Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Blaðsíða 6
Finnsk vændiskona, sem kallar sig Maríu, falbýður sig á hóteli í mið- bæ Reykjavíkur þessa dagana. Fyr- ir allan pakkann, eins og hún kall- ar það, þurfa kúnnarnir að borga tuttugu þúsund íslenskar krónur. Hún býður einnig upp á hlutameð- ferð, eins og munngælur, strokur eða kynferðislegt nudd. María hefur undanfarnar vik- ur boðað komu sína til landsins á stefnumótavefjum hérlendis en þar hefur auglýsingum hennar verið hent út. Hún hefur hins veg- ar ekki gefist upp og birt nýjar aug- lýsingar um hæl. Ef marka má aug- lýsingar hennar þá er hún 34 ára gömul, 164 sentimetrar að hæð og ljóshærð. María hin finnska kom til landsins síðla kvölds fyrir helgi og auglýsir þjónustu sína hér á landi í nokkra daga. Hrunið freistar vændiskvenna Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er ekki hissa, enda sé það orðið nokkuð algengt að erlendar vændiskonur komi hingað í túra. Aðspurður kannast hann ekki við þá finnsku og segir ljóst að einhver skipuleggi starfsemi hennar. „Erlend- ar vændiskonur koma hingað í stutta túra, dvelja stutt og fara síðan. Við höfum ákveðnar vísbendingar um það að þessar konur séu ekki einar hérna heldur séu aðilar hér sem haldi utan um starfsemina. Vændisstarf- semin hér er til heildarskoðunar hjá okkur,“ segir Björgvin. Guðnýju Gústafsdóttur, formanni Femínistafélags Íslands, er brugðið og hún er leið yfir því að kona selji lík- ama sinn fyrir lítið fé. Hún tekur und- ir það að ljóst sé að einhverjir skipu- leggi starfsemina fyrir þá finnsku. „Eftir hrunið er orðið svo ódýrt fyr- ir vændiskonurnar erlendu að koma hingað til lands. Þetta er náttúrlega bæði hræðilegt og sorglegt. Það er greinilegt að það er mikill markaður fyrir vændið hérlendis og við verðum að fara að herða eftirlitið, sérstaklega gagnvart þessum samskiptavefjum. Að konan sé að selja sig á tuttugu þús- und krónur er bara sorglegt; það segir mér bara að hún er hér örugglega ekki á eigin vegum,“ segir Guðný. Stór kúnnahópur Aðspurður segir Björgvin það langal- gengast að samskipta- og stefnuvefir séu notaðir til að auglýsa vændi hér á landi. Hann ætlar að fylgjast með hinni finnsku vændiskonu næstu daga en verðið fyrir þjónustuna seg- ir hann vera í takt við markaðinn. „Þessar auglýsingar á vefjunum fara auðvitað fram hjá flestum nema þeim sem eru að leita að vændinu. Þessi leið er því mjög mikið notuð og stærsta vandamálið er að það er stór hópur sem er að leita að svona kyn- lífsþjónustu,“ segir Björgvin. Hann segir lögregluna enn fylgj- ast með nokkrum stöðum á höf- uðborgarsvæðinu þar sem grun- semdir eru uppi um skipulagða vændisstarfsemi. Hann á von á því að fljótlega verði stór kúnnahóp- ur vændiskvenna sendur til ákæru- valdsins. „Þetta eru hátt í tuttugu menn af öllum þjóðfélagsstigum og við erum að senda það til ríkissak- sóknara þar sem brotin eru refsiverð. Það er óhætt að segja að hópurinn sé miklu stærri en við gerðum okkur grein fyrir.“ 6 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 FRÉTTIR Hæ strákar. Viljið þið eiga góðar stundir í góðum félagsskap. Ég er komin. Mig langar að hitta íslenska menn með mikið fjör í huga. n Kyn: Kona n Aldur: 34 n Landshluti: Höfuðborgin n Kynhneigð: Gagnkynhneigð n Hæð: 164 n Þyngd: Óuppgefið n Augnlitur: Grár n Háralitur: Ljós Auglýsing Maríu TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is VÆNDISKONUR ERU ORÐNAR ALGENGAR Finnska vændiskonan Maria er stödd hér á landi en áhugasamir geta keypt hjá henni kynlífsþjónustu á hóteli í miðbæ Reykjavíkur. Lögreglan telur er að annar aðili skipu- leggi starfsemina. Reynt verður að draga stóran kúnnahóp fyrir dóm á næstunni. Til í tuskið María hin finnska býr á hóteli og býður fram líkama sinn. Hún segir vera 34 ára gömul, 164 sentimetrar á hæð og ljóshærð. Með platbyssu á næturlífinu Karlmaður á Akranesi var vist- aður í fangaklefa lögreglunn- ar eftir að gestir á skemmti- stað veittu því athygli að hann væri með byssu á sér. Sérsveit lögreglu var kölluð út þegar til- kynning barst um vopnaburð mannsins en byssan reyndist vera eftirlíking sem maðurinn afhenti sérsveitinnni án átaka. Málið er nú í rannsókn lögregl- unnar. Maðurinn var ölvaður og fékk að sofa úr sér á lögreglu- stöðinni. Piltur og stúlka handtekin Par um tvítugt var handtekið á laugardag fyrir að brjótast inn í sumarbústað í Gríms- nesi. Öryggiskerfi í sumar- bústaðnum fór í gang þegar parið braust inn í sumarbú- staðinn. Það varð til þess að lögreglumenn frá Selfossi hröðuðu sér á staðinn og handtóku parið sem var enn í bústaðnum þegar lögregla kom þar að. Ósátt við dýr- ari leikskóla Samfylkingarfólk á Seltjarn- arnesi gagnrýnir harkalega hvernig bæjarstjórnarmeiri- hluti Sjálfstæðisflokksins í bænum stóð að hækkun leikskólagjalda. Hækkunin var samþykkt í síðustu viku. Samfylkingarfólk gagnrýn- ir að í mörgum tilfellum hafi gjöld vegna dagvistunar barna hækkað um fjörutíu til fimmtíu prósent og séu nú allt að 266 prósent hærri en í nágrannasveitarfélag- inu Reykjavík. Með þessu séu lagðar langþyngstar álögur á ungar fjölskyldur. Mistök flokka og forseta „Skásti kostur kjósendanna er að samþykkja lögin og ljúka Icesave-málinu burtséð frá af- stöðu til ríkisstjórnar eða ein- stakra stjórnmálaflokka. Kjós- endur geta lokið málinu þótt stjórnmálaflokkarnir bregðist,“ segir Kristinn H. Gunnarsson um komandi þjóðaratkvæðis- greiðslu um Icesave-lögin. Hann segir forsetann hafa gert mikil mistök með því að neita að stað- festa lögin. Kristinn segir að nota eigi þjóðaratkvæðagreiðsluna til að draga fram valkostina í stöð- unni. „Ef lánasamningurinn verður samþykktur er málinu lokið. Engu að síður verður hægt að taka samninginn upp síðar ef sýnt verður fram á bersýnilega ósanngjörn ákvæði í honum.“ Falli samningurinn hins vegar sé deilan enn óleyst og semja þurfi upp á nýtt. Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksókn- ara, lagði það til í Silfri Egils í gær að fenginn yrði sáttasemjari til að miðla málum í Icesave-deilu Ís- lendinga við Breta og Hollendinga. Í samtali við RÚV útilokaði Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra ekki að þessi leið yrði farin. Bretar og Hollendingar þyrftu þó að samþykkja þetta og viðræður hefðu ekki enn farið fram um þessa lausn. Michael Hudson hagfræðipróf- essor og Alain Lipietz, hagfræð- ingur og þingmaður á Evrópuþing- inu, fullyrtu báðir í Silfri Egils í gær að Íslendingum bæri ekki að bæta Bretum og Hollendingum fjárhags- tjón vegna Icesave-reikninganna í löndunum tveimur. Lipietz tók þátt í að semja reglugerð fyrir eft- irlit með fjármálafyrirtækjum og um ábyrgð við eftirlitið. Hann segir það ekki standast að íslenska ríkið eigi að bera ábyrgð á því sem gerist á Íslandi. Það standist ekki reglu- gerð um innistæðutryggingar. Að sögn Liepitz er það þannig að séu bankar með útibú á Evrópska efna- hagssvæðinu (EES) en höfuðstöðv- ar annars staðar eigi landið þar sem útibúið er að tryggja að nægt fé sé í tryggingasjóði innistæðna. Það hafi því verið á ábyrgð Breta og Hol- lendinga að tryggja þetta en ekki Ís- lendinga. Sænski bankasérfræðingurinn Frida Fallan komst að svipaðri nið- urstöðu og Allain Lipietz í sjö blað- síðna samantekt sem hún sendi yfirmanni sínum Lars Nyberg, að- stoðarseðlabankastjóra Svíþjóð- ar, 1. desember 2008. „Öll Evr- ópa ætti að svara kalli Íslands. Því sannleikurinn er sá að þótt kenna megi stjórnendum bankanna um ófarirnar vegna óábyrgrar og áhættusækinnar hegðunar á fjár- málamarkaði og íslenskir stjórn- málamenn og embættismenn beri ábyrgð á því að leyfa þessa hröðu og skuldsettu útþenslu bera þeir ekki einir ábyrgðina vegna þess að skipbrot íslenska fjármálakerfisins er jafnframt skipbrot eftirlitskerf- is Evrópusambandsins. Íslending- ar bera tæplega ábyrgð á því,“ sagði Fallan í samantekt sinni. as@dv.is Alain Lipietz, hagfræðingur og þingmaður á Evrópuþinginu, í Silfri Egils: Þjóðinni er ekki skylt að borga Vill sáttasemjara Eva Joly, ráðgjafi sér- staks saksóknara, leggur til að fenginn verði sáttasemjari til að miðla málum í Icesave-deilunni. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.