Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 Viltu kæla bjórinn á mettíma, gera sokkana hvítari eða losna við reykingalykt? Saltaðir þú matinn of mikið eða er sósan of þunn? Er kássan of feit eða er alltaf táfýla af uppáhaldsskónum þínum? DV hefur tekið saman húsráð sem leysa ótal vandamál og hindranir sem verða á vegi fólks á heimilinu. Rétt er þó að hvetja lesendur til að kynna sér ráðin betur, til dæmis á netinu, ef mikið liggur við. AÐ HLUTA TIL BYGGT Á HEIMILISHANDBÓKINNI EFTIR CASSÖNDRU KENT ÞRIF 1. STÁLULL Geymið stálull í sápuvatni svo hún ryðgi ekki. Einnig má vefja hana inn í álpappír. Kljúfið púðana í tvennt og þannig endist pakkinn lengur. Það sparar pening. 2. BURT MEÐ RISPUR Rispur á viðargólfum (parketti) geta verið hvimleiðar. Nuddið rispuna með fínni stálull en gætið þess að fara ekki langt út fyrir rispuna. Notið hanska. Blandið örlitlu af brúnum skóáburði saman við vaxbón og berið á svæðið. Nuddið svo vel svo bletturinn verði síður áberandi. 3. HREINSIÐ GÓLFTEPPI Hægt er að gefa teppi ferskt útlit á ódýran og vistvænan hátt með því að strá á það vænum skammti af matarsóda. Látið liggja í korter og ryksugið svo vel. Teppið verður hreint, öll meindýr eru á bak og burt og lyktin af teppinu verður betri. 4. FÖR Á VEGGJUM Flest för nást af máluðum veggjum en gætið þess að skemma ekki málninguna. Notið strokleður til að ná af fingraförum og blýantsstrikum en á matarbletti má nota óblandað hreinsi- efni. Þar sem för eru eftir húsgögn skal fyrst nota strokleður en svo hreingerningarlög. 5. HEIMATILBÚINN RÚÐUVÖKVI Blandið saman glæru ediki og vatni og setjið í úðabrúsa. Edik klýfur fitu og nær fram góðum gljáa. Strjúkið yfir með krumpuðum dagblöðum. Prentsvertan eykur gljáann. 6. HREINSUN LJÓSA Slökkvið ljós áður en per- urnar eru þvegnar. Notið klút til að taka utan um peruna ef þið getið ekki beðið lengi. Sniðugt er að setja nokkra vanilludropa í klútinn þegar þið strjúkið yfir hana. Þegar kveikt er á perunni eftir þrifin leggur ljúfan ilm um herbergið. 7. DÖKKIR POTTAR Ef álpottar eru orðnir dökkir að innan má lýsa þá með því að sjóða í þeim sterka ediksblöndu eða sykur- ríkan matvælum á borð við lauk, sítrónusafa, rabarbara eða eplahýði. Látið álpotta ekki liggja í vatni og geymið ekki í þeim matarleifar. 8. RAUÐVÍNSBLETTUR Hellið dálitlu hvítvíni strax yfir rauðvín sem hellist niður. Þerrið vel og vætið síðan með hreinu, volgu vatni. Þerrið aftur. 9. TILTEKT Í FLJÓTHEITUM Ef gesti ber að garði með skömmum fyrirvara eru oft góð ráð dýr. Látið nægja að þrífa anddyrið en fjarlægið áberandi drasl og fleygið visnuðum blómum. Lagið púða, stóla og teppi svo allt líti vel út. Úðið góðum ilmi um herbergin og hafið daufa lýsingu, til dæmis kerti. 10. ÓBOÐIÐ KERTAVAX Kertavax í dúkum eða fötum er hvimleitt. Takið vaxið með skeið áður en það harðnar. Setjið svo eldhúspappír á blettinn og strauið með volgu straujárni þar til vaxið fer inn í pappírinn. 11. HVÍTARI SOKKAR Hvítir sokkar verða skjannahvítir ef þeir eru soðnir með nokkrum sítrónusneiðum í vatni. Sítróna er náttúrulegt bleikiefni. Sápuduft fyrir uppþvottavélar gerir sokka hvíta – látið það með í næsta þvott. 12. ÞRÍFIÐ ÞVOTTAVÉLINA Gott er að hreinsa þvottavélina einstöku sinnum með því að láta hana vinna tóma á hæsta hita. Setjið glært edik í sápuhólfið; við það hreinsast sápuleifar sem kunna að hafa safnast upp. 13. EF FELLUR Á SILFRIÐ Hægt er að hreinsa silfur með því að setja álpappír í vítt fat, dreifa matarsóda yfir, leggja hnífapör- in ofan á og hella svo sjóðandi vatni yfir allt saman. 14. BLEKBLETTIR Gott er að nota nýmjólk eða tómat á blekbletti. Nuddið blettinn til dæmis með hálfum tómat. Skolið vel úr. Sítrónu má líka nota til að ná blekblett- um úr fatnaði. Pressið blettinn á eftir með bómullarklút. 15. SKÍTUGUR UPPÞVOTTA- BURSTI Ef uppþvottaburstinn er orðinn fitugur eða óhreinn er gott ráð að setja hann með í uppþvottavélina. Hann kemur út eins og nýr. Sama má gera við tappann úr eldshúsvaskinum. 16. SKÍTUG RÚMFÖT Skítug hvít rúmföt verða hvítari og hreinni ef þau liggja fyrst í vatni með uppþvotta- legi út í. 17. KÓK Í KLÓSETTIÐ Til að hreinsa klósettið að innan og ná föstum óhreinindum af skálinni má hella gömlu Coca-Cola í skálina og láta standa í nokkra tíma. Skálin verður glansandi fín á eftir. 18. MATT PARKETT Blandið smáræði af ediki saman við kalt vatn og skúrið. Parkettið verður glansandi fínt á eftir. 19. RYKFALLIN HLJÓÐ- FÆRI Ná má ryki úr gítar með því að setja hnefafylli af þurrum hrísgrjónum inn í kassann gegnum opið. Hristið varlega. Snúið gítarnum við og hellið grjónunum á dagblað. 20. ÓHREINN ÖRBYLGJUOFN Settu nokkrar sítrónusneiðar í vatnsskál og settu hana í örbylgjuofninn. Láttu hann ganga um það bil 10 mínútur. Þegar tíminn er liðinn þarftu rétt að strjúka yfir ofninn með rakri tusku. Óhreinindin nánast leka af og lyktin verður fersk. ÓÞEFUR 21. BURT MEÐ LYKTINA Til að eyða sterkri lykt af skurðarbrettinu eða kökukeflinu er tilvalið að nota sítrónu eða salt. Nuddið vel, skolið og þurrkið á eftir. Til að koma í veg fyrir myglu, til dæmis í brauðkassa, skal strjúka innan úr kassanum með klút sem vættur er í glæru ediki. 22. VOND LYKT Á BAÐINU Góð aðferð til að losna við vonda lykt úr baðher- bergi er að kveikja á eldspýtu. Loginn brennir ólyktargasið burt. Hafðu eldspýtur til taks ef þú ferð í heimsókn og óttast að þurfa að standa í stórræðum. 23. TÁFÝLUSKÓR Stráið vænum slurk af matarsóda inn í illa lyktandi skó. Látið standa yfir nótt og hristið matarsódann síðan úr skónum. 24. BÖKUNARILMUR Sjóðið saman púðursykur og kanilstangir á lægsta hita. Eldhúsið ilmar eins og þar hafi verið bakað allan daginn. Önnur leið til að fá góða lykt er að láta nokkra negulnagla krauma í vatni. 25. BÖRKURINN GEFUR LYKT Notið þurran börk af sítrusávexti (appelsínu, mandarínu, sítrónu eða límónu) til að fá góða lykt í herbergi. Gott ráð er líka að strá honum í skúffur þar sem föt eru geymd. Það gefur ferska lykt. 26. ÓBOÐIN BRUNALYKT Ef þú vilt ekki að gestirnir finni lyktina af viðbrenndu pakkasósunni, sem þú gleymdir á hellunni, skaltu setja nokkrar sítrónusneiðar í pott, ásamt vatni, og sjóða. Ef þú vilt losna fljótt og vel við hefðbundna steikingarlykt skaltu hafa litla skál með ediki við hliðina á eldavélinni á meðan þú steikir. Það dregur úr fitulykt í loftinu. 27. EDIK VIÐ HLAND- LYKT Notið blómaúðabrúsa til að úða ediklausn á hland- KÆL DU BJÓR Á METTÍ MA! GLANSANDI PARKETT! BURT MEÐ LYKTINA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.