Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 11
Þrettán vilja á lista
í Kópavogi
Þrettán gefa kost á sér í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Kópavogi þar
sem valið verður í efstu sæti á lista
flokksins fyrir sveitarstjórnakosning-
ar í vor. Einn þeirra, Gunnar I. Birg-
isson, fyrrverandi bæjarstjóri, hefur
gefið út að hann sækist eftir að leiða
listann.
Þau sem eru í framboði eru Að-
alsteinn Jónsson, Ármann Kr. Ólafs-
son, Árni Bragason, Benedikt Hall-
grímsson, Gunnar Birgisson, Hildur
Dungal, Jóhann Ísberg, Jóhanna
Heiðdal Sigurðardóttir, Karen Hall-
dórsdóttir, Kjartan Sigurgeirsson,
Margrét Björnsdóttir, Ragnheiður
K. Guðmundsdóttir og Sigurjón Sig-
urðsson.
Fjögur stefna á
fyrsta sætið
Ellefu skiluðu inn framboðs-
yfirlýsingu í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Mosfellsbæ vegna
kosninga til bæjarstjórnar í vor.
Athygli vekur að fjórir stefna á
oddvitasætið. Jónas Sigurðs-
son bæjarfulltrúi skipaði það
sæti síðast en nú stefna á sama
sæti Valdimar Leó Friðriksson,
framkvæmdastjóri og fyrrverandi
þingmaður, Gunnlaugur B. Ól-
afsson framhaldsskólakennari og
Sigrún Pálsdóttir verkefnisstjóri.
Tvö þau síðast nefndu gefa kost á
sér í fyrsta til þriðja sæti.
Aðrir í framboði eru Anna
Sigríður Guðnadóttir, Baldur
Ingi Ólafsson, Gerður Pálsdótt-
ir, Hanna Bjartmars Arnardóttir,
Jónas Rafn Ingason, Lísa Sigríður
Greipsson og Þóra Bjarney Guð-
mundsdóttir.
AUKNAR EFASEMDIR
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráð-
herra, segir Evrópusambandið,
Breta og Hollendinga ekki vilja
hampa lagarökum í Icesave-deil-
unni því þau eru þeim í óhag. „Þeim
mun einkennilegra er, að íslenska
utanríkisráðuneytið heldur þessum
rökum ekki fram til að styrkja mál-
stað Íslands,“ skrifar Björn á heima-
síðu sína.
„Hægt og sígandi eru efasemdir
um lögmæti krafna Breta og Hol-
lendinga að styrkjast. Á hinn bóginn
skortir alla markvissa eftirfylgni af
hálfu íslenskra stjórnvalda nú. Sú
kenning er fráleit, að efni sjónar-
miða Íslendinga í þorskastríðunum
hafi ekki skipt máli. Að sjálfsögðu
gerðu þau það, eins og efni sjónar-
miða Íslendinga skipta núna máli í
Icesave-deilunni,“ ritar Björn.
Hundruð kröfðust
lægri höfuðstóls
Nokkur hundruð manns söfnuð-
ust saman á Austurvelli síðdegis
á laugardag. Hagsmunasamtök
heimilanna og Nýtt Ísland höfðu
þá boðað til kröfufundar á Aust-
urvelli, þess fimmta í röðinni.
Fundarmenn sem söfnuðust þar
saman kröfðust lækkunar á höf-
uðstól lána, afnáms verðtrygging-
ar og mótmæltu harðlega tregðu
stjórnvalda og því sem forsvars-
mönnum Hagsmunasamtakanna
finnst vera aðgerðaleysi stjórn-
valda í þessum efnum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, fer í dag áleiðis til Indlands
í opinbera heimsókn. Heimsókn-
in hefst 12. janúar og stendur til 18.
þessa mánaðar.
Ekki er útllit fyrir að nokkur ráð-
herra ríkisstjórnarinnar verði með í
för þótt heimsóknin hafi verið ákveð-
in fyrir nærri ári og verið skipulögð í
samráði forsetans og ríkisstjórnarinn-
ar.
Ráðgert var að Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra yrði með í
för og hitti meðal annars starfsbróð-
ur sinn í Nýju Delhí, höfuðborg Ind-
lands. Af þessu verður ekki og hefur
Össur sagt opinberlega að hann hafi
öðrum brýnni málum að sinna eins
og ástatt er. Hann hefur, líkt og aðr-
ir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, með-
al annars unnið að því undanfarna
daga að draga úr mögulegum skaða
af þeirri ákvörðun Ólafs Ragnars for-
seta að vísa Icesave-lögunum til þjóð-
arinnar. Meðal annars var þing kallað
saman fyrir helgi og samþykkti það
sérstök lög um þjóðaratkvæðagreiðsl-
una sem haldin verður eigi síðar en 6.
mars næstkomandi.
„Hver ræður sínum næturstað,“
segir Össur, en vill ekki tjá sig að öðru
leyti um þá ákvörðun sína að hætta
við för til Indlands.
Langur undirbúningur
Í íslenskri stjórnskip-
an ríkir sú venja
að forseti og
ríkisstjórn
hafi samráð
um opinber-
ar heimsókn-
ir forsetans.
Þetta er svo
meðal ann-
ars vegna
þess að upp
gæti komið
sú staða að
boðið yrði til
opinberrar
heimsókn-
ar erlendis
sem færi illa
saman við
utanríkispól-
itísk markmið
ríkisstjórnar á hverjum tíma.
Síðasta opinbera heimsókn, sem
skipulögð hafði verið, var til Þýska-
lands í október 2008. Þeirri för var
frestað þar eð bankakerfið íslenska
hrundi í sama mánuði.
Ljóst er að verði enginn ráðherra
með í opinberri heimsókn forsetans
til Indlands mun það með einhverj-
um hætti draga úr vægi heimsóknar-
innar og tign þótt dagskrá raskist lítið.
Ólafur Ragnar svaraði í liðinni
viku spurningu blaðamanns DV um
Indlandsförina á þá leið að Indverj-
ar byðu fáum þjóðhöfðingjum til
landsins ár hvert. Indland væri fjöl-
mennasta lýðræðisríki veraldar með
nærri 1.100 milljónir íbúa. Auk þess
væru áhrif Indverja í vaxandi í heims-
viðskiptum enda Indland fjórða
stærsta hagkerfi veraldrar. Heimsókn-
in skipti þjóðina meira máli heldur en
sig persónulega. Gott væri að treysta
bönd við vinaþjóðir og Ísland hefði
hag af jákvæðri athygli í alþjóðlegu
samhengi um þessar mundir.
Mikil dagskrá
Ráðgert er að forseti Íslands og aðr-
ir íslenskir ráðamenn eigi fundi með
Pratibha Patil, forseta Indlands, Man-
mohan Singh forsætisráðherra, Soniu
Gandhi, ekkju Rajivs Gandhi, og fleiri
ráðamönnum þjóðarinnar. Skipu-
lagðir hafa verið margvíslegir við-
burðir og málþing í tengslum við Ind-
landsheimsóknina, meðal annars í
Mumbai, miðstöð viðskipta og kvik-
myndagerðar, og í Bangalore sem er
miðstöð hátækni. Guðmundur Eríks-
son, sendiherra á Indlandi, og ís-
lenska sendiráðið þar hafa unnið að
undirbúningi heimsóknarinnar.
Í Indlandsheimsókninni er ráð-
gert að Ólafur Ragnar Grímsson taki
við Nehru-verðlaununum sem hann
hlaut árið 2007. Þetta er ein æðsta
viðurkenning sem veitt er á Indlandi
og verður hún afhent honum í Nýju
Delhí næstkomandi fimmtudag, 14.
janúar. Verðlaunaafhendingin er ekki
hluti opinberrar heimsóknar en tæki-
færið notað til þess að afhenda for-
setanum þau við hátíðlega athöfn.
Þau eru kennd við Jawaharlal Nehru,
fyrsta forsætisráðherra Indlands, og
var til þeirra stofnað árið 1965. Áætla
má að þau nemi 12 til 14 milljónum
íslenskra króna. Eftir því sem næst
verður komist eru líkur til þess að
Ólafur Ragnar tilkynni samdægurs
hvernig verðlaununum verði varið.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heldur í dag í opinbera heimsókn til Indlands
þar sem hann tekur meðal annars við virtum verðlaunum. Engar líkur eru til þess að ut-
anríkisráðherra verði með í för eins og ráðgert var. „Hver ræður sínum næturstað,“ segir
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og segist sinna brýnni erindum þessa dagana.
Í íslenskri stjórnskipan
ríkir sú venja að forseti
og ríkisstjórn hafi sam-
ráð um opinberar heim-
sóknir forsetans.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
n 1. U Thant ,1965
n 2. Martin Luther King Jr,1966 (veitt að honum látnum)
n 3. Khan Abdul Gaffar Khan, 1967
n 4. Yehudi Menuhin, 1968
n 5. Móðir Teresa, 1969
n 6. Kenneth Kaunda, 1970
n 7. Josip Broz Tito, 1971
n 8. André Malraux, 1972
n 9. Julius Nyerere, 1973
n 10. Raul Prebisch, 1974
n 11. Jonas Salk, 1975
n 12. Giuseppe Tucci, 1976
n 13. Tulsi Meherji Shrestha, 1977
n 14. Nichidatsu Fujii, 1978
n 15. Nelson Mandela, 1979
n 16. Barbara Ward, 1980
n 17. Alva and Gunnar Myrdal, 1981
n 18. Leopold Sedar Senghor, 1982
n 19. Bruno KreiskY, 1983
n 20. Indira Gandhi, 1984 (veitt að henni látinni)
n 21. Olof Palme, 1985 (veitt að honum látnum)
n 22. Javier Pérez de Cuéllar, 1987
n 23. Yasser Arafat, 1988
n 24. Robert Gabriel Mugabe, 1989
n 25. Helmut Kohl, 1990
n 26. Aruna Asaf Ali, 1991
n 27. Maurice Strong, 1992
n 28. Aung San Suu Kyi, 1993
n 29. Mahathir Bin Mohamad, 1994
n 30. Hosni Mubarak, 1995
n 31. Goh Chok Tong, 2003
n 32. Sultan Qaboos bin Said al Said, 2004
n 33. Wangari Maathai, 2005
n 34. Luiz Inácio Lula da Silva, 2006
n 35. Olafur Ragnar Grimsson, 2007
Eldri Nehru verðlaunahafar
Nehru-viðurkenningin er veitt þeim sem stuðlað hafa að auknum skilningi, velvilja
og vináttu milli þjóða.
VERÐLAUNIN VORU EKKI VEITT ÁRIÐ 1986. SÖMULEIÐIS VAR ÞEIM EKKI ÚTHLUTAÐ Á ÁRUNUM 1996 TIL 2002.
FORSETINN Á LEIÐ
TIL INDLANDS
RÁÐHERRALAUS
Situr heima Össur segir mörg verkefni
brýnni nú en að fylgja forseta.
För án ráðherra Ólafur
Ragnar synjaði Icesave-lögum
og Össur svaraði með því að
afboða sig í ferð forseta og bar
við önnum vegna ákvörðunar
Ólafs Ragnars. MYND HEIÐA