Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 FRÉTTIR Tala ekki saman Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra sagði frá því í fréttum Stöðvar 2 á sunnudagskvöld að hann hefði engin samskipti átt við Ólaf Ragnar Grímsson forseta eftir að sá síðarnefndi synjaði lög- um um ríkisábyrgð vegna Icesave staðfestingar. Steingrímur sagði of snemmt að segja til um hvort samskipti sín og forsetans myndu eitthvað breytast til frambúðar við það að forsetinn synjaði lögunum stað- festingar. Hann sagði að sam- skipti sín og Ólafs hefðu áður ver- ið góð, enda þekktust þeir vel. Karl í haldi en kona látin laus Lögreglan hefur sleppt íslenskri konu á þrítugsaldri úr haldi. Hún var hneppt í gæsluvarð- hald vegna rannsóknar á smygli á 800 grömmum af kókaíni til Íslands frá Bandaríkjunum. Er- lendur ríkisborgari, karlmaður á fimmtugsaldri, er hins vegar enn í haldi lögreglunnar vegna máls- ins. Hann hefur gengist við því að hafa smyglað fíkniefnunum og farið í fleiri smyglferðir áður. Hann hefur bent á annan mann sem höfuðpaurinn í smyglinu og segir að sá hafi beitt sig hótun- um svo hann færi í smyglferðina. Ekki sameinast Jens Garðar Helgason, bæj- arfulltrúi sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð, vill að sveitar- félagið hætti þátttöku í fyr- irhugaðri sameiningu allra sveitarfélaga á Austurlandi. Þetta kom fram í fréttum Rík- isútvarpsins á sunnudags- kvöld. Þar var haft eftir Jens Garðari að hann teldi bæjar- búa andsnúna slíkri samein- ingu og að nær væri að klára sameiningu Fjarðabyggðar. Tillaga hans í þessa átt var hins vegar felld í bæjarstjórn. Smári Geirsson, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð, sagði í sama fréttatíma að eðlilegt væri að halda við- ræðunum áfram og sjá hvað ríkisvaldið er tilbúið að gera til að liðka fyrir henni. Lilja vill Joschka Joschka Fischer, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands, væri vel til þess fallinn að vera sáttasemjari milli Íslendinga annars vegar og Hollendinga og Breta hins vegar um lausn á Icesave-deilunni. Þetta sagði Lilja Mósesdóttir, þingmaður vinstri-grænna, í viðtali við Der Westen í Þýskalandi á laugardag. Lilja greiddi atkvæði gegn ríkisábyrgð fyrir Tryggingasjóð innistæðueigenda vegna Ice- save. Forstjóri Orkuveitunnar, Hjörleifur Kvaran, berst fyrir því að halda gjaldskrá fyrir- tækisins lágri þannig að borgararnir njóti þess. Hann segir þó koma að því að hún verði hækkuð enda hafi það ekki verið gert í mörg ár. HÆTTA Á HÆKKUÐU ORKUVERÐI „Það kæmi mér ekki á óvart að verð-skráin yrði hækkuð en það er auðvit-að ekki vinsælt á kosningavetri.“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Hærra gjald Hætt er við því að gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur verði hækkuð enda þrýstir skuldastaða fyrirtækisins á hækkun. Ekki strax Hjörleifur ætlar að reyna að þrauka eins og hægt er og leyfa borgurunum að njóta lágrar gjald- skrár svo lengi sem hægt verður. Býst við hækkun Sigrún Elsa á von á því að eftir kosningar verði orkugjaldskrá hækkuð sem komi til framkvæmda í byrjun næsta árs. „Gjaldskráin okkar er tiltölulega lág og hún hefur ekki hækkað í mörg ár. Við reynum að þrauka eins og hægt er og láta borgarana njóta lágrar gjald- skrár. Svo lengi sem það er hægt lát- um við þá njóta þess,“ segir Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar. Orkuveita Reykjavíkur skuld- ar rúma tvö hundruð milljarða í er- lendri mynt og gengisfall krónunnar hefur komið illa niður á fyrirtækinu. Áhættusækni Orkuveitunnar er gagn- rýnd þar sem óþarfi sé fyrir fyrirtæki í almenningseign að stunda áhættu- fjárfestingar. Eftir bankahrunið og efnahagskreppu landsins hafa skuld- ir Orkuveitu Reykjavíkur hækkað gíf- urlega og er langstærstur hluti þeirra, eða nærri níutíu prósent, í erlendri mynt á meðan innan við tuttugu pró- sent af tekjum fyrirtækisins eru í er- lendri mynt. Skuldirnar eru rúmir tvö- hundruð og þrjátíu milljarðar króna og lánshæfismat Orkuveitunnar er komið niður á botn. Á meðan ekki er útlit fyrir styrkingu krónunnar blasa við erfiðleikar endurfjármögnunar og talsverð hætta á því að Reykjavíkur- borg neyðist til að auka eigið fé fyrir- tækisins til að bjarga framtíð fyrirtæk- isins eða að fyrirtækið neyðist til að hækka orkuverð til neytenda. Ekki í bili Hjörleifur forstjóri segir hækkanir ekki standa til í bili. Hann segir reksturinn í ágætu horfi sem nái að standa und- ir sér en ljóst sé að í dag sé arð- semin í algjöru lágmarki. „Við mun- um reyna að bjarga okkur sjálf. Til að standa und- ir íslensk- um vöxtum þyrfti gjaldskráin okkar að vera miklu, miklu hærri. Sú staðreynd að við leituðum lána út fyrir land- steinana hefur skilað lægri gjaldskrá. Nú hefur skuldastaða okkar hins veg- ar tvöfaldast vegna gengisfalls krón- unnar og ljóst að fall krónunnar hef- ur leikið okkur grátt,“ segir Hjörleifur. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgar- fulltrúi Samfylkingarinnar og stjórn- armaður Orkuveitunnar, blæs á skýr- ingar stjórnenda fyrirtækisins á hinni erfiðu skulda- stöðu þess. Hún segist hafa varað við því að skuldastaða Orkuveitunnar yrði slæm héldi fyrirtækið áfram fjár- festingastefnu sinni. „Gengisfall krón- unnar skýrir eitt og sér ekki þessar miklu skuldir Orkuveitunnar. Vand- inn er miklu meiri en sá því þær hafa ríflega fjórfaldast á kjörtímabilinu. Blind framkvæmdagleði og óstjórn, til dæmis Magma-verkefnið og greiðsl- ur til verktaka umfram samninga, eru vandamál enda hefur verið farið allt of geyst og óvarlega í fjárfestingar,“ segir Sigrún Elsa. Býst við hækkun Aðspurð býst Sigrún Elsa fastlega við því að gjaldskrá fyrirtækisins verði hækkuð enda sé kominn mikill þrýst- ingur á hækkun. „Það kæmi mér ekki á óvart að verðskráin yrði hækkuð en það er auðvitað ekki vinsælt á kosn- ingavetri. Það er miður að til hækkun- ar kunni að koma en það er bein af- leiðing af þeirri stöðu sem búið er að koma fyrirtækinu í. Ég held að það sé kominn mikill þrýsting- ur á verðskrána og það er meðal annars skuldastaðan sem gerir það,“ segir Sigrún Elsa. Hjörleifur ítrekar að skulda- staða Orkuveitunnar sé einkum til- komin vegna kostnaðarsamra skyldu- verkefna. Hann bendir á að margir milljarðar séu fastir í skylduverkefn- um í hverfum sem sveitarfélögin ætl- uðu að láta byggja. „Það koma hins vegar engar tekjur inn til okkar því allar framkvæmdir hafa stöðvast. Það er ekkert að gerast á meðan við erum með allar lagnir tilbúnar. Við eigum alveg leið út. Reksturinn okk- ar er ágætur og tekjurnar standa und- ir því sem við erum að gera. Ennþá hefur ekki komið upp tími fyrir hækk- un en við erum ekki að boða hækk- un í augnablikinu. Það kemur ein- hvern tímann að því að við þurfum að hækka,“ segir Hjörleifur. „Við vorum bara komin með nóg af barnaskapnum, neikvæðninni og óvirðingunni sem fyrirfinnst á Alþingi. Á meðan þingmennirnir sjálfir eru fastir í pyttinum og volæðinu er eng- in von fyrir þjóðina að komast aftur á lappirnar,“ segir Ágúst Guðbjartsson, annar stofnenda baráttuhóps fyrir já- kvæðni og samstöðu á Alþingi. Hópinn stofnaði hann með eiginkonu sinni, Agnesi Reynisdóttur. Hjónin úr Hafnarfirði hafa stofn- að Fésbókarhóp og safna undirskrift- um á lista þar sem þingmenn landsins eru hvattir til að vera jákvæðir í störfum sínum á árinu og byggja málflutning sinn á rökum en ekki skítkasti. Öllum þingmönnum hefur verið send hvatn- ing þessa efnis og nokkrir þeirra, átta þingmenn, hafa formlega tekið áskor- uninni og svarað hjónunum með já- kvæðum hætti. Þá hafa þingmennirn- ir Ólína Þorvarðardóttir og Margrét Tryggvadóttir skráð sig í Fésbókarhóp- inn ásamt yfir þúsund öðrum einstakl- ingum. Ágúst vonast til að afhenda fjöl- mennan undirskriftarlista þegar þingið kemur saman í lok mánaðarins. Hann segir það brýnna en nokkru sinni áður að þingmenn einbeiti sér að þingstörf- um, sýni hver öðrum kurteisi, sam- stöðu og virðingu. „Á þessum erfiðu tímum verðum við að standa saman og uppgjöf er ekki valkostur. Því mið- ur finnst mér svo vera hjá of mörgum þingmönnum og meðan svo er geta þeir ekki barið þjóðinni á brjóst. Þegar umræðan á þingi byggist á neikvæðni og volæði þá smitar það út frá sér og dregur þjóðina niður,“ segir Ágúst. Jákvæðir þingmenn: n Atli Gíslason n Björn Valur Gíslason n Guðmundur Steingrímsson n Kristján Þór Júlíusson n Margrét Tryggvadóttir n Pétur Blöndal n Siv Friðleifsdóttir n Þórunn Sveinbjarnardóttir trausti@dv.is Hafnfirsk hjón, Agnes og Ágúst, telja þingmenn barnalega og neikvæða: Berjast fyrir jákvæðni inni á Alþingi Nokkrar tölur úr rekstri Orkuveitu Reykjavíkur árið 2009*: n Tap í rekstri 11,2 milljarðar n Eignir 267 milljarðar n Eigið fé 36,5 milljarðar n Langtímaskuldir 207 milljarðar n Skammtímaskuldir 24 milljarðar n Skuldir í erlendri mynt 207 milljarðar * MIÐAST VIÐ REKSTRARREIKNING FYRIRTÆKISINS TIL 30. SEPTEMBER 2009. Orkuveita Reykjavíkur Þroskaðra þing Agnes og Ágúst vilja að þingmenn séu vandari að virðingu sinni og Alþingis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.