Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Side 13
NEYTENDUR 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 13 Ómissandi tartalettur Það er algjörlega ómissandi að eiga tartalettur nú þegar jólakræsingarnar flæða yfir matarborð landsmanna. Oftar en ekki elda húsmæður og -feður ríflegan skammt af jólamatnum til þess að eiga afgang daginn eftir. Tartalettur eru kjörn- ar fyrir afganga. Með því að setja hangikjötið, hamborgarhrygginn eða rjúpuna í tartalettur daginn eftir er hægt að galdra fram sannkallaðan veislumat. Skelltu þeim í ofn og sjá, veislan er klár. Frystu grænmetið Það er blóðugt að þurfa að henda mat vegna þess að hann hefur ekki verið nýttur. Eins og DV sagði frá í síðustu viku henda neytendur stórum hluta af því sem þeir kaupa beint í ruslið. Grænmeti skemmist oft á nokkrum dögum, þrátt fyrir að vera geymt í kæli. Ef þú sérð fram á að þú munir ekki nota grænmetið sem til er í ísskápn- um er þjóðráð að skera það niður, steikja á pönnu og frysta. Næst þegar þú eldar þarftu bara að kippa grænmetinu út og hita það. ÓDÝRASTI HRYGGURINN BESTUR Sæti Tegund Meðaleinkunn Kílóverð* Rýrnun í %1 1 Krónan 3,5 899 11,46 2 Bónus 3,1 899 7,44 3 Ali 2,9 1.998 4,70 4 – 5 KEA 2,8 1.898 9,46 4 – 5 SS 2,8 1.878 2,55 6 Nettó 2,5 941 10,55 7 Kjötsel 2,2 998 18,06 8 Fjarðarkaup 1,9 998 13,32 9 Hagkaup 1,8 1.949 6,63 10 Gallerí Kjöt 1,7 2.990 16,32 11 Nóatún 1 1.898 10,35 *Með afslætti. Dómnefndin að störfum Þau Örn, Úlfar, Siggi, Sólveig og Hrefna smökkuðu alls ellefu hamborgarhryggi. KRÓNAN Stjörnur: 3,5 (AF FIMM STJÖRNUM MÖGULEGUM) KÍLÓVERÐ: 899 KR. RÝRNUN: 11,46% Siggi Hall: „Bestur í slæmum félagsskap.“ Úlfar: „Fallegt kjöt, gott undir tönn og ljómandi bragð.“ Hrefna Rósa: „Skinkulegt bragð. Mikið unnið. Bragðdauft.“ Örn: „Fita bragðgóð, ekki saltur.“ Sólveig: „Hlutlaus.“ BÓNUS KÍLÓVERÐ: 899 KR. RÝRNUN: 7,44% Siggi Hall: „Svo sem í lagi. Frekar saltur og mikill platvökvi.“ Úlfar: „Passlega salt og reykt.“ Hrefna Rósa: „Ágætt kjöt. Minna gervilegt en hitt.“ Örn: „Fitan góð á bragðið en frekar bragðlítið kjöt.“ Sólveig: „Hæfilegur raki og selta. Bragðgóður.“ ALI KÍLÓVERÐ: 1.998 KR. RÝRNUN: 4,70% Siggi Hall: „Loksins kom sæmilegur hamborgarhryggur - ágætur balans.“ Úlfar: „Lítill reykur, gott undir tönn, milt.“ Hrefna Rósa: „Bragðlítið. Vatnsmikið. Glansar óeðlilega mikið.“ Örn: „Bragðlítið en fitan góð á bragðið.“ Sólveig: „Milt.“ KEA KÍLÓVERÐ: 1.898 KR. RÝRNUN: 9,46% Siggi Hall: „Fínasti hamborgarhryggur. Samt eitthvað glatað.“ Úlfar: „Mörg göt eftir sprautunálar.“ Hrefna Rósa: „Feitt bragð af kjötinu. Saltbragðið deyr fljótt.“ Örn: „Gott reykbragð. Ekki of þurr.“ Sólveig: „Hlutlaus.“ SS KÍLÓVERÐ: 1.878 KR. RÝRNUN: 2,55% Siggi Hall: „Pulsa sem er mikið unnin. Ókei sem slík.“ Úlfar: „Lítur út eins og skinka. Eins og gúmmí undir tönn.“ Hrefna Rósa: „Lítið vatnsbragð, sem er gott. Bragðgott.“ Örn: „Góður og þéttur - blautur. Meira bragð vantar.“ Sólveig: „Hlutlaust.“ NETTÓ KÍLÓVERÐ: 941 KR. RÝRNUN: 10,55% Siggi Hall: „Sá eini sem er hamborgar- hryggur - mörgum þætti hann of feitur þessi.“ Úlfar: „Of ljóst kjöt. Bragðlaust.“ Hrefna Rósa: „Mikil fita. Kjötið þurrt og bragðlítið.“ Örn: „Frekar þurr. Vantar ögn í bragð.“ Sólveig: „Ágætur raki.“ KJÖTSEL KÍLÓVERÐ: 998 KR. RÝRNUN: 18,06% Siggi Hall: „Fínasti hamborgarhryggur, samt hálflélegt.“ Úlfar: „Þurrt og bragðlítið.“ Hrefna Rósa: „Þurrt en samt vatns- bragð. Tissjú-áferð. Ljóst.“ Örn: „Bragðlítill. Aðeins of þurr.“ Sólveig: „Þurrt kjöt en vatnsmikið.“ FJARÐARKAUP KÍLÓVERÐ: 998 KR. RÝRNUN: 13,32% Siggi Hall: „Bragðlítið og of mikill sprautuvökvi og gervibragð.“ Úlfar: „Trúlega 70 prósent vatn. “ Hrefna Rósa: „Mjög mikið unnið kjöt. Vatnsmikið.“ Örn: „Blautur. Skrýtið reykbragð - samt ekki vont.“ Sólveig: „Allt of blautt.“ HAGKAUP KÍLÓVERÐ: 1.949 KR. RÝRNUN: 6,63% Siggi Hall: „Svaka vont.“ Úlfar: „Bragðlaust og vonlaust.“ Hrefna Rósa: „Mjög skinkulegt kjöt. Lítið bragð.“ Örn: „Lítið bragð, vantar reyk.“ Sólveig: „Góður raki.“ GALLERÍ KJÖT KÍLÓVERÐ: 2.990 KR. RÝRNUN: 16,32% Siggi Hall: „Þurrt og bragðlítið.“ Úlfar: „Olíubrákaráferð, þurrt og vont.“ Hrefna Rósa: „Mjög þurrt - kryddbragð.“ Örn: „Frekar þurrt.“ Sólveig: „Þurrt.“ NÓATÚN KÍLÓVERÐ: 1.898 KR. RÝRNUN: 13,35% Siggi Hall: „Varla hægt að bera á borð. Eiginlega ónýtt.“ Úlfar: „Of salt. Brúnn og ljótur litur. Ekki mannamatur.“ Hrefna Rósa: „Ljótt kjöt. Skrýtinn litur.“ Örn: „Saltur - ekki gott bragð af fitu.“ Sólveig: „Ekki gott bragð.“ Einbeitingin í fyrirrúmi Úlfar Finnbjörnsson gæðir sér á kjötinu. Siggi Hall mundar hnífapörin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.