Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 12
Hamborgarhryggur Krónunnar bar
höfuð og herðar yfir tíu aðra hamborg-
arhryggi í árlegri bragðkönnun DV.
Hryggurinn hlaut meðaleinkunnina
3,5 af 5 mögulegum. Í öðru sæti hafn-
aði hryggurinn sem er framleiddur fyr-
ir Bónus. Athygli vekur að þessir tveir
hryggir eru jafnframt ódýrustu ham-
borgarhryggirnir sem völ er á. Kíló-
verðið er 899 krónur með afslætti.
Ellefu hryggir smakkaðir
Fimm matgæðingar skipuðu dóm-
nefndina. Það voru matreiðslumeist-
arinn Sigurður Hall, landsliðskokk-
urinn og eigandi Fiskmarkaðarins,
Hrefna Rósa Jóhannesdóttir Sætran,
Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslu-
meistari á Gestgjafanum, Sólveig
Baldursdóttir, ritstjóri Gestgjafans, og
Örn Árnason, skemmtikraftur og mat-
gæðingur.
Bragðkönnunin fór þannig fram að
DV fór í verslanir á höfuðborgarsvæð-
inu og keypti flesta, eða alla, þá hryggi
sem eru á markaði; alls ellefu vöru-
merki.
Magnús Örn Guðmarsson mat-
reiðslumeistari hafði umsjón með
eldun kjötsins en það var allt soðið á
nákvæmlega sama hátt, til að fyllsta
hlutleysis væri gætt. Kjötið var bor-
ið fram kalt á númeruðum bökkum,
þannig að dómnefndin gat á engan
hátt vitað hvaða hryggur var hvaðan.
Með kjötinu hafði dómnefndin malt
og appelsín við hönd. Dómnefnd-
in var beðin um að gefa hverju kjöti
stjörnur; að hámarki fimm, auk stuttr-
ar umsagnar um hvert og eitt stykki.
Ódýrastir og bestir
Eins og áður sagði voru það hryggirnir
HELMINGSMUN-
UR Á HANGI-
KJÖTI
Árleg bragðkönnun DV á hangi-
lærum leiddi í ljós að verðmun-
urinn á kjötinu er gríðarlegur. Og
það sem meira er, verð og bragð-
gæði fara ekki saman, ef marka
má dómnefndina sem skipuð var
valinkunnum matreiðslumönn-
um og matgæðingum. Kílóverð-
ið á Fjallahangikjöti, sem fæst
í Bónus, kostaði þannig tæpar
2.000 krónur en hangikjötið frá
Gallerí Kjöt liðlega 4.000 krónur.
Fjallahangikjötið hafnaði í þriðja
sæti, rétt á eftir sigurvegurunum
en dýrasta kjötið varð í næst-
neðsta sæti. Ódýrasta kjötið rýrn-
aði jafnframt nærri þrefalt minna
en það dýrasta, eða um aðeins
5,6 prósent.
ÁTT AÐ FÁ
STIMPILINN
Viðskiptavinir ættu ekki að lenda
í vandræðum með að fá stimpil
hjá gjaldkerum þegar þeir greiða
reikninga í bönkum. Neytenda-
samtökin hafa fengið athuga-
semdir frá fólki þess efnis að
bankarnir stimpli ekki lengur
reikningana. Þess í stað fáist út-
prentað yfirlit yfir reikninga sem
greiddir eru hverju sinni. Sam-
tökin könnuðu málið og komust
að því að í Landsbankanum hefði
verið ákveðið að hætta að nota
stimpla en sú ákvörðun hafi ver-
ið endurskoðuð vegna óánægju
viðskiptavina. Í Íslandsbanka
og Arion banka fá viðskiptavinir
stimpil ef þeir óska eftir því en hjá
Byr eru allir reikningar stimplað-
ir, að því er fram kemur á ns.is.
n Tveir viðskiptavinir
Vodafone höfðu
samband við DV í
byrjun vikunnar til að
kvarta yfir þjónustuveri
Vodafone. Annar beið í
tæpan hálftíma á línunni
áður en hann gafst upp á biðinni
og var sjónvarpslaus það kvöldið.
Hinum féllust hendur þegar hann
hringdi og heyrði að 25 væru á
undan
honum í
röðinni.
n Prentsmiðjan Prentmet fær lofið í dag.
Viðskiptavinur, sem lét útbúa fyrir sig
jólakort, sagði þjónustu fyrirtækis-
ins til fyrirmyndar. „Þjónustan og
þjónustulundin er til fyrirmynd-
ar. Ungur maður kom með
jólakortin tilbúin í prent og þau
hjá Prentmeti skiluðu frábæru
verki. Með bros á vör,“
sagði hann.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
12 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 NEYTENDUR
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 186,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 182,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 186,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 181,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 186,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 194,8 kr.
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 181,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 178,2 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 184,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 181,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 186,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 182,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
ÓDÝRASTI HRYGGURINN BESTUR
frá Krónunni og Bónus sem höfnuðu í
tveimur efstu sætunum; jafnframt þeir
ódýrustu. Engir aðrir hryggir fengu
hærri meðaleinkunn en þrjár stjörnur.
Hryggurinn frá Ali hafnaði í þriðja sæti
með 2,9 stjörnur í meðaleinkunn en
þar á eftir fylgdu hryggirnir frá KEA og
SS með 2,8. Hryggurinn frá Nettó fékk
2,5 í einkunn en aðrir voru vel undir
meðallagi.
Nóatúnshamborgarhryggurinn
þótti áberandi verstur. Eftir að dóm-
nefndin skilaði einkunnarblöðum
sínum spratt upp umræða um hrygg-
inn. Niðurstaðan varð sú að þetta ein-
tak af Nóatúnshryggnum hlyti að vera
skemmt. Bragðið þótti alls ekki gott og
áferðin á kjötinu einkennileg og litur-
inn einnig .
Bragðlítið og vatnskennt
Dómnefndin var heilt yfir ekki ánægð
með hamborgarhryggina í ár. Siggi
Hall var ómyrkur í máli eftir að hann
hafði smakkað þá alla: „Þetta er allt
saman unnin kjötvara. Hún er illa
unnin og á kostnað neytandans. Ég
auglýsi eftir alvörusvínakjöti, vand-
aðri framleiðslu. Ég þori að veðja að
neytendur vilja kaupa vandaða og vel
reykta svínakjötsvöru, jafnvel þó að
það kosti aðeins meira. Hér ertu að
borga fyrir vatn og gervibragð,“ sagði
hann og sagðist velta fyrir sér hvort
það væri bara b- eða jafnvel c-flokkur
af kjöti sem færi í hamborgarhrygg-
ina. Bestu bitarnir færu ef til vill í ann-
að.
Hrefna og Sólveig tóku í svipaðan
streng og sögðu að hryggirnir væru
bæði gervilegir og vatnsmiklir. Þeir
væru of líkir og erfitt væri að gera
upp á milli þeirra. Úlfar var heilt yfir
ekki nógu ánægður með hryggina að
þessu sinni. Honum fannst ekkert
varið í þá marga. Örn sagðist sakna
bragðsins af alvöruhamborgarhrygg,
sem lifði í minningu hans en erfitt
væri að útskýra. „Í minningunni er
hamborgarhryggur bragðsterkari og
dekkri. Það er eitthvað sem vantar í
þessa,“ sagði hann.
Tíu prósenta rýrnun
DV bryddaði upp á þeirri nýbreytni
að mæla rýrnun á kjötinu. Það
var gert þannig að hryggirnir voru
vigtaðir fyrir suðu og strax eftir að
þeir voru teknir upp úr pottunum.
Hryggirnir rýrnuðu að jafnaði um
10 prósent en munurinn á milli ein-
stakra hryggja reyndist mjög mikill.
Þannig rýrnaði Kjötsels-hryggurinn
mest, eða um rúm 18 prósent, en SS-
hryggurinn minnst, um aðeins 2,55
prósent. Bestu tveir hryggirnir voru
nálægt meðaltali þegar kom að rýrn-
un.
Dýrasti hryggurinn, frá Gallerí
Kjöt, sem kostar þúsund krónum
meira en næstdýrastir hryggurinn,
rýrnaði næstmest allra hryggja, eða
um 16,32 prósent. Hann þótti enn
fremur næstlakastur á bragðið.
Tveir ódýrustu hryggirnir urðu í efstu
sætunum í árlegri bragðkönnun DV á
hamborgarhryggjum. Það eru hrygg-
irnir frá Krónunni og Bónus. Ali-ham-
borgarhryggurinn varð í þriðja sæti.
Dómnefndin var heilt yfir ekki ánægð
með hryggina; þeir þóttu bragðdaufir og
vatnskenndir. Kjötsels-hryggurinn rýrn-
aði mest, um nærri 20 prósent.
Líta vel út Hryggirnir í ár
þóttu ekki nógu bragðmiklir.