Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Side 2
Fyrirhugaðar skattahækkanir ríkis-
stjórnarflokkanna munu kosta hvern
einstakling á vinnumarkaði um 5.700
krónur á mánuði. Er þá miðað við
meðallaun starfsfólks í fullu starfi
út frá launum á almennum markaði
árið 2008. Ef reiknað er út frá þeim
sem eru bæði í fullri vinnu og hluta-
störfum nemur hækkunin 136 krón-
um á mánuði.
Skattabreytingarnar koma verst
niður á þeim sem hafa í kringum 750
þúsund krónur í laun á mánuði. Hjá
þeim hækkar skatthlutfallið um 11,5
prósent. Hins vegar lækkar skatthlut-
fallið um 5,4 prósent hjá þeim sem
hafa minna en 250 þúsund krónur í
laun á mánuði.
Bjarni gagnrýnir harðlega
Fyrirhugaðar skattahækkanir ríkis-
stjórnarinnar vöktu hörð viðbrögð
stjórnarandstöðunnar í gær. „Brjál-
æðið í þessum hugmyndum ligg-
ur í því að það er ekki hægt að stór-
auka álögur á atvinnustarfsemi og
einstaklinga þegar við erum í þess-
ari kreppu,“ sagði Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins
í umræðum á Alþingi. „Þetta kall-
ar þingmaðurinn brjálaða leið sem
mér finnst dálítið merkilegt þegar við
erum að tala um þrepaskipt skatt-
kerfi eins og hin brjáluðu Norður-
lönd hafa til dæmis valið,“ sagði Katr-
ín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
í andsvari. Viðskiptaráð Íslands tel-
ur hugmyndir ríkisstjórnarinnar um
skattahækkanir ekki til þess falln-
ar að efla tekjur hins opinbera. Þær
muni heldur ekki hraða efnahags-
bata landsins.
Tekjulágir græða
Fréttastofa RÚV sagði frá því á
mánudaginn að vinnuhópur inn-
an ríkisstjórnarinnar væri að vinna
að þrepaskiptum skattahækkunum.
Í þeim felst að tekjuskattur á ein-
staklinga með 250 þúsund krónur og
minna verður 36,1 prósent í staðinn
fyrir 37,2 prósent líkt og hann er nú.
Sá hópur mun því græða á áformuð-
um skattabreytingum. Þeir sem hafa
á bilinu 250 til 500 þúsund krón-
ur borga 41,1 prósents tekjuskatt af
tekjum umfram 250 þúsund krónur.
Þriðja þrepaskiptingin er síðan fyrir
2 miðvikudagur 11. nóvember 2009 fréttir
Er
Verður
EinsTaklingar
Hjón, Ein fyrirvinna
Er
Verður
250.000 kr. 375.000 kr. 500.000 kr. 750.000 kr. 1.000.000 kr.
250.000 kr. 375.000 kr. 500.000 kr. 750.000 kr.
mánaðarlaun
mánaðarlaun
50.795 97.295
143.795
240.795
353.795
48.045
99.420
150.795
268.545
386.295
8.590
55.090
175990
311590
5.840
57215
202790
344.090
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
PErsónuafsláTTurinn
sTEndur í sTað
23.360
42.205
svona breytast
skattarnir þínir
annas sigmundsson
blaðamaður skrifar: as @dv.is
skattar hækka
um 5.660 krónur
Ríkisstjórnin áformar miklar hækkanir á tekjuskatti. Gangi
þær í gegn þýða þær 5.700 króna skattahækkun á meðaleinstakl-
ing á vinnumarkaði. Þeir sem hafa 750 þúsund krónur á mánuði
verða fyrir mestri hækkun, eða 11,5 prósenta. lilju mósesdótt-
ur, þingmanni Vinstri-grænna, hugnast tillögurnar.
5.700 króna hækkun
Fyrirhugaðar skattahækkanir
munu kosta meðallaunafólk
5.700 krónur á mánuði.
mynd rakEl ósk sigurðardóTTir
Brjálaðar tillögur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur skattatil-
lögur stjórnarflokkanna brjálaðar.
mynd sigTryggur ari jóHannsson
Hugnast tillögurnar Lilja Mósesdóttir,
þingmaður Vinstri-grænna, segir að sér
hugnist fyrirhugaðar skattahækkanir.
Hún vonast til að frumvarp um skatta-
breytingar komi fyrir Alþingi í næstu
viku. mynd krisTinn magnússon