Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 FRÉTTIR
Á þriðja tug áhangenda enska knatt-
spyrnuliðsins Liverpool greiddu
samtals í kringum tvær milljónir
króna fyrir að sjá knattspyrnuleik í
ensku úrvalsdeildinni sem ekki fór
fram. Þeir fóru því fýluferð til Eng-
lands um helgina þegar lið þeirra
átti að etja kappi við Lundúnalið-
ið Totten ham en sökum veðurs var
leiknum frestað.
Ferðin var farin á vegum Liver-
pool-klúbbsins á Íslandi í samstarfi
við Vita-ferðir. Leikurinn átti að fara
fram á heimavelli Liverpool-liðsins,
Anfield-leikvanginum, á sunnudag-
inn en þegar íslensku áhangendurn-
ir, sem allir eru meðlimir í stuðnings-
mannaklúbbi liðsins hér á landi, voru
í vélinni yfir Atlantshafinu á föstu-
daginn var sótt um að leiknum yrði
frestað. Þegar hópurinn lenti á enskri
grundu var búið að samþykkja frest-
un. Reikna má með því að tap hvers
og eins nemi nærri hundrað þús-
und krónum í það minnsta og enn er
óljóst hvort miðar á sjálfan leikinn fá-
ist endurgreiddir.
Ekki ferð til fjár
Kristján Atli Ragnarsson, annar
tveggja aðstandenda áhugamanna-
síðu Liverpool á Íslandi, segir hópinn
í sárum eftir fýluferðina. „Þetta eru
heitir stuðningsmenn og þeir hafa
kannski hlakkað til í langan tíma. Mér
skilst að það hafi verið uppselt í ferð-
ina þannig að vonbrigðin eru mikil. Í
gegnum síðuna okkar hefur óánægja
birst og menn eru skiljanlega pirraðir
því menn voru rétt lentir þegar frétt-
ist af því að leikurinn yrði ekki. Þá var
fátt eftir nema eyða gjaldeyrinum á
Englandi en það eru fáir spenntir fyr-
ir því þessa dagana. Það er því ljóst að
þetta var ekki ferð til fjár fyrir þennan
hóp,“ segir Kristján Atli.
„Þá hef ég heyrt einhvern pirring
hjá mönnum yfir því að miðar á völl-
inn fáist ekki endurgreiddir. Félagið
ætlar víst aðeins að endurgreiða fé-
lögum í stuðningsmannaklúbbi fé-
lagsins úti en mér skilst að það sé í
vinnslu. Hvernig sem fer er pakkinn
tapaður og eðlilegt að menn séu dá-
lítið fúlir. Sjálfur hef ég lært það að á
þessum tíma sé ekki ráðlegt að panta
sér á völlinn og er því dálítið hissa á
því að menn taki svona séns. Ef ég
ætti að skjóta, þá er kostnaðurinn
ekki undir 120 þúsundum á mann-
inn.“
Ferlega fúlt
Sigursteinn Brynjólfsson, formaður
Liverpool-klúbbsins á Íslandi, bend-
ir á að allt hafi verið gert til þess að
reyna að lágmarka fjárhagslegan
skaða hvers og eins. Hann segir hluta
hópsins hafa snúið aftur til Íslands
strax daginn eftir komuna. „Við erum
að vinna í því að fá miðana á leikinn
endurgreidda. Fyrstu svör félagsins
voru þau að miðarnir fengjust ekki
endurgreiddir en við vonumst til að
fá því breytt. Ég er vongóður um að
svo verði. Þegar þessi staða var upp
komin reyndum við að gera eins gott
úr þessu og hægt er. Þannig bauðst
mönnum að fara strax til baka daginn
eftir og það gerðu flestir,“ segir Sigur-
steinn.
„Við vorum ansi óheppin. Menn
eru að sjálfsögðu mjög svekktir en það
er erfitt að eiga við svona. Það munaði
í raun ekki nema nokkrum klukku-
stundum því þá hefðum við getað
stoppað þetta áður en farið var út. Við
vorum komin í loftið þegar sótt var
um frestunina. Þetta er ferlega fúlt.“
Ferð á vegum Liverpool-klúbbsins á
Íslandi og VITA-ferða á heimaleik
enska úrvalsdeildarliðsins gekk
ekki upp þar sem leiknum var
frestað á meðan íslenski hópur-
inn var í loftinu á leið til lands-
ins. Unnið er í því að fá miðana á
leikinn endurgreidda en ljóst er
að tap hvers og eins er talsvert.
LIVERPOOL-MENN
FÓRU FÝLUFERÐ
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Misstu af stjörnunum Trúir og
tryggir íslenskir áhangendur Liver-
pool-liðsins fengu ekki að sjá stjörnur
liðsins spila um síðustu helgi.
Frestað á miðri leið Þegar íslensku
Liverpool-mennirnir voru yfir Atlantshaf-
inu var farið fram á frestun leiks Liverpool
og Tottenham.
Landsbankinn
svarar engu
Valtýr Sigurðsson ríkissak-
sóknari hefur engin svör fengið
enn við bréfi sem hann ritaði
Landsbankanum hf. um miðjan
desember síðastliðinn. Þar ósk-
aði hann eftir upplýsingum um
ríkisskuldabréf frá Venesúela
fyrir um 30 milljarða króna sem
Jón Gerald Sullenberger bauð
bankanum til fjárstýringar eða
annarrar umsýslu í ágúst 2006.
Embætti ríkislögreglustjóra
hefur þvertekið fyrir að tilkynn-
ing hafi borist um málið frá
gamla Landsbankanum. Það fer
hins vegar þvert gegn upplýs-
ingum núverandi og fyrrverandi
heimildarmanna innan bank-
ans. Þeir kannast vel við málið,
rétt eins og Jón Gerald sjálfur,
og fullyrða að það hafi verið til-
kynnt til ríkislögreglustjóra.
Meirihluti sam-
mála forseta
Rúmlega helmingur lands-
manna er sammála þeirri
ákvörðun Ólafs Ragnars
Grímssonar
forseta að
synja Ice-
save-lögum
staðfesting-
ar. Þetta er
niðurstaða
Capacent-
könnunar sem fréttastofa
Ríkisútvarpsins greindi frá á
þriðjudagskvöld. Alls sögðust
56 prósent sammála ákvörð-
un forsetans en 34 prósent
eru henni ósammála. Tíundi
hver aðspurður gaf ekki upp
afstöðu. Þetta er mun meiri
stuðningur við ákvörðun for-
seta en í fyrri könnun.
Athygli vekur að ungt
fólk er mun jákvæðara í garð
synjunarinnar en þeir sem
eldri eru.
Þjóðin segir nei
Nær tveir þriðju hlutar kjós-
enda vilja að lögin um ríkis-
ábyrgð vegna Icesave-skulda
verði dregin til baka áður en
kemur að þjóðaratkvæða-
greiðslu, samkvæmt nýrri
könnun Capacent sem greint
var frá í fréttum Sjónvarps á
þriðjudagskvöld. 62 prósent,
eða rúmlega þrír af hverjum
fimm, segjast svo myndu
hafna lögunum í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Réttarhöld bak
við luktar dyr
Krafa lögfræðings Baldurs Guð-
laugssonar, fyrrverandi ráðu-
neytisstjóra, um að kyrrsetningu
eigna hans verði aflétt var tekin
fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur
í morgun. Lögmaður Baldurs
telur að kyrrsetning á eignum
hans standist ekki lög og engin
hætta sé á að Baldur skjóti eign-
um undan.
Réttarhaldið er lokað vegna
rannsóknarhagsmuna.
Héraðsdómur hafnaði á dög-
unum kröfu um að máli Baldurs
yrði vísað frá dómi. Taldi lög-
fræðingur Baldurs að sérstakur
saksóknari hefði
ekki haft heim-
ild til að hefja
rannsókn á ný
eftir að Fjár-
málaeftirlitið
hætti rannsókn
á meintum inn-
herjasvikum hans
í maí á síð-
asta ári.
Rúmlega þrítug kona slasaðist
töluvert þegar hún hrasaði í Hús-
víkurfjalli á mánudagskvöldið.
„Þetta var skelfilegt, það er ekki
hægt að orða það neitt öðruvísi,“
sagði kærasti konunnar sem var
með henni þegar slysið átti sér
stað.
„Við fórum upp veginn sem
liggur upp á fjallið en þegar ég var
kominn niður hlíðina og leit við
sá ég hana á fullri siglingu þar til
hún hvarf inn í myrkrið. Ég hljóp
eins hratt og ég gat og það mun-
aði mjög litlu að ég hefði náð taki á
henni. Hún rann yfir um 20 metra
af mjög grófu grjóti,“ segir kærast-
inn sem skiljanlega er í töluverðu
uppnámi eftir atburðinn. Konan,
sem var með meðvitund þegar
kærasti hennar kom að henni, var
flutt á Heilbrigðisstofnun Þingey-
inga til skoðunar en var í gær flutt
á Sjúkrahúsið á Akureyri til frek-
ari rannsókna. Konan er mjaðma-
grindarbrotin og marin en sam-
kvæmt lýsingum kærastans hefði
getað farið enn verr. „Ég fór þarna
upp eftir áðan til að leita að síman-
um hennar og skoðaði aðstæður.
Ég er viss um að hún hefði getað
slasast mun meira,“ segir kærast-
inn sem er vanur fjallgöngum.
„Það sem átti að vera skemmtileg-
ur göngutúr endaði í hryllingi og
sýnir manni að slysin gera aldrei
boð á undan sér.“
indiana@dv.is
Ung kona liggur mjaðmagrindarbrotin og marin eftir slys á Húsavíkurfjalli:
Horfði á kærustuna hverfa í myrkrið
Húsavík Kærastinn segir slysin sannar-
lega aldrei gera boð á undan sér.