Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Qupperneq 15
BÍLSKÚRS-
HURÐASKELLIR
SIGURÐUR HELGI GUÐJÓNSSON, formaður húseigendafélagsins svarar fyrirspurnum lesenda.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
NEYTENDUR 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 15
Það verður seint ofpredikað fyr-
ir forsvarsmönnum húsfélaga að
fylgja lögum í hvívetna og fara að
hollum ráðum. Ella getur illa far-
ið eins og lesa má í dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur frá 15. desem-
ber síðastliðnum sem snerist um
kostnað vegna endurnýjunar á
bílskúrshurðum í stóru fjöleign-
arhúsi; hvort hann væri sameign-
legur eða sérkostnaður bílskúrs-
eigenda.
Húsfélagið tók þann bersýnilega
ranga pól í hæðina að um sameig-
inlegan kostnað væri að tefla og
skipti honum eftir hlutfallstölum
á alla eigendur, líka á þá sem enga
bílskúra áttu. Þetta einfalda og aug-
ljósa mál vatt upp á sig og varð
stórt og langdregið vegna þrákelkni
stjórnar húsfélagsins og ráðgjafa
hennar.
Nokkrir þeirra bílskúrslausu
mótmæltu ákaft en fyrir daufum
eyrum. Þeir leituðu til Húseigenda-
félagsins sem ítrekaði mótmæli
þeirra og upplýsti stjórn húsfélags-
ins um réttarstöðuna og leiðrétti
rangan lagaskilning hennar. En allt
kom fyrir ekki. Stjórn húsfélagsins
skellti skollaeyrum við öllum mót-
mælum, tilmælum og kröfum og
kaus heldur að fylgja ráðum fyr-
irtækis sem var henni til aðstoð-
ar í fjármálum og rekstri húsfé-
lagsins. Málið fór fyrir Kærunefnd
fjöleignarhúsamála sem taldi bíl-
skúrshurðirnar ótvírætt í séreign
og kostnað við endurnýjun þeirra
sérkostnað bílskúrseigenda. Taldi
nefndin engu skipta þótt húsfund-
ur hefði samþykkt annað enda lög-
in ófrávíkjanleg og því ekki á valdi
fundar að ákveða aðra skiptingu.
Stjórn húsfélagsins og ráðgjaf-
ar þess kusu að hafa þetta kæru-
nefndarálit að engu og héldu fast
við sinn keip og neituðu leiðrétt-
ingum og endurgreiðslum.
Áfellisdómur yfir
stjórn og ráðgjafa
Einn þeirra sem ekki átti bílskúr
fór með málið fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur. Dómur var kveðinn
upp 15. desember og er hann mjög
afdráttarlaus. Dæmt var að íbúðar-
eigandanum hefði verið óskylt að
taka þátt í kostnaði vegna endur-
nýjunar á hurðum bílskúra hússins.
Þar sem þessi eigandi hefði ekki átt
bílskúr hefði verið ranglátt af hús-
félaginu að krefja hann um kostnað
vegna bílskúrshurða. Tekur dómar-
inn sérstaklega fram að ámælisvert
hafi verið af stjórn húsfélagsins að
boða til aðalfundar 2007 með svo
óljósum hætti að ekki hafi verið
ljóst að á fundinum ætti að taka
ákvörðun um greiðsluskyldu allra
vegna bílskúrshurðanna. Var hús-
félagið dæmt til að endurgreiða
þessum íbúðareiganda hlutdeild
í kostnaðinum með dráttarvöxt-
um og málskostnaði. Var réttur
hans talinn svo skýr og ótvíræður
að engu var talið breyta þótt hann
hefði greitt án athugasemda og
ekki mótmælt strax. Þessi dómur
markar væntanlega endi þessarar
þrætu enda eru skilyrði áfrýjunar
varla fyrir hendi. Vonandi hverfur
stjórnin nú frá villu síns vegar. Von-
andi fær nú þessi staðfasti og lög-
vissi íbúðareigandi og aðrir í sömu
stöðu tafarlausa leiðréttingu mála í
samræmi við dóminn án þess að til
frekara málastapps þurfi að koma
og vonandi mun ganga vel og greitt
að vinda ofan af vitleysunni.
Á villigötum
Þetta mál á sér nokkuð langan að-
draganda. Það er í eðli sínu ekki
flókið. Hér er ekki um lagalegt vafa-
atriði að tefla. Fjöleignarhúsalög-
in eru alveg skýr um þetta atriði og
það mátti öllum vera ljóst frá upp-
hafi hver niðurstaðan yrði. Fyrir lá
skýlaust álit lögfræðings Húseig-
endafélagsins og Kærunefndar fjöl-
eignarhúsamála þar sem komist er
að sömu niðurstöðu. Stjórn húsfé-
lagsins sýndi óbilgirni og hélt fast
við sinn ranga keip, tók ekki laga-
rökum og hafði að engu ráð og álit
þeirra sem best vita og þekkja og
leiddi með því húsfélagið í ógöngur.
Þessi afstaða og ráðsmennska hef-
ur valdið húsfélaginu og einstökum
eigendum verulegum kostnaði og
fyrirhöfn, sem hjá hefði mátt kom-
ast ef lögum hefði verið fylgt. Stjórn
eða einstakir stjórnarmenn geta
með svona ráðslagi bakað sér bóta-
skyldu gagnvart húsfélaginu og/
eða einstökum eigendum og vænt-
anlega mun stjórnin á réttum vett-
vangi þurfa að axla ábyrgð vegna
þessa. Sama er að segja ef sérfræð-
ingur eða ráðgjafi telst með rangri
eða ófullnægjandi ráðgjöf hafa
valdið húsfélaginu tjóni. Þá kemur
til álita svonefnd sérfræðiábyrgð.
Víti til varnaðar
Þessi dómur er fordæmisgefandi
fyrir húsfélagið og aðra eigendur og
hann kann líka að hafa víðtækara
fordæmisgildi. Dómurinn er alvar-
leg áminning og holl lexía og víti
til varnaðar fyrir húsfélög, stjórn-
ir þeirra og ráðgjafa. Hann kennir
hversu miklu skiptir að fara að rétt-
um lögum við skiptingu kostnaðar
í fjöleignarhúsum, ákvarðanatöku
og boðun og framkvæmd funda.
Hann sýnir afleiðingar þess ef geð-
þótti fær að ráða för og menn verða
viðskila við lögin. Það er mikilvægt
fyrir forsvarsmenn húsfélaga að
kynna sér vel þau lög sem um hús-
félög gilda og leita ráða hjá góðum
ráðgjöfum. Stjórn húsfélags verð-
ur að fara að lögum og löglegum
ákvörðunum húsfunda. Húsfundir
mega ekki taka ákvarðanir sem fara
í bága við lög. Þeir geta ekki svo
bindandi sé tekið ákvarðanir sem
stríða gegn ófrávíkjanlegum fyrir-
mælum fjöleignarhúsalaga. Stjórn-
in á að skipta kostnaði eftir reglum
fjöleignarhúsalaga og innheimta
rétta hlutdeild eigenda. Flokkun
í sameiginlegan kostnað og sér-
kostnað fer eftir ófrávíkjanlegum
lagafyrirmælum. Húsfundur getur
ekki haggað þeirri skiptingu.
Utanaðkomandi ráðgjöf
Stjórn húsfélags er heimilt inn-
an vissra marka að fela utanað-
komandi aðila að annast tiltekin
verkefni sem falla undir starfssvið
hennar. Skyldur stjórnar eru þó
flestar þess eðlis að hún verður sjálf
að axla þær og getur fráleitt vís-
að á aðila úti í bæ varðandi þýð-
ingarmikil mál. Er rík ástæða til
að hvetja stjórnir fjöleignarhúsa til
að gleyma ekki lagaskyldum sín-
um og ganga ekki of langt í þessu
efni. Svona fyrirtæki eru rekin með
hagnað að leiðarljósi en ekki af ein-
skærri góðsemi. Þau þurfa skiljan-
lega að fá eitthvað fyrir sinn snúð
og þjónusta þeirra er oft dýrari en í
upphafi virtist. Stundum virðist líka
skorta á lagaþekkingu hjá þessum
aðilum og er þessi dómur til marks
um það.
Húsfunda- og
lögfræðiþjónusta
Húseigendafélagið býr yfir mikilli
þekkingu og reynslu í fjöleignar-
húsamálum. Það er skynsamleg og
ódýr hagsmunagæsla fyrir húsfélög
að ganga í félagið og öðlast með því
aðgang að sérhæfðri lögfræði- og
húsfundaþjónustu þess, sem m.a.
tryggir löglega húsfundi og að rétt
sé staðið að töku ákvarðana. Fund-
arstjóri er sérfróður lögfræðingur
og lögfræðingar félagsins aðstoða
við allan undirbúning fundar. Með
því að nýta þessa þjónustu Húseig-
endafélagsins geta húsfélög, eig-
endur og viðsemjendur, treyst því
að fundur sé löglegur og ákvarð-
anir séu rétt teknar og lögum sam-
kvæmt. Þannig má sneiða hjá
ógöngum og tjóni.
Sm
áa
ug
lý
si
ng
ar
SÍMINN ER
515
55
50
sm
aa
r@
dv
.is
Hafðu
samb
and
í sím
a 515
-5555
eða s
endu
tölvup
óst
á ask
rift@d
v.is
- inn í h
lýjuna
Fáðu D
V heim
í áskrif
t