Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Síða 4
4 miðvikudagur 11. nóvember 2009 fréttir
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Hafsteinn Númason, fyrrverandi sjó-
maður, varð fyrir miklum vonbrigð-
um þegar Héraðsdómur Reykjavíkur
komst að þeirri niðurstöðu að Trygg-
ingamiðstöðin ehf. þyrfti ekki að
greiða honum tæplega þrjátíu millj-
ónir í skaðabætur vegna alvarlegs
umferðarslyss sem hann varð fyrir í
september 2001.
Ágreiningurinn stóð um við
hvaða árstekjur skyldi miða þegar
reiknaðar væru bætur vegna varan-
legrar örorku Hafsteins. Trygginga-
miðstöðin miðar við lágmarkslaun
en Hafsteinn vildi að miðað yrði við
mun hærri laun þar sem slysið hefði
svipt hann þeim möguleika að halda
áfram sjómennsku.
Hlaut mikla áverka
„Þetta voru gríðarleg vonbrigði. Ég
reyndi að vera ekkert of vongóður en
maður ræður ekki við það. Innst inni
vonaði ég innilega að ég myndi vinna
þetta mál,“ segir Hafsteinn. Hann er
ekki búinn að taka endanlega af-
stöðu til dómsins og vegna fjárskorts
hefur hann ekki ákveðið hvort hann
áfrýjar málinu til Hæstaréttar. „Ef ég
ætti pening væri ég búinn að áfrýja
því,“ segir hann.
Umrætt umferðarslys átti sér stað
þegar Hafsteinn ók bifreið sinni eftir
Suðurlandsvegi, austan við Þrengsla-
vegamót, og fór út af veginum í kjölfar
þess að einn hjólbarðinn sprakk. Bif-
reiðin var tryggð bæði með ábyrgð-
artryggingu og slysatryggingu öku-
manns. Eftir slysið hlaut Hafsteinn
mikla áverka á andliti, augum, öxl,
úlnlið og sköflungi, auk þess sem
hann varð fyrir andlegu áfalli.
Hvorki var uppi ágreiningur um
bótaskyldu Tryggingamiðstöðvar-
innar né afleiðingar slyssins heldur
aðeins um útreikning bóta. Trygg-
ingamiðstöðin hafði samþykkt að
greiða Hafsteini um átta milljónir í
bætur.
Missti þrjú börn í snjóflóði
Hafsteinn á að baki um tuttugu ár á
sjónum. Fyrri hluta áttunda áratug-
arins stundaði Hafsteinn sjóinn af
kappi þar sem hann var netamaður
á togaranum Bessa frá Súðavík. Þeg-
ar snjóflóðið féll á Súðavík í janúar
1995 missti Hafsteinn þrjú börn sín
auk þess sem eiginkona hans slasað-
ist alvarlega. Missirinn var Hafsteini
afar þungbær og hætti hann á sjón-
um í kjölfarið.
Þau hjónin fluttu frá Súðavík eft-
ir áfallið og eignuðust tvær dætur.
Hafsteinn keypti sendibíl og starfaði
um tíma bæði sem sendibílstjóri og
leigubílstjóri. Fyrst eftir slysið treysti
hann sér ekki til að fara aftur á sjó en
hann var á sjónum þegar hann fékk
fréttirnar af láti barna sinna. Hann
reyndi að halda áfram á sjónum en
minningar tengdar snjóflóðinu voru
honum ofviða.
Ekki raunhæfar væntingar
Fyrir dómi sagði Hafsteinn að hug-
ur hans hefði alltaf staðið til þess að
fara aftur á sjó. Ástæður þess að hann
hafði ekki látið verða af því á þeim
tæpu sjö árum sem liðu frá snjóflóð-
inu og þar til hann lenti í bílslysinu
sagði hann vera þær að hann hefði
viljað vinna í landi á meðan dætur
hans væru að vaxa úr grasi, auk þess
sem hann ætlaði að afla sér réttinda
sem leigubílstjóri áður en hann færi
aftur á sjó til að hann gæti ekið leigu-
bíl þegar hann væri í landi.
Vinir og ættingjar Hafsteins stað-
festu að hann ætlaði alltaf aftur á
sjó. Dómara þótti hins vegar ekki
sýnt fram á með raunhæfum hætti
að honum væri það mögulegt. Þar
lagði hann til grundvallar vitnisburði
lækna.
Í niðurstöðu dóms segir: „Þykir
stefnandi ekki hafa sýnt fram á það
með haldbærum gögnum að starfs-
geta hans hefði aukist með slíkum
hætti að framtíðartekjur hans hefðu
orðið hærri en þær voru fyrir slys það
sem hér um ræðir.“
Hafsteinn Númason tapaði skaðabótamáli gegn Tryggingamiðstöðinni sem hann höfð-
aði eftir alvarlegt bílslys. Hafsteinn vildi að bætur vegna varanlegrar örorku hans væru
miðaðar við laun hans sem sjómaður en Tryggingamiðstöðin miðar við lágmarkslaun.
„GRÍÐARLEG VONBRIGÐI“
„Ég reyndi að vera ekk-
ert of vongóður.“
Erla HlyNsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
ósáttur Hafsteinn Númason er
ósáttur við niðurstöðu héraðsdóms.
Vegna fjárskorts er hann óviss um
hvort hann getur áfrýjað dómnum.
MyNd KristiNN MagNússoN
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fundar með nemendafélögum:
Unglingar mótmæla
Unglingar í Hafnarfirði ætla í dag að
fjölmenna niður í Ráðhús Hafnar-
fjarðar og mótmæla harðlega fyrir-
huguðum niðurskurði í félagsmál-
um unglinga í bænum. Talsmaður
unglinganna, Adda Guðrún Gylfa-
dóttir, gengur þá á fund bæjarstjóra.
„Það á að skera mjög mikið niður
gagnvart félagsmiðstöðvunum og
okkur finnst það ekki hægt. Það hlýt-
ur að vera hægt að gera margt annað
en láta þetta bitna á okkur ungling-
unum,“ segir Adda Guðrún.
Í vikunni funduðu öll nemenda-
félög grunnskólanna í Hafnarfirði og
þá voru fjöldamótmælin skipulögð.
Stefnt er að því að allir unglingar
skólanna fjölmenni í göngu upp úr
hádegi í dag að ráðhúsinu þar sem
niðurskurðinum verður mótmælt.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, kallaði alla fulltrúa
nemendafélaganna á sinn fund í
gær til að ræða málin. Hann telur
mikilvægt að þjónustu fyrir ung-
linga verði haldið uppi eins og kost-
ur er. „Það er óvíða eins vel staðið
að æskulýðsmálum og hér í Hafn-
arfirði. Ég boðaði til þessa fundar
til að fara yfir málin því ég tel nokk-
urs misskilnings gæta. Það þarf að
koma víða við til að gæta hagræð-
ingar en það er gott að unglingarnir
séu vel upplýstir um hvernig þetta
verður. Það er með unglingastarf-
ið eins og annað að það mun ein-
hvers staðar þurfa að gera breyting-
ar til að ná fram hagræðingu,“ segir
Lúðvík.
trausti@dv.is
Upplýst umræða Lúðvík segir nokk-
urs misskilnings hafa gætt í umræðu
um niðurskurð í unglingastarfi.
Fleiri karlar en
konur makalausir
Það gæti orðið erfitt fyrir ein-
hleypa íslenska karlmenn að
finna sér maka af gagnstæða
kyninu því einhleypir karlmenn
eru 45,7 prósent af íslensku karl-
þjóðinni en einhleypar íslenskar
konur eru 35,5 prósent af kven-
þjóðinni, samkvæmt Lands-
högum, hagtöluriti Hagstofu
Íslands. Því er sýnt að úrvalið
af einhleypum karlmönnum er
meira fyrir konurnar.
Langflestir einhleypir karl-
menn og konur eru í Reykja-
vík en einhleypir karlmenn eru
50,8 prósent af karlkyns íbúum
Reykjavíkur og einhleypar kon-
ur eru 41,4 prósent af konum í
Reykjavík.
Bóluefni seinkar
Seinkun hefur orðið á afhend-
ingu bóluefnis gegn svínainflú-
ensu hingað til lands í þessari
viku og auk þess kemur minna
magn en gert hafði verið ráð
fyrir. Af þessu leiðir að seink-
un getur orðið á bólusetningu
einstaklinga með undirliggjandi
sjúkdóma sem ráðgerð hafði
verið í þessari og næstu viku.
Einstaklingar sem bókað hafa
tíma í bólusetningu í þessari og
næstu viku er beðnir um að hafa
sambandi við sína heilsugæslu-
stöð varðandi hugsanlega end-
urbókun á bólusetningunni.
Athugasemd
Í umfjöllun um arðgreiðslur til
Björns Leifssonar, eiganda World
Class, í miðvikudagsblaði DV,
kom fram að World Class stefndi
í þrot. Hið rétta er að Björn hefur
fært rekstur líkamsræktarstöðv-
anna úr því félagi sem stefndi í
þrot og inn í félag með annarri
kennitölu. Því á það ekki lengur
við að World Class stefni í þrot,
enda voru skuldirnar skildar eftir
í fyrra félaginu.