Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2009, Qupperneq 21
fréttir 11. nóvember 2009 miðvikudagur 21 Öryggisvörðurinn Tony Musulin ók burt með rúmlega tvo milljarða króna um hábjartan dag. Ný aNdhetja fædd í frakklaNdi Öryggisvörðurinn Tony Musu- lin er einn eftirlýstasti maður Frakklands þessa dagana eftir að hafa framið stórfellt rán í síðustu viku þar sem hann komst á brott með rúmlega 2,1 milljarð króna. Hann virðist hafa skipulagt ránið lengi og ítarlega. Lögreglan hef- ur endurheimt hluta peninganna en Musulin er hylltur sem hetja í heimalandinu. Hann er talinn hafa flúið land með umtalsverða fjárhæð í rassvasanum. Flekklaus ferill öryggisvarðar Í tíu ár starfaði Tony Musulin hjá öryggisfyrirtækinu Loomis í Frakklandi. Vörðurinn, sem er 39 ára, státaði af flekklausum ferli og þótti lifa fremur tilbreytingalausu lífi. En það breyttist allt saman á fimmtudagsmorgun þegar hann lét til skarar skríða og ók bryn- vörðum bíl til að sækja peninga í útibú Banque de France í Lyon. Musulin, ásamt tveimur kolleg- um sínum, sótti 11,6 milljónir evra, eða rúmlega 2,1 milljarð króna, í útibúið og lá leið þeirra því næst í annan banka þar sem sækja átti meiri pening. Musulin varð eft- ir í bílnum á meðan aðstoðar- menn hans tveir sóttu peningana í það útibú. Þegar þeir sneru aft- ur nokkrum mínútum síðar, sást hvorki tangur né tetur af Musulin, brynvarða bílnum eða milljörð- unum. Reyndist gerandi en ekki fórnarlamb Þremur klukkustundum síð- ar fannst bíllinn yfirgefinn og fyrstu fregnir af málinu voru þær að Musulin og peningunum hefði verið rænt af harðsvíruðum bankaræningjum. Á föstudags- morgun hafði lögreglan komist að annarri niðurstöðu. Lögregl- una grunaði nefnilega að Musulin væri ekki gísl einhverra ræningja- hrotta, heldur þvert á móti væri hann einhvers staðar í felum með 49 pakkningar af seðlum, bros- andi út að eyrum. Vel skipulagt og úthugsað Talið er að Musulin hafi unnið einn að ráninu og valið sér stund og stað vandlega. Hann valdi dag- inn þar sem hann var yfirmaður á vakt yfir hinum tveimur. Valdi sér dag þar sem peningarnir sem sækja átti voru allir spánýir þannig að bankinn gæti ekki rakið þá. Auk þess sem hann hreinsaði út af sín- um eigin bankareikningum og fjarlægði öll sönnunargögn úr lát- lausri íbúð sinni. Skrítinn einfari Kollegar Musulins hafa síðan þá lýst honum sem einkennilegum einfara sem varði frístundum sín- um í ræktinni og í að kvarta und- an stöðu sinni í lífinu. „Honum fannst ósanngjarnt hversu illa launaðir við erum,“ er haft eft- ir kollega hans í frönsku útvarpi. „Hann sagði um daginn að þeir myndu fá þetta í hausinn. Bank- inn og stjórnendur hans.“ Keypti sér sportbíl í apríl Við rannsókn á málinu vakti það enn frekar áhuga lögreglu þegar í ljós kom að Musulin virðist hafa keypt sér Ferrari-sportbíl í apríl síðastliðnum. Vöknuðu spurning- ar um hvernig öryggisvörður með tvö þúsund evrur í laun á mánuði hefði efni á að kaupa sér 160 þús- und evra sportbíl. Þá virðist hann hafa tæmt bankareikning sinn í lok október og lögregluna þyrstir einnig í að komast að því hvernig hann náði að safna sér 100 þús- und evrum á þann reikning. Vænt- anlega liggur hann undir grun um að hafa dregið sér fé við störf sín. Andhetja fædd Gjörðir Musulins virðast hafa snert einhverja byltingartaug í lönd- um hans því hann er hylltur sem sönn hetja af þúsundum manna á netinu. Þúsundir höfðu skráð sig í aðdáendaklúbb hans á Facebook og þá hefur verið stofnuð vefsíða þar sem bolir með andlitsmynd af honum eru seldir undir slagorð- inu Besti bílstjóri 2009, og með tilvísun í bíómyndina Scarface, „The World Is Yours“, eða Veröld- in er þín. Almenningur í Frakklandi spyr sig hver munurinn sé á glæp Musulins og þeim „glæpum“ sem bankastjórnendur um allan heim hafa gerst sekir um við hrun efna- hagslífsins. Í gær fann lögreglan í Lyon meirihluta þýfisins í bílskúr þar í borg. Þar reyndist 9,1 milljón evra vera falin, en talið er að Musulin hafi flúið með afganginn, um 2,5 milljónir evra, og ævisparnaðinn til einhvers Balkanlandanna. SiguRðuR MiKAel jónSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is Andhetjan Musulin Öryggisvörð- urinn rændi brynvörðum bíl sem í voru rúmlega 11,6 milljónir evra um hábjartan dag í síðustu viku. Hann er talinn hafa flúið land með hluta þýfisins. Mynd: AFP endurheimt þýfi Lögreglan í Lyon í Frakklandi endurheimti í gær 9,1 milljón evra af ránsfeng Musulins. Þýfið var falið í bílskúr þar í borg. Mynd: AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.