Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Qupperneq 5
FRÉTTIR 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 5
FANGAGENGI YFIRTAKA
FANGELSIN
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir erlend fangagengi farin að athafna sig innan veggja Litla-Hrauns.
Útlendingum í íslenskum fangelsum hefur fjölgað gífurlega. Jón Sigurðsson, deildarstjóri á Litla-Hrauni,
segir fangaverði óttaslegna þar sem lítið sé vitað um erlendu fangana.
„Lögreglan hefur náð árangri gegn
erlendum glæpagengjum og þau
eru komin inn í fangelsin þar sem
þau halda áfram innan veggja fang-
elsanna. Við vitum lítið um mann-
skapinn innan gengjanna og það
verður að leysa þennan vanda,“
segir Páll Winkel fangelsismála-
stjóri.
Á undanförnum árum hefur
hlutfall útlendinga meðal gæslu-
varðhaldsfanga hækkað gífurlega
og nú er svo komið að þrír af hverj-
um fjórum gæsluvarðhaldsföngum
eru útlendir. Prósentuhlutfallið er
yfir sjötíu prósent. Af öllum föng-
um sem sitja í fangelsi eru útlend-
ingar tuttugu og tvö prósent.
Páll bendir á að eftir því sem
brotamennirnir séu harðari og
ósvífnari því meiri verði harkan
innan fangelsisins. Hann segir tak-
mörk fyrir öllu og því sé að skapast
neyðarástand á Litla-Hrauni.
Útlendingar ríflega þúsund-
faldast
Erlendum ríkisborgurum í hér-
lendum fangelsum hefur fjölgað
gríðarlega á síðasta áratug. Aukn-
ingin nemur rúmum þúsund pró-
sentum. Í fyrra sátu sextíu og þrír
útlendingar í íslenskum fangels-
um á meðan fimm útlendingar af-
plánuðu dóm árið 1999. Til sam-
anburðar eru þingmenn 63 talsins
og því duga erlendu fangarnir til að
fylla þingsalinn, svo gefa megi hug-
mynd um fjöldann. Að meðaltali
sitja tuttugu og þrír erlendir ríkis-
borgarar í fangelsi dag hvern sam-
kvæmt upplýsingum frá Fangelsis-
málastofnun.
Erlendum gæsluvarðhaldsföng-
um hefur einnig fjölgað talsvert. Á
síðasta ári sátu sexfalt fleiri útlend-
ingar að meðaltali á dag í gæslu-
varðhaldi en árið 1996. Sé horft til
meðaltalsfjölda þeirra útlendinga
sem sitja í fangelsi dag hvern er
aukningin nærri sjö hundruð pró-
sent. Árið 2009 sátu að meðaltali
fimmtán útlendingar í fangelsi á
hverjum degi á meðan tveir erlend-
ir ríkisborgarar sátu inni að meðal-
tali á dag árið 1996.
Hræddir fangaverðir
Jón Sigurðsson, deildarstjóri á
Litla-Hrauni, staðfestir að útlend-
ingarnir í fangelsinu haldi sig sam-
an enda tali þeir flestir lítið annað
en tungumál heimalands síns. Að-
spurður segir hann starfsfólkið ótt-
ast þróunina því lítið sé vitað um
marga þá útlendinga sem stungið
er þarna inn. „Vissulega halda út-
lendingarnir saman hérna hjá okk-
ur enda mállaus hópur að miklu
leyti. Við erum hrædd því að þessa
menn þekkjum við ekki og vitum
lítið um þá. Við vitum varla hvað-
an þeir koma eða hvað þeir hafa
gert í fortíðinni. Stundum heyrum
við sögur af löngum og alvarlegum
brotaferli mannanna,“ segir Jón.
„Við þurfum að fara um húsið
með öðru hugarfari en áður. Það er
orðinn svo mikil fjöldi af fólki sem
við vitum lítið um og því finn ég
hræðslu hjá fangavörðunum yfir
þessari þróun. Það er eðlilegt
að hafa þær áhyggjur því hér
er alltaf lágmarksmanns-
kapur á vakt.“
Nánar verður fjall-
að um fangelsismál á Ís-
landi í helgarblaði DV.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Við erum hrædd því að þessa menn þekkjum við ekki og vit-
um lítið um þá. Við vitum varla hvaðan þeir koma eða hvað
þeir hafa gert í fortíðinni.“
Mikill vandi Páll segir gengi
farin að athafna sig innan veggja
fangelsanna og á þeim vanda
verði að taka hið fyrsta.
Ung kona liggur mjaðmagrindarbrotin og marin eftir slys á Húsavíkurfjalli:
Horfði á kærustuna hverfa í myrkrið