Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2010, Síða 30
Þriðja fótbolta Pub Quiz Players
var haldið síðastliðinn fimmtu-
dag en það er sparkspeking-
ur RÚV, Hjörvar Hafliðason,
sem sér um það. Mörg stjörnu-
lið voru mætt til leiks eins og
vanalega en eitt nýtt bættist þó
í hópinn, Heimir Guðjónsson,
þjálfari Íslandsmeistara FH, og
Lúðvík Arnarson, varaformað-
ur FH og ferðamálafrömuður.
Gekk þeim félögunum afar vel
og hefðu þeir tryggt sér annað
sætið hefðu þeir ekki klúðrað
spurningu um uppstillingu
spænska landsliðsins í úrslita-
leik Evrópumótsins 2008. Þegar
upp kom að svarið var vitlaust
hundskammaði Lúðvík Heimi,
sagði að hann ætti að vita allt
um Spán þar sem hann var sér-
fræðingur Stöðvar 2 Sport um
spænska boltann í tvö ár. Þeir
félagarnir sættust þó þegar þeir
fengu launin fyrir þriðja sætið,
bjórkort á barinn.
„Síminn hefur bara ekki stoppað. Strax
þegar blaðið kom út fóru konur að
hringja og biðja um númerið hjá einka-
þjálfaranum,“ segir Ellý Ármannsdótt-
ir, blaðakonan fagra, sem hefur lést
um tólf kíló að undanförnu. Í helgar-
blaði DV var viðtal við Ellý þar sem hún
greindi frá því að hún hefði verið í pró-
grammi hjá einkaþjálfaranum Garðari
Sigvaldasyni. Árangurinn hefur ekki
látið á sér standa og er Ellý komin í
dúndurform eins og myndirnar stað-
festu svo sannarlega.
„Ég bjóst alls ekki við þessu en það
hefur fjöldi kvenna hringt í mig. Þetta
eru allt konur sem ég þekki ekki. Þær
eru að hringja og spyrja um Garðar og
vilja vita hvar ég fékk fötin sem ég er í
á myndunum. Þetta segi ég þeim með
ánægju því sjálf er ég svo ánægð með
árangurinn,“ segir Ellý himinlifandi en
í viðtalinu greindi hún einnig frá því
að kynlífið með eiginmanninum hefði
batnað til muna. Sjálf er Ellý þriggja
barna móðir. „Það er ekki slæmt að líta
svona út með þrjú börn,“ segir Ellý.
Ellý segir árangurinn ekki hafa kom-
ið með neinni kvöð því prógrammið
hjá Garðari sé svo gott. „Ég er alveg í
skýjunum með þetta því ég get borðað
eins og ég vil. Þetta á ekki að vera leið-
inlegt heldur bara gaman,“ segir hún og
fagnar því að aðrar konur vilji ná sama
árangri.
„Eins og staðan er núna verðum við
að hugsa um okkur sjálf til þess að við
getum lifað heilbrigðu lífi og séð um
börnin okkar. Því hef ég verið á fullu að
senda SMS með númerinu hans Garð-
ars til kvenna úti um allan bæ,“ segir
Ellý Ármannsdóttir.
tomas@dv.is
Konur vilja komast til Garðars
SÆTTUST YFIR
BJÓRNUM
ELLÝ ÁRMANNS TÓLF KÍLÓUM LÉTTARI:
MATTHÍAS MATTHÍASSON:
Útvarpsmaðurinn Ríkharður
Guðnason, betur þekktur sem
Rikki G, þurfti að standa við
stóru orðin á föstudaginn. Rikki
veðjaði við kollega sinn á X-inu
977, Þorkel Mána Pétursson,
um niðurstöðuna í bikarleik
Manchester United og Leeds um
daginn. Hafði Leeds sigur og var
það undir að Rikki þyrfti þá að
láta húðflúra á sig „X 97,7“. Vildi
FM-hnakkinn ekki bera merki
rokkaranna þar sem það sást og
lét hann því húðflúra sig á ilina.
Það hefndi sín þó því alls ekki er
þægilegt að láta húðflúra sig þar.
Það sem meira er, Rikki verður
líklega smá haltur næstu daga á
meðan hann jafnar sig.
HÚÐFLÚRAÐUR
30 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 FÓLKIÐ
Á ILINNI
Tekin í gegn Garðar Sigvaldason einkaþjálfari er búinn að skafa tólf
kíló af Ellý Ármanns.
„Ég hef alltaf komist í úrslitin en aldrei út. Þetta verður
vonandi bara árið,“ segir Matthías Matthíasson söngvari
en hann tryggði sér sæti í úrslitum Söngvakeppni Sjón-
varpsins með laginu Out Of Sight. „Það er alltaf jafnga-
man að taka þátt í þessari keppni og líka frábært að fá að
taka þátt núna meira á eigin forsendum,“ en Matthías átti
sinn þátt í semja lagið og textann ásamt Matthíasi Stef-
ánssyni, höfundi þess.
Þótt Matthías sé vongóður fyrir úrslitin er hann með
báða fætur á jörðinni.. „Þetta kemur allt í ljós þegar þar
að kemur. Við ætlum bara að gera helmingi betur í úr-
slitunum og svo sjáum við hvað setur.“ Synir Matthíasar
voru í sjónvarpssal á laugardaginn og hvöttu sinn mann
áfram af miklum krafi. „Það var frábært að hafa þá þarna
og reyndar var stór partur fjölskyldunnar á staðnum.
Þeir voru gríðarlega ánægðir með að pabbi hefði komist
áfram.“
Íris Hólm, söngkona hljómsveitarinnar Bermúda,
tryggði sér einnig sæti í úrslitum með laginu The One eftir
Birgi Jóhann Birgisson. Eftir að hafa sungið sitt lag hopp-
aði Íris í önnur föt því hún söng bakraddir í laginu In The
Future sem hin 16 ára Karen Pálsdóttir söng.
asgeir@dv.is
Matthías Matthíasson, oftar en ekki kenndur við
Papana, tryggði sér sæti í úrslitum Söngvakeppni
Sjónvarpsins á laugardaginn ásamt Írisi Hólm. Þetta
er í þriðja skipti sem Matthías tekur þátt í forkeppni
Eurovision og hefur hann alltaf komist í úrslit. DV var
baksviðs á keppninni og fylgdist með stemningunni
SIGURVEGARAR Matti og
Íris hæstánægð þegar
úrslitin lágu ljós fyrir.
MYNDIR EGGERT JÓHANNESSON
KJÓLL KVÖLDSINS Hin 16 ára
gamla Karen vakti mikla
athygli fyrir klæðaburð en það
dugði ekki alla leið í úrslit.
JÓHANNA GUÐRÚN OG INGÓ Tóku
lagið saman og Eva María
hafði gaman af eins og sjá má.
GLAÐLEGAR Edda Björg,
Erna Hrönn, Kolbrún
Eva og Bryndís.
ALLTAF KOMIST
ÁFRAM PABBI! Þeir
Arnar Páll, sjö ára,
og Sigurður Páll,
fjögurra ára (alveg að
verða fimm), létu sitt
ekki eftir liggja.
Í ÚRSLIT