Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Síða 9
fréttir 11. nóvember 2009 miðvikudagur 9 Meirihluti landsmanna vill að stjórnvöld marki sjálf stefnuna um afskriftir skulda fyrirtækja og heimila. Um þriðjungur vill að bankarnir móti stefnuna samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Háskólinn á Bifröst hefur gert. Forseti viðskiptadeildar segir að gagnsæið sé mest um vert og ekki sé alltaf skynsam- legt að skipta út stjórnendum fyrirtækja þegar hafist er handa við afskriftir og endurskipulagningu. TreysTa sTjórnvöldum beTur en bönkunum Tveir af hverjum þremur telja að stjórnvöld eigi að marka stefnuna um afskriftir skulda. Þriðjungur telur vænlegra að bankarnir móti stefnuna sjálfir. Þetta er niðurstaða könnunar sem Rannsóknarmiðstöð Háskól- ans á Bifröst gerði dagana 26. októ- ber til 3. nóvember fyrir viðskipta- deild háskólans. Í könnuninni var meðal annars spurt um afskriftir lána og hvort bankarnir sjálfir ættu að móta stefnu um afskriftir eða stjórnvöld. Tekið var 1350 manna tilviljunarúr- tak úr þjóðskrá meðal einstaklinga á aldrinum 18 til 75 ára af landinu öllu. Rétt tæp 65 prósent úrtaks- ins svöruðu spurningunum um af- skriftir lánanna. Meirihluti svarenda, eða 66 pró- sent, taldi vænlegra að ríkið mótaði stefnuna; 34% sögðu að bankarn- ir ættu að gera það sjálfir. Nokk- ur munur var á afstöðu fólks eftir aldri. Yngra fólk var hlynntara því en eldra fólk að bankarnir mótuðu afskriftastefnuna sjálfir. Fólk utan höfuðborgarsvæðisins var hlynnt- ara því að bankarnir mótuðu sjálf- ir sína eigin stefnu en fólk á höfuð- borgarsvæðinu. Það vildi fremur að stjórnvöld mótuðu stefnuna. Ráðast á skuldaskaflinn strax Ásta Dís Óladóttir, forseti viðskipta- deildar háskólans á Bifröst, bendir á að í skýrslu frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum komi fram að afskrifa þurfi umtalsvert af skuldum á Íslandi líkt og í öðrum löndum. „Erlendur ráðgjafi sem var hér á landi á veg- um ríkisins gerði úttekt á stöðu úr- lausnarmála og taldi hann að vand- ræðagangur ríkisins og bankanna í að viðurkenna nauðsyn þess að af- skrifa skuldir fyrirtækja og heimila gæti tafið endurreisn efnahagslífs- ins um þrjú til fimm ár.“ Ásta Dís segir nauðsynlegt fyrir bankana og stjórnvöld að afskrifa skuldir hjá fyrirtækjum og heim- ilum í landinu. Það hafi lítið upp á sig að búa til svokallaðan skulda- skafl sem engin leið verði að kljúfa á endanum. „Það verður að búa til einhvern hvata hjá fólki til að vinna sig út úr vandamálum sínum og að fólk sjái fram á að geta að lokum greitt sín- ar skuldir.“ Skellur erlendra kröfuhafa „Það er staðreynd að þau lán sem nú eru innan nýju bankanna voru yfir- tekin frá gömlu bönkunum á mikl- um afföllum. Þegar upp er staðið eru það erlendir kröfuhafar gömlu bankanna sem taka á sig afskriftirn- ar og það hafa þeir þegar gert og fyr- irtækin og heimilin í landinu þurfa að njóta góðs af því. Líklegast standa bankarnir frammi fyrir því að í ein- hverjum tilfellum muni þeir þurfa að afskrifa meira en kaupverð viðkom- andi láns en á móti ná þeir, ef skyn- samlega er unnið úr málum, meiru annars staðar, svo meðaltalið gæti orðið ágætt.“ Ásta Dís bendir á að bankarn- ir séu nú þegar byrjaðir að bjóða heimilunum í landinu upp á leið- réttingu lána. Hún telur þó að skort hafi á stefnu í þeim efnum. „Íslensk fyrirtæki eru allt of skuld- sett og við blasir að leiðrétta fjárhag þeirra eftir hrunið. Það er hins veg- ar flóknara mál því skoða þarf hvert fyrirtæki fyrir sig. Svo virðist vera sem stjórnendum bankanna sé ekki treyst fullkomlega í þeim efnum og er óttast um hlutlæga fyrirgreiðslu innan þeirra þrátt fyrir að stjórnir bankanna séu pólitískt skipaðar og bankarnir sjálfir hafi mótað verk- lagsreglur í þeim efnum.“ Gagnsætt ferli nauðsynlegt „Þegar komið er að því að taka ákvarðanir um úrbætur fyrir fyrir- tæki sem eiga í fjárhagsvanda þarf að meta marga þætti í innra og ytra umhverfi þeirra. Að sjálfsögðu þarf að leggja á það bæði hlutlæga og huglæga mælikvarða.“ Ásta Dís telur að ef fyrirtæki eru metin lífvænleg sé jafnframt nauð- synlegt að hafa viðskiptalegar for- sendur að leiðarljósi þegar greitt sé úr vanda þeirra. „Það ferli þarf að vera eins gagnsætt og hægt er. Í gagnsæinu felst ekki að allt sé op- inberað heldur að teknar séu upp samræmdar verklagsreglur. Þó er nauðsynlegt að hafa í huga að mis- jöfn staða fyrirtækja getur kallað á ólíkar aðferðir. Það þurfa ekki að vera neinir annarlegir hagsmunir þar að baki. Einnig verður að taka það með í reikninginn að á með- an bankarnir vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu með fyrirtækj- um þarf að halda þeim gangandi og þá er ekki endilega best að skipta um stjórnendateymið eins og oft hefur verið haldið fram. Það liggur ljóst fyrir að kostnað- urinn við afskriftir skulda í landinu lendir fyrst og fremst hjá kröfuhöf- um gömlu bankanna. Það er nauð- synlegt að hefja afskriftir skulda sem fyrst líkt og Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn hefur bent á. Því fyrr sem við byrjum, því fyrr getum við séð fram á bjartari tíma í íslensku efna- hagslífi,“ segir Ásta Dís Óladóttir. Jóhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is „Þegar upp er staðið eru það erlendir kröfuhafar gömlu bankanna sem taka á sig afskriftirnar og það hafa þeir þegar gert og fyrirtækin og heimilin í landinu þurfa að njóta góðs af því.“ Ásta Dís óladóttir, forseti við- skiptadeildar háskólans á Bifröst „Þó er nauðsynlegt að hafa í huga að misjöfn staða fyrirtækja getur kallað á ólíkar aðferðir. Það þurfa ekki að vera neinir annarlegir hagsmunir þar að baki.“ 34% Bankar móti stefnu um afskriftir skulda 66% Stjórnvöld móti stefnuna um afskriftir skulda hverjir eiga að móta stefnuna? Bankarnir Stjórnvöld móta stefnu móta stefnu varðandi varðandi afskriftir afskriftir Fjöldi Allir 34,0% 66,0% 611 Kyn: Karlar 34,7% 65,3% 340 Konur 33,2% 66,8% 271 Aldur: 18-24 ára 48,9% 51,1% 94 25-34 ára 33,1% 66,9% 127 35-44 ára 27,4% 72,6% 124 45-54 ára 30,8% 69,2% 133 55-64 ára 33,0% 67,0% 88 65-75 ára 35,6% 64,4% 45 Búseta: Á höfuðborgarsvæðinu 32,2% 67,8% 376 Utan höfuðborgarsvæðis 37,0% 63,0% 235 Heimild: Háskólinn á Bifröst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.