Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 15
13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 15 raka og kemur í veg fyrir mygluskemmdir. 84. POTTLOKIÐ LAGFÆRT Ef handfang eða hnúður af pottloki losnar eða dettur af má nota korktappa í staðinn, með einni skrúfu. Hann leiðir ekki hita. 85. VERKJATÖFLUR FYRIR BLÓMIN Bætið tveimur magnýltöflum út í vatnið í vasanum ef lengja á líftíma afskorinna blóma. 86. FJÖLNOTA ÞVOTTAKLEMMUR Þvottaklemmur má nota til margra hluta. Setjið tréþvottaklemmu á sleifarskaft þegar verið er að elda. Þá rennur sleifin ekki ofan í. 87. OLÍA SAMAN VIÐ SMJÖRIÐ Áður en grænmeti eða kjöt er snöggsteikt í smjöri er gott að bæta dálítilli jurta- eða ólífuolíu á pönnuna. Við það brennur smjörið síður og maturinn fær fallegri lit. 88. HREINAR MAT- REIÐSLUBÆKUR Hlífið matreiðslubókum við óhreinindum meðan á matseld stendur með því að smeygja þeim opnum í plastpoka. Bækurnar óhreinkast þá ekki þótt mik- ill subbuskapur kunni að fylgja matseldinni. 89. VIÐLOÐUNARFRÍ PANNA Sjóðið dálítið edik í nýrri pönnu. Það kemur í veg fyrir að matur festist við pönnuna í framtíðinni. 90. HITAÞOLIÐ GLAS Gott er að setja málmskeið í glas áður en heitum vökva er hellt í það. Hún dregur í sig hitann og kemur í veg fyrir að glasið springi. 91. BLÓMIN VÖKVA SIG SJÁLF Setjið svamp í fat með vatni í, ef heimilið er yfirgefið í eina til tvær vikur. Setjið svo blómapottinn ofan á svampinn. Göt eru yfirleitt neðan á blóma- pottum. Svampurinn sér blóminu fyrir raka, smátt og smátt. ÖNNUR HÚSRÁÐ 92. LYKILLINN HITAÐUR Hitið lykilinn (ekki lásinn) með eldspýtu eða kveikjara. Stingið lyklinum í lásinn og bíðið í tvær mínútur. Snúið þá lyklinum. Endurtakið ef þörf krefur en gætið þess að brenna ykkur ekki. 93. EDIK Á FLUGNABIT Sumir fá ofnæmisviðbrögð ef þeir eru bitnir eða stungnir af flugum. Edik á stungurnar getur gert gæfumuninn og losað fórnarlambið við ofnæmisviðbrögðin. 94. GAT Á VATNSKASSANUM Ef það er gat á vatnskassanum í bílnum er gott að setja egg út í. Það fyllir upp í gatið. 95. UMHVERFISVÆNAR STRÍPUR Ef þú ert skolhærður og vilt lýsa á þér hárið án þess að fara í aflitun á stofu er hér gott húsráð sem virkar þó betur á sumrin. Settu sítrónusafa í hárið og farðu út í sól. Þá lýsist hárið fljótt og vel. Þú sparar sjö til átta þúsund krónur. 96. TÚPUR TÆMDAR Til að ná öllu úr til dæmis tannkremstúpum er gott að þrýsta innihaldinu upp í stútinn með kökukefli. Hafið tappann á túpunni á meðan svo ekki fari illa. 97. LITUN BLÓMA Breyta má lit afskorinna blóma með því að setja ögn af matarlit út í volgt vatn og láta stiklana í vatnið. Notið ekki of mikinn lit og aðeins á tegundir sem bera ljós blóm. 98. FASTUR RENNILÁS Rennið með blýanti yfir rennilás sem hefur fest eða er stífur. Grafítið í blýantinum losar um og það verður auðveldara að renna. 99. ÍSMOLAR SEM ENDAST Ísmolar bráðna býsna fljótt og þá safnast vatn fyrir á botni skálarinnar þannig að klakarnir bráðna enn hraðar. Leggðu litla skál á hvolf í ísskálina. Vatnið safnast fyrir undir henni, en ísmolarnir liggja á þurru og duga mun lengur fyrir bragðið. 100. SNÖGGKÆLD- UR BJÓR Setjið bjórflösk- ur eða dósir í stórt fat. Setjið vel af vatni í fatið, þann klaka sem þið eigið í frystinum og dágóða slettu af salti. Hrærið kröftuglega og bjórinn verður ískaldur á örfáum sekúndum, vegna efnahvarfa þegar saltið blandast við klakavatnið. 101. HLJÓÐLAUS LEKI Ef dropahljóð ergir heimilisfólkið má grípa til þeirrar skammtímalausnar að binda snærisspotta um túðuna (fremst á krananum). Þá lekur vatnið hljóðlaust eftir snærinu og ofan í vaskinn í stað þess að detta í dropum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.