Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 FRÉTTIR
Allar skólastofur og fyrirlestrarsalir í
nýrri byggingu Háskólans í Reykja-
vík í Vatnsmýri heita eftir stjörnum
í sólkerfinu. Þar er að finna stofur
á borð við Spíka 3, Síríus 5 og Reg-
úlus 1. Álmurnar í skólanum heita
svo eftir Venus og Mars, á meðan
aðalgangur skólans kallst Jörðin. Í
miðju skólans er hringlaga bygging
sem heitir Sólin. Það mun þó ekki
tengjast því að nýr rektor skólans,
Ari Kristinn Jónsson, skuli vera einn
örfárra Íslendinga sem starfað hefur
hjá Nasa, geimferðastofnun Banda-
ríkjanna.
Leigan að lágmarki 60 milljónir
á mánuði
Nýja byggingin er engin smásmíði,
23.000 fermetrar fyrir 3.100 nem-
endur skólans hafa verið teknir í
notkun. Í haust bætast svo 7.000
fermetar við og þá telst byggingin
fullkláruð. Kostnaðurinn við bygg-
inguna nemur um 12 milljörðum
króna, en það er eignarhaldsfé-
lagið Fasteign sem á bygginguna.
Það félag á fasteignir um allt land.
Meðal eigna félagsins eru höfuð-
stöðvar Íslandsbanka á Kirkju-
sandi og knattspyrnuhúsið í Sand-
gerði og fer Árni Þór Sigfússon,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fyrir
stjórn félagsins.
HR leigir bygginguna af Fast-
eign til 50 ára, leiguverðið liggur
ekki endanlega fyrir, en samkvæmt
upplýsingum verður það meira
en 2 þúsund krónur á fermetra á
mánuði, sem gerir um 60 milljón-
ir króna að lágmarki á mánuði, eða
um 720 milljónir króna í leigu á ári.
Upphaflega átti byggingin að vera
talsvert dýrari og var meðal annars
búið að steypa kjallara fyrir tvær álm-
ur í viðbót. Þegar kreppan skall á var
þeim áætlunum slegið á frest í ótak-
markaðan tíma og mokað yfir kjallar-
ana. Þrátt fyrir þennan kostnað ætlar
HR ekki að hækka skólagjöld um-
fram vísitöluhækkun.
Keyptu íslenskt
Þrátt fyrir að efnahagsástandið hafi
dregið úr frakvæmdunum í Vatns-
mýrinni er aðbúnaður nemenda
allur hinn glæsilegasti. Kostnaður
við flutningana vegna kaupa á tækj-
um, húsgögnum og fleiru nemur um
fimm hundruð milljónum króna.
Inni í því eru öll tæki og búnaður til
kennslu. Allar innréttingar og skrif-
stofuhúsgögn sem keypt voru eru ís-
lensk famleiðsla.
Ákveðið var að spara frekar í að-
stöðu fyrir kennara en nemendur
og til að mynda er í kennslustofum
mjög háþróuð sjálfstýring á lýsingu
og hita, sem áætlað er að spari pen-
inga til lengri tíma. Tíu mínútum eftir
að nemendur fara út slokkna öll ljós
sjálfkrafa, en þau eru stillt með tilliti
til birtu á hverjum árstíma. Gluggar í
byggingunni lokast sjálfkrafa til þess
að sóa hvorki rafmagni né hita og er
áætlað að þannig geti sparast pen-
ingar til langtíma litið.
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Háskólinn í Reykjavík borgar að lágmarki 60 milljónir króna á mánuði í leigu á nýju
húsnæði í Vatnsmýrinni. Allar byggingar og skólastofur draga nöfn sín af sólkerfinu.
Kostnaður við flutninginn nemur um 500 milljónum króna, en ákveðið var að moka
yfir kjallara í tveimur álmum sem átti að reisa.
60 MILLJÓNIR Í
MÁNAÐARLEIGU
Gangarnir Skólinn er einfaldur en
flottur. Vel sést á milli hæða, þannig að
mikið líf er á göngum skólans.
MYNDIR/ BRAGI ÞÓR JÓSEPSSON
Góð kennsluaðstaða Þrátt fyrir að kreppan
hefði sett strik í reikninginn var ákveðið að
leggja áherslu á að gera aðbúnað nemenda
sem bestan. Í hverri kennslustofu er besti
tæknibúnaður sem völ er á við kennslu.
Bretar borga
ekki krónu
Breska fjármálaráðuneytið hefur
tilkynnt að breskir skattgreið-
endur þurfi ekkert að greiða
vegna falls Icesave í Bretlandi.
Sá hluti, 500 milljónir punda,
sem Íslendingar þurfa ekki að
greiða, fæst allur úr þrotabúi
Landsbankans, eða 100 milljarð-
ar króna.
Þetta kemur fram á fjármála-
vefnum citywire.co.uk og er
haft eftir talsmanni breska fjár-
málaráðuneytisins. Samkvæmt
evrópskum innistæðutrygging-
arlögum eru tæplega 3,8 millj-
ónir króna tryggðar á hverjum
bankareikningi, eða 21 þúsund
evrur. Er það sú upphæð á Ice-
save-reikningunum sem Íslend-
ingar þurfa að ábyrgjast.
Eyðsluglaðir
Íslendingar
Sala á raftækjum í desember
jókst töluvert fyrir jólin mið-
að við árið 2008. Þannig jókst
salan um 15,3 prósent á föstu
verðlagi frá sama mánuði í
fyrra. Þetta kemur fram í nýj-
um tölum frá Rannsóknasetri
verslunarinnar. Þar kemur
fram að velta í dagvöruversl-
un í desmber hafi aukist um
1,7 prósent á föstu verðlagi
miðað við sama mánuð árið
áður og jókst um 9,6 prósent
á breytilegu verðlagi. Var
þetta þrátt fyrir töluverðar
verðhækkanir á síðasta ári.
Dauði í flösku
„Ég átti ekki von á dauða
mínum við að versla þarna
MMS, þaðan af síður átti ég
von á því að reyna að drepa
mömmu mína með þessu,“
segir kona sem hafði sam-
band við DV í kjölfar frétta af
kraftaverkalausninni MMS
(Miracle Mineral Solution).
Eitrunardeild Landspítalans
varaði við lausninni þar sem
hún getur valdið alvarlegum
veikindum eða dauða.
„Mér var bent á að taka
þetta þar sem ég var allt-
af þreytt. Ég tók þetta inn í
nokkrar vikur en hætti því
sem betur fer fljótlega,“ segir
konan. Í tilkynningu frá Eitr-
unarmiðstöð Landspítalans
kom fram að lausnin væri
28 prósent natríum klórít.
Það er eitur sem getur valdið
skemmdum á rauðum blóð-
kornum og nýrnabilun.
Hærri skattar
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir að taka þurfi
skattkerfið til grundvallarendur-
skoðunar og það þurfi að laga að
núverandi efnahagsveruleika.
Í hádegisfréttum RÚV var
haft eftir Steingrími að ráðist
yrði í endurskoðun á kerfinu á
næstu mánuðum og þar yrði
meðal annars tekið á fjármagns-
flutningum í skattaskjól. Eins og
flestum er kunnugt hafa skattar
verið hækkaðir að undanförnu
og breytingar gerðar á skattkerf-
inu. Sagðist Steingrímur geta
sagt eins og annar maður sagði á
öðrum stað á öðrum tíma: „You
ain‘t seen nothing yet.“