þar sem
lesa má forherðingu óreiðumanns sem
skellir skuldinni á þá sem lentu í þeirri
stöðu að lágmarka tjón þjóðarinnar.
Fullyrðir Kjartan að Landsbankinn hafi
aldrei haldið því fram að ríkisábyrgð
væri á innlánum útlendinga. Þessi yfir-
lýsing bankaráðsmannsins gengur þvert
á heimildir sem sýna að talsmenn bank-
ans héldu því á lofti að íslenska þjóðin
bæri ábyrgð. Kjartan Gunnarsson var
lykilmaður við einkavæðingu Lands-
bankans. Hann sat sem pólitískur gæð-
ingur í bankaráði ríkisbankans og hélt
þeim bitlingi eftir að einkaaðilar komu
höndum yfir hann. Ábyrgð Kjartans á
óförunum er gríðarleg. Hans hlutverk
var að gæta þess að starfsmenn bank-
ans færu fram með siðuðum og skað-
lausum hætti. Hrikaleg endalok bank-
ans með fyrirsjáanlegum afleiðingum
eru á hans ábyrgð ekki síður en eigenda
og stjórnenda. Kjartan skuldar þjóðinni
beiðni um fyrirgefningu afglapa sinna.
Sú viðleitni ætti að gefa honum ein-
hvern afslátt. Vandinn er sá að banka-
ráðsmaðurinn er forhertur og hann ber
að meðhöndla sem slíkan.
Nýverið komst niðurstaða í rannsókn á því hversu lang-an tíma það tekur hugsjóna-fólk að umbreytast í raun-
sæja, eigingjarna tækifærissinna.
Niðurstaðan var liðlega þrír og hálfur
mánuður.
Þetta hófst eins og raunveru-leikaþáttur. Fjórir borgarar voru fengnir til að starfa í umboði almennings í land-
inu á hinu háttvirta Alþingi Íslend-
inga. Verkefnið sem þeir fengu var
að fylgja stefnuskrá um að uppræta
flokkapólitík og pólitíska spillingu og
bæta lýðræðið.
Um skeið talaði fólkið af miklum eldmóði og fylgdi siðferðislegum frumregl-unum sem lagt var upp
með. Þau unnu eftir „prinsippum“,
sem hér er nefnt á enskri tungu, þar
sem hugarfar Íslendinga hefur ekki
megnað að finna upp á slíku orði,
enda líklega ekkert slíkt til í íslensk-
um raunveruleika til að vísa til. Um
miðjan júlí, tæpum þremur mán-
uðum eftir að tilraunin hófst, sviku
borgararnir kosningaloforð sín og
fóru að stunda flokkapólitík.
Fyrsta brot þingmanna Borg-arahreyfingarinnar fólst í því að svíkja kosningaloforð og eigin sannfæringu með því að
neita að styðja aðildarviðræður um
ESB, nema ef hinir flokkarnir myndu
hlýða hreyfingunni og standa gegn
Icesave-samningnum. Brotið er tví-
þætt, annars vegar gegn trausti kjós-
enda um að þau myndu fylgja ESB-
umsókn og vinna gegn flokkapólitík,
og hins vegar
gegn þeirri
grundvall-
arhug-
sjón
hreyf-
ing-
ar-
innar
að
þjóðin eigi að ráða í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Annað brot Borgarahreyfing-arinnar fólst í því að beita smjörklípu á andstæðing sinn, sem reyndist vera
Þráinn Bertelsson, einn borgaranna
fjögurra. Þráinn hafði gerst sekur um
að standa gegn fyrsta brotinu. Eftir
það sáði Margrét Tryggvadóttir, önn-
ur hinna fjögurra borgara, fræjum
um andlegan heilsubrest Þráins. Hún
skrifaði bréf til varamanns Þráins,
þann hinn sama og myndi komast
inn á þing ef Þráni yrði bolað burt.
„Ég ræddi við sálfræðimenntaðann
mann í dag sem er vel inni í málum
hreyfingarinnar og hann grunar að
Þránn sé með altzheimer á byrjunar-
stigi,“ skrifaði Margrét, í áhyggjutón.
Með bréfi sínu sló Mar-grét Davíð Oddssyni við í smjörklípum. Nema hvað að Davíð hafði vit á því að
senda aldrei tölvupóst, enda vill eng-
inn að slíkt undirferli verði opinbert.
Tvennt er athyglisvert við bréfið. Hún
sendir það á þann aðila sem hefur
hagsmuni í að Þráinn fari, enda fái
hún þá upp í hendurnar völd, auknar
tekjur og tækifæri til að auka þetta
tvennt enn meira. Í öðru lagi nær
hún að leggja að Þráni með vopni
sem ekki er hægt að verjast. Sá sem er
geðveikur eða með Alzheimer getur
ekki svarað fyrir það. „Ég er ekki með
Alzheimer,“ gæti Þráinn sagt. „Þú ert
bara búinn að gleyma því, karlinn,“
hugsa hinir. Niðurstaða umræðunn-
ar nú er að Þráinn gæti verið með
Alzheimer, því það hefur hvorki verið
sannað né afsannað.
Í stað þess að leiðrétta Alzheimer Þráins heldur Margrét áfram. Hún segist ennþá bara hafa haft raunverulegar áhyggjur af
honum. Það hefði verið svo gott fyrir
hann að fá „hjálp“. Með því staðfest-
ir hún opinberlega skoðun sína um
Alzheimer Þráins. Hin leiðin hefði
verið að draga orðin til baka og biðj-
ast afsökunar, en á því hefði Mar-
grét tapað. Í eftirleiknum valdi hún
að hygla sjálfri sér á kostnað Þráins.
Helsta vörn hennar er að bréfið hefði
ekki átt að verða opinbert. Hugmynd-
in var sem sagt að skapa hljóðlátlega
efasemdir innan hreyfingarinnar um
geðheilsu Þráins. Með öðrum orðum
er vörnin sakleysi vegna misheppn-
aðs undirferlis.
Ef einhver er með Alzheimer er það Margrét, sem hefur gleymt grundvallaratrið-unum í þeim boðskap sem
kom henni á þing. Þess vegna vekur
helst athygli að hún nýtur óskoraðs
stuðnings hinna tveggja þingmanna
hreyfingarinnar.
Þá er komið að þriðja broti þingmanna Borgarahreyf-ingarinnar. Þau skera sig frá grasrótinni og hunsa fund
með stjórn hreyfingarinnar, sem
er tengiliður þeirra við almenning.
Ein þeirra neitar að víkja þótt stjórn
flokksins biðji hana um það. Hin verja
ómerkilegustu aðför sem gerð hefur
verið að íslenskum stjórnmálamanni.
Þau fórna hagsmunum umbjóðenda
sinna fyrir persónulega hagsmuni
sína. Þau horfa upp á formanninn
víkja, vegna viðbjóðs hans á vinnu-
brögðunum. Þau horfa upp á stjórn-
armenn í hreyfingunni hverfa frá
vegna niðurlægingarinnar sem þing-
mennirnir kalla yfir hana með því að
svíkja grundvallaratriði boðskapar-
ins. Þau eru tilbúin að eyðileggja allt
fyrir öllum til þess að þau haldi sjálf
völdum. Þau eru orðin það sem þau
áttu að útrýma.
Three Strikes, You’re Out!
alzheimar margrétar
Spurningin
„Já, þetta er erfiðasta
sundið sem ég hef synt eftir
Ermarsundið. Það er miklu
lengra og það er ekki hægt
að bera þetta fyllilega
saman, en engu að síður
eru þetta hvort tveggja
tæknilega erfið sund,“ segir sjósundkapp-
inn Benedikt S. Lafleur, sem kláraði
Drangeyjarsundið um helgina. Benedikt
er margreyndur sjósundkappi og hefur
meðal annars reynt að synda yfir
Ermarsundið, en þurfti að hætta við.
Var þetta sVipað
og ermarsundið?
Sandkorn
n Undirliggjandi titringur var
meðal grjótharðra sjálfstæðis-
manna vegna veru Hallgríms
Helgasonar rithöfundar í brúð-
kaupi Illuga Gunnarssonar
alþingismanns og Brynhildar
Einarsdóttur. Hallgrímur er
einn af helstu óvinum flokks-
ins og sárnaði því dyggum
flokkshestum nærvera hans.
Hallgrími var þó
ekki boðið í brúð-
kaupið nema sem
fylgdarmanni Þor-
gerðar Öglu Magn-
úsdóttur sem
er æsku-
vinkona
brúðhjón-
anna.
n Sú játning Egils Helgasonar á
Bylgjunni að hann hefði kosið
Borgarahreyfinguna í liðnum
kosningum hefur vakið mikla
athygli. Fram að þessu hefur
Egill verið talinn vera eindreg-
inn samfylkingarmaður og
kom þessi uppljóstrun því á
óvart. Það mun þó geta
orðið eftirlauna-
manninum Birni
Bjarnasyni, sem
hefur mikinn
áhuga á Agli,
til hugar-
hægðar að
Egill mun
ekki í neinu
hafa hvikað
frá jákvæðri
afstöðu sinni
til Evrópusam-
bandsins.
n Heim-
ildarmynd
Þóru Tóm-
asdótt-
ur, eins
umsjón-
armanna
Kastljóssins,
Stelpurn-
ar okkar,
hefur fengið ágætar móttökur
og þokkalega dóma. Mikil um-
fjöllun hefur verið um mynd-
ina í fjölmiðlum, enda landslið
kvenna í knattspyrnu vinsælt
um þessar mundir. Kastljósið
hefur ekki látið sitt eftir liggja
og fjallaði í löngu máli og
myndum á besta tíma um verk
umsjónarmannsins. Búist er
við að ekki muni standa á Rík-
isútvarpinu að kaupa verkið.
n Mik-
ið kapp-
hlaup er á
milli vef-
miðla þessa
dagana.
Tenglasíðan
Eyjan hafði
framan af
öruggt for-
skot á fréttavefinn Pressuna
sem Björn Ingi Hrafnsson stýr-
ir. En nú er væntanlega kominn
hrollur í Eyjumenn því Pressan
hefur tekið risastökk í sumar
og nartar í hæla Eyjunnar. Ein-
ungis vantar örfá þúsund gesta
til að Björn Ingi leggi Guð-
mund Magnússon ritstjóra í
slagnum um hylli lesenda.
LyngháLs 5, 110 REykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: Elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: Dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ef þetta hefði
verið sannað á
hann ætlaði
ég að klóna
köttinn og láta hann
borga fyrir það.“
n Kiddi vídeófluga sem telur að nágranni hans
hafi kálað kettinum hans. Kiddi geymir líkið í
frystinum, enda um sönnunargögn að ræða.
Hann segir klónun kosta um 18 milljónir. – DV.
„Miðað við
aðstæður er
þetta það besta
sem við getum
gert.“
n Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, um að
hann styðji niðurstöðu fjárlaganefndar um
fyrirvara í Icesave-málinu. – DV.is
„Ég var hins
vegar aldrei í
neinni hættu.“
n-Sjósundskappinn Benedikt
Lafleur þegar kallaðar voru út allar
björgunarsveitir í Skagafirði og nágrenni þegar
hann þreytti Drangeyjarsund. Óttast var að
Benedikt væri í hættu þegar fólk missti sjónar á
honum en þá var hann einungis að synda í kafi
vegna mikilla strauma. – Feykir.is
„Vanhæfur ...“
n... segir Ástþór Magnússon um Egil Helgason,
stjórnanda þáttanna Silfur Egils, eftir að hann
viðurkenndi á Bylgjunni á sunnudag að hafa
kosið Borgarahreyfinguna. Ástþór segir það
sönnun þess að Egill hafi vísvitandi útilokað hann
og Lýðræðishreyfinguna frá Silfrinu. – Visir.is
„Hann hringir oft í mig og
við ræðum mikið saman.“
n-Stefán Logi Magnússon, markvörður
Lilleström, um vinskap sinn og Owen Hargreaves,
leikmanns Manchester United. – Morgunblaðið
Forhertur óreiðumaður
Leiðari
reynir traustason ritstjóri skrifar. Ábyrgð Kjartans á óförunum er gríðarleg
bókStafLega
14 þriðjudagur 18. ágúst 2009 umræða
DV0905219831_04_2.jpg