Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Page 19
Fræði/samFélagsmál
Ráðist gegn misRéttinu
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur látið að sér kveða
sem leikskáld þar sem hún tekur fyrir skuggahliðar
mannlífsins. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún sýnt
gríðarlegan þroska á sviði leikritunar og kemur því
ekki á óvart hversu vel henni tekst til með bókina Á
mannamáli.
Hér hefur hún til umfjöllunar kynferðisbrot á Ís-
landi, mál sem snertir fjölskyldur hvers og eins okk-
ar en er þó gjarnan þaggað niður. Tilurð bókarinn-
ar má rekja til þess þegar Héraðsdómur Reykjavíkur
sumarið 2007 sýknaði nauðgarann í máli kenndu
við Hótel Sögu. Hæstiréttur sakfelldi manninn síðar
en þá var Þórdís byrjuð að skrifa bók. Dómurinn var
dropinn sem fyllti vatnsglasið hjá Þórdísi sem hefur
sjálf orðið fyrir barðinu á slíkum ofbeldismanni.
Í bókinni varpar Þórdís ljósi á það misrétti sem
viðgengst í samfélagi okkar. Hún leitar víða fanga og
til að brjóta upp textann notar hún ljósmyndir, teikn-
ingar, súlurit, töflur, lagagreinar, ljóð og fréttabrot.
Hún fjallar um erfiða sönnunarbyrði í kynferð-
isbrotamálum, orðræðuna um typpi og píkur, mis-
ræmi í dómaframkvæmd á Íslandi, og allt hitt sem
tengist málaflokknum. Á mannamáli er verk sem
á sér enga hliðstæðu og er nauðsynleg lesning öll-
um sem eiga dóttur, mömmu, frænku eða systur,
en líka bróður, pabba, son eða frænda. Kynferðisof-
beldi er mein sem Þórdís ræðst gegn af miklu hug-
rekki í þessari bók með réttlætiskenndina að vopni.
Á mannamáli er bók sem á erindi til allra.
eRla HlynsdóttiR
Miðvikudagur 11. nóvember 2009 19Bækur
Lágstemmd, truflandi mennska
sem afleiðingar þessara spurninga
á líf fólks sjást, eru gefnar í skyn
eða eru jafnvel látnar liggja á milli
hluta.
Stundum er sagt um Gyrði að
bækurnar hans séu tíðindalitlar
og ekki spennandi og að stíll hans
einn geri bækur hans góðar. Slík-
ir dómar eiga ekki rétt á sér: Gyrð-
ir er djúpur höfundur þar sem orð-
in sem hann lætur út úr sér eru oft
ekki nema hálf sagan. Í hinn helm-
inginn lætur hann skína, undir yfir-
borðinu. Gyrðir er svo langt frá því
að vera höfundur sem skrifar bæk-
ur sem stílsnilldin ein heldur uppi,
efni bóka hans er ekki síður þaul-
hugsað og hugmyndaríkt og snertir
oft á tíðum það dýpsta í mannlegri
tilveru.
Gyrðir er, eins og sést af þess-
ari lýsingu á bókinni, heldur ekkert
mikið að velta sér upp úr samtím-
anum og málum líðandi stundar í
bókinni. Í henni er ekki mikill eða
greinilegur samfélagslegur broddur
eða pólitískur. Ekki heldur siðferði-
leg gagnrýni svo augljóst sé, líkt og
í síðustu bók hans, hinni frábæru
Sandárbók, þar sem gagnrýni á auð-
hyggju var augljós. Gyrðir er fyrst
og fremst lýsandi höfundur en ekki
greinandi í þessu verki. Hann tekur
ekki mikla afstöðu í henni eða sest
í dómarasæti. Miklu frekar er hann
lítil fluga á vegg sem fylgist með og
segir frá öllu því skrítna sem hann
sér í lífi þeirra manna sem hann
skrifar um.
Sögurnar í bókinni eru vitanlega
misjafnlega góðar, enda eru þær svo
margar. Eins og eðlilegt er með slíkt
sögusafn höfða einstaka sögur mis-
vel til ólíkra einstaklinga. Lesend-
ur koma auga á og tengja við ólíka
hluti í hugsun og lýsingum Gyrðis.
Þó tel ég að í þessari bók sé að finna
nokkrar sögur sem snerta munu
flesta, líkt og rakið er hér á undan.
Óhætt er því að segja að með
þessari bók fylgi Gyrðir Sandárbók-
inni vel eftir. Milli trjánna er óneit-
anlega ein af hans bestu bókum
og ég tel hana bera þess merki að
Gyrðir hljóti að vera að nálgast há-
tind sinn sem höfundur.
ingi F. VilHjálmsson
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
ÁST OG AÐSKILNAÐUR
Heillandi saga um ást og aðskilnað, einsemd og eftirsjá, hamingju og vonbrigði – og amerískan
geðlækni sem skrifar raunveruleikaskáldsögu með fræðilegu ívafi. Ísmeygileg gamansemi,
fágaður stíll og einstök innsýn í heim ástarinnar eru einkenni þessarar glæsilegu skáldsögu sem
kallast um margt á við ástsælar bækur Steinunnar, Tímaþjófinn og Ástin fiskanna.
GÓÐI ELSKHUGINN EFTIR STEINUNNI SIGURÐARDÓTTUR
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
„Einstakur
höfundur.“
– Le Monde
„Gamansemi hennar og leikandi léttur stíll,
sem er einstaklega hugmynda-
ríkur, gera lesturinn afar ánægjule-
gan, ekki ósvipað því að lesa verk
Halldórs Laxness þegar hann var
upp á sitt besta.“– Politiken Kemur út
í dag! Tilboðsverðí verslunum
Eymundsson frá
10.-21. nóvember
3.990,-
oFbeldi á Íslandi – á mannamáli
Þórdís Elva Þorvaldsd.
Nauðsynleg
lesning öllum
sem eiga dótt-
ur, mömmu,
frænku eða
systur.
Útgefandi:
Forlagið/JPV