Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Side 12
12 miðvikudagur 11. nóvember 2009 fréttir Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best. Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox). Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger. BETULIC - BIRKILAUF www.birkiaska.is Hetja bitin af lögregluhundi Maður frá Eugene í Bandaríkjun- um sem var að reyna að yfirbuga innbrotsþjóf á heimili móður sinnar og vernda ung börn á heimilinu var bitinn af lögreglu- hundi eftir að lögreglumaður sig- aði hundinum á rangan mann. Hetjan handleggsbrotnaði við að slá innbrotsþjófinn í átökunum skömmu áður en lögreglan rudd- ist síðan inn og sigaði á hann hundinum. Hundurinn beit hann í kálfa, læri og rasskinn en á meðan slapp þrjóturinn. Setti heimsmet í kjötbollukappáti Joey Chestnut, ein liðtækasta kappátshetja veraldar, setti nýtt heimsmet í Las Vegas á dög- unum þegar hann gjörsigraði í kappátskeppni þar sem kjötboll- ur voru á matseðlinum. Chest- nut gerði sér lítið fyrir og hámaði í sig 50 kjötbollur á tíu mínútum. Með því að torga nærri þremur kílóum af kjötbollum setti hann nýtt heimsmet og fékk fyrir vikið 1.500 dollara í verðlaun. Chest- nut hefur áður sigrað í keppnum þar sem boðið var upp á pylsur, pítsur og kjúklingavængi. Japanskur karlmaður, sem verið hef- ur á flótta frá því í mars árið 2007 eft- ir að bresk kennslukona fannst myrt í baðkeri fullu af sandi í Japan, hefur verið handtekinn af lögregluyfirvöld- um í borginni Osaka þar í landi. Kon- an, Lindsay Ann Hawker, hafði starf- að sem enskukennari í Japan þegar hún fannst myrt á svölum íbúðar hins þrítuga Tatsuya Ichihashi. Lét breyta andliti sínu Hawker fannst látin, grafin í sand- hlassi í baðkeri á svölum íbúðar Ich- ihashis skammt frá Tókýó árið 2007. Hann var sá eini sem var grunaður í málinu. Hann flúði af vettvangi en talið er að lík Hawker hafi legið þarna lengi áður en það fannst á sínum tíma. Ichihashi lét sig hverfa í rúm- lega tvö ár en lögreglan í Japan hef- ur greint frá því að hann hafi gengist undir lýtaaðgerð til að breyta útliti sínu. Lögreglan hefur birt myndir af honum fyrir og eftir þar sem það virðist greinilegt að hann hafi látið krukka í andlitið á sér. Ætlaði að flýja land Undanfarna þrettán mánuði hefur Ichihashi starfað sem verktaki í Osaka og samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Japan var hann að reyna að útvega sér vegabréf til að flýja land. Móðir hans kom nýlega fram í tilfinningaþrungnu sjónvarpsávarpi þar sem hún grátbað son sinn að gefa sig fram. Í ávarpinu á sjónvarps- stöðinni Fuji sagði móðir hans: „Tat- suya, þetta er mamma. Ég og pabbi þinn höfum ákveðið að tjá okkur, þó við vitum að þér muni ekki líka það.“ Móðir hans sagði að hún hefði heyrt á vinnufélögum sonar síns að hann hefði viljað vera góður við foreldra sína. „Ef svo er, vinsamlegast farðu á lögreglustöðina í Gyotoku og segðu þeim sannleikann. Gerðu það,“ sagði móðir Ichihashis og grét. Óánægja með lögregluna Fjölskylda Hawker fór ítrekað til Jap- an eftir morðið og lét í ljós óánægju sína með vanhæfni og getuleysi lög- reglunnar við að ná Ichihashi. Fjöl- skyldan telur að japönsk yfirvöld hafi sýnt af sér mikla linkind í málinu og ekki sótt það af nægjanlega mikilli hörku. Lögreglan brást við þessari gagnrýni fjölskyldunnar með því að hækka verðlaunaféð sem sett var til höfuðs Ichihashi. Myrt og grafin Lindsay Ann Hawker fannst grafin undir hlassi af sandi í baðkeri á svölum íbúðar Ichihashis árið 2007. Mynd: AFP BaðkerSmorðinginn Handtekinn á flótta Japanskur karlmaður sem verið hefur á flótta í rúm tvö ár var handtekinn í Japan á dögunum. Hann er grunaður um að hafa myrt breska konu, sturtað yfir hana sandi og falið hana í baðkeri. Sigurður MikAeL jÓnSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is Fyrir og eftir Andlit hins meinta morðingja Tatsuya Ichihashi hefur tekið breytingum. Lögreglan segir hann hafa gengist undir lýtaaðgerð til að breyta útliti sínu á flótta undan réttvísinni. Mynd: AFP Barnavagnaframleiðandinn Mac- laren hefur afturkallað eina milljón vagna eftir að tilkynningar bárust um að tólf börn hefðu misst fing- urna í vögnunum. Lamir á vögn- unum þykja varhugaverðar og átti framleiðandinn því ekki annarra kosta völ en að afturkalla þá í massa- vís í Bandaríkjunum. Þetta á við bæði um venjulega vagna sem og tvíburavagna Maclar- en. Neytendasamtök Bandaríkjanna (CPSC) vöruðu í kjölfarið viðskipta- vini við og hvöttu þá til að hætta að nota þá. Vagnarnir eru framleiddir í Kína fyrir bandaríska barnavagnarisann sem hefur nú innkallað alla vagna sem framleiddir voru á árunum 1999 til 2009. Sömu gerðir eru einn- ig seldar í Bretlandi en The Daily Mail hefur eftir talskonu Maclaren að afturköllunin nái ekki til vagn- anna sem seldir hafi verið þar. Vagn- arnir hafa staðist öryggiskröfur Evr- ópusambandsins. Í sameiginlegri tilkynningu Mac- laren og CPSC segir að börnum stafi hætta af lömum vagnanna. 15 börn hafa slasast eftir að hafa fest fing- urna í lömum vagnanna þegar verið var að opna þá eða loka þeim. Tólf barnanna höfðu misst fingur, eða hluta af fingri, í slysunum. Þá bauð fyrirtækið áhyggjufullum foreldrum upp á hlífar yfir lamirnar. mikael@dv.is Barnavagnaframleiðandi neyðist til að afturkalla milljón vagna: Barnavagnar aflima börn Hættulegir vagnar Tvær gerðir af barnavögnum frá Maclaren hafa verið innkallaðar í Bandaríkjunum. Samtals milljón stykki. Leyniskytta tekin af líf John Allen Muhammad sem stóð að baki leyni- skyttuárásunum í úthverf- um Washington í Banda- ríkjunum árið 2002 verður tekinn af lífi næstkomandi þriðjudag með banvænni sprautu. Tim Kaine, ríkis- stjóri í Virginíufylki, stað- festi dauðadóminn í gær. Á þremur vikum í október árið 2002 drap Muhammad ásamt Lee Boyd Malvo tíu manneskjur og særði þrjár. Árásirnar hefðu getað verið mun verri því upprunalegt markmið Muhammeds var að drepa sex manneskjur á hverjum degi í þrjá daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.