Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 FRÉTTIR Tiger Woods- tölvuleikur Lauslæti Tigers Woods hefur orðið kveikjan að netleik þar sem hægt er að hjálpa hinu fallna goði að flýja barsmíðar bandbrjálaðrar eiginkonu hans. Leikurinn gengur út á að hjálpa Woods að komast yfir ýmiss konar hindranir í veginum þegar hann keyrir frá illilegri Elinu Nordegren sem eltir hann, sveiflandi golfkylfu. Í farþega- sætinu hjá Tiger Woods situr dularfullur kvenmaður. Aðdáendur og styrktaraðilar virðast hafa sett Tiger Woods út af sakramentinu í kjölfar upp- ljóstrana um skrautlegt ástalíf hans og er hann nú dáraður í stað þess að vera dáður. Fæddi barn á æfingu Kraftakonan Elizabeth Poblete frá Chile sem stundar ólympísk- ar lyftingar eignaðist óvænt son við æfingar. Poblete, sem keppti á Ólympíuleikunum í Peking í Kína, var við æfingar í Sao Paulo þegar hún fæddi soninn. Á æf- ingum viku fyrr hafði Poblete haft á orði að hún væri hálf- slöpp, en varð „hissa“ þegar hún komst að því að hún var barns- hafandi. Drengurinn fæddist þremur mánuðum fyrir tímann og er á gjörgæslu. Móðir hans hefur samkvæmt vefsíðu The Guardi- an yfirgefið sjúkrahúsið og sagði í sjónvarpsviðtali að hún hefði ekki efni á að greiða sjúkra- húskostnað sinn og barnsins. Stjórnendur sjúkrahússins neita að hafa útskrifað Poblete vegna ógreiddra reikninga. Kaffi og te gegn sykursýki Te- og kaffidrykkjufólk er í minni hættu á að fá sykursýki, tegund 2, en aðrir. Vísindamenn á veg- um Archives og Internal Medi- cine skoðuðu átján aðskildar rannsóknir sem tóku til nærri hálfrar milljónar manna, og að sögn vísindamannanna er vörn- ina jafnvel ekki að finna í koffíni því koffínlaust kaffi hefur mestu áhrifin. Samkvæmt greiningunni minnkar áhættan um fimmtung hjá fólki sem drekkur þrjá eða fjóra bolla af kaffi eða tei. Sama magn af koffínlausu kaffi hefur enn meiri áhrif og dregur úr áhættunni um þriðjung. Að sögn Antonios Maria Costa, yf- irmanns fíkniefna- og glæpadeildar Sameinuðu þjóðanna, hélt fíkniefna- fé upp á milljarða Bandaríkjadala fjármálakerfinu á floti í dýpstu lægð fjármálakreppunnar. Í viðtali við breska blaðið Observer sagði Ant- onio Maria Costa að hann hefði séð sannanir fyrir því að gróði af skipu- lagðri glæpastarfsemi hefði ver- ið eina lausaféð sem stóð sumum bönkum, sem voru á barmi gjald- þrots á síðasta ári, til boða til fjár- festinga. Að sögn Costa rann stærst- ur hluti 352 milljarða dala gróða af fíkniefnaviðskiptum inn í hagkerfið af þeim sökum. Orð Antonios Maria Costa munu vekja upp spurningar um áhrif glæpastarfsemi á fjármálakerfi þeg- ar skórinn kreppir, og að auki kalla eftir frekari rannsókn á bankageiran- um nú þegar þjóðarleiðtogar, þeirra á meðal Barack Obama Bandaríkja- forseti og Gordon Brown, forsætis- ráðherra Bretlands, hvetja til nýrra reglugerða varðandi Alþjóðagjald- eyrissjóðinn. Í viðtalinu við Observer sagði Costa að athygli hans á því hvernig ólöglegt fíkniefnafé rann inn í hag- kerfið hefði fyrst verið vakin fyrir einu og hálfu ári af leyniþjónustu- stofnunum og saksóknaraembætt- um. „Í mörgum tilfellum var fíkn- efnafé eina lausaféð til fjárfestinga. Á síðari hluta ársins 2008 var greiðslu- geta eitt helsta vandamál bankakerf- isins og því varð lausafjárstaða mikil- vægur þáttur,“ sagði Costa. Sumar þeirra vísbendinga sem skrifstofu hans hafa borist gefa til kynna að fjármunir fengnir fyrir til- stilli glæpa hafi verið nýttir til að verja einhverja banka falli þegar fok- ið var í flest önnur skjól. Fé og fíkniefni Ólöglegt fjármagn hélt fjármálakerfinu á floti. MYND: PHOTOS.COM Gróði vegna glæpastarfsemi rann inn í fjármálakerfið í kreppunni: Fíkniefnagróði varði banka falli Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hafði að eigin sögn hugboð um að ráðist yrði á hann á sunnu- dagskvöldið, þegar hann var lam- inn í andlitið með styttu af dóm- kirkjunni í Mílanó. Við árásina brotnuðu tvær tennur úr forsætis- ráðherranum auk þess sem hann nefbrotnaði. Berlusconi mun hafa trúað Paolo Bonaiuti, talsmanni sínum, fyrir því þegar þeir voru á leiðinni að torginu við dómkirkjuna að hann óttaðist „að eitthvað kynni að gerast“ vegna „andrúmslofts hat- urs“ sem hafði beinst gegn honum. „Ég hata hann“ Árásarmaðurinn, Massimo Tar- taglia 42 ára rafmagnsverkfræðing- ur, hefur glímt við andleg vanda- mál og sagði, samkvæmt ítölskum fjölmiðlum: „Ég hata hann,“ þegar hann var spurður hvort hann ósk- aði Berlusconi einhvers ills. Samkvæmt nýjustu fréttum var árásin á Berlusconi gerð að yfir- lögðu ráði, en ekki í hita augna- bliksins. Að sögn Robertos Mar- oni, innanríkisráðherra Ítalíu, hafði árásarmaðurinn „þróað með sér reiði“ í garð Berlusconi í þó nokk- urn tíma. Maroni sagði að Tartaglia hefði beðið á torginu við dómkirkj- una í Mílanó í nokkrar klukku- stundir áður en Silvio Berlusconi kom þangað og Tartaglia hefði ver- ið „að undirbúa sinn geðveikislega verknað“. „Hann var með piparúða og var einnig með kross úr plexígleri,“ sagði Roberto Maroni. Hann sagði einnig að árásarmaðurinn tilheyrði ekki nokkrum pólitískum samtök- um og sagði hann vera ókvæntan og þjást af ofsóknarkennd. Silvio Berlusconi verður senni- lega útskrifaður af sjúkrahúsi í dag en mun, samkvæmt tilmæl- um einkalæknis hans, ekki sinna neinum „mikilvægum“ opinber- um embættisverkum í tvær vikur. Berlusconi hefur nú þegar látið af fyrirætlunum um að heiðra lofts- lagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn með nærveru sinni. Hylltur sem hetja Ítalir virðast klofnir í afstöðu sinni til árásarinnar og árásarmanns- ins og landsbúar eru eðli málsins slegnir vegna árásarinnar á forsæt- isráðherrann. En þeir virðast vera margir sem eru annarrar skoðun- ar því klukkustundum eftir árásina á sunnudagskvöld höfðu nokkr- ir tugir þúsunda skráð sig á Fac- ebook-síður þar sem árásarmað- urinn er hylltur sem hetja. En það er ekki gefið að árásin verði vatn á myllu stjórnarandstöðunnar því hún stendur hugsanlega frammi fyrir því verkefni að aðskilja per- sónulega samúð sem sá fær sem lendir í því að vera barinn illilega, Berlusconi í þessu tilfelli, og ímu- gustinn sem andstaðan hefur á öllu því sem Berlusconi stendur fyrir. Á vefsíðu Guardian er haft eft- ir James Walson, prófessor við bandaríska háskólann í Róm, að samúðaráhrifin sem árásin gæti or- sakað gætu gert Berlusconi og hans fólki kleift að koma lögum í gegn- um þingið sem breyttu sambandi löggjafarvaldsins og framkvæmda- valdsins. Stríðsmenjar Að sjálfsögðu hafa vaknað upp vangaveltur um til hvaða ráða Sil- vio Berlusconi, sem ávallt hef- ur verið meðvitaður um eigið út- lit, muni grípa með tilliti til þeirra áverka sem hann hlaut í árásinni. Velta menn fyrir sér hvort Berlus- coni, sem hefur farið í hárígræðslu og andlitslyftingu, muni reyna að hylja þau ör sem hann hugsanlega mun bera vegna árásarinnar, eða flíka þeim sem stríðsmenjum og vísbendingu um grimmd andstæð- inga hans. Veronica Lario, eiginkona Berlusconis, sem hefur farið fram á skilnað, mun hafa hringt á sjúkra- húsið og spurt um líðan hans en talaði ekki við hann sjálfan. Stytt- ur eins og sú sem Massimo Tar- taglia notaði sem barefli við árásina á Berlusconi seldust upp í kjölfar árásarinnar. Sytta af dómkirkjunni í Mílanó Hefur selst eins og heitar lummur í kjölfar árásarinnar. MYND: AFP Innanríkisráðherra Ítalíu segir árásina á Silvio Berlusconi á sunnudagskvöldið hafa verið skipulagða og gerða að yfirlögðu ráði. Árásarmaðurinn hefur verið hylltur sem hetja af tugum þúsunda á þar til stofnuðum Facebook-síðum. Styttur af dómkirkj- unni í Mílanó seljast eins og heitar lummur. „ÉG HATA HANN“ ...klukkustundum eftir árásina á sunnudags- kvöld höfðu nokkrir tugir þúsunda skráð sig á Facebook-síður þar sem árásarmað- urinn er hylltur sem hetja. Blóðugur Berlusconi Segist hafa fengið hugboð um yfirvofandi hættu. MYND: AFP KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.