Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Blaðsíða 30
„Ég er búinn að vita af þessu í smátíma. Þetta eru náttúrlega sorgartímar fyrir okkur Lemon- menn,“ segir Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamað- ur á Fréttablaðinu og einn helsti drykkjurútur Fanta Lemon á Ís- landi. Fanta Lemon verður tekið úr sölu innan tíðar þrátt fyrir gríð- arlegar vinsældir. Þegar drykkurinn var endurfædd- ur hér á landi fékk Henry fullt skott af birgðum sem hann er nú búinn með. „Ég gaf nú mestallt til vina og ættingja. Breiddi út fagnaðarerindið um hvað þetta er óhemjugóður drykkur,“ segir Henry sem kveður nú Fanta í bili, sár og svekktur. Hann verður þó ekki Lemon-laus því hann keypti birgðir um daginn sem eiga að endast honum veturinn. Bókin Sjúddirarí rei kemur út í vikunni en þar fer Gylfi Ægisson yfir liðna tíð og gerir upp ævi sína með öllu tilheyrandi. Tónlistinni, drykkjusögunum og konun- um í lífi hans. Það er Sólmundur Hólm Sólmundarson sem skráir sögu Gylfa en meðal þess sem hann minnist í bókinni er þegar hann var handtekinn í Færeyj- um fyrir vopnaburð. „Ég hafði kynnst leigubílstjóra í með- ferðinni á Silungapolli sem sagði að það þýddi ekkert fyrir mig að fara til Færeyja nema hafa skammbyssu meðferðis,“ seg- ir Gylfi í bókinni en hann hafði ákveðið að fara til Færeyja í atvinnuleit. „Hann lét mig fá leikfangabyssu sem hann hafði fiktað eitthvað í svo það kom blossi út úr hlaupinu þegar hleypt var af.“ Gylfi datt í það aftur rétt áður en hann fór til Færeyja og því hélt drykkjan áfram þar. „Ég var því nokkuð fullur þegar ég lenti í Þórshöfn í Færeyjum, klæddur í hvít jakkaföt og með dótabyssu í vasan- um.“ Daginn eftir vaknaði Gylfi á hót- eli skelþunnur og fór niður í móttöku til að skila lyklinum að herberginu. Þar brá honum svo við þegar einn hótelgest- anna sló saman lófunum að hann dró byssuna úr vasanum og hleypti af. Gylfi forðaði sér síðan út en þeg- ar hann snéri aftur á hótelið seinna um daginn beið hans víkingasveitin. Þegar í ljós kom að um leikfangabyssu var að ræða var Gylfa sleppt og mikið hlegið að því að víkingasveitin hefði verið kölluð út til að hafa hendur í hári mafíósans í hvítu jakkafötunum með dótaskamm- byssuna. asgeir@dv.is Með skotvopn í FæreyjuM sorgartíMar Gylfi ÆGisson hleypti af í lobbíinu: Jónas BJarki Gunnarsson: Kristrún Ösp Barkardóttir, fyr- irsæta og kærasta knattspyrnu- goðsins Dwights Yorke, er gríð- arlega vinsæl á fésbókinni, enda með mynd af sér í bikiníi einum fata. Kristrún er vinkona Friðriks Ómars, stórsöngvara, enda bæði að norðan. Eitthvað fer profile- mynd Kristrúnar fyrir brjóst- ið á söngvaranum sem skrifar: „Ofsalega ertu fáklædd á þessari mynd, mín kæra. Farðu nú að klæða þig svo þér verði ekki kalt ... maður verður að dressa sig upp eftir veðri og vindum hér á Íslandi,“ segir Friðrik Ómar. 30 Miðvikudagur 11. nóvember 2009 Fólkið Gylfi Ægisson Hefur upplifað tímana tvenna. Fyrir leMon- Menn „Það er engin tilbreyting hér. Það er hrikalegt að eyða afmælisdeginum í fangelsinu. Ég á samt von á einhverjum gjöfum. Vinkona mín, hjúkrunarkona, ætlar að gefa mér Bullwork- er-tæki og ég reikna með gjöfum frá öðrum vinum,“ segir Jónas Bjarki Gunnarsson, fangi í Hegningarhúsinu, sem fagnar fimmtugsaf- mæli sínu í dag. Jónas var dæmdur fyrir smá- þjófnaði, meðal annars að hafa stolið súpu í 10-11. Hann hefur setið inni í sjö vikur og all- an tímann í Hegningarhúsinu. Jónas segir vist- ina vera dauflega. „Hér er ekkert við að vera. Ég fæ að fara út í garð tvisvar á dag, hálftíma í senn. Fyrst er mér hleypt út klukkan 10 um morguninn en síðan klukkan hálf fjögur. Afmælisdagurinn verður eins og aðrir dagar hér. Mig langaði til að gefa sjálfum mér fartölvu í afmælisgjöf en ég fæ ekki föðurarfinn minn,“ segir Jónas Bjarki. Hann segist þó ekki kvarta yfir aðbúnaði í fangelsinu sem komið er til ára sinna. „Það er betra að vera hér en í sambýlinu á Miklubraut. Þar var svo mikil óregla sem er ekki hér,“ segir hann og bæt- ir við að dagarnir hafa silast áfram í aðgerðar- leysi. Jónas segist vera dapur en það er þó eitt ljós í myrkrinu. Með- al samfanga Jónasar er Hosmany Ramos, brasilíski lýtalæknirinn sem dæmdur var fyrir mannrán, morð, bifreiða- smygl og flugvélaþjófnað í heimlandi sínu og er eftirlýstur þar. „Hér eru fangar niðurdregnir. En ég kann vel við Ramos lækni sem hefur sýnt mér vin- áttu. Hann er skemmtilegur félagi,“ segir Jónas. Jónas heldur upp á fimmtugsafmæli sitt í skugga þess að hafa fyrir margt löngu verið sviptur sjálfræði á grundvelli þess að hafa ver- ið greindur geðveikur. Hann segir þá grein- ingu vera alranga. „Ég er ekki geðveikur. Vandi minn er að ég er alkóhólisti og fórnarlamb rangrar greining- ar og meðhöndlunar. En ég ætla að taka mig á með því að fara í meðferð á Vog. Þangað fer ég 26. nóvember. Mig dreymir um að verða frjáls og laus undan fíkninni,“ segir Jónas Bjarki. rt@dv.is Fagnar aFMælinu Með lýtalækninuM Jónas Bjarki Gunnarsson var dæmdur fyrir súpuþjófnað og fleiri smáafbrot. hann afplánar í hegningarhúsinu þar sem hann fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. eina tilbreytingin er sú að hann fær að fara út í garð. besti vinurinn í fangels- inu er hosmany Ramos, brasilíski lýta- læknirinn sem dæmdur var fyrir morð og mannrán. raMos Til hamingju Jónas Bjarki er fimmtugur í dag og fagnar því innan fangelsisveggja. mynd vilhelm Gunnarsson Fínn vinur Jónas er mikill vinur Hosmanys Ramos. „Ég kann vel við Ramos lækni sem hefur sýnt mér vináttu. Hann er skemmtilegur félagi.“ vill bikiní- boMbu í Föt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.