Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Side 25
Það var sautjánda október það herr-
ans ár 2009 sem lið Birmingham í
ensku úrvalsdeildinni tapaði síðast
leik. Það lá þá fyrir Arsenal, 3-1 á Em-
irates. Síðan þá hefur liðið ekki tapað
leik, alls í tólf leikjum og náði með-
al annars inn fimm leikja sigurhrinu
í nóvember og desember. Birming-
ham hélt þessu góða skriði áfram
með jafntefli gegn Englandsmeist-
urum Manchester United um helg-
ina, 1-1.
Manchester United virtist staðráð-
ið í að bæta upp fyrir skandalinn gegn
Leeds og lék afar vel í fyrri hálfleik.
Reyndar svo vel að fyrstu 38 mínút-
ur leiksins fór Birmingham meira og
minna ekkert yfir miðju. En það var í
takt við gengi United á leiktíðinni að
þegar Birmingham loks fór yfir miðju
komst það yfir með skondnu marki
eftir röð mistaka United-manna.
Scott Dann jafnaði metin fyrir Un-
ited í seinni hálfleik með sjálfsmarki.
Reyndar ætlaði línuvörðurinn að taka
markið af meisturunum en vökult
auga dómarans réð úrslitum og lét
hann aðstoðarmann sinn vita að ekki
væri hægt er að dæma rangstöðu á
sjálfsmark. Lengra komust þó meist-
ararnir ekki en urðu fyrir áfalli þeg-
ar Darren Fletcher fékk rautt spjald
fimm mínútum fyrir leikslok.
Sir Alex Ferguson virtist fá að ráða
viðbótartímanum í þetta skiptið svo
allir yrðu sáttir en strákarnir hans
komu ekki við boltann allar þær sex
mínútur sem bætt var við. Fergu-
son hafði þó ýmislegt að kvarta yfir
dómaranum eins og venjulega á leik-
tíðinni. ,„Ég hef ekki séð svona vægt
rautt spjald í langan tíma, þetta var í
raun alveg fáránlegt,“ sagði Fergu-
son. „Það voru margar fáránlegar
ákvarðanir í dag. Aðstoðardómar-
inn vildi til dæmis dæma rangstöðu
þegar okkar mark kom en það var
sjálfsmark. Ótrúlegt.“
Man. United án sigurs í fyrstu tveimur leikjum ársins:
BIRMINGHAM ÓSIGRANDI
ÓLJÓST MEÐ MEIÐSLIN Ekki er ljóst hvað kom fyrir brasilíska
miðjumanninn Denilson, leikmann Arsenal, sem greip um kvið sinn og hné
niður í leik liðsins gegn Everton um helgina. Pilturinn ungi lá eftir og var bor-
inn af velli, sárþjáður. Everton nýtti sér reyndar tækifærið og komst James
Vaughan í dauðafæri þar sem dómarinn lét leik halda áfram en Vaug-
han klúðraði færinu sem hefði klárað leikinn og tryggt Everton sig-
ur. Wenger sagði við fréttamenn að líklegast væri að hann hefði
brotið eða brákað rifbein, en það væri þó alls ekki ljóst.
HREINSUN HJÁ MEISTURUNUM? Breska dagblaðið The Mirror greindi frá
því í gær að Sir Alex Ferguson ætli sér að hreinsa til í herbúðum meistaranna með því að losa
sig við fimm menn. Hann er sagður vilja losa sig við þá Dimitar Berbatov, Ander-
son, Nani, Zoran Tosic og Nemanja Vidic. Samtals kostuðu þessir leikmenn
80 milljónir punda. Allir nema Vidic eru sagðir hafa valdið stjóranum
vonbrigðum en hann er orðinn leiður á lífinu á Englandi. Þykir
einnig ólíklegt að Anderson verði látinn fara en hinir þrír
gætu yfirgefið félagið svo fljótt sem fyrir lok mánaðarins.
SPORT 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 25
n Bandaríski körfuknattleiks-
maðurinn Nick Bradford hefur
skrifað undir samning þess gild-
andi að leika
með Njarðvík
út leiktíðina.
Bradford lék
með Grinda-
vík á síðasta
tímabili og
átti frábæra
úrslitakeppni
með liðinu
sem endaði í öðru sæti. Hann hef-
ur einnig leikið með Keflavík og
áður Njarðvík hér á landi. Styrkir
þetta annars frábært Njarðvíkurl-
ið mikið og verður það svo sann-
arlega öflugt á seinni helmingi
tímabilsins og í úrslitakeppninni.
n Körfuknattleikskonan Helena
Sverrisdóttir var í gær útnefnd
íþróttamaður desembermánaðar
hjá TCU-háskólanum í Banda-
ríkjunum. Helena hélt upp á það
með að leika frábærlega í sigri
TCU sama kvöld í háskólakeppn-
inni í körfubolta. Helena lék allra
kvenna mest í liði sínum, 34 mín-
útur, var næst stigahæst með 14
stig, gaf sex stoðsendingar og tók
þrjú fráköst. Helena varð á dög-
unum fjórða í vali á íþróttamanni
ársins.
n Og meira af afreksfólki sem fær
verðlaun fyrir desembermánuð.
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór
Sigurðsson var valinn leikmað-
ur mánaðarins hjá Reading í
desember en liðið leikur í næst-
efstu deild á Englandi. Gylfi hefur
leikið frábærlega á leiktíðinni eftir
að hann fékk
tækifærið
og í mánuði
ljóss og friðar
skoraði hann
einnig þrjú
mörk. Alls
hefur hann
skorað sjö
mörk til þessa.
Með Reading leika tveir aðrir Ís-
lendingar, Brynjar Björn Gunn-
arsson og Ívar Ingimarsson.
n Knattspyrnulið Stoke í ensku úr-
valsdeildinni ætlar að gera heið-
arlegt tilboð til þess að næla í einn
besta framherja heims, Ruud
van Nistelrooy frá Real Madr-
id, en honum er frjálst að fara frá
félaginu. Stjórnarformaður Stoke
hefur viðurkennt að tilboðið sé
langsótt en félagið hefur lagt inn
tilboð og bíður svara. Nistelrooy
var valinn besti framherji ára-
tugarins af sérfræðingum ESPN
í lok árs en hann hefur
orðið markahæstur
í þremur deildum
Evrópu, Hollandi,
Englandi og
á Spáni.
MOLAR
Mame Diouf Lék sinn
fyrsta leik með United.
MYND AFP
TAKINU HALDIÐ Á ÞJÓÐVERJUM
ir komu heilir úr ferðinni frá Þýska-
landi. „Við erum nokkuð bjartsýnir á
að Þórir skili sér inn í næstu viku og
við vonum það besta með Loga. Það
eru allir heilir eftir þessa leiki í Þýska-
landi eftir því sem ég best veit. Snorri
fékk reyndar högg á lærið en það er
í lagi með hann held ég,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson.
Ísland var klókara
Heiner Brand, þjálfari þýska lands-
liðsins, varði tap sinna manna í viðtali
eftir fyrri leikinn. Kom hann sérstak-
lega á framfæri hversu ungt þýska lið-
ið væri og í það vantaði reynslubolta.
Í liðið vantaði stórskyttuna Pascal
Hens, markvörðinn Johannes Bitter
og hornamanninn Uwe Gensheimer.
Þá meiddist Holger Glandorf, önnur
stórskytta, snemma í fyrri leiknum.
„Sigur Íslendinga var sanngjarn
því þeir voru klókari. Heilt yfir er ég
ekki óánægður með frammistöðu
okkar en ég er þó ósáttur við hversu
marga tæknifeila við gerðum. Ég gat
ekki krafist þess að halda í við Íslend-
ingana í 60 mínútur. Ísland var með
mun reynslumeira lið og hefur inn-
anborðs heimsklassa leikmenn. Við
áttum okkar stundir í leiknum en
undir lokin sást á nokkrum minna
manna reynsluleysið og réðu þeir illa
við verkefnið. Fjögurra marka tapið
endurspeglar samt ekki frammistöðu
okkar því í raun var leikurinn bara
spilaður í 59 mínútur,“ sagði Heiner
Brand, þjálfari Þjóðverja, eftir fyrra
tapið um helgina.
Íslandsgrýlan í Þýskalandi
Íslandi hefur gengið vel með Þjóðverja
og unnið þá nú fjórum sinnum og gert
eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum lið-
anna. Liðin léku ekkert á síðasta ári
en 2008 hafði Ísland sigur á Þjóðverj-
um á Ólympíuleikunum og svo sig-
ur og jafntefli í tveimur æfingaleikjum
um haustið. Síðasti sigur Þjóðverja á
Íslendingum kom á Evrópumótinu
í Þrándheimi í byrjun árs 2008. Fóru
þeir þýsku þar illa með strákana okkar
og höfðu öruggan sigur, 35-27.
Ísland leikur næst æfingaleik gegn
Portúgal í Laugardalshöllinni en það
er eini leikur Íslands hér heima í und-
irbúningi sínum fyrir EM. Liðið heldur
svo á æfingamót í París þar sem það
mætir Spáni og svo heimamönnum
eða Brasilíu.
Björgvin Páll Átti
stórleik á laugardag-
inn og varði 20 skot.
MYND AFP
Heiner Brand Þjálfari
Þýskalands sagði Íslend-
inga hafa verið klókari.
MYND AFP