Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Blaðsíða 17
Hver er maðurinn? „Binni, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson.“ Hvað drífur þig áfram? „Það veit ég ekki alveg. Ætli það sé ekki bara áhuginn á því sem ég er að gera.“ Hvar ertu uppalinn? „Ég er uppal- inn á Arnarstapa á Snæfellsnesi.“ Hvert fórstu síðast í frí? „Það er svo langt síðan ég fór í frí. Ég fór síðast til New York.“ Hvaða bók er á náttborðinu? „Það er engin bók á náttborðinu. Ég las mikið áður fyrr en þegar maður les og hangir yfir tölvu allan daginn þá verður maður þreyttur.“ Hættir maður einhvern tímann að spranga? „Ég hef aldrei byrjað. Ég er ekki Vestmannaeyingur og ég myndi trúlega brjóta öll bein ef ég byrjaði.“ Ertu mikið jólabarn? „Ekki ógurlegt en mér finnst gaman að halda í hefðirnar.“ Hvað kom til að þið verðlaunið starfsfólk í landi? „Við sögðum í kjölfar hrunsins að við myndum hugsa númer eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm og sex um fyrirtækið, svo kæmi ekkert þar á eftir. Það yrðu allir, eigendur, starfsmenn og lánardrottn- ar og samfélagið að treysta á að fyrirtækið myndi lifa af hrunið og okkur hefur tekist alveg bærilega að komast í gegnum erfiða tíma. Og tilefnið er því að fyrirtækið hefur efni á að greiða smá aukajólabónus - sem það er vel að komið.“ Eru þið með gott starfsfólk? „Já. Við erum með það besta. Við höfum fjölgað á árinu og sjáum ávinning af því sem við erum að gera.“ Er gott að vera í fiskvinnslu þessi misserin? „Já, það er mjög gott. Það er mikill munur og frá því fyrir fjórum árum eða þegar krónan var sterk.“ HVAÐ ÆTLARÐU AÐ HAFA Í JÓLAMATINN? „Það er hamborgarhryggur eins og er yfirleitt hjá mér.“ JÓNDÍS EINARSDÓTTIR 49 ÁRA HJÚKRUNARFRÆÐINGUR „Svínalæri er alltaf á aðfangadagskvöld hjá mér.“ JÓNA JÓNSDÓTTIR 54 ÁRA STUÐNINGSFULLTRÚI „Í ár er það hamborgarhryggur. Hann er nú samt ekki alltaf.“ KRISTÍN FOSSDAL 28 ÁRA RAFVIRKI „Það verður hreindýr. Höfum verið með það áður.“ GUÐRÍÐUR BALDURSDÓTTIR 35 ÁRA STARFSMANNASTJÓRI DÓMSTÓLL GÖTUNNAR SIGURGEIR BRYNJAR KRIST- GEIRSSON, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyj- um, er alltaf kallaður Binni. Vinnslu- stöðin ætlar að greiða hverjum starfsmanni 150.000 krónur til viðbótar við desemberuppbót nú fyrir jólin enda segir Binni að þeir hafi unnið fyrir því. BYRJAÐI ALDREI AÐ SPRANGA „Hjá mér er alltaf hamborgarhryggur.“ STEINGERÐUR SIGTRYGGSDÓTTIR 35 ÁRA VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR MAÐUR DAGSINS Klofningurinn innan Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs er órökréttur eins og hann kemur fyrir í orðum og athöfnum órólegu deild- arinnar í þingflokknum. Kjósendur tóku eftir því síðastlið- ið sumar að þingmenn Sjálfstæðis- flokksins greiddu allir atkvæði gegn niðurstöðu þingsins um Iceasve- skuldbindingarnar þegar á reyndi og þrátt fyrir að hafa tekið þátt í að móta niðurstöðuna. Þetta voru eflaust mönnum eins og Ögmundi Jónassyni, þingmanni VG, nokkur vonbrigði. Hann hafði lagt mikið undir og vildi veg þingsins sem mestan í málinu. Menn skyldu fylgja sannfæringu sinni að undan- gengnum ítarlegum umræðum. Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði á flokkslegum grundvelli, hugsan- lega eftir að hafa beygt sig undir meirihlutavilja í málinu á þingflokks- fundi. Síst af öllu ber að fordæma það að í félagi skoðanasystkina skuli ríkja meirihlutaregla. En hafa ber í huga að Sjálfstæðis- flokkurinn er í eðli sínu valdaflokk- ur sem unir hag sínum illa og sækist eftir því að fella þingmeirihlutann og ríkisstjórnina, hvað sem það kostar. Undir er leikið í Hádegismóum. Trúnaðarbrestur innan VG? Samfylkingin hvikar hvergi og styð- ur öll þá niðurstöðu að ekki verði hjá því komist að ábyrgjast Icesa- ve-skuldirnar. Í þessum fjölmenn- asta þingflokki fylgjast menn að og lúta hugsanlega valdi meirihlutans á þingflokksfundum. En hvað með þingflokk VG? Þar er málum nú svo komið að varla ríkir lengur trúnaður milli manna. Þar fara annars vegar þeir sem fylgja Ögmundi Jónassyni að málum og hinir sem fylgja formanni flokksins og þeirri stefnu sem mörkuð var fyrr á árinu í Icesave-málinu, gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og aðild- arumsókn að ESB. Málefnalega standa Ögmund- ur og Lilja Mósesdóttir og lagsfólk þeirra nær Sjálfstæðisflokknum í þessum þremur málum en ríkis- stjórnarflokkunum. Munurinn á Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum annars vegar og Vinstrigrænum hins vegar er að inn- an þingflokks VG ríkir stríð valdabar- átta. Málefnagrunnurinn samein- ar ekki innan þingflokksins heldur sundrar. Ögmundur Jónasson varð und- ir í valdabaráttunni. En hann sætti sig ekki við meirihlutaregluna inn- an þingflokksins og taldi að kom- ast mætti lengra. Þegar hann mætti andstöðu Samfylkingarinnar og meirihluta þingflokks VG gekk hann skrefinu lengra í viðleitni til að grípa í valdataumana. Hann beitti vopninu sem bítur best á hótunarstiginu og sagði af sér ráðherradómi. Ögmundur sagði við þjóðina að það hefði hann gert til að bjarga rík- isstjórninni. Nú vill hann bjarga rík- isstjórninni með því að taka aftur sæti í henni. Er þetta rökrétt? Ögmundur varð undir í flokki sín- um; afstaða hans í Icesave varð ekki að öllu leyti ofan á. Samt mátti hann vel við una þegar til alls er litið í sam- skiptum við þjóðir sem Íslendingar höfðu fé af. Samþykkja Icesave möglunar- laust Frekar en að bíta í skjaldarrendur og virða vilja meirihluta í þingflokki sín- um gerði hann uppreisn eins og sjá mátti í atkvæðagreiðslu um Iceave á þingi í síðustu viku. Orð hans má túlka svo að úr því þingflokkur VG vildi ekki lúta vilja hans yrði að koma á fót nýrri lýðræðisreglu. Hún er á þá leið að þegar meirihluti þingflokks VG vill ekki lúta vilja Ögmundar ber að leysa upp þingflokkinn og leyfa þingmönn- um VG að fylgja sannfæringu sinni í einu og öllu. Ekki er þetta sannfærandi pólitík sem sést best á því að ef Ögmundur tæki til við að safna fylgi um nýjan málstað sinn myndast umsvifalaust flokkur á grundvelli sannfæringar fylgismanna hans. Eftir síðustu atkvæðagreiðslu um Icesave er svo komið að afstaða and- ófshópsins innan VG sker sig í engu frá afstöðu stjórnarandstöðuflokk- anna sem hafa það markmið eitt að fella ríkisstjórnina. Andófshópurinn ræður engu um þennan veruleika. Hópurinn er handbendi og leik- soppur utanaðkomandi afla. Það mega Ögmundur, Ásmund- ur, Lilja, Guðfríður Lilja og Atli vita, að stund- arfjórðungi eftir að ríkisstjórnin fell- ur og sjálfstæðis- menn seilast eftir stjórnartaumum samþykkja þeir Ic- esave-skuldirnar möglunar- laust. Turnar tveir í VG KJALLARI MYNDIN 1 Lenti í bílslysi og þyrstir stanslaust í kynlíf Joleen Baughman frá Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum, sem er 39 ára, lenti í umferðarslysi fyrir tveimur árum en þá skemmdist taug í grindarholinu sem olli því að hana þyrstir stöðugt í kynlíf. 2 Ódýrt úr Obama slær í gegn Úraframleiðandinn Jorg Gray hefur varla haft undan að taka við pöntunum frá viðskiptavinum en Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sást nýlega með úr frá fyrirtækinu. 3 Ólafur Ragnar: Hefði átt að hlusta betur á varnaðarorð Ólafur Ragnar Grímsson segir í viðtali við Nýtt Líf að hann hefði átt að vera gagnrýnni á útrásina. 4 Jóhönnu hefur ofboðið gagnrýnin Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir í viðtali við Nýtt Líf að stundum ofbjóði henni gagnrýni á sig. 5 Meintur nauðgari gengur enn laus Lögreglan lýsti á mánudag eftir leigubílstjóra sem er grunaður um nauðgun aðfaranótt 29. nóvember síðastliðins. 6 Eymdarlisti Moody’s: Bretar verr staddir en Íslendingar Ísland er í sjöunda sæti á nýjum eymdarlista matsfyrirtækisins Moody‘s. Bretar eru ofar á listanum, eða í sjötta sæti en Spánverjar eru í efsta sæti. 7 Á myndir af 4600 bólfélögum Kiss-melurinn Gene Simmons, sem er sextugur, kveðst hafa sofið hjá einum 4600 konum og á myndir af þeim öllum. MEST LESIÐ á DV.is JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar „Innan þingflokks VG ríkir stríð valdabarátta. Málefnagrunnurinn sameinar ekki innan þingflokksins heldur sundrar. “ UMRÆÐA 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 17 Hauststemning á aðventu Allt útlit er fyrir að jólin verði rauð á höfuðborgarsvæðinu og í gær þegar níu dagar voru til jóla var hálfgerð hauststemning við Reykjavíkurtjörn. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.