Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2009, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 JÓLAGJAFIR Mörgum finnst erfiðast að velja jólagjöf handa makanum. Ekki geyma að kaupa mikilvægustu gjöfina þar til á síðustu stundu. Hér eru nokkrar hugmyndir að gjöfum sem ættu að slá í gegn. Gjöf handa honum / henni HÚN : HANN : Fyrir gæðanef Aveda-herrailmurinn er karlmannlegur, margtóna ilmur sem kallar fram upplifun líkt og staðið sé í skóglendi á norðlægum slóðum. Frábær ilmur sem á engan sinn líka og eiga herrar með nef fyrir gæðailm eftir að verða hrifnir af þessum. Fæst í öllum betri snyrtivöruverslunum landsins og kostar 5.560 krónur. Fyrir rokkarann Rocking Records- plötustandarnir eru tiltölulega nýir á markaðnum en hafa vakið umtals- verða athygli. Eru seldir hjá Epal í Skeifunni og hjá Havaríi í Austur- stræti. Standarnir eru fyrstir sinni teg- undar þar sem þeir eru skrautmunir í stofuna jafnt sem praktísk lausn til þess að geyma uppáhaldsplöturnar. Standarnir kosta 21.900 kr. og eru fáanlegir í þremur litum, svörtum, hvítum og rauðum. Uppsteytur Hringur handa honum úr rodiumhúðuðu silfri svo það fellur síður á skartið sem hentar vel við íslenskar aðstæður. Skartgripurinn er hluti af Uppsteyt, skartgripalínu sem fæst hjá Jens í Kringlunni. Hringurinn kostar 15.200 krónur. Gjöf fyrir gyðjuna Dolce & Gabbana- ilmurinn Rose the One er kynntur af hinni kvenlegu og kynþokkafullu Scarlett Johansson en ilmurinn þykir ómótstæði- legur, líkt og leikkonan sjálf. Fæst í helstu snyrtivöruverslunum landsins. Leiðin að hjartanu Yndislegir hangandi 14 karata gulllokkar úr Jens í Kringlunni, hannaðir af Berg- lindi Snorradóttur. Þessi gjöf bræðir hverja konu. Verð: 76.500 krónur. Truflaðar leggings Þessar geggjuðu svörtu leggings eru með kögri að aftan og eru íslensk hönnun. Fást í Miss Patty’s á Hverfisgötunni. Verðið er 8.500 krónur. MYND EYDÍS BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR Ekki láta hana fara í jólakött- inn Allir verða að eignast ný náttföt á jólunum. Þægileg en góð náttföt eru sniðug í morgunpakk- ann. Þessi fást í Joe Boxer. Hlýrabolurinn kostar 2.680 en buxurnar 4.990 krónur. MYND/ RAKEL ÓSK Töff taska Flottar töskur hitta alltaf í mark enda geta konur ekki átt of margar töskur. Þessi er alveg málið í dag, svört með silfurlitum kósum. Taskan fæst í Karen Millen og kostar 31.992 krónur. Ekki er verra að bæta einu pari af hönskum við en þessir kosta 12.742 krónur og fást einnig í Karen Millen í Kringlunni. MYND/ RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Fyrir ævintýrakonuna Þessi Casio-myndavél er al- vöru og vann nýlega til Eisa-verðlaunanna. Ekki spillir fyrir að hún er til í bleiku hjá Bræðrunum Ormsson. Myndavélin kostar 59.900 krónur. MYND/RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Notaleg gjöf Á jólunum eiga allir að hafa það sem allra best og fyrir þá sem velja það er hægt að njóta jólanna á náttfötunum einum saman. Þessi eru líka mjúk og góð og þrengja ekki að svo það er auðveldlega hægt að borða á sig gat án þess að finna of mikið fyrir því. Logo-buxur fást í Joe Boxer á 4.990 krónur og ermalausi bolurinn á sama stað á 2.980 krónur. MYND/ RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Handa húsbóndanum Fátt er karlmannlegra en eiginmaður sem getur reddað málunum. Með þennan í vasanum eru engin vandamál óyfirstíganleg. Leatherman-hnífurinn er með öllum mögulegum og ómögulegum græjum og fæst í Ellingsen á 18.990 kr. MYND/ RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Hátíðleg peysa Fallega blá og hátíðlega Diesel-peysa á herrann. Fæst í Sautján í Kringlunni og kostar 17.990 krónur. Flott við gallabuxur yfir skyrtu eða bol MYND/ RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.