Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 30
„Venjulegur hiti á þessum árstíma er í kringum 20 til 25 gráður hér í Flórída og þó að það komi stundum einn eða tveir kaldir dagar á þessum árstíma, þar sem hitastigið fer nálægt núllinu, þá muna elstu menn hér ekki eftir 14 daga kuldakasti eins og er núna. Hitinn fór niður í mínus 3,3 á Cels- íus á mánudag sem er kuldamet sem hafði ekki verið slegið í 28 ár,“ segir Ívar Guðmundsson, útvarpsmaður- inn vinsæli, en hann ætlaði að slaka á í sólinni, ásamt stórfjöskyldu sinni, í Orlando en, eins og víðast annars staðar, hefur verið mikið kuldakast vestan hafs og sólin verið meira á bak við ský eða snjókomu. „Ég er hérna að slaka á og hlaða batteríin fyrir fjörið heima næstu mánuði. Við Arnar Grant ætlum að taka árið 2010 með trompi, enda hafa landsmenn tekið mjög vel á móti heilsuvörunum sem við erum að framleiða með Vífilfelli og Freyju,“ segir Ívar hress og kátur þrátt fyr- ir sólarleysið. „Ég var nú fljótur að finna mér líkamsrækt og hef náð að æfa hérna annan hvern dag síðan ég kom út þann 1. jan. Maður verður að halda forminu í lagi,“ segir hann og hlær. Ívar og Arnar Grant, viðskipta- félagi hans, hafa heldur betur hitt í mark hjá þjóðinni með vörum sín- um Hámark. Þeir hafa vakið verð- skuldaða athygli fyrir auglýsingar sínar sem þykja gríðarlega fyndnar og skemmtilegar. Félagarn- ir eru búnir að bæta prót- ínsúkkulaði við vörulínuna sína og eru nú á fullu að kynna það ásamt nýrri og glæsilegri heimasíðu. „Það er óhætt að segja að við höfum átt mjög annasam- an nóvember og desem- ber heima því við lékum í fjórum sjónvarpsaug- lýsingum á þeim tíma - bæði fyrir Hámarkið og nýja prótínsúkkulaðið. Svo voru myndatökur og fleira í kringum þetta batterí.“ benni@dv.is Sigurjón Kjartansson upplýsti það í Tvíhöfða að hann hefði ekki enn séð Bjarnfreðarson þar sem Jón Gnarr fer með eitt af aðal- hlutverkunum. „Ég hef hins vegar fengið mikið kredit fyrir mynd- ina,“ sagði Sigurjón, glaðbeittur í þætti þeirra félaga. Bjarnfreð- arson hefur farið mikla sigurför um landið og er ein vinsælasta íslenska mynd frá upphafi – stefnir hraðbyri að því að ná meti Mýrinnar sem er sú vinsælasta frá upphafi. Samt sem áður hefur Sigurjón ekki enn séð han, þrátt fyrir að hafa væntanlega verið boðið á frumsýninguna. Það er sannkölluð barnasprengja á leiðinni meðal starfskvenna Rík- isútvarpsins en fjórar þeirra eiga von á barni á svipuðum tíma. Sjónvarpsstjörnurnar Ragnhildur Steinunn og Eva María Jónsdóttir eiga báðar von á barni en þær stýra saman hinum sívinsæla sjónvarps- lið Söngvakeppni Sjónvarpsins sem hófst að nýju á laugardaginn. Eva María tilkynnti sjálf um óléttuna á Facebook-síðu sinn og sagði þar: „14 vikur liðnar – 26 vik- ur eftir. Líðan eftir atvikum góð.“ Eva María skildi fyrir nokkru við leikstjórann Óskar Jónasson eft- ir margra ára hjónaband en þau eiga tvö börn saman. Eva fann hins vegar ástina að nýju í faðmi hjarta- læknisins Sigurpáls Scheving eins og Eva greindi einnig frá á Face- book-síðu sinni. Ragnhildur Stein- unn er kominn aðeins lengra á leið en hún á von á barni með kær- asta sínum til margra ára, fótbolta- stjörnunni Hauki Inga Guðnasyni. Þá eiga þulurnar Katrín Brynja Hermannsdóttir og Anna Rún Frímannsdótt- ir einnig von á barni um svipað leyti og dagskrár- gerðarkonurnar frægu. Katrín er sett fyrst af þeim fjórum, svo kemur Anna Rún, Ragnhildur og að lokum Eva María. EKKI ENN SÉÐ BJARNFREÐ- ARSON ÍVAR GUÐMUNDS: Einar Örn Jónsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og núverandi leikmaður Hauka, hefur verið ráðinn á íþróttadeild Ríkissjónvarpsins. Einar hefur áður starfað á íþróttadeild RÚV en það gerði hann samhliða handboltanum á sínum tíma. Einar er 34 ára og á að baki far- sælan handknattleiksferil, sem er þó ekki enn lokið. Hann er uppalinn hjá Val en hefur þess utan leikið með Haukum ásamt því að vera í atvinnumennsku í Þýskalandi og á Spáni. Hann er ríkjandi Íslandsmeistari með Haukum. Þá á hann að baki 121 landsleik en hann var hluti af liðinu sem náði fjórða sætinu á Evrópumótinu árið 2004. Einar hefur ekki látið blaða- mennskuna alveg vera því í vetur birtist eftir hann viðtal í Stúdentablaðinu við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor í stjórn- málafræði. EINAR Á RÚV 30 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 FÓLKIÐ RAGNHILDUR STEINUNN, EVA MARÍA OG ÞULURNAR KATRÍN BRYNJA OG ANNA RÚN ÓLÉTTAR: BARNASPRENGJA Á RÚV Eintóm hamingja Sjónvarpsdrottn-ingarnar eiga báðar von á sér. Þungaðar þulur Þær Katrín Brynja og Anna Rún eiga einnig von á barni. KULDAMET Í SÓLAR- LANDAFERÐ Útvarpsmaðurinn vinsæli Ívar Guðmundsson hleður nú batteríin í Orlando, þar sem mikill kuldi er. Venjulega er þar 20–25°C hiti en nú fer hitastigið niður fyrir frostmark. „Hitinn fór niður í mínus 3,3 á Celsíus á mánudag sem sló kuldamet sem hafði ekki verið slegið í 28 ár.“ Flottur Ívar Guð- munds æfir annan hvern dag í fríinu í Orlando. Mynd: Sig- tryggur Ari Jóhannsson Glæsihjón Ívar og Anna Lilja, eiginkona hans, á árshátíð 365. Mynd: Eggert Jóhannesson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.