Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 21
Hver er maðurinn? „Yesmine Olsson.“ Hvað drífur þig áfram? „Að fá að gera það sem manni finnst skemmti- legt að gera. Það er ekkert mál að vinna mikið ef það er skemmtilegt.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Mér finnst allur kryddaður og litríkur matur góður sem búinn er til frá grunni.“ Hvernig kom það til að þú varst tilnefnd fyrir bókina þína? „Það var kona sem hringdi í mig og bauð mér út á bókasýningu. Ég komst ekki vegna anna og hún bauðst til að kynna bókina fyrir mig. Ég treysti henni fyrir því og hún hefur greinilega kynnt hana fyrir rétta fólkinu því hún var allt í einu komin í þessa keppni. Forsvarsmenn keppninnar fengu upplýsingar um tengingu bókarinnar við Bollywood-sýninguna mína svo þeir buðu mér að taka þátt í opnun- aratriðinu og að elda í keppninni. Mér finnst það bara jákvætt.“ Ertu byrjuð að undirbúa þig? „Já, já. Þar sem bókin er svo tengd sýning- unni er ég nokkuð vel undirbúin. Ég tek með mér nokkra dansara út og svo er ég með matreiðslunámskeið næsta fimmtudag svo það er fínt tækifæri til að æfa sig.“ Hvað finnst þér skemmtilegast að elda? „Það er svo margt. Það sem er skemmtilegast við mína eldamennsku er að það er svo mikið að gerast og það geta svo margir eldað saman.“ Hvort ykkar er duglegra að elda á heimilinu, þú eða maðurinn þinn? „Ég elda nú mest en stundum tekur hann stjórnina og eldar eitthvað auðveldara en mitt. Hann er voðalega duglegur.“ Lumar þú á einhverju leyndarmáli úr eldhúsinu? „Öll indversku kryddin myndi ég segja. Þau eru ekki bara bragðgóð heldur hafa þau svo góð áhrif á heilsuna og það er það góða við þau. Áhrifin eru svo mikil.“ Geta Íslendingar gert ráð fyrir að sjá fleiri bækur frá þér? „Ég ætla að láta það vera um tíma. Það er svo mikið að gera að ég vil einbeita mér að því að fara með þessar bækur út.“ HEFUR ÞÚ SÉÐ ÍSLENSKU MYNDIRNAR SEM ERU Í BÍÓ NÚNA? „Nei, ég er hættur að fara í bíó.“ BRAGI ÁSGEIRSSON 80 ÁRA ELDRI BORGARI „Já ég sá Bjarnfreðarson. Hún var ágæt eftir hlé.“ SIGURLAUG GÍSLADÓTTIR 42 ÁRA NEMI „Nei, ekki neina af þeim.“ BIRGIR ÖRN TÓMASSON 28 ÁRA NEMI „Nei, þetta eru svo tilþrifalitlar myndir.“ ZONIA GUTTESEN 25 ÁRA DÓMSTÓLL GÖTUNNAR Indverska matreiðslubókin Framandi og freistandi, eftir YESMINE OLSSON, komst á dögunum í úrslit Gourmand World Cookbook verðlaunanna í flokknum besta asíska matreiðslubókin. HEFUR NÓG AÐ GERA „Ég sá Bjarnfreðarson, hún var mjög góð.“ JÓN RÍKHARÐSSON 44 ÁRA SJÓMAÐUR MAÐUR DAGSINS Stjórnarandstaðan tapaði stríðinu um Icesave. Eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafði synjað Icesave-lögunum staðfestingar flýtti stjórnarandstað- an sér að boða þjóðinni að auðvit- að stæðu Íslendingar við sínar skuld- bindingar. Ekki verður hægt að gera það á grundvelli laganna og fyrirvaranna frá síðastliðnu hausti eins og forset- inn reyndi að gefa til kynna, því ríkisá- byrgðin gildir einfaldlega ekki um þau lög. Fjármálaráðherrann hefur ekki undirritað neina heimild á grundvelli neinna laga um ríkisábyrgð. Í öðru lagi flýtti stjórnarandstað- an sér að boða þjóðinni, að um leið og hún væri samþykk því að standa við skuldbindingar sínar við Hol- lendinga og Breta yrði það að gerast á skilmálum stjórnarandstöðunn- ar og í samræmi við útfærslu sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálf- stæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsókn- arflokksins væru samþykkir. „Enga landráðasamninga undir oki gömlu nýlenduveldanna,“ segja þeir og berja sér á brjóst. Botnlausar mótsagnir Ef þeir eru á móti vaxtakjörunum í Icesave-samningnum gat það varla verið ástæða til að fresta endurreisn þjóðfélagsins og stofna til aukalegs kostnaðar með óvissu um Icesave- uppgjörið. Ekkert í Icesave-samn- ingnum segir að Íslendingar geti ekki greitt upp lán Breta og Hollendinga bjóðist önnur lán á lægri vöxtum þótt síðar verði. Enginn bannar Íslending- um heldur að greiða Icesave-lánin hraðar upp ef færi gefst. Að þessu leyti sýnir stjórnarandstaðan þjóð sinni villuljós og breiðir út sannlíki en ekki sannleika um málið. Í þriðja lagi hafa stjórnarandstæð- ingar snúið svo harkalega við blaðinu eftir að forsetinn skaut Icesave-mál- inu til þjóðarinnar, að þeir mega ekki til þess hugsa að ríkisstjórnin fari frá. Enginn hefur lýst vantrausti á ríkisstjórnina. Enginn hefur beðið hana að fara frá. Enda fer hún hófstillt að lögum og und- irbýr þjóðaratkvæðagreiðslu. Eins og vera ber. Það hefur hins vegar komið framsóknaríhald- inu í bobba. Þeir munu bera ábyrgð á því að Icesave-samn- ingurinn verður felldur í þjóð- aratkvæða- greiðslu. Þetta heldur vöku fyrir Bjarna og skyn- sömum framsókn- armönn- um, ekki síst eftir að þeir lýstu því yfir að þjóðin ætti að standa við skuldbindingar sínar. Í fjórða lagi breiða lögfræðingarnir með flokksskírteinin út boðskap sinn gegn Icesave í kastljósum þessa lands. Þeir búa til forsendur um kerfishrun íslensku bankanna og hlaða enda- lausum Moggagreinum ofan á slíkar staðleysur. Það gæti tekið mörg ár að telja umheiminn á að samþykkja ein- hverjar huglægar forsendur íslenskra lögfræðinga sem eiga sér enga fótfestu í innstæðuregluverki ESB. Munum, að allir bankar áttu fyrir innstæðum sparifjáreigenda og hafa þegar greitt þær, nema Landsbankinn. – Er það kallað kerfishrun? Hægt og bítandi sverfur að þegar sneiðist um lánamöguleika erlend- is til fjárfestinga, rekstrar fyrirtækja og neyslu, fjármögnun- ar ríkissjóðs og til að efla stöðu krónunnar. Halda verð- ur hæfileg- um snúningi á litla íslenska hagkerfinu ef ekki á að fara illa. Krónan gæti fallið enn og kaup- máttur rýrnað. Spjótin munu bein- ast að stjórnarandstöðunni þegar at- vinnuleysið eykst, rekstur fyrirtækja kemst í þrot og raddirnar innan heim- ilanna um úrræði og endurreisn verða háværari. Uppreisnarunglingurinn Það verður því skammgóður vermir og afar tvíbent fyrir stjórnarand- stöðuflokkana að reka harðan áróður gegn samþykkt Icesave-frumvarps- ins í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok febrúar eða byrjun mars. Ríkisstjórnin þarf ekkert að gera annað en að sjá til þess að þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin. Og situr svo áfram. Bretar og Hollendingar þurfa ekk- ert að gera. Ekki neitt! Þeir hafa öll spil á hendi. Þeir þurfa ekki einu sinni að gjaldfella lán og setja í innheimtu. Þeir þurfa ekkert að höfða mál. Bara bíða. Bíða eftir því að íslenska þjóðin átti sig á því að ballið er búið og komið að skuldadögum. Íslendingar eru eins og hálfstálpaðir unglingar sem rísa gegn valdi foreldra sinna. Þeir neita að hlýða. Þeir skella hurðum. Þeir fara helst gegn ráðleggingum og boðum þeirra. Ein- mitt vegna þess að þeir finna fyrir vald- inu. Umheimur- inn veit að um síð- ir kemur íslenski unglingurinn aftur skríðandi og biður um mat. Það er liður í þroskaferlinu. Þroskaferli Bjarna og Sigmundar. Þroskaferill Bjarna og Sigmundar KJALLARI MYNDIN 1 Skráður í útkall gegn vilja sínum Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, heldur fyrrverandi slökkviliðsmönnum á útkallslista þrátt fyrir að þeir vilji ekki vinna fyrir hann. Deilur hafa lengi staðið um hann. 2 Föngulega fyrirsætan reyndist bólugrafinn unglingur Þýskur karlmaður keypti á netinu nótt með föngulegri konu en hitti á bólugrafinn ungling. 3 Gamli Landsbankinn þögull sem gröfin Forsvarsmenn bankans svara ekki spurningum ríkissaksóknara um hvort þeir hafi tilkynnt að Jón Gerald Sullenberger hafi komið í bankann með erlend skuldabréf sem vöktu furðu. 4 Lögulegir leggir Blake Lively Gossip Girl-stjarnan Blake Lively prýðir forsíðu Esquire. Leggir hennar vekja mikla athygli. 5 Stóru liðin bíða eftir Joe Cole Manchester United, Liverpool og Manchester City fylgjast náið með launadeilum Joe Cole og Chelsea. Hann vill verulega launahækkun. 6 Steingrímur boðar skattabreyt- ingar: „You ain’t seen nothing yet“ Fjármálaráðherra segir að enn eigi eftir að breyta skattkerfinu. 7 Fyrrverandi landsliðsmaður ráðinn til RÚV Einar Örn Jónsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og núverandi leikmaður Hauka, hefur verið ráðinn á íþróttadeild Ríkissjónvarpsins. MEST LESIÐ á DV.is UMRÆÐA 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 21 JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar „Enginn hefur lýst vantrausti á rík- isstjórnina. Enginn hefur beðið hana að fara frá.“ Mótmælt vegna bílalána Nokkrir ökumenn söfnuðust saman fyrir utan fyrirtæki sem hafa veitt bílalán en þykja sýna litla samúð vegna breyttra aðstæðna eftir bankahrun og gengisfall og lágu á bílflautunni. Mótmælt hefur verið með þessum hætti nokkrum sinnum að undanförnu. MYND RAKEL ÓSK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.