Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 30
Fjölmiðlakóngurinn og gleði- gjafinn Hermann Gunnarsson er í miklu hátíðarskapi þennan desembermánuð og hamingjan hreinlega skín af honum. Hann er afar duglegur að ausa yfir fólk jákvæðum skilaboðum á Face- book-síðu sinni, setningum á borð við: „Sönn vinátta er eins og góð heilsa. Gildi hennar getum við sjaldan metið fyrr en við höf- um glatað henni. Sýnum vináttu í verki.“ Á sömu síðu upplýsir Hemmi að hann verði fyrir vest- an um jólin eins og svo oft áður. „Verð fyrir vestan í paradísinni um jólin. Mikil fegurð og friður,“ ritar jólabarnið Hermann Gunn- arsson kátt og sælt. „Ég heyrði eitthvert þrusk en sá engin ummerki,“ segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, rapp- ari og uppistandari, um reynslu sína af innbrotsþjófum. Halldór, sem er barnabarn Halldórs Laxness Nóbels- verðlaunaskálds, varð eðlilega ótta- sleginn við að hafa óprúttna aðila svo nálægt sér en hann lýsti atvikinu á fés- bókarsíðu sinni og fékk gríðarleg við- brögð. Halldór hefur verið að slá í gegn sem uppistandari, ásamt hópnum sín- um Mið-Ísland. Mið-Ísland er ungur og ferskur hópur uppistandara sem eru allir að stíga sín fyrstu skref í brans- anum en hafa þegar getið sér mjög gott orð. Auk Dóra DNA eru þetta þeir Bergur Ebbi, Árni Vill, Jóhann Alfreð og Ari Eldjárn sem er einn af handrits- höfundum Áramótaskaupsins. „Mér fannst vissara að vaka fyrst á eftir,“ bætir Halldór við en rapparinn úr Mosfellsbæ kallar ekki allt ömmu sína eftir að hafa séð margt skuggalegt - bæði í rappinu og í Mosfellsbæ. benni@dv.is BROTIST INN TIL DNA-MANNSINS PARADÍSAR- JÓL FYRIR VESTAN KRUMMI BJÖRGVINS: „Hann kemur inn í staðinn fyrir hinn söngvarann sem hætti. Það er gott - rokkararnir þurfa bara að hafa hátt,“ segir Guðlaugur Falk, gítargoð úr Dark Harvest, en Harvest-mönnum bættist góður liðsauki á dögunum, Jenni í Brain Police ætlar að syngja á næstu plötu bandsins. Platan verður tekin upp í mars á næsta ári og segir Gulli að flest lögin séu að klárast. Gulli lenti í því leiðinlega atviki að bíl hans var stolið og leitaði Gulli um höfuð- borgarsvæðið að fararskjótan- um. Hann fannst og þegar DV sló á þráðinn var Gulli nýbúinn að skella á lögregluna sem hafði unnið gott starf. JENNI Í 30 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 FÓLKIÐ HALLDÓRI HALLDÓRSSYNI BRÁ Í BRÚN ÞEGAR HANN VARÐ VAR VIÐ INNBROTSÞJÓF: Grjótharður Halldór Halldórsson, rappari og uppistandari, mætti innbrotsþjófnum með þessum svip. DARK HARVEST NAUTNA- SEGGUR FRAM Í FINGUR- GÓMA Nýjasta verkefni Krumma Björg- vinssonar er hljómsveitin Legend sem hann stofnaði ásamt vini sín- um Halldóri Björnssyni úr Esju. Legend er rafpoppsveit og taktföst sveit. Strákarnir í Legend reykja mikið af sígarettum og elska að elskast. Þeir elska popptónlist og syngja um ást, kynlíf og heimsendi. Hljómsveitin varð eiginlega „goð- sögn“ áður en hún kom fyrst fram. Þeir elska popptónlist og syngja um ást, kynlíf og heimsendi. Kominn í poppið Krummi hefur sungið rokk og ról og ballöður en er núna farinn í raftónlistina. Fjölhæfur söngvari - eins og hann á kyn til. Svarthvítur og flottur Krummi þykir ávallt töff. Meira að segja í svarthvítu. Legend er ný hljómsveit sem varð „goðsögn“ áður en hún var stofnuð og kemur hún fram fyrst á Jól Jólsson 18. desember. Legend er rafpoppsveit Krumma Björgvinssonar úr Mínus og Esju og Halldórs Björnssonar úr Esju. „Ég hef lengi verið að vinna að tónlist með Dóra. Hann hefur alltaf verið að prógrammera danstónlist alveg síðan ég kynntist honum,“ segir Krummi sem segir að þetta hafi byrjað í raun óvart. „Við vorum að leika okkur í stúdíóinu hans Dóra og ég var að syngja yfir ein- hver lög og þá varð þetta til.“ Þegar Krummi er kominn í þannig fíling segir hann að allt fari af stað. Og allt verði að gerast - helst í gær. „Ég er þannig að þegar eitthvað svona er þá vil ég bóka gigg og spila og finna nafn og setja allt í gang. Ég talaði við nokkra fé- laga mína og við komum sem sagt fram í fyrsta sinn 18. desember. Þannig að þetta er búið að gerast frekar hratt,“ seg- ir rokkarinn magnaði en hann fetar nú nýjar leiðir í tónlistinni með Legend. Strákarnir í Legend reykja mik- ið af sígarettum og elska að elskast. Þeir elska popptónlist og syngja um ást, kynlíf og heimsendi. „Við erum nautnaseggir fram í fingurgóma,“ segir Krummi og hlær. Krummi var söngvari í Mínus sem sló í gegn á sínum tíma og er einnig í hinni frábæru Esju. Hann hefur sung- ið með pabba sínum og systur og ætl- ar nú að prófa raftónlist. „Þetta er lífið. Að skapa tónlist og í raun einhvers kon- ar list,“ segir hann og bætir við að efnið frá Legend sé ekkert síðra en það sem hann hefur gert áður. „Þetta er mjög gott líka,“ segir hann sposkur á svip. „En þetta eru samt löng og drungalög lög, smá drungi og smá Nine-Inch-Nails- fílingur. Samt með eitís-píku-fíling líka. Þetta er eiginlega drungapopp,“ segir rokkarinn ánægður með að hafa skap- að nýtt orð og nýtt band. benni@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.