Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 29
Á M I Ð V I K U D E G I ÞRÍEYKI Á SÓDÓMU Lights On The Highway, The Viking Giant Show og Our Lives sameina krafta sína á tónleikum á Sódómu Reykja- vík á fimmtudaginn. Allar eru hljómsveitirnar þekktar fyrir þéttleika, fagmennsku og fyrirmyndarframmistöðu á sviði og eiga gestir því von á góðu. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30, miðaverð er 1000 krónur og er 18 ára aldurstakmark. HJÁLPUM ÞEIM Á BROADWAY Lagið Hjálpum þeim verður flutt í nýjum búningi á tónlistarhátíðinni Jól Jólsson næstkomandi föstudags- kvöld. Allir sem komnir eru af barns- aldri ættu að þekkja lagið sem kom fyrst út árið 1986 en það var samið og gefið út í flutningi landsliðs ís- lenskra söngvara á þeim tíma til styrktar börnum sem liðu hungur- sneyð í Afríku. Þar sem þrjú svið eru undir sama þaki á Jól Jólsson, sem fram fer á Broadway, og svona óg- urlega gott úrval söngvara segja há- tíðararhaldarar hreinlega ekki hægt að standast mátið. Á meðal söngv- ara verða Daníel Ágúst Haraldsson, Krummi Björgvinsson, Rósa Birgitta Ísfeld, Lóa Hjálmtýsdóttir og Gísli Galdur Þorgeirsson. Kraumslistinn verður kynntur ann- að árið í röð í dag en það er sérstök viðurkenning Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka sem þótt hafa fram- úrskarandi og spennandi í íslenskri plötuútgáfu á árinu. Dómnefnd Kraumslistans, sem skipuð er sex- tán aðilum sem síðustu ár hafa starf- að við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlun- ar, hefur nú komist að niðurstöðu um tuttugu hljómplatna úrvalslista sem er tilkynntur hér með. Hann er eftir- farandi: Anna Guðný Guðmundsdóttir - Vingt regards sur l’enfant-Jésus Árni Heiðar Karlsson - Mæri Bloodgroup - Dry Land Bróðir Svartúlfs - Bróðir Svartúlfs EP Dikta - Get it together Egill Sæbjörnsson - Egill S Feldberg - Don’t Be A Stranger Helga Rós Indriðadóttir og Guðrún Dalía - Jórunn Viðar - Sönglög Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of my Childhood Hildur Guðnadóttir - Without Sinking Hjaltalín - Terminal Kimono - Easy Music for Difficult People Lights on the highway - Amanita Muscaria Morðingjarnir - Flóttinn mikli múm - Sing Along to Songs that You Don’t Know Pascal Pinon - Pascal Pinon Ruxpin - Where Do We Float From Here Sudden Weather Change - Stop! Handgrenade In The Name Of Crib Death’understand? The Deathmetal Supersquad - Dead Zeppelin Víkingur Heiðar Kristjánsson - Debut Í dag verður svo tilkynnt hvaða fimm af þessum breiðskífum hljóta viðurkenningu og stuðning Kraums. Með Kraumslistanum er ætlun- in að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með því að verðlauna og vekja sérstaka at- hygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frum- leika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Tónlistarsjóðurinn Kraumur verðlaunar framúrskarandi tónlistarfólk: Kraumslistinn birtur Mazlow og Mika sinna rannsókn- arstörfum fyrir Europol og fá ýmis- legt svaðalegt inn á borð hjá sér. Þau standa nú frammi fyrir röð glæpa sem virðast vera að undirlagi æva- forns ninjuhóps sem er svo lygilegur að menn missa auðveldlega trúverð- ugleikann við að hafa orð á því. En menn missa einnig útlimi og þá fyrst og fremst vegna þeirra áhrifamiklu afla sem vernda ninjurnar. Ein rosa- legasta ninjan heitir Raizo og er þaulæfð- ur morðingi Ozunu-geng- isins. Hann snýst gegn hópnum og hamast á þeim með öllum meðul- um. Mika slæst í för með honum með endalok Ozunu að takmarki. Myndin hefst á blóðugu morða- triði á nokkrum enskumælandi Yak- uza-meðlimum. Þeir spila sig harða með voveiflega vondum árangri. Erfitt að taka þá alvarlega á ensku þar sem þeir minna helst á nakta Kínverjann í bílskottinu í Hangover. Ég skil að þessi mynd er fyrir ensku- mælandi markað en mikill hátíðleiki fer til spillis við að hafa myndina ekki á kínversku/kóresku/japönsku eða öðru viðeigandi Asíumáli, þótt ekki væri nema að hluta. Góða að- alninjan okkar er síðan í stanslausu flassbakki og við sjáum sögu henn- ar birtast í bútum milli þess sem hún refsar fyrrum félögum sínum. Til að gera langa sögu stutta þá vantar metnað í persónusköpun, handrit og annað sem vanalega þarf til að gera góða mynd. Við fáum að vita að ninjurnar eru ósigrandi kol- krabbi sem teygir anga sína sem víð- ast. Þær eru ósnertanlegar og draug- um líkastar í viðureignum sínum. En síðan þegar líður á seinni partinn verða ninjurnar allt í einu eins og lít- il heimskuleg framhaldsskólaklíka. Þær fara frá því að vera ósýnilegar í bardaga í að vera bara eins og Gibb- on-apar að verja ávaxtakörfu. Sögu- þráðurinn er ekki einu sinni farinn almennilega af stað þegar endalokin nálgast. Það og ýmislegt fleira lykt- ar af möguleikanum á framhalds- mynd. En brellurnar eru afbragð. Of- urýktar hasarsenur og blóði drifin slagsmálin eru óaðfinnleg. Afþrey- ingargildið er til staðar og mynd- in gerir allt sem kung fu- og ninja- myndir eiga að gera. En maður vildi miklu meira en grafískan reyfara. McTeigue er þrátt fyrir allt leikstjóri hinnar stórkostlegu V for Vendetta og aðstoðarleikstjóri Matrix- mynd- anna. Kaststjörnurnar og ninja- sverðin eru á kafi í holdi. Ef aðeins myndin sem heild risti jafndjúpt. Erpur Eyvindarson FÓKUS 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 29 Brauð- og kökubók Hagkaups Jói Fel Svörtuloft Arnaldur Indriðason Mannasiðir Gillz Egill „Gillz“ Einarsson Horfðu á mig Yrsa Sigurðardóttir 5. Útkall við Látrabjarg Óttar Sveinsson 6. Týnda táknið Dan Brown 7. Vigdís - Kona verður forseti Páll Valsson 8. Núll núll 9 Þorgrímur Þráinsson 9. Stórskemmtilega stelpubókin A. J. Buchanan og M. Peskowitz 10. Minnisbók handa ... [átta titlar] 1. 2. 3. 4. . METSÖLULISTI Byggt á sölu í verslunum Hagkaups vikuna 7.-14. des. HAGKAUPS Hjaltalín Er á meðal þeirra listamanna sem eru á Kraumslistanum. MYND SIGTRYGGUR ARI BITLÍTIL ni j sverð NINJA ASSASSIN Leikstjóri: James McTeigue Aðalhlutverk: Rain, Naomie Harris, Ben Miles, Sho Kosugi KVIKMYNDIR Ninja Assassin „Myndin gerir allt sem kung fu- og ninjamyndir eiga að gera. En maður vildi miklu meira en grafískan reyfara.“ Vantar metnað Metnað vantar í persónusköpun, handrit og annað sem vanalega þarf til að gera góða mynd, að mati gagnrýnanda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.