Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Side 3
FRÉTTIR 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 3
„ÞÉR ER BARA ILLA VIÐ MIG“
Blaðamaður: „Sama dag, þann
8. febrúar 2008, kaupir Vafning-
ur breskan fjárfestingasjóð af dótt-
urfélagi Sjóvár fyrir 5,4 milljarða.
Fjárfestingasjóðurinn heitir KCAJ
LLP og var í smásölu á Bretlands-
eyjum. Veistu eitthvað um það?“
Bjarni: „Veistu það, Ingi, að mér
finnst þú lélegur blaðamað-
ur. Ég treysti þér ekki
og ég ætla ekki að eiga
nein samskipti við þig.“
Blaðamaður: „Af
hverju er ég lélegur
blaðamaður?.”
Bjarni: „Vegna þess
að þú ferð með ranga
hluti og þér er alveg
sama.“
Blaðamaður: „Eins
og hvað, hvað er
rangt?“
Bjarni: „Vegna
þess að þú ert að
halda því fram
að ég hafi gert
eitthvað sem
muni kosta ís-
lenska skatt-
greiðend-
ur 10.000
krónur
á mann.
Þetta er al-
gert bull,
þetta fé-
lag kostar eng-
an neitt, það er
að segja af almennum
skattgreiðendum.“
Blaðamaður: „En íslenska rík-
ið þurfti að leggja Sjóvá til 12
milljarða króna til að bjarga
félaginu frá þroti?“
Bjarni: „Það er annað, Ingi
minn. Ég hringi í þig um dag-
inn og þú ert að taka upp
viðtalið við mig. Af hverju
sagðir þú mér það ekki að
þú værir að taka við mig
viðtal sem þú ætlaðir að
birta í blaðinu?“
Blaðamaður: „Lá það
ekki ljóst fyrir?
Bjarni: „Nei, nei, nei.
Þú verður að virða siða-
reglur blaðamanna.“
Blaðamaður: „Ég geri
það.“
Bjarni: „Nei, þess vegna
ertu lélegur blaðamað-
ur.“
Blaðamaður: „En þú
segir að það sé rangt...“
Bjarni: „Þú sagðir mér
ekki að við værum að
eiga viðtal. En þú hefðir
átt að gera það.“
Blaðamaður: „Ég hélt að
það lægi ljóst fyrir. Við töl-
uðum saman í hálftíma.“
Bjarni: „Nei, nei, nei. Ég
var að færa athugasemdir
við það sem þú varst þeg-
ar búinn að skrifa.“
Blaðamaður: „Já, og
skýra þitt mál og aðkomu
þína að þessu félagi, sem er
lykilatriði í málinu.“
Bjarni: „Við töluðum
aldrei um að ég væri í ein-
hverju viðtali við þig.“
Blaðamaður: „Afsakaðu,
en ég hélt að það væri alveg
ljóst þar sem við vorum að ræða
þessi mál efnislega.“
Bjarni: „Það var það bara alls
ekki.
Útskýrðu fyrir mér af hverju ís-
lenskir skattgreiðendur munu
þurfa að borga 10 þúsund á mann
út af þessu félagi?“
Blaðamaður: „Íslenska ríkið
þurfti að leggja 12 milljarða króna
inn í Sjóvá í sumar.“
Bjarni: „Það er rangt.
Blaðamaður: „Er það rangt?“
Bjarni: „Já, já. Íslenska ríkið lán-
aði Glitni peninga sem það mun fá
aftur. Íslenska ríkið hefur ekki lagt
neitt fram. Þetta er bara bull í þér.
Þú átt að vinna vinnuna þína eins
og maður.“
Blaðamaður: „Sjóvá tapaði rúm-
um 3 milljörðum á þessari fjárfest-
ingu í Makaó...“
Bjarni: „Hvenær lagði ríkið fram
peninga sem það fær ekki til baka?
Væntanlega mun ríkið ekki bera
neinn skaða af þessu. Þegar þú
segir að ríkið tapi þeim pening-
um þá verður það að vera kom-
ið í ljós að ríkið fái þá peningana
ekki til baka. Þegar maður tapar
einhverju þá fær maður það ekki
endurgreitt sem maður lánar. Er
það ekki satt?“
Blaðamaður: „Jú, það er satt.“
Bjarni: „Einmitt. Nú er það stað-
fest að þú getur ekki sagt mér
hvernig íslenska ríkið tapar 10
þúsund per Íslending út af fjárfest-
ingum Sjóvár í Makaó. Þess vegna
treysti ég þér ekki því þú ert bú-
inn að halda því fram í blaðinu
að ég hafi gert eitthvað sem hafi
valdið því að ríkið þurfi að leggja
fram upphæð sem nemur 10 þús-
und krónum per Íslending. Þetta
er bara bull í þér. Þér er bara illa
við mig og þú ert í leiðangri til að
koma á mig höggi. Ég ætla ekki að
hjálpa þér í því.“
Blaðamaður: „Mér er ekki illa við
þig, Bjarni minn, síður en svo, og
það er kjaftæði að ég sé í leiðangri
til að koma á þig höggi. Þetta er
rangt. Hvað á ég að gera? Ég er
með ákveðnar heimildir hér. Ég
ræð því ekki hvaða heimildir ég
hef fengið upp í hendurnar. Það
sama hefði gerst ef ...“
Bjarni: „Þú ert bara aumur blaða-
maður sem ert að velta þér upp úr
skítnum til að reyna að selja blað-
ið.“
Blaðamaður: „Er ég hvað, segir
þú?“
Bjarni: „Þú ert bara aumur blaða-
maður sem ert að reyna að koma
höggi á mig í þeim tilgangi að selja
blaðið.“
Blaðamaður: „Það er ekki satt.“
Bjarni: „Því miður, Ingi minn, þú
bara sérð það ekki sjálfur.“
Blaðamaður: „Ef ég hefði fengið
slíkar upplýsingar um einhvern
annan stjórnmálamann þá hefði
það sama gilt þar. Það er bara
þannig. Ég ræð því ekki hvaða
heimildir ég fæ.“
Bjarni: „Það stendur ekki steinn
yfir steini í því sem þú ert að segja.
Og ég hef bara ekkert við þig að
segja.“
Blaðamaður: „Bjarni minn,
stendur ekki steinn yfir steini?“
Bjarni: „Segðu mér hvernig ís-
lenskir skattgreiðendur tapa á
þessari fjárfestingu í Makaó?“
Blaðamaður: „Ég er búinn að
gera það. Þú heldur því fram að
ég hafi rangt fyrir mér. Ég skal at-
huga það betur. Ég er búinn að út-
skýra það fyrir þér hvernig ég taldi
að það hefði gerst. En þú segir að
það sé rangt.“
Bjarni: „Þú skalt leiðrétta það.
Þú skalt skrifa það á forsíðuna að
enginn hafi tapað neinu.“
Blaðamaður: „Það kann að vera
að það sé rétt hjá þér og að ég hafi
rangt fyrir mér. Ég skal athuga það
betur. Ef ég segi eitthvað rangt þá
mun ég leiðrétta það. Það er bara
þannig. Það breytir því samt sem
áður ekki að þú tengist þessu félagi
[Vafningi, innskot blaðamanns].
Það er lykilatriði málsins.“
Bjarni: „Ég á ekkert í þessu félagi
og ég hef engar ákvarðanir tekið
fyrir þetta félag.“
Blaðamaður: „En þú tengist þessu
félagi, Bjarni. Þú veðsetur bréf-
in út af tveimur lánveitingum frá
Glitni sem veittar voru í lok febrú-
ar 2008.“
Bjarni: „Nei, það eru eigendur
bréfanna sem veðsetja þau.“
Blaðamaður: „Já, en þú gerir það
fyrir þeirra hönd.“
Bjarni: „Einmitt.“
Blaðamaður: „Og pabbi þinn er
einn af eigendum þessara bréfa.
Og samkvæmt því sem pabbi þinn
sagði mér í síðustu viku þá er hann
hættur í viðskiptum. Mér sýnist
á öllu, líka meðal annars vegna
þess að þú settist í stjórn Máttar á
seinni hluta árs 2008 væntanlega
fyrir hans hönd...“
Bjarni: „Ég hef ekkert um þetta að
segja þar sem ég kom ekki nálægt
þessum ákvörðunum.“
Blaðamaður: „Ég er bara að segja
það, Bjarni, að annaðhvort þú eða
pabbi þinn, hann er hluthafi í fé-
laginu...“
Bjarni: „Pabbi þinn er formað-
ur í þessum banka. Spurðu hann
bara. [Faðir blaðamanns, Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, er for-
maður bankaráðs Íslandsbanka,
innskot blaðamanns.]
Blaðamaður: „Hann veit ekkert
um þetta eins og þú veist. Ég veit
að hann er búinn að tala við þig.“
Bjarni: „Ekki ég heldur.“
Blaðamaður: „Veist þú ekki
neitt?“
Bjarni: „Ég veit ekkert um þetta.
Ég tók engar ákvarðanir varðandi
fjármögnunina á þessu félagi. Ég
veit ekkert um það hvernig þessir
gerningar urðu til.“
Blaðamaður: „En ég skil ekki enn
þá af hverju þið tókuð þátt í þessu.“
Bjarni: „Nei, en samt ertu búinn
að skrifa langar greinar í blaðið og
birta myndir af mér á forsíðunni.
Samt veistu ekkert og skilur ekk-
ert. Þess vegna ertu lélegur blaða-
maður. Þess vegna er ég að segja
þér það.“
Blaðamaður: „Bjarni, þetta er nú
óþarfi.“
Bjarni: „Nei, þetta er enginn
óþarfi. Mér er bara orðið verulega
í nöp við þig. Ég hef bara ekkert við
þig að segja.“
Blaðamaður: „Bjarni, settu þig í
mín spor. Ef þú værir með ákveðn-
ar heimildir og þú myndir vinna
sem blaðamaður...“
Bjarni: „Þú ert ekki með neitt sem
skiptir máli. Það er það sem þú
ert ekki enn þá búinn að átta þig
á. Talaðu við þá sem tóku þessar
ákvarðanir. Láttu mig bara í friði.“
Blaðamaður: „En Bjarni, viss-
ir þú að þetta félag hefði fjárfest
í þessum breska fjárfestingasjóði
sama dag og þú fékkst umboð til
að veðsetja bréfin í félaginu?“
Bjarni: „Ég er búinn að margsegja
við þig að ég tók engar ákvarðanir
fyrir hönd þessa félags...“
Blaðamaður: „Já, en vissir þú
það? Það er það sem ég vil vita.
Vissir þú að þetta félag væri að
fjárfesta í Makaó? Vissir þú að
þetta félag væri að fjárfesta í þess-
um breska fjárfestingasjóði?“
Bjarni: „Ég kom ekkert nálægt
þeim ákvörðunum sem áttu sér
stað þennan dag.“
Blaðamaður: „Af hverju getur þú
ekki svarað með já eða nei? Vissir
þú það eða vissir þú það ekki?
Bjarni: „Að sjálfsögðu ekki.“
Blaðamaður: „Vissir þú það ekki
að þetta félag sem þú tengist væri
að eiga í 10 milljarða viðskipt-
um?“
Bjarni: „Ég kom ekki nálægt
neinni ákvarðanatöku um þá end-
urfjármögnun sem var að eiga sér
stað á þessum tíma. Þess vegna
vissi ég ekki hvaða gerningar lágu
þarna að baki. Ég kom einungis
að þeirri ákvörðun, eða að þeim
gerningi, að veðsetja hlutabréf-
in fyrir hönd þeirra sem á þeim
héldu. Aðrir voru að vinna í end-
urfjármögnuninni í samvinnu við
bankann. Punktur. Og hættu nú
þessu bulli.“
Blaðamaður: „En Bjarni, ég tal-
aði við pabba þinn, spurði hann
um þetta og hann sagðist ekkert
þekkja til þessa félags [Vafnings,
innskot blaðamanns].
Bjarni: „Ingi minn. Af hverju ertu
að hringja í mig? Af hverju tal-
ar þú ekki við mennina sem tóku
lánin, sem keyptu turninn? Tal-
aðu við mennina sem tóku þessar
ákvarðanir.“
Blaðamaður: „En Bjarni ...“
Bjarni: „Blessaður, Ingi minn. Ég
hef ekkert meira við þig að segja.
Þú ert ekki enn þá búinn að leið-
rétta það sem þú ert búinn að
ljúga upp á mig. Þú ert búinn að
kalla vandræði yfir mig. Ég vil
ekki eiga samskipti við þig. Ég
treysti þér ekki.“
Blaðamaður: „Bjarni, ég er búinn
að segja það við þig að ef það sem
þú ert búinn að segja við mig [um
að rúmir 3 milljarðar falli ekki á
ríkissjóð út af tapinu í Makaó ef lán-
ið sem skilanefnd Glitnis fékk vegna
Sjóvár verður greitt til baka eins
og gert er ráð fyrir, innskot blaða-
manns] reynist vera rétt...“ [Hér ætl-
aði blaðamaður að segja Bjarna
aftur að það yrði þá leiðrétt að hver
íslenskur skattgreiðandi þyrfti að
greiða um 10 þúsund krónur út af
fjárfestingum Sjóvár í Makaó, að
því gefnu að hægt yrði að greiða
12 milljarða lánið frá ríkissjóði til
baka, innskot blaðamanns.]
Bjarni: „Blessaður, Ingi minn. Ég
ætla ekki að ræða meira við þig.“
Blaðamaður: „Allt í lagi.“
Bjarni: „Blessaður.“
Blaðamaður: „Bless.“
SAMTAL BLAÐAMANNS DV VIÐ BJARNA BENEDIKTSSON, FORMANN
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, SUNNUDAGINN 13. DESEMBER 2009:
Blaðamaður kynnir sig og ber upp erindið. Hann vill komast að því hvort Bjarna hafi verið kunnugt um að eignarhaldsfélagið Vafningur hafi fjárfest í breska fjárfestingasjóðnum KCAJ
sama dag og félagið fjárfesti í fasteignaverkefni í Makaó í Asíu og hann veðsetti bréfin í félaginu fyrir hönd skyldmenna sinna. Bjarni svarar og hlustar á kynningu blaðamanns.
Aðkoma Bjarna að Vafningi Vafningur fjárfesti meðal
annars í lúxusíbúðaturni í Makaó í Suðaustur-Asíu, sem sést
hér neðst í hægra horninu, og í breskum fjárfestingasjóði.
Bjarni veðsetti hlutabréf í Vafningi sama dag og viðskipin
gengu í gegn en segist ekki hafa vitað af þeim.