Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 FRÉTTIR
Mikil og gagnrýnin umræða hefur
verið um ofurlaun bankamanna í
bresku pressunni síðustu vikurn-
ar, líkt og verið hefur á Íslandi frá
bankahruninu 2008.
Á þriðjudaginn var til að mynda
frétt í breska blaðinu Evening
Standard með fyrirsögninni „For-
eldrar mínir telja að ég fái of há
laun, segir 10 milljóna punda stjóri
RBS“.
Fréttin fjallaði um forstjóra
Royal Bank of Scotland, RBS, sem
rekinn er af breska ríkinu um þessar
mundir líkt og gamli og nýi Lands-
bankinn, en hann getur nælt sér
í 10 milljóna punda bónus, rúma
2 milljarða króna, ef hann stend-
ur sig vel í starfinu og bankinn nær
ákveðnum takmörkum áður en
hann verður einkavæddur. Breska
ríkið þurfti að bjarga bankanum frá
falli með því að taka yfir 84 prósenta
hlut í honum.
Í fréttinni segir að forstjórinn,
Stephen Hester, hafi viðurkennt
fyrir nefnd á vegum breska fjár-
málaráðuneytisins að foreldrum
hans þætti hann fá of há laun. „Ef
þú spyrðir mömmu mína og pabba
um launin mín þá myndu þau líka
segja þau vera of há. Þannig að fólk
sem stendur mér nærri hefur einn-
ig þessa skoðun á bankamönn-
um,“ var haft eftir Hester í Evening
Standard. Breskur þingmaður hef-
ur meira að segja sagt um Hester að
hann sé launahæsti opinberi starfs-
maðurinn. Svipuð orð má líklega
viðhafa um Baldvin Valtýsson sé lit-
ið á stöðu bankans sem hann stýrir.
Í fréttinni segir Hester hins veg-
ar að hann skilji alveg að breskur
almenningur undrist ofurlaunin og
bónusana í bankakerfinu en samt
ætlar hann sér að þiggja 10 milljón
pundin ef hann getur. „Í sumum til-
fellum hefur verið erfitt að réttlæta
tilteknar launagreiðslur. Ég skil full-
komlega að almenningur og stjórn-
málamenn hafi skoðun á slíkum til-
vikum.”
Fastlega má búast við því að
þessi umræða um ofurlaunin í
bankakerfinu muni halda áfram
enda er nú þegar farið að heyrast
sagt að ummæli Hesters jafnist á
við ummæli annars bankamanns,
Matts Barrett, árið 2003 en hann
sagði við sömu þingnefnd að hann
notaði aldrei kreditkort þar sem
þau væru of dýr í notkun. Barett
þessi var stjórnarformaður Barc-
lays-bankans og vellauðugur og
féllu orð hans því í grýttan jarðveg.
ingi@dv.is
Bretar ræða mikið um ofurlaun bankamanna:
Mamma og pabbi telja launin of há
Hörð gagnrýni Fjallað var um
ofurlaun bankamanna í grein í
Evening Standard.
ENN Á OFURLAUNUM Í LONDON
Núverandi yfirmaður gamla Lands-
bankans í London, Baldvin Valtýs-
son, er með fleiri tugi milljóna króna
í árslaun, samkvæmt heimildum DV.
Launin eru ekki skattskyld á Íslandi
og því kemur nafn hans ekki fram á
tekjulistum yfir launahæstu menn Ís-
lands.
Baldvin, sem var með rúmar 280
milljónir króna í árslaun hjá Lands-
bankanum fyrir hrun, neitar því að
hann sé með eins háar tekjur og ein
heimild DV hermdi, eða um 150
milljónir króna á ári. „Þetta er algert
kjaftæði. Annars ætla ég ekki að fara
að ræða um launin mín... Þessi tala
er fjarri lagi,“ segir Baldvin sem neit-
ar annars að gefa upp laun sín við
blaðamann DV.
Aðrar heimildir DV herma að
laun Baldvins og margra annarra
starfsmanna Landsbankans í Lond-
on séu há því annars vildi þetta fólk
ekki vinna fyrir skilanefndina. Laun
Baldvins nái þó ekki 150 milljónum
króna á ári.
Baldvin var ráðinn útibússtjóri
Landsbankans í London þegar Lár-
us Welding lét af störfum á fyrri hluta
árs 2007. Hann fer fyrir 75 manna
hópi hjá útibúi Landsbankans í
London sem vinnur við að gera starf-
semi bankans þar í landi upp eft-
ir bankahrunið. Hann stýrði Lands-
bankanum í London því í um eitt og
hálft ár á meðan boðið var upp á Ic-
esave-reikningana þar í landi.
Skerða Icesave-peningana
Laun þessara starfsmanna, sem
langflestir eru erlendir, eru greidd
úr þrotabúi Landsbankans og drag-
ast því frá þeirri upphæð sem not-
uð verður til að greiða upp Icesave-
skuldirnar við breska og hollenska
ríkið. Starfsemi Landsbankans í Hol-
landi þar sem eru þrír starfsmenn
heyrir einnig undir Landsbankann í
Bretlandi. Kostnaður við skilanefnd-
ina er greidd af þrotabúinu og nam
kostnaður frá hruninu 2008 og þar til
í nóvember 2009 um 117 milljónum
króna, samkvæmt kröfuskrá Lands-
bankans í nóvember.
Eftirstöðvar þeirra skulda sem
verða eftir þegar búið verður að
greiða breska og hollenska ríkinu
vegna Icesave, og kostnaðinn sem
fylgir uppgjörinu á búi gamla Lands-
bankans, munu falla á íslenska
skattborgara. Öruggt þykir að eignir
Landsbankans munu ekki nægja fyr-
ir Icesave-skuldbindingunum, líkt og
margoft hefur komið fram í fjölmiðl-
um.
Þeim mun hærri laun sem starfs-
menn gamla Landsbankans fá, þeim
mun hærri upphæð munu íslenskir
skattgreiðendur þurfa að greiða upp
í Icesave-skuldirnar.
Baldvin stýrði Icesave
Þess skal einnig getið að Baldvin Val-
týsson var útibússtjóri Landsbank-
ans í London frá því í lok apríl 2007
og þar til íslenska bankakerfið féll
haustið 2008. Hann var því yfirmað-
ur bankans þar í landi á meðan boð-
ið var upp á Icesave-reikningana.
Byrjað var að bjóða upp á Icesave í
Bretlandi í október 2006, um hálfu
ári áður en Baldvin tók við útibús-
stjórastöðunni í Landsbankanum
í London af Lárusi Welding. Bald-
vin hélt svo áfram að leiða starfsemi
hins fallna Landsbanka í London eft-
ir hrunið.
Páll getur ekki svarað
Páll Benediktsson, upplýsingafull-
trúi skilanefndar gamla Landsbank-
ans, segist aðspurður ekki geta rætt
um laun Baldvins þar sem hann viti
ekki hvað hann fær í kaup. Fyrir-
spurn um málið hefur þó verið lögð
fram við Pál og má reikna með að
hann geri sitt besta til að fá svör við
henni svo almenningur fái upplýs-
ingar um kjör Baldvins.
Var einn hæstlaunaði banka-
maðurinn
Þó að Baldvin fái greidd góð laun í
dag hafa laun hans lækkað umtals-
vert frá því fyrir hrun. Þá var hann
með rúmar 280 milljónir króna á ári,
eða um 23,4 milljónir króna á mán-
uði, á árinu 2007, samkvæmt tekju-
blaði Frjálsrar verslunar.
Til samanburðar má geta þess
að Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
Kaupþings, var með 62 milljónir á
mánuði árið 2007, Bjarni Ármanns-
son, fyrrverandi forstjóri Glitnis, var
með 43 milljónir og Lárus Welding,
sem tók við af Bjarna hjá Glitni, var
með 26,5 milljónir á mánuði.
Sömuleiðis skal þess getið að
Baldvin gerir kröfu í þrotabú Lands-
bankans sem svarar nærri 46 millj-
ónum króna. Þetta kemur fram í
kröfuskrá gamla Landsbankans sem
birt var í nóvember. Ekki hefur verið
tekin afstaða til kröfu Baldvins eftir
því sem DV kemst næst.
Engar Landsbankamerkingar
Annað yfirbragð er á skrifstofubygg-
ingunni á Queen Victoria Street þar
sem Baldvin vinnur í dag en á hús-
næðinu á 15 Botolph Street, sem
er um 2 kílómetra í burtu, þar sem
Landsbankinn var áður til húsa.
Skrifstofurnar á Botolph Street
voru í margfalt stærri og tilkomum-
eiri byggingu, alls 13 hæða, og var
húsið kyrfilega merkt Landsbankan-
um eins og einhverjir muna sem sáu
myndskeið af húsinu í sjónvarpinu
fyrir hrunið.
Nýja húsnæðið er mjög frábrugð-
ið því gamla og ekki nærri því eins til-
komumikið. Þar er Landsbankinn til
húsa á fjórðu hæð. Ekkert við bygg-
inguna að utanverðu bendir til að
gamli Landsbankinn sé þar til húsa
og að þar vinni 75 starfsmenn á hans
vegum við að gera um 1.000 millj-
arða eignir bankans upp.
Að sumu leyti má segja að þessi
munur á höfuðstöðvum Landsbank-
ans fyrir hrun og eftir sé lýsandi fyr-
ir íslenska hrunið. Fyrir hrun flaug
Landsbankinn hátt í Bretlandi. Ic-
esave-reikningarnir nutu mik-
illa vinsælda og bankinn var stolt-
ur af þessari vöru sem skilað hafði
svo mörgum milljörðum af sparifé
breskra ríkisborgara inn í bankann –
leigubílar merktir Icesave keyrðu um
götur Lundúna til að kynna Icesave
og Sigurjón Árnason kallaði reikn-
ingana „snilld“.
Eftir hrun hefur þetta breyst til
muna. Landsbankinn hefur fært
starfsemi sína í minna áberandi hús-
næði sem ekki er merkt bankanum,
starfsmenn eru vitanlega miklu færri
og arfleifð og orðspor bankans er
annað og verra. Því er kannski ekki
nema von að starfsemin við upp-
gjör bankans sé ekki auglýst framan
á húsnæðinu þar sem uppgjörið fer
fram.
Hundruð milljóna fyrir og eftir
hrun
Reyndar er einnig nokkuð kald-
hæðnislegt að sömu mennirnir og
áttu þátt í að koma Landsbankan-
um á hliðina fyrir hrun, og þáðu tugi
og jafnvel hundruð milljóna króna í
árslaun fyrir störf sín fyrir bankann,
skuli enn starfa fyrir bankann eft-
ir hrun og þiggja fyrir það ofurlaun.
Þetta á til að mynda við um Baldvin
Valtýsson, því þótt hann hafi tekið á
sig umtalsverða launaskerðingu er
hann enn þá með mjög svo háar tekj-
ur.
Baldvin var ofurlaunamaður í
hinum einkarekna Landsbanka fyr-
ir hrun og er enn ofurlaunamaður í
hinum ríkisrekna Landsbanka eft-
ir hrun. Laun þessi fékk hann með-
al annars fyrir að hafa tekið þátt í að
selja Bretum Icesave-reikningana
fyrir hrunið og nú hlýtur hann þau
fyrir að taka þátt í að hreinsa upp eft-
ir starfsemi Landsbankans í London
sem hann sjálfur stýrði.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Núverandi yfirmaður Landsbankans í London, Baldvin Valtýs-
son, stýrði bankanum einnig fyrir hrun. Hann var einn launa-
hæsti bankamaður landsins meðan Landsbankinn bauð upp á
Icesave. Blaðamaður DV skrifar frá Lundúnum.
Tók við af Welding Baldvin
tók við útibússtjórastöðunni
í Landsbankanum í London
af Lárusi Welding í lok
apríl 2007. Þeir voru tveir af
launahæstu bankamönnum
landsins það árið.
Veröld sem var Höfuðstöðvar Landsbankans í London voru fyrir hrun í Beaufort-
húsinu við Botolph-götu í City-hverfinu. Það er reisulegt 13 hæða hús sem var merkt
bankanum.