Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Blaðsíða 6
6 miðvikudagur 11. nóvember 2009 fréttir
„Þessi málflutningur dæmir sig nátt-
úrlega sjálfur. Það tekur enginn mark
á svona gífuryrðum og það er ein-
mitt liður í okkar baráttur að útrýma
svona löguðu,“ segir Þórarinn Tyrf-
ingsson, yfirlækni SÁÁ á Vogi.
Kleopatra Kristbjörg Stefánsdótt-
ir, forstjóri Gunnars Majoness, nýtur
vaxandi vinsælda sem rithöfundur
og veitir fjölda fólks andlegan inn-
blástur með boðskap sínum. Sem
rithöfundur hefur hún vakið bæði
reiði og aðdáun. Það er einna helst
með sjálfshjálparbók sinni, Hermi-
krákuheimi, sem Kleopatra hefur
vakið athygli en þar deilir hún hart á
íslenskt samfélag og þar fá alkóhólist-
ar, geðsjúkir og ofvirkir það óþvegið.
Sjálf segist hún á móti öllum öfgum
en fullyrðir að skrif sín byggist á stað-
reyndum. Einstaklinga sem þjást af
áðurnefndum einkennum segir hún
dómgreindarlausa, hömlulausa, sið-
blinda, óheiðarlega, ógeðslega, einn
mesta viðbjóð veraldar og skepnur
með brenglað raunveruleikskyn.
Aðspurður viðurkennir Þórar-
inn að með lýsingunum sé gengið of
langt gagnvart veikum einstakling-
um. Hann bendir á að þetta sé ekki í
fyrsta sinn sem fjallað sé illa um alkó-
hólista enda afli þeir sé ekki oft vin-
sælda. „Í áratugi höfum við þurft að
glíma við svona fullyrðingar því sjúk-
dómurinn veldur miklum tilfinning-
um hjá fólki og skoðunum. Vissulega
er sjúkdómurinn viðurstyggilegur.
Heilasjúkdómar, líkt og áfengissýki,
eru ekki skemmtilegir eða geðslegir,
ekkert frekar en til dæmis húðsjúk-
dómar,“ segir Þórarinn.
trausti@dv.is
Þórarinn Tyrfingsson hissa á málflutningi Majonesforstjóra:
Tekur ekki mark á gífuryrðum
Ekki vinsælir Þórarinn segir alkóhól-
ista sjaldan skapa sér vinsældir enda
sé sjúkdómurinn viðurstyggilegur.
Stjórnvöld vildu
ekki stjórna
Eva Joly, ráðgjafi Ólafs Hauks-
sonar sérstaks saksóknara,
segir í viðtali við norska blaðið
Aftenposten að það muni taka
mörg ár að finna ábyrgðarmenn
íslenska efnahagshrunsins og fá
þá dæmda.
Hún segist lítið koma að eig-
inlegri rannsókn heldur gefa að-
eins ráð um hverju Íslendingar
eigi að fylgjast með og hvers lags
skjöl þeir eigi að reyna að finna.
„Það sem gerðist á Íslandi er
aðvörun til Noregs og annarra
landa. Að eitt af ríkustu löndum
heims geti fallið á einni nótt á
þennan hátt er mikil vakning
fyrir íbúa Íslands. Ísland hafði
stjórn sem vildi ekki stjórna og
lánastarfsemi sem virkaði ekki,“
segir Eva.
Vilja kynlíf fyr-
ir íbúðaleigu
Ýmislegt má finna á stefnu-
mótasíðunni einkamál.is, allt
frá sannri ást til fréttamanna
sem dulbúa sig sem vændis-
konur. Ein auglýsing hefur þó
vakið athygli en þar auglýsir
par 30 fermetra stúdíóíbúð í
101 Reykjavík til leigu.
Það er kannski ekki í frá-
sögur færandi nema fyrir þær
sakir að hún leigist endur-
gjaldslaust til „réttrar konu
sem er tilbúin að sofa hjá
okkur annað slagið“, eins og
það er orðað í auglýsingunni.
Maður barði
barnsmóður sína
Karlmaður var í Héraðsdómi
Reykjaness dæmdur til að greiða
barnsmóður sinni 150 þús-
und króna sekt eftir að hafa í
lok ágúst árið 2008 slegið hana
með flötum lófa og hrint henni
þannig að hún féll í gólfið.
Maðurinn vildi hitta fimm
ára son sinn og sakaði barns-
móður sína um að reyna að
koma í veg fyrir það.
Maðurinn mætti að sögn
konunnar mjög ölvaður klukkan
7 að morgni 31. ágúst 2008 og
bankaði upp á hjá henni og vildi
hitta son þeirra. Maðurinn gerði
engin boð á undan sér og óð inn
eftir að barnsmóðir hans opnaði
dyrnar. Hann sló konuna þegar
hún lýsti óánægju sinni með
heimsókn hans í þessu ástandi
og gekk síðan rakleiðis út.
Stálu bensíni
af bíl
Tveir piltar um tvítugt voru
gripnir glóðvolgir í Hafnar-
firði um miðnætti aðfaranótt
þriðjudags þar sem þeir voru
að stela bensíni af bíl. Pöru-
piltarnir voru með slöngu og
brúsa í fórum sínum þegar
lögreglan kom á vettvang og
höfðu náð að stela nokkrum
lítrum af bensíni.
Eldsneytinu var hellt aftur á
bílinn en piltarnir voru hand-
teknir og fluttir á lögreglustöð.
Forsvarsmenn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, þurfa að gefa fullnægjandi
skýringar á heimsókn fjármálastjórans Pálma Jónssonar á strippstað í Sviss fyrir
fjórum árum. Stjórnarmaður KSÍ segir heimsóknir á nektardansstaði algengar í
tengslum við ráðstefnur knattspyrnuhreyfinga.
STRIPPHEIMSÓKN
EKKI EINSDÆMI
Heimsóknir ráðstefnugesta á veg-
um knattspyrnuhreyfinga á nekt-
ardansstaði eru algengar og dæmi
eru um að auglýsingabæklingar
frá slíkum stöðum liggi á borð-
um á ráðstefnum sem haldnar
eru. Þetta fullyrðir einn stjórnar-
manna Knattspyrnusambands Ís-
lands, KSÍ, í samtali við DV.
„Ég man vel eftir því, á ráð-
stefnu á vegum UEFA, að þar lágu
svona bæklingar á öllum borð-
um, og jafnvel frá nokkrum svona
strippbúllum. Þetta þykir ekk-
ert tiltökumál hefur mér sýnst
og virðist vera eitthvað sem tíðk-
ast,“ segir stjórnarmaðurinn, sem
vegna eðli málsins vill ekki láta
nafns síns getið.
Of heilagur?
Eggert Magnússon, fyrrverandi
formaður KSÍ, segir að í for-
mannstíð sinni hafi hann sett á
skýrar reglur um hegðun starfs-
manna í ferðum á vegum sam-
bandsins. „Auðvitað man ég eft-
ir þessu máli og öll svona sorgleg
mál koma manni á óvart. Þegar
ég var inni hjá KSÍ tók ég þetta
rækilega í gegn, ég setti kannski
ekki blátt bann en ég ætlaðist
til þess að hegðun manna, sem
væru í fararbroddi hreyfingarinn-
ar, væri í alla staði í lagi og alltaf
í anda samtakanna,“ segir Egg-
ert. Aðspurður kannast hann ekki
við að það sé algengt á ráðstefn-
um að gestir stundi nektarstaði.
„Nei, guð hjálpi mér, þetta er ekki
algengt. Ég kannast ekkert við
það og kannast ekki við að þetta
sé einhver lenska innan knatt-
spyrnuhreyfinga. Kannski hef ég
þó sjálfur verið orðinn svo heilag-
ur að ég er kannski síðasti maður-
inn til að taka eftir svona.“
Krefst svara
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, hefur
farið fram á fullnægjandi skýringar
af hálfu forsvarsmanna KSÍ, vegna
heimsóknar Pálma Jónssonar, fjár-
málastjóra samtakanna, á stripp-
stað í Sviss. „Við viljum fá það á
hreint hvernig þetta geti hreinlega
gerst,“ segir Katr-
ín sem sendi KSÍ
formlegt erindi í
vikunni.
Pálmi glataði 3,2
milljónum króna, á
þáverandi gengi, af
kreditkorti sínu og
KSÍ á súlustaðnum
Rauðu myllunni,
Moulin Rouge, í
Zürich í Sviss árið
2005. Það hefur
verið staðfest að
Pálmi heimsótti
staðinn en hann
fullyrðir að millj-
ónirnar hafi verið
teknar af kortun-
um í leyfisleysi.
Eftir að kortanotkunin kom í ljós
lýsti Pálmi strax yfir sakleysi sínu
og bauðst til að borga brúsann.
Katrín vill skýringar á því hvers
vegna fjármálastjórinn heimsótti
strippstaðinn yfirhöfuð og það
með kreditkort sambandsins upp
á vasann.
Ekki í anda KSÍ
„Við óskum eftir skýringum á þessu
enda er þetta mjög skrítið allt sam-
an. Að fjármála-
stjórinn sé með
kort samtak-
anna á stað sem
þessum er ekki
í lagi. Viðkom-
andi var auðvit-
að í opinberri
ferð og starfs-
fólk samtakanna
gegnir hlutverki
fyrirmynda. Í
ljósi þess að samtökin gegna mikil-
vægu uppeldishlutverki, og þiggja
auðvitað almannafé, þá viljum við
fá fullnægjandi skýringar á þessu
atviki,“ segir Katrín.
„Hugsanlega sofnaði hann á
staðnum og kortin voru tekin,“
sagði Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, í Kastljósþætti í fyrradag. Geir
var með Pálma í för en segist ekki
hafa haft úthald til að halda áfram
að skemmta sér að loknum kvöld-
verði. Það hafði Pálmi hins veg-
ar. Þegar málið kom upp ákváðu
stjórnendur KSÍ að leyfa Pálma
að halda starfi sínu, enda yrði
sambandið ekki fyrir fjárhagsleg-
um skaða, en Geir viðurkennir að
hugsanlega hefði Pálmi ekki hald-
ið starfi sínu hefði málið komið
upp í dag þar sem hegðunin væri
ekki í anda KSÍ. Stjórn sambands-
ins fundar um málið í næstu viku.
Tæklað á sínum tíma
Gylfi Þór Orrason, varaformaður
KSÍ, segir lítið um málið að segja
sem ekki hefur komið fram nú þeg-
ar. Hann kannast ekki við að heim-
sóknir á strippstaði séu algengar.
„Þar sem ég hef farið í svona ferð-
ir í kringum dómaramálin er þetta
alveg óþekkt en ég þekki ekki aðrar
ráðstefnur. Ég tel hins vegar að KSÍ
hafi gert það sem hægt var í þessu
máli,“ segir Gylfi Þór.
„Kannski hef ég þó
sjálfur verið orðinn
svo heilagur að ég er
kannski síðasti mað-
urinn til að taka eftir
svona.“
TrauSTi hafSTEinSSOn
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„DREKK EKKI
EINU SINNI
KAMPAVÍN“
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
FJÁRMÁLASTJÓRI KSÍ PLATAÐUR Á STRIPPSTAÐ:
BIRKIR
SLAPP
fRéttIR
dv.ismánudAguR og þRIðjudAguR 9. – 10. nóveMBeR 2009 dagBlaðið vísiR 149. tBl.99. áRg. – veRð kR. 395
EVA JOLY
MEÐ ÆXLI
KemuR á mIðvIKudAg
UMDEILT
MÁLVERK
Á HEILSU-
GÆSLU
SÝKTUR
MATUR
LæRðu Að
foRðASt hAnn
FÉKK SON Í
AFMÆLISGJÖF
fRéttIR
fRéttIR
gReIðSLuKoRt KSÍ vAR
notAð á StRIPPBÚLLu Í SvISS
femÍnIStAféLAgIð vILL StjÓRn KSÍ BuRtfoRmAðuR KSÍ SáR Út Í femÍnIStAgeIRI BÝðuR KSÍ á goLdfIngeR
mAjoneS-
foRStjÓRI
gegn neYSLuhYggju
fRéttIR
þjÓðIn teKuR
KRePPunA
Í nefIð
PISSAðI
með hugh
gRAnt
LjÚft LÍf áRmAnnS þoRvALdSSonAR
SKuLdAðI þRjá mILLjARðA en SeLdI BRÓðuR SÍnum
neYtenduR
fÓLK
sv
ið
se
tt
M
Yn
d
-
PH
O
tO
s.
CO
M
Tók þetta í gegn
Eggert segist hafa
krafist þess á sínum
tíma að hegðun
manna væri í anda
samtakanna.
9. nóvember