Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 FRÉTTIR
Verktakar, bankar og stórfyrirtæki, sem stefndu að landvinningum á sviði orkuvinnslu, voru rausnarleg við fram-
bjóðendur sem tóku þátt í prófkjörum og kosningabaráttu fyrir borgarstjórnarkosningarnar í góðærinu 2006. Gísli
Marteinn Baldursson, Sjálfstæðisflokki, og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Samfylkingunni, öfluðu mestra styrkja.
KEYPTU SÉR VELVILD
BORGARFULLTRÚA
Gísli Marteinn er með
meira en helming allra
framlaganna til fram-
bjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins sem tíunduð
eru, eða 56 prósent.
Í íslenskum lögum er sett þak á
hversu háar fjárhæðir einstaklingar
og fyrirtæki mega gefa stjórnmála-
flokkum eða einstökum frambjóð-
endum. Ástæðurnar eru augljósar
enda talið sjálfgefið að ætlast sé til
endurgjalds af þiggjendum gjafa eða
peningafjárhæða. Hert lög um fjár-
hæðir og upplýsingaskyldu opinbera
þann sannleika að gefendur hneigj-
ast til þess að kaupa sér áhrif sem
talist geta ólögmæt og ósamþýðan-
leg hugmyndum um lýðræðislegar
ákvarðanir og stöðu almannavalds.
Þau skaffa mest
Gísli Marteinn Baldursson hefur al-
gera sérstöðu meðal þeirra fram-
bjóðenda Sjálfstæðisflokksins sem
þáðu fé í kosningasjóði fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar árið 2006.
Taka ber fram að gögn ríkisendur-
skoðunar, sem birt voru um áramót-
in, eru ekki tæmandi um framlög til
einstakra frambjóðenda árið 2006 í
Reykjavík.
Gísli Marteinn og stuðningsmenn
hans öfluðu um 10,5 milljóna króna,
þar af liðlega 8 milljóna króna frá fyr-
irtækjum sem ekki eru nefnd í gögn-
um Ríkisendurskoðunar. Gísli Mart-
einn er með meira en helming allra
framlaganna til frambjóðenda Sjálf-
stæðisflokksins sem tíunduð eru,
eða 56 prósent.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir sker
sig úr í hópi þeirra frambjóðenda
Samfylkingarinnar sem Ríkisend-
urskoðun tilgreinir í gögnum sín-
um. Hún safnaði liðlega 8 milljónum
króna fyrir prófkjör og kosningabar-
áttu sína. Það er meira en saman-
lögð upphæð sú sem hinir frambjóð-
endurnir fengu í kosningasjóði sína.
Samanlagt fengu þeir 6,5 milljónir
króna í sjóði sína. Þannig var Stein-
unn Valdís ein með 55 prósent fram-
laganna sem gengu til frambjóðend-
anna sex sem tilgreindir eru. Þar
af komu 3,5 milljónir króna í sjóði
Steinunnar Valdísar frá Landsbank-
anum, Baugi og FL Group.
Dagur B. Eggertsson tilgreinir 500
þúsund króna framlag frá fjórum fyr-
irtækjum í sína sjóði; Actavis, Blika-
nesi, Landsbankanum og Nýsi.
Oddný Sturludóttir þáði 750 þús-
und krónur frá Baugi í sína kosn-
ingabaráttu. Stærstu framlög til Dags
B. Eggertssonar komu frá Actavis,
Blikanesi, Nýsi og Landsbankanum,
500 þúsund krónur frá hverjum og
einum. Fram kemur í gögnum ríkis-
endurskoðanda að Gauti B. Eggerts-
son lagði 500 þúsund krónur í kosn-
ingasjóð Dags bróður síns.
Að kaupa sér velvild
Aðeins einn frambjóðandi Fram-
sóknarflokksins er nefndur til sög-
unnar í tengslum við framboð fyr-
ir borgarstjórnarkosningarnar fyrir
fjórum árum. Sá er Óskar Bergsson
sem á endanum varð eini borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins eftir að
Björn Ingi Hrafnsson og Anna Krist-
insdóttir gengu úr skaftinu.
Hann situr nú í meirihluta með
Sjálfstæðisflokknum en var velt úr
sessi af Einari Skúlasyni fyrr í vetur
sem skipar efsta sæti framboðslist-
ans í borgarstjórnarkosningunum í
vor.
Þrálátur orðrómur var um fram-
lög Eyktar til Óskars Bergssonar sem
er í nánum tengslum við verktaka-
og byggingariðnaðinn. Hann upp-
lýsir nú að hann hafi fengið alls eina
milljón króna frá Eykt í kosningabar-
áttunni 2006 sem er upp undir helm-
ingur þess fjár sem hann hafði úr að
moða í baráttunni það árið.
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti
Framsóknarflokksins, sagði af sér
sem borgarfulltrúi eftir að hann sleit
meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn vegna REI-málsins. Hann
myndaði síðar svonefndan 100 daga
meirihluta með Samfylkingu, VG
og Margréti Sverrisdóttur frá Frjáls-
lynda flokknum.
Engar upplýsingar er að hafa um
Björn Inga, en heimildir eru fyrir því
að hann hafi þegið milljónir króna í
sjóði sína, einkum frá félögum í eigu
Pálma Haraldssonar.
Í hópi styrktaraðila einstakra eru
verktakar og hönnuðir áberandi
sem og fyrirtæki sem hugðust hasla
sér völl á orkusviðinu. Má þar nefna
Eykt, Hönnun og Nýsi.
Þá má nefna að Gauti B. Eggerts-
son, bróðir Dags, lagði honum til
hálfa milljón króna í kosningasjóð
árið 2006.
Athyglisvert er að fyrirtæki virð-
ast frekar vilja nafnleynd með fram-
lögum til frambjóðenda Sjálfstæð-
isflokksins en til frambjóðenda
annarra flokka. Þannig réttu sjö fyr-
irtæki Gísla Marteini Baldurssyni 5,5
milljónir króna án þess að segja til
sín. Gísli Marteinn er jafnframt sá er
mestum peningum safnaði árið 2006
í hópi þeirra sem nefndir eru í grein-
argerð Ríkisendurskoðunar.
Gæta á aðhalds nú
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyr-
ir borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík verður haldið 23. janúar
næstkomandi. Aðeins 18 tilkynntu
þátttöku sem er sex færri en árið
2006. Athyglisvert er að þetta er svip-
aður fjöldi og hefur gefið kost á sér
fyrir Sjálfstæðisflokkinn víða í ná-
grannasveitarfélögum Reykjavíkur.
Ætlast er til þess að þátttakendur
stilli kostnaði í hóf og fari ekki yfir 1,5
milljónir króna sem er aðeins 15 pró-
sent af því sem safnaðist í sjóði Gísla
Marteins fyrir fjórum árum.
Prófkjör Samfylkingarinnar í
Reykjavík verður haldið 30. janúar
og rennur frestur til að tilkynna þátt-
töku út þann 16. janúar, næstkom-
andi laugardag.
Framsóknarmenn hafa þegar val-
ið frambjóðendur á lista í Reykjavík
og vermir Einar Skúlason efsta sætið.
Félagsmenn VG í Reykjavík velja
sjálfir á sinn lista en núverandi borg-
arfulltrúar flokksins gefa kost á sér
áfram.
Alls eigin
framl.
einstaklingar fyrirtæki
Gísli Marteinn Baldursson 10,4 m. 0 2,3 m. 8,1 m.
Hanna Birna Kristjánsdóttir 3,9 m. 0 0,5 m. 3,4 m.
Jóhann Páll Símonarson 0,5 m. 0 0 0,5 m.
Jórunn Frímannsdóttir 4,2 m. 2,2 m. 0,74 m. 1,3 m.
Marta Guðjónsdóttir 0,38 m. 0 0,14 0,25 m.
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Einstakir frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
FRAMLÖG FRÁ FYRIRTÆKJUM KOMA EKKI FRAM NEMA 0,5 MILLJÓNA KRÓNA FRAMLAG TIL JÓHANNS SÍMONAR FRÁ EIMSKIP
HF. SÖMULEIÐIS ÞÁÐI HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR 0,5 MILLJÓNIR FRÁ LANDSBANKANUM. ÖNNUR FYRIRTÆKI ÓSKA
NAFNLEYNDAR. FJÖGUR FYRIRTÆKI VEITTU GÍSLA MARTEINI BALDURSSYNI EINA MILLJÓN KRÓNA HVERT EÐA MEIRA Í
KOSNINGASJÓÐ HANS. ÞAU FYRIRTÆKI ÓSKA ÖLL NAFNLEYNDAR.
Alls eigin
framl.
einstaklingar fyrirtæki
Björk Vilhelmsdóttir 0,85 m. 0 0,15 m. 0,7 m.
Dagur B. Eggertsson 5,6 m. 1,3 m. 1,3 m. 3,0 m.
Kjartan Valgarðsson 1,4 m. 0 0 1,4 m.
Oddný Sturludóttir 1,9 m. 0,2 m. 0,5 m. 1,2 m.
Sigrún Erla Smáradóttir 1,1 m. 0,8 m. 0 0,2 m.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir 8,1 m. 0 0 8,1 m.
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Frambjóðendur Samfylking-
arinnar í Reykjavík
n Gísli Marteinn Baldursson – 10.4 millj.
n Steinunn Valdís Óskarsdóttir – 8,1 millj.
n Dagur B. Eggertsson – 5,6 millj.
n Jórunn Frímannsdóttir – 4,2 millj.
n Hanna Birna Kristjánsdóttir – 3,9 millj.
Hverjir fá mest?
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Skaffarinn Gísli Marteinn
Baldursson og stuðningsmenn hans
söfnuðu 10,4 milljónum í kosn-
ingasjóð hans árið 2006. Stærstu
styrktaraðilarnir eru á huldu.
Stórir styrkir Steinunn Valdís Óskars-
dóttir og stuðningsmenn hennar öfluðu
samtals 3,5 milljóna króna frá Baugi,
Landsbankanum og FL Group árið 2006.
Borgarstjórinn Hanna Birna var ekki
í hópi þeirra stórtækustu en þáði hálfa
milljón króna frá Landsbankanum.
„Ber er hver að baki nema sér bróður eigi“
Dagur B. Eggertsson fékk glaðning frá bróður
sínum, Gauta B. Eggertssyni, árið 2006 eða 500
þúsund krónur í kosningasjóð sinn.