Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 17
FRÉTTIR 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 17
VETUR Í EVRÓPU
sem frusu í hel. Níræða konan féll
um koll í snjónum í garðinum sín-
um, en hin fannst um helgina, en
hún hafði ætlað að fara í gönguferð.
Áhyggjur af matvælaskorti
Áhyggjur í Bretlandi snúa nú að
matvælaskorti. Sem fyrr segir geng-
ur bændum brösulega að ná nýti-
legu grænmeti úr jörðu og því þurfa
Bretar að reiða sig á innflutt græn-
meti. Verð á matvælum er nú þegar
farið að stíga.
Gasnotkun Breta hefur einnig
stóraukist og þurfti Gordon Brown
forsætisráðherra að slá á ótta um
að gasbirgðir væru á þrotum, en í
síðustu viku neyddust eitt hundrað
stórfyrirtæki til að hætta gasnotkun
til að spara birgðir.
Svipaða sögu er að segja af salt-
birgðum Breta og sagði Brown að
með samvinnu við saltbirgja væri
reynt að tryggja að salt til að bera
á götur og gangstéttir færi þar sem
þörfin væri mest.
Á sunnudaginn var frestað fjölda
flugferða frá breskum flugvöllum
og Eurostar-hraðlestin veitti skerta
þjónustu hvað varðar ferðir á milli
Bretlands, Frakklands og Belgíu.
Strandaglópar í snjó
Í Þýskalandi neyddust yfir 160
manns til að hafast við í bíl sínum
yfir nótt vegna fannfergis sem stöðv-
aði alla umferð á hraðbrautinni sem
liggur með Eystrasaltsströndinni.
Björgunarsveitir þurftu að beita
snjóplógum til að koma stranda-
glópunum, þeirra á meðal nítján
börnum, til bjargar.
Á flugvöllum landsins máttu
hundruð manns bíta í það súra epli
að komast hvorki lönd né strönd
vegna flugferða sem felldar voru
niður. Svipaða sögu var að segja af
ferðum lesta og ferja.
Í Póllandi voru áttatíu þúsund
manns án rafmagns eftir að spennu-
línur skemmdust vegna snjóa, og í
Frakklandi þurftu nokkur hundruð
manns sem voru á leið til Alpafjalla
til skíðaiðkunar að eyða nóttinni í
Lyon vegna ofankomu.
Einangraðar eyjar og mannfellir
Þjóðverjar urðu fyrir verulegum
vertrarhörkum annan daginn í röð á
sunnudaginn og í Berlín og Leipzig
var þrjátíu sentímetra snjór og öflug-
ir og kaldir vindar léku um Þjóðverja
víða. Fjöldi þorpa í Slésvík-Holtsetal-
andi og á eyjum á Eystrasalti er ein-
angraður og tilkynnt hefur verið um
fjölda slysa á ísilögðum vegum lands-
ins sem líða fyrir skort á salti.
Lögregla og björgunarfólk hef-
ur flutt hrakta ferðalanga í neyðar-
tjöld og síðan reynt að losa farartæki
þeirra. Þjóðverjum var fyrir helgina
ráðlagt að birgja sig upp af nauðsynj-
um svo þær dygðu að minnsta kosti í
fjóra daga og útvega sér útvarp með
rafhlöðum svo þeir gætu fylgst með
veðurfréttum.
Í Dusseldorf hefur Rauði krossinn
komið upp upphituðum neyðartjöld-
um en allt að tíu manns hafa frosið í
hel undanfarnar vikur.
Aðrar Evrópuþjóðir hafa ekki far-
ið varhluta af vetrinum sem þar hef-
ur ríkt. Í suðausturhluta Frakklands
voru um 3.000 manns án rafmagns
annan daginn í röð á sunnudaginn,
samkvæmt fréttastofu AFP.
Undanfarnar vikur hafa hátt í 140
manns frosið í hel í Póllandi og í Sviss
hefur ferðum flutningabíla í gegnum
Alpafjallagöngin fækkað vegna mik-
ils snjóþunga.
Miklar vetrarhörkur hafa ríkt í Evrópu
undanfarið. Víða er farið að bera á skorti á
salti til að bera á götur og þjóðvegi og verð
á matvælum fer sums staðar hækkandi.
Mannfellir hefur verið í Bretlandi og Pól-
landi og víðar og samgöngur hafa farið úr
skorðum.
Breskur snjókall Snjórinn er ekki illa
séður af öllu mannfólki. MYND AFP
Mikið hefur gengið á í samskipt-
um múslima og kristinna í Mal-
asíu og í helgarbyrjun var borinn
eldur að fjórum kirkjum auk þess
sem mikið bar á mótmælum. Mót-
mælin eru tilkomin vegna nýfall-
ins dómsúrskurðar um að kristn-
ir megi nota orðið Allah um hinn
kristna guð. Múslimskir predikar-
ar notuðu föstudagsbænirnar til
að mótmæla úrskurði dómsins.
„Við munum ekki leyfa að orð-
ið Allah verði notað í ykkar kirkj-
um,“ sagði einn predikari í mosku
í Kuala Lumpur, og mótmælend-
ur gengu um með spjöld sem á
var skrifað „Ranglega notuð nöfn
orsaka villutrú“ og „Allah er ein-
göngu fyrir okkur“.
Orðið Allah mun hafa verið
notað um guð í Malasíu um alda-
skeið og kristnir hafa notað orðið
í Egyptalandi, Sýrlandi, Líbanon
og Indónesíu um guð. En margir
malasískir múslimar, sem eru um
sextíu prósent landsmanna, telja
að orðið Allah eigi eingöngu að
vísa til guðs múslima og að önnur
notkun hvetji til þess að fólk snúi
sér til kristni, sem er glæpur sam-
kvæmt íslömskum lögum lands-
ins.
Kaþólskt dagblað, Herald, sem
gefið er út í Malasíu, vann fyrir um
tíu dögum áfrýjun gegn úrskurði
sem bannaði notkun orðsins Allah
af þeim sem ekki eru múslimar.
Framkvæmd þess úrskurðar hefur
þó verið frestað vegna mögulegr-
ar áfrýjunar vegna hans af hálfu
stjórnvalda. Engu að síður hefur
úrskurðurinn vakið reiði á meðal
múslima.
Stjórnvöld í Malasíu hafa
löngum reynt að halda í skefjum
spennu á milli malasískra mús-
lima og stórs hluta landsmanna
sem eru af indversku og kín-
versku bergi brotnir og eru kristn-
ir, búddatrúar eða hindúar.
Kristnir mega ekki nota orðið Allah um guð sinn:
„Allah“ bara fyrir múslima
Skaðinn skoðaður
og metinn Malasískir
múslimar hafa mótmælt
nýföllnum dómsúrskurði.
MYND AFP
Indverjar og Ástral-
ar ekki á eitt sáttir
Teikning í indversku dagblaði hef-
ur vakið reiði í Ástralíu og stefnt
diplómatísku sambandi Indlands
og Ástralíu í voða. Myndin sýnir
áströlsku lögregluna sem meðlimi
öfgasamtakanna Ku Klux Klan og
er síðasta skot Indverja á Ástrala
vegna morðs á Nitin Garg, indversk-
um námsmanni, sem myrtur var um
helgina í Melbourne í Ástralíu.
Indverjar telja morðið á Garg
tengjast kynþáttafordómum og eru
reiðir áströlskum yfirvöldum fyrir að
vísa því áliti á bug.
Myndin sýnir lögreglumann, í
hefðbundnum Ku Klux Klan-klæð-
um, sem segir: „Við eigum eftir að
skera úr um eðli glæpsins.“
Handtóku
syrgjandi mæður
Írakskar öryggissveitir handtóku um
helgina þrjátíu konur sem þátt tóku
í friðsamlegum mótmælum í Teh-
eran, höfuðborg landsins. Frétta-
stofa CNN hafði eftir talsmanni
mannréttindasamtaka í Íran að um
eitt hundrað óeinkennisklæddir
lögreglumenn hefðu leyst upp sam-
komu Syrgjandi mæðra, samtaka
mæðra sem misst hafa barn sitt í
mótmælum gegn ríkisstjórninni
undanfarið og hittast hverja helgi í
Laleh-garðinum til að vekja athygli á
dauða barna mæðranna.
Mæðurnar krefjast þess að ríkis-
stjórnin viðurkenni ábyrgð á dauða,
hvarfi og varðhaldi barna þeirra.
„Ljóst“ litarhaft
til góðs
Demókratinn Harry Reid, öldunga-
deildarþingmaður fyrir Nevada,
baðst um helgina afsökunar á um-
mælum sem lituð voru kynþáttafor-
dómum og hann viðhafði um Barack
Obama, forseta Bandaríkjanna, í
slagnum um forsetaembættið.
Rithöfundarnir Mark Halperin og
John Heilemann gerðu ummælin að
umtalsefni í væntanlegri bók þeirra
Game Change. Þeir vitna í Harry
Read, sem sagði í einkasamræðum
að Obama, sem þeldökkur fram-
bjóðandi, nyti góðs af því hversu
„ljóst“ litarhaft hans væri, og að mál-
færi hans „bæri engin einkenni mál-
fars blökkumanna, nema hann vildi
það viðhafa“.
Reid harmaði orðaval sitt og
baðst afsökunar á því að hafa móðg-
að alla Bandaríkjamenn, „sérstak-
lega Bandaríkjamenn af afrískum
uppruna með óviðeigandi ummæl-
um sínum“.