Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 16
Svarthöfði hjó eftir þeim um-mælum Ögmundar Jónasson-ar í síðustu viku að þó að hann hefði hælt nýrri bók Styrmis
Gunnarssonar, Umsátrinu, þá þýddi
það ekki að hann væri farinn að daðra
við Sjálfstæðisflokkinn. Ögmundur
skrifaði dóm um bók Moggaritstjór-
ans fyrrverandi í nýjasta hefti tíma-
ritsins Þjóðmála og telur bókina um
margt góða. Svarthöfði tók eftir því
að þingmanni vinstrigrænna fannst
það skrítið að það eitt að hann talaði
vel um bók eftir fyrrverandi ritstjóra
Morgunblaðsins og náinn samverka-
mann Davíðs Oddssonar væri nægj-
anleg ástæða til þess að einhverjir net-
verjar vildu meina að Ögmundur væri
hallur undir Sjálfstæðisflokkinn.
Í furðu Ögmundar er mikill sann-leikur að mati Svarthöfða. Hann skilur ekki hvernig hægt er að gagnrýna það að hann hæli bók
eftir sjálfstæðismenn eingöngu á
þeim forsendum að hann sjálfur sé á
öndverðum meiði við þá og geti því
ekki hælt þeim sem tengjast flokknum
fyrir það sem þeir gera vel. Þeim sem
hugsar á þann hátt sem Ögmundur
gagnrýnir hefði því líklega ekki fundist
neitt athugavert við það
ef Ögmund-
ur hefði
skrifað
svipaðan
ritdóm
um bók
með
sama
inntaki
og bók
Styrmis,
nema að
vinstri-
maður væri höfundurinn í stað Mogg-
aritstjórans fyrrverandi. Þannig snýst
umræðan ekki um gildi bókarinn-
ar sem hefur verið skrifuð og þann
ritdóm sem skrifaður er heldur snýst
hún um að eitthvað bogið hljóti að
vera við hólið þar sem ritdómarinn er
á öndverðum meiði við höfundinn.
Svarthöfði sér ekkert athugavert eða bogið við það að vinstri-maður geti hælt sjálfstæðis-manni fyrir það sem hann
gerir vel og öfugt. Gildi verka mann-
anna hlýtur í einhverjum tilfellum að
vera hafið yfir allan vafa, hvort sem
þau eru góð eða slæm. Þannig hefði
verið galið af einhverjum að ætla að
gagnrýna Björn Bjarnason, þáver-
andi menntamálaráðherra, fyrir að
stuðla á sínum tíma að fríum
landsaðgangi að
öflugu raf-
rænu gagna-
safni á vefn-
um hvar.
is einfald-
lega á þeim
forsendum
að hann til-
heyrir einum
flokki en ekki
öðrum. Sá
gerning-
ur Björns er nákvæmlega jafn góður
og ef Katrín Jakobsdóttir úr VG hefði
opnað vefinn. Að vilja ekki hæla ein-
hverjum sem er á öndverðum meiði
í stjórnmálunum er barnaskapur eða
jafnvel helber heimska að mati Svart-
höfða. Allt er metið sem gagnrýnivert
og illt úr hinni pólitísku áttinni.
En hitt gildir þó vitanlega líka: Að einstaklingur hlýtur að mega gagnrýna þá sem eru í sama pólitíska liðinu og
hann sjálfur ef þeir gera eitthvað sem
hafið er yfir allan vafa að telst slæmt.
Þannig má segja að aðkoma Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins, að fjárfestingum Werners-
sona í Asíu og Bretlandi sé gagnrýni-
verð, sama hvar í flokki menn eru.
Það er hlutlægt séð óheppilegt að
stjórnmálamaður eins og Bjarni sé í
milljarðabraski samhliða störfum sín-
um fyrir almenning. Þessi staðreynd
er óháð öllum pólitískum flokkadrátt-
um. Hið sama hefði gilt ef Jóhanna
Sigurðardóttir eða Katrín Júlíusdóttir
hefðu verið í þeim sporum Bjarna að
veðsetja hlutabréf í félagi sem stóð í
milljarðamakki með útrásarvíkingum.
Hér gildir engu hvar menn standa í
pólitík.
ALLT ER ILLT ÚR HINNI ÁTTINNI
SPURNINGIN
„Nei. Ég held að á
svona stundum
verði maður að
fara í sóknina.
Engu að síður þarf
maður að kunna
góð skil á
vörninni,“ segir
Geir Sveinsson,
fyrrverandi
línumaður og
fyrirliði íslenska
landsliðsins í handbolta. Geir hefur
gefið kost á sér í annað sætið í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sem fer fram þann 23. janúar
næstkomandi.
ÆTLAR ÞÚ AÐ
PAKKA Í VÖRN?
„Ég veit hvað ég
vil í lífinu og hef
ekki tíma í
eitthvert internet-spjall. Ég
er með greindarvísitölu
upp á 172.“
n Lýtalæknirinn Hosmany Ramos sem dæmdur
hefur verið fyrir tvö morð og situr inni í
Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og leitar nú að
íslenskri konu. - DV
„Þetta hefur farið
fram úr mínum
björtustu vonum
því Los Angeles
er engin sérstök
leikhúsborg.“
n Stefán Karl Stefánsson leikari um þau
jákvæðu viðbrögð sem uppfærslan á How the
Grinch Stole Christmas, þar sem hann leikur
aðalhlutverkið, hefur fengið. - Fréttablaðið
„Þarna eru lög
um jólaþung-
lyndi, jóla-
drykkju, jóla-
fælni og jólatrega
sem er stór hluti af jóla-
upplifun margra.“
n Jón Hallur Stefánsson, rithöfundur og
tónlistarmaður, um lögin á plötu sem hann og
bróðir hans eru nú að senda frá sér.
- Morgunblaðið
„Mig vantar ekki
vinnu, mig
vantar frí.“
n Páll Óskar Hjálmtýsson
tónlistarmaður sem er bókaður út árið 2010.
- Fréttablaðið
Réttsýnn saksóknari
LEIÐARI
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari hefur krafið forsvarsmenn Lands-banka Íslands skýringa á meintri tilraun til peningaþvættis í bank-
anum. Þetta gerist í framhaldi af því að sagt
var frá því í DV að Jón Gerald Sullenberger
athafnamaður kom í bankann haustið 2006
með skuldabréf frá Venesúela að upphæð
30 milljarðar króna. Jón Gerald óskaði eft-
ir því að bankinn tæki þau í umsýslu. Þetta
staðfesti hann við DV en neitaði að upplýsa
hver hefði falið honum milligöngu. Þá sagði
Jón Gerald að lögreglan hefði aldrei yfirheyrt
hann vegna málsins. Innan Landsbankans
vaknaði grunur um að þetta hefði verið til-
raun til peningaþvættis. Í þannig tilvikum
er það lagaleg skylda að tilkynna til lögreglu
um málið. Heimildarmenn DV innan bank-
ans staðhæfa að slík tilkynning hafi verið
send. Haraldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri neitar aftur á móti að slíkt hafi átt sér
stað. Viðbrögð hans við frétt DV voru þau að
fara fram á rannsókn saksóknara.
Bæði dómstólar og embætti ríkislög-
reglustjóra hafa á sér misjafnt
orð. Mannaráðningar hafa
iðulega átt sér stað þar sem
pólitík er stutt undan. Klíku-
skapur hefur ráðið meiru en
hæfni einstaklinga. Hluta af
landlægri spillingu undan-
farinna ára má vísast
rekja til þess
að illa hefur
verið skipað
í stóla rétt-
argæslu
og dóms-
kerfis.
Flokksvinir hafa verið teknir fram yfir
þá hæfari.
Krafa þeirra sem dreymir um
Nýja-Ísland er sú að réttarkerfið
vinni á nótum hlutleysis. Viðbrögð
Valtýs varðandi meint peninga-
þvætti benda til þess að þar fari emb-
ættismaður sem hefur heiðarleika
og réttsýni að leiðarljósi.
Það er fagnaðarefni að
nýr tónn skuli sleg-
inn. Ríkissaksóknari
á heiður skilið fyr-
ir framgöngu sína.
Síðar mun vænt-
anlega koma í ljós
hvort Landsbank-
inn hafi brugð-
ist eða ríkis-
lögreglustjóri.
Réttlætið er í
augsýn.
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Það er fagnaðarefni að nýr tónn skuli sleginn.
BÓKSTAFLEGA
16 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 UMRÆÐA
SANDKORN
n Heldur gætir vaxandi bjartsýni
hjá ríkisstjórninni um að hún
standi af sér Icesave. Nokkrir
þingmenn VG munu hlaupast
undan merkjum stjórnarinn-
ar og greiða
atkvæði gegn
frumvarp-
inu í sinni
lokamynd. Þó
telja menn sig
hafa vissu fyr-
ir því að Guð-
fríður Lilja
Grétarsdóttir
muni greiða atkvæði með Stein-
grími J. Sigfússyni, formanni og
fjármálaráðherra. Þar með gæti
ísbjörninn verið unninn.
n „Nýr“ fréttastjóri hefur tekið
við á Morgunblaðinu eftir að
Egill Ólafsson baðst lausnar frá
því starfi. Arftakinn er enginn
annar en Sigtryggur Sigtryggs-
son, fyrrverandi fréttastjóri til
margra ára,
sem Ólafur
Stephen-
sen skákaði
niður á gólf
þegar hann
tók við rit-
stjórn. Það
vekur athygli
að þessari
breytingu virðist laumað inn í
hausinn á blaðsíðu tvö án þess
að sérstök frétt sé skrifuð um
hana eins og venjan hefur verið.
n Kolbrún Bergþórsdóttir,
blaðamaður Moggans, upp-
lýsti í samtali við Vísi að Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefði í haust
látið stöðva
birtingu við-
tals sem hún
hafði tekið
við Bjarna.
Hermt er að
formannin-
um hafi ekki
líkað þær
spurning-
ar sem Kolbrún bar fram. Því
er spáð að á næstunni verði
viðtal við Bjarna í Mogganum
og það verði Agnes Bragadóttir
pistlahöfundur sem spyrji réttu
spurninganna.
n Óla Birni Kárasyni, ritstjóra
amx.is og varaþingmanni Sjálf-
stæðisflokks í Kraganum, er
mikið niðri fyrir vegna símhring-
ingar Bjarna Benediktssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins,
til Hreins
Loftsson-
ar, útgef-
anda DV.
Honum líka
ekki þau orð
sem Hreinn
notaði um
Bjarna,
svo sem
símadóni.
„Þegar skráður útgefandi tal-
ar með þeim hætti verður vart
mikið taumhald haft á fjölmiðl-
um undir hans stjórn,“ skrif-
ar Óli. Sjálfur var hann á árum
áður svokallaður aðalritstjóri
DV og skráður eigandi að miklu
leyti. „Taumhald“ hans mæltist
þannig fyrir hjá almenningi að
útgáfan fór í gjaldþrot.
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRAR:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.