Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Qupperneq 24
Undirbúningur strákanna okkar fyrir EM
í Austurríki fer vel af stað en um helgina
voru Þjóðverjar lagðir í tveimur leikjum,
32-28, og 33-29. Báðir leikirnir fóru fram í
Þýskalandi en Ísland hefur nú ekki tapað
fyrir Þjóðverjum í síðustu fimm viður-
eignum liðanna, þar af unnið fjórar. Guð-
mundur Guðmundsson segir þó margt
sem liðið verði að bæta á næstu dögum
fram að móti.
STÓRLEIKUR Í SAFAMÝRI Tvö efstu liðin í N1-deild kvenna, Fram og Valur, mætast í sannköll-
uðum stórleik á þriðjudagskvöldið í Safamýri. Valskonur eru enn ósigraðar í deildinni eftir tólf umferðir og eru
efstar með 22 stig. Framkonur koma þar næstar með 21 stig og geta með sigri komist yfir Val á toppnum. Þegar
liðin mættust fyrr á tímabilinu í Vodafone-höllinni skildu liðin jöfn í hörkuleik, 21-21. Sama kvöld mætast lið
FK og HK í Kaplakrika og þá tekur Fylkir á móti Víkingi. FH getur með sigri nálgast erkifjendur sína í Haukum
en FH-ingar eru fjórum stigum á eftir Haukum og eiga tvo leiki til góða. Fastlega er búist við stórum sigri
Fylkis á Víkingi enda hefur kornungt lið Víkings verið fallbyssufóður fyrir flest öll liðin í deildinni. Víkings-
stúlkur eru langneðstar með þrjú stig og -252 mörk í markatölu. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.30.
Frá því Skotinn klári, David Moyes,
tók við Everton hefur hann aldrei
gerst svo frægur að landa sigri á liði
Arsenal undir stjórn Arsene Wenger
í ensku úrvalsdeildinni. Hann var þó
hársbreidd frá því um helgina. Steven
Pienaar kom Everton í 2-1 níu mínút-
um fyrir leikslok en Tékkinn Tomas
Rosicky bjargaði jafntefli fyrir Arsen-
al með marki í uppbótartíma.
Everton byrjaði gífurlega sterkt
í leiknum og var Louis Saha búinn
að brenna af tveimur góðum færum
snemma leiks. Það var því alveg eft-
ir bókinni þegar Leon Osman skall-
aði knöttinn í netið eftir tólf mínútna
leik og kom Everton yfir. Hornspyrn-
una sem gaf markið átti Bandaríkja-
maðurinn Landon Donavan sem var
að leika sinn fyrsta leik af átta vikna
lánssamningi frá L.A. Galaxy.
Denilson jafnaði ekki löngu síðar
með skoti sem fór af varnarmanni og
í netið. Eins var mark Rosicky í upp-
bótartíma og má alveg segja að Ev-
erton hafi meira og minna séð um
markaskorun í leiknum. Markið
áttu þó Arsenal-menn alveg inni eft-
ir að hafa stjórnað leiknum frá A-Ö í
seinni hálfleik. Arsenal mistókst því
að koma sér í góða stöðu í öðru sæt-
inu en getur huggað sig við það að
Manchester United missteig sig líka.
„Við spiluðum gríðarlega vel og
áttum skilið að vinna leikinn,“ sagði
svekktur David Moyes, stjóri Evert-
on, eftir leikinn. Við áttum betri færi
en Arsenal og vorum mikið með bolt-
ann, við áttum meira en stig skilið,“
bætti hann við.
Arsenal marði jafntefli við Everton:
MOYES NÁLÆGT
FYRSTA SIGRINUM
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
24 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 SPORT
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
BIRMINGHAM - MAN. UNITED 1-1
1-0 Cameron Jerome (39.), 1-1 Scott Dann (64. sm).
Rautt spjald: Fletcher, Man. Utd. (85.),
ARSENAL - EVERTON 2-2
0-1 Leon Osman (12.), 1-1 Denilson (28.), 1-2 Steven Pienaar (81.),
2-2 Tomas Rosicky (92.).
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Chelsea 14 12 0 2 36:8 36
2. Man.Utd. 14 10 1 3 30:13 31
3. Tottenham 14 8 2 4 33:19 26
4. Arsenal 13 8 1 4 36:18 25
5. Liverpool 14 7 2 5 31:20 23
6. Aston Villa 14 6 5 3 22:14 23
7. Man.City 13 5 7 1 24:17 22
8. Sunderland 14 6 2 6 21:20 20
9. Stoke 14 5 5 4 13:15 20
10. Fulham 14 5 4 5 18:16 19
11. Birmingham 14 5 3 6 12:14 18
12. Burnley 14 5 2 7 19:31 17
13. Blackburn 14 5 2 7 16:28 17
14. Wigan 14 5 2 7 15:31 17
15. Hull 15 4 4 7 17:31 16
16. Everton 14 4 3 7 17:25 15
17. West Ham 14 3 5 6 24:26 14
18. Bolton 13 3 3 7 16:27 12
19. Wolves 14 2 4 8 12:27 10
20. Portsmouth 14 2 1 11 11:23 7
CHAMPIONSHIP
CARDIFF - BLACKPOOL 1-1
DERBY - SCUNTHORPE 1-4
COVENTRY - BARNSLEY 3-1
n Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry en
var tekinn út af á 84. mínútu. Emil Hallfreðsson var einnig í
byrjunarliði Barnsley og lék allan leikinn.
LEICESTER - IPSWICH 1-1
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Newcastle 18 12 3 3 29:10 39
2. W.B.A. 18 11 4 3 39:15 37
3. Leicester 18 8 7 3 21:15 31
4. Nott.Forest 18 7 8 3 23:17 29
5. Q.P.R. 18 7 7 4 31:21 28
6. Swansea 18 7 7 4 15:15 28
7. Cardiff 18 8 3 7 34:22 27
8. Blackpool 17 7 6 4 27:19 27
9. Watford 18 7 6 5 27:29 27
10. Middlesbro 18 7 5 6 25:20 26
11. C.Palace 18 6 8 4 20:18 26
12. Bristol City 18 6 8 4 22:22 26
13. Preston 17 6 6 5 23:23 24
14. Sheff.Utd. 18 6 6 6 29:30 24
15. Barnsley 17 6 3 8 21:28 21
16. Derby 18 6 2 10 21:29 20
17. Coventry 18 4 7 7 21:28 19
18. Doncaster 18 3 9 6 22:26 18
19. Sheff.Wed. 18 4 6 8 23:29 18
20. Scunthorpe 18 5 3 10 21:36 18
21. Reading 18 4 5 9 18:28 17
23. Ipswich 18 2 10 6 19:29 16
22. Plymouth 17 4 3 10 16:28 15
24. Peterbro 18 2 6 10 2 1:31 12
ÆFINGALEIKIR ÍSLANDS
ÞÝSKALAND - ÍSLAND 28-32
n Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 10/6, Snorri Steinn Guðjóns-
son 5/1, Arnór Atlason 5, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Sturla Ás-
geirsson 2, Alexander Petersson 2, Róbert Gunnarsson 2, Vignir
Svavarsson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1, Aron Pálmarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 20, Hreiðar Levy
Guðmundsson 1/1.
ÞÝSKALAND - ÍSLAND 29-33
n Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 9, Guðjón Valur Sigurðsson
6, Alexander Petersson 5, Snorri Steinn Guðjónsson 4/1, Vignir
Svavarsson 2, Aron Pálmarsson 2, Ingimundur Ingimundarson 2,
Arnór Atlason 2, Róbert Gunnarsson 1.
Jafnt á Emirates Landon Donavan
í baráttunni í sínum fyrsta leik með
Everton. MYND AFP
TAKINU HALDIÐ Á ÞJÓÐVERJUM
Íslenska landsliðið í handbolta gerði
góða ferð til Þýskalands um helg-
ina og lagði heimamenn í tveimur
æfingaleikjum. Leikirnir voru liðir
beggja landa í undirbúningi sínum
fyrir Evrópumótið í Austurríki sem
hefst nítjánda janúar hjá Íslending-
um. Báðir leikir unnust með fjögurra
marka mun það sem margt gott og
margt ekki jafngott sást í leik liðsins.
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari var sáttur með úrslitin
en segir margt þurfa að laga fram að
móti. Ísland mætir næst Portúgölum í
Laugardalshöll á miðvikudaginn.
Seiglusigur í fyrri leiknum
Á laugardaginn gerðist það í tvígang
að Þjóðverjar komu sér í þægilega
stöðu með nokkurra marka forystu
en í bæði skiptin náði íslenska lands-
liðið að vinna hann upp. Sigurinn var
unninn á mikilli seiglu og var munur-
inn helst til of stór þegar upp var stað-
ið. Síðustu tvö mörkin komu upp úr
algjöru klúðri Þjóðverja og langskot
frá Björgvini í markinu þegar ein sek-
únda var eftir af leiknum.
Vörn Íslands var ekki nægilega góð
í fyrri hálfleik en skánaði þó í þeim
seinni. Ljóst er að miðverðirnir, Ingi-
mundur Ingimundarson og Sverre
Jacobson, þurfa að pússa sig betur
saman í varnarleiknum. Ljósu punkt-
arnir voru þó Björgvin Páll í markinu
sem var með yfir 40% markvörslu og
fyrirliðinn, Ólafur Stefánsson, en það
munar svo sannarlega um hann í leik
íslenska liðsins.
Leikurinn einkenndist þó dálítið
af slakri færanýtingu en jafnan frekar
öruggir menn á borð við Guðjón Val
Sigurðsson og Róbert Gunnarsson
voru að fara illa með dauðafæri. Lík-
lega hefur Guðjón Valur sjaldan eða
aldrei átt jafnslakan leik.
Margt sem þarf að laga
„Við spiluðum ágætlega sko,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari um seinni leikinn, þó allt
annað en í sjöunda himni þegar DV
ræddi við hann í gær. „Það er alveg
heilmargt sem við þurfum að laga en
auðvitað er maður sáttu við tvo sigra á
Þjóðverjum á þeirra heimavelli,“ bætti
hann við. Um leikinn sagði hann:
„Þetta var öðruvísi leikur en á laug-
ardaginn. Við héldum okkur við 6:0
vörnina í fyrri hálfleik og hún var ekki
nógu góð, þeir skora líka þar sautján
mörk. Sóknarleikurinn var ágætur,
átján mörk í fyrri hálfleik er fínt.
Í síðari hálfleik settum við í
5+1 vörn og það má segja
að hún hafi verið góð síð-
ustu tuttugu mínúturn-
ar af leiknum.“
Guðmundur
ítrekaði að það
væri margt sem
þyrfti að laga.
„Varnarleikur-
inn verður að
vera betri og
stöðugri. Svo
verðum við að fá
betri hlaup til baka. Við fengum
alltof mikið af mörkum á okk-
ur þar sem við vorum ekki
nægilega duglegir að
hlaupa til baka,“ sagði
Guðmundur.
Þórir Ólafsson og
Logi Geirsson voru
heima vegna meiðsla
en Guðmundur segist
bjartsýnn á að fá allavega
Þóri inn í liðið í næstu viku. All-
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Ólafur Stefánsson Var frábær
í báðum leikjunum og marka-
hæstur báða dagana.
MYND AME
Guðmundur Guð-
mundsson Segir margt
þurfa að laga í leik Íslands.
MYND GUNNAR GUNNARSSON