Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 JÓLAGJAFIR ... íþróttanördinn: Íslensk knatt- spyrna 2009 eftir Víði Sigurðsson Ef þrítugi frændi þinn sem er gangandi al- fræðiorðabók um íþróttir fær ekki skammtinn sinn í bókarformi um jólin er ekki von á góðu. Þú verður því að gefa honum Íslenska knatt- spyrnu 2009 eftir Víði Sigurðsson. Auðvitað eru yfirgnæfandi líkur á að hann fái hana frá fleirum, sérstaklega þar sem hann á hinar tuttugu og átta bækurnar í ritröðinni, en það er vissara að taka enga sénsa. Hann getur líka alltaf skipt aukaeintökum í Sögu bikarkeppninnar í knattspyrnu eða Ævisögu Beckham. ... sjómanninn: Sjúddirarí rei - Ævisaga Gylfa Ægissonar eftir Sólmund Hólm Sólmundarson Þeir sem ekki eiga pabba sem er eða var sjóari þá eiga þeir afa, móðurbróður eða svila sem migið hefur í saltan sjó. Þá er gott að vita af ævisögu Gylfa Ægissonar, Sjúddirarí rei, þar sem sjóarasögurnar koma í röðum og hver annarri ýktari og fyndnari. Bókin fékk fjórar stjörnur í dómi gagnrýnanda DV sem sagðist hafa sjö sinnum þurft að gera hlé á lestrinum til að jafna sig af hláturskasti. ... gáfumennið: Handbók um hugar- far kúa eftir Bergsvein Birgisson Bergsveinn er norrænufræð- ingur og fjallar doktorsritgerð hans um dróttkvæði og miðlun þeirra. Kannski þarf ekki að segja meira til að rökstyðja að þetta sé bók fyrir gáfumenni, en þessi bók Bergsveins fjallar um ungan menningarfræðing sem snýr heim eftir strangt nám í útlöndum. Á ráðningarstofum er horft á hann með hluttekningu og hann spurður hvort hann hafi „komið eitthvað fram“. Að lokum fær hann í gegnum klíku það verkefni að gera handrit að heimildarmynd um íslensku kúna fyrir Bændasamtök Íslands. Smám saman rennur upp fyrir hinum metnaðarfulla menningar- fræðingi að virðingarstaða kúa speglar hugarfar manna á hverjum stað og hverjum tíma. ... nýbökuðu mömmuna: Aftur í form eftir Sally Lewis Svo gott sem allar konur á barneignaraldri, lofaðar eða einhleypar, eru að eignast börn þessi misserin. Bókin er full af hollráðum, matar- uppskriftum og ráðleggingum um hverskyns vandamál sem upp geta komið á tímanum eftir fæðingu. Hægt er að fylgjast með árangrinum í sérstakri dagbók þar sem framfarirnar eru skráðar niður viku fyrir viku. Endur- hæfingin byrjar fjórum vikum eftir fæðingu þar sem tekið er mið af hinu annasama lífi móðurinnar og þörfum barnsins. ... glaumgosann: Mannasiðir Gillz eftir Egil „Gillz“ Einarsson Höfundurinn leiðir kynbræður sína í allan sann- leika um hvað það er að vera karlmaður, hvernig á að heilla hitt kynið og bregðast við hinum ýmsu aðstæðum. Egill, sem landsmenn þekkja ýmist sem „Þykka“, „Störe“ „Gillz“ eða „Gillzenegger“, er einn þekktasti líkamsrækt- arþjálfari og eilífðar- piparsveinn landsins. Ef þú þekkir ungan mann sem hefur verið einhleypur allt sitt líf og langar loksins að fara að kynnast kvenfólki að aðeins meira leyti en af afspurn skaltu gefa honum þessa bók. ... unglinginn: 1001 okkur eftir Hugleik Dagsson Flestir unglingar elska Hugleikshúmorinn. Þeir fáu sem ekki hafa séð grófar bandarískar bíómyndir eða spilað ofbeldisfulla tölvuleiki eru þó kannski ekki nógu bólusettir fyrir gróteskunni sem í bókum Hugleiks er að finna. Ef ætlunin er að gefa þannig unglingi bók skaltu ekki velja þetta safnrit Hugleiks, en fyrir alla aðra unglinga skaltu velja þessa bók og þú verður uppá- haldsfrændinn/-frænkan. ... stangveiðimanninn: Áin eftir Bubba Morthens Vafalítið eru margir stangveiðimenn til í að fá þessa bók í jólagjöf. Réttast væri þó að hlera hvort sá veiðimaður sem þú hefur hug á að gefa eintak af bókinni hafi óbeit á tónlist- armanninum Bubba. Ef svo er er nefnilega ekki víst að hann hafi þol fyrir veiði- manninum og rithöfund- inum Bubba, sama hversu góð bókin mögulega er. Jón Leifs - Líf í tónum Eftir Árna Heimi Ingólfsson Ummyndanir Eftir Óvid Augnablik Eftir Malcolm Gladwell Á mannamáli Eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Milli trjánna Eftir Gyrði Elíasson Útkall við Látrabjarg Eftir Óttar Sveinsson Aftur til Pompei Eftir Kim M.Kimselius Fuglalíf á Framnesvegi Eftir Ólaf Hauk Símonarson Hvíti tígurinn Eftir Aravind Adiga Hyldýpi Eftir Stefán Mána Komin til að vera, nóttin Eftir Ingunni Snædal Leitin að Audrey Hepburn Eftir Bjarna Bjarnason Loftkastalinn sem hrundi Eftir Stieg Larsson Orrustan um Spán Eftir Antony Beevor Paradísarborgin Eftir Óttar Norðfjörð Sjúddirarí rei - Endurminningar Gylfa Ægissonar Eftir Sólmund Hólm Sólmundarson Skuldadagar Eftir Halldór Baldursson Stórskemmtilega stelpubókin Eftir A. J. Buchanan og M. Peskowitz Stúlkan sem lék sér að eldinum Eftir Stieg Larsson Bestu jóla- bækurnar 2009 SKV. DÓMUM GAGNRÝNENDA DV ÁVAXTAPRESSA OG GPS „Bestu jólagjafirnar eru þær sem koma skemmtilega á óvart. Eitthvað sem gerir það að verkum að þegar pakkinn er tekinn upp verði viðtak- andinn orðlaus af undrun. Þannig gjafir gefa þeir sem láta ímyndun- araflið ráða för og velja eftir áhuga- sviði þess sem fær gjöfina,“ segir í árlegri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar. Hefð hefur skap- ast fyrir því að setrið velji á hverju ári jólagjöf ársins. Árið 2006 varð ávaxtapressan jólagjöf ársins, 2007 varð GPS-staðsetningartæki fyrir valinu. Í fyrra var ís- lensk hönnun valin jölagjöf ársins. GJÖFIN Í ÁR: Jákvæð upplifun Venju samkvæmt efndi Rannsóknasetur verslun- arinnar til hugmyndasamkeppni um hver jóla- gjöfin í ár yrði. Dómnefnd valdi svo „Jákvæða upplifun“ úr fjölda hugmynda sem bárust. Efna- hagsþrengingar síðasta árs hafa leitt til þess að við höfum endurmetið ýmis gildi um lífsgæði okkar sem felst í því að hægt er að gleðjast yfir fleiru en dýrum munaðarvörum. Stöðugt áreiti neikvæðra frétta hefur niðurdrepandi áhrif á flesta og lamar framtakssemi og frumkvæði. Við þær aðstæður er jákvæð upplifun besta gjöfin. Samverustund með ættingjum, dansnámskeið eða flúðasigling, miði á leiksýningu fyrir besta vininn eða iljanudd fyrir eiginmanninn eru nefnd sem dæmi um gjöf sem fellur undir jákvæða upplifun. Þótt fáránlega margir lesi Arnald Indriðason um hver jól hafa ekki allir áhuga á því. Og þótt nánast enginn finni hjá sér löngun til að lesa vestfirska sagnaþætti þá eru alltaf ein- hverjir sem finna sterka hvöt hjá sér til þess. Þegar kaupa skal bók fyrir vin eða ættingja vex aðgerðin mörgum í augum og ákvað DV því að leiðbeina lesendum í þeim efnum. Kauptu þessa bók fyrir …

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.