Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 13
FRÉTTIR 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 13
Áslaug Friðriksdóttir, varaborgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, telur ekki
óeðlilegt að fyrirtæki hennar Sjá ehf.
hafi unnið verkefni fyrir Reykjavík-
urborg síðustu ár. Hún hefur verið
varaborgarfulltrúi frá 2006 en á þeim
tíma hafa fyrirtækinu verið greidd-
ar 1,2 milljónir króna fyrir verkefni
hjá borginni . Sjá ehf. annast meðal
annars ráðgjöf og þjónustu vefsíðna
hjá fyrirtækjum en Áslaug er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og einn
stofnenda þess.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst um
að óeðlilegt sé að borgarfulltrú-
ar standi í viðskiptum við borgina.
Bloggfærslur á Eyjunni síðasta sum-
ar um viðskipti Sjá og Landsvirkjun-
ar urðu tilefni fundar hjá stjórn síðar-
nefnda fyrirtækisins. Voru viðskiptin
gagnrýnd vegna fjölskyldutengsla
Áslaugar og Friðriks Sophussonar,
þáverandi forstjóra Landsvirkjunar,
en þau eru feðgin. Herma heimild-
ir DV að sumar gagnrýnisraddirnar
eigi rætur að rekja til innanflokks-
baráttu í Sjálfstæðisflokknum.
Leituðu til Ingibjargar
Sólrúnar
„Mér finnst þetta engan veginn
óeðlilegt,“ segir Áslaug. Hún seg-
ir að við stofnun fyrirtækisins hafi
hún og samstarfskonur hennar
leitað til fjölmargra aðila og kynnt
fyrir þeim verkefni. Sjá ehf. hafi
ekki verið úthlutað verkefnum
vegna tengsla Áslaugar.
„Þegar við vorum nýbúnar að
stofna okkar fyrirtæki árið 2001
leituðum við til Ingibjargar Sól-
rúnar [þáverandi borgarstjóra]. Þá
hafði ég engin tengsl við borgina,
þannig að það var alls ekki óeðli-
legt. Ingibjörg Sólrún tók okkur
mjög vel. Við vorum kvennafyr-
irtæki með nýja þjónustu og að
reyna að koma okkur á framfæri.
Við höfðum fyrir því að komast af
og þurftum að útskýra hvað okkar
vinna snerist um.“
Áslaug bendir á að fyrirtæk-
ið hafi verið í umtalsverðri sam-
vinnu við Reykjavíkurborg fyrstu
árin, en svo hafi viðskiptin minnk-
að með árunum. „Við vinnum bara
í tilboðum og verkefnin hafa ekki
verið stór. Þetta er svo lítill bransi.
Við höfum komið inn og út hjá
borginni. Við höfum tekið að okk-
ur ýmis verkefni, bæði við prófan-
ir og hugmyndavinnu. Við höfum
ekki verið að senda reikning mán-
aðarlega eða slíkt. Verkefnin eru af-
mörkuð.“
„Það er enginn feluleikur í
þessu,“ segir Áslaug og bendir á
heimasíðu Sjá, sja.is, þar sem fram
kemur að fyrirtækið hafi starfað
fyrir Reykjavíkurborg.
Sérhæft fyrirtæki
Hreinn Hreinsson, vefritstjóri hjá
Reykjavíkurborg, segir að borgin
hafi átt í reglulegum viðskiptum
við Sjá ehf. frá árinu 2001. Í byrj-
un hafi verið að ræða um aðstoð
við þarfagreiningu og endurskipu-
lag vegna vefmála borgarinnar sem
tekin voru í gegn á árunum 2002
til 2005. Eftir það sé um að ræða
smærri verkefni sem feli í sér ýms-
ar prófanir auk sérhæfðra verkefna.
Blaðamaður sendi fyrirspurn til
Reykjavíkurborgar um viðskiptin. Í
svarinu kemur fram að samtals hafi
fyrirtæki Áslaugar verið greidd-
ar 5,2 milljónir króna frá borginni
vegna þeirra verkefna sem unnin
hafa verið frá 2001.
„Sjá ehf. er mjög sérhæft fyrir-
tæki og hið eina sem býður þjón-
ustu af þessu tagi og samstarf-
ið hefur verið gott og hefur skilað
góðum framförum,“ segir Hreinn.
Rétt eins og Hreinn segir hefur
samstarf Sjá ehf. og borgarinnar
minnkað með árunum en Reykja-
víkurborg hefur keypt verkefni frá
fyrirtækinu fyrir 1,2 milljónir króna
frá 2006, þegar Áslaug Friðriksdótt-
ir var kjörin varaborgarfulltrúi.
Bloggfærslur tilefni fundar
Athygli vekur að Sjá ehf. hefur einn-
ig verið í viðskiptum við Lands-
virkjun, en faðir Áslaugar, Friðrik
Sophusson, var forstjóri fyrirtæk-
isins frá 1998-2009. Áslaug segir
að hún hafi ekkert óhreint í poka-
horninu hvað þau viðskipti varðar,
Landsvirkjun hafi einfaldlega verið
eitt margra fyrirtækja sem Sjá hefur
starfað með.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, seg-
ir að stjórn fyrirtækisins hafi í júní
síðastliðnum fjallað um viðskipti
Sjá og Landsvirkjunar. Var það gert
í kjölfar bloggskrifa á Eyjunni.
Til er minnisblað frá fundin-
um þar sem segir: „Um skeið var
á blogginu fjallað um fyrirtækið
Sjá ehf. sem er í eigu Sigríðar Hall-
grímsdóttur, Jóhönnu Símonar-
dóttur og Áslaugar Friðriksdótt-
ur. Viðskipti þess við Landsvirkjun
voru gerð tortryggileg, en Áslaug er
dóttir Friðriks Sophussonar. Þyk-
ir því rétt að gera grein fyrir verk-
efnum sem Sjá ehf. hefur unnið
fyrir Landsvirkjun á undanförnum
árum. Tekið skal fram að vinna Sjá
ehf. fyrir Landsvirkjun hefur ætíð
verið án aðkomu forstjóra og unn-
in í samræmi við samninga og eftir
atvikum að undangengnu tilboði.“
Niðurstaða stjórnarinnar var að
ekkert óeðlilegt hefði átt sér stað í
viðskiptum fyrirtækjanna.
„Það er enginn felu-
leikur í þessu.“
Verkefni Ár Upphæð
Nytsemismat á vef 2001 362.295 kr.
Þarfagreining 2001 174.000 kr.
Ráðgjöf vegna vefmála 2002 676.900 kr.
Ráðgjöf vegna vefmála 2003 603.200 kr.
Prófun á Borgarvefsjá 2003 301.260 kr.
Prófun á vef 2003 319.000 kr.
Ráðgjöf vegna vefmála 2004 760.100 kr.
Aðgengisprófun -rvk.is og vottun 2004 488.900 kr.
Nytsemismat - Rafræn RVK 2004 226.800 kr.
Ráðgjöf vegna vefmála 2005 124.700 kr.
Ráðgjöf vegna vefmála 2006 130.500 kr.
Álagtsprófanir 2006 142.500 kr.
Prófun á vef 2006 240.600 kr.
Höfuðborgarstofa - þarfagreining 2007 275.000 kr.
Vefdagur RVK - kynning 2007 80.100 kr.
Úttekt á vef, ráðgjöf um lagfæringar 2008 237.500,00 kr.
Ráðgjöf - innranet 2008 76.000,00 kr.
Stutt aðgengisúttekt 2008 47.500 kr.
Sjá ehf - viðmótsprófanir
Verkefni unnin fyrir Reykjavíkurborg
Samtals = 5.266.855 kr.
n Úr minnisblaði um verkefni Sjá
ehf. fyrir Landsvirkjun 2002 – 2009
sem kynnt var stjórn fyrirtækisins
síðastliðið sumar:
Frá árinu 2002 hefur Landsvirkjun
(LV) greitt fyrirtækinu Sjá ehf. samtals
kr. 8.855.917 (án VSK) vegna verkefna
sem lýst er hér á eftir. Þessi viðskipti
eru innan við 5% af veltu Sjá ehf.
á tímabilinu. Þess ber einnig að
geta að samkvæmt verklagsreglum
Landsvirkjunar er heimilt að kaupa
vöru, þjónustu og verk án útboðs ef
verðmæti kaupanna er undir 15 m.kr.
án vsk.
Landsvirkjun
n Fasteignamat ríkisins
n Landsvirkjun
n Reykjavíkurborg
n Samband íslenskra sparisjóða
n Altex ehf.
n Landsbankinn
Nokkrir af viðskipta-
vinum Sjá ehf.
BORGIN
OG PABBI
KAUPA AF
ÁSLAUGU
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Fyrirtæki Áslaugar Friðriksdóttur, Sjá ehf., hefur unnið
fyrir Reykjavíkurborg síðan 2001. Hún hefur gegnt stöðu
varaborgarfulltrúa síðan 2006 og setið í ráðum og nefndum
borgarinnar. Hún telur það ekki óeðlilegt og hafnar ásökun-
um um spillingu. Bloggarar á Eyjunni fjölluðu síðastliðið
sumar um tengsl Áslaugar við Landsvirkjun sem varð tilefni
stjórnarfundar í fyrirtækinu.
Framkvæmdastjóri
og varaborgarfull-
trúi Áslaug Friðriks-
dóttir vísar ásökunum
um spillingu á bug.
Forstjóri og faðir Áslaugar Á
stjórnarfundi Landsvirkjunar var
úrskurðað að Friðrik Sophusson
hafi ekki haft aðkomu að viðskipt-
um Sjá ehf. og Landsvirkjunar.