Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2010, Blaðsíða 17
Öfl sem hylja eigin
mistök
Lýður og Ágúst Guð-
mundssynir í Bakkavör
og Exista skrifuðu grein
í Morgunblaðið í
mars á síðasta ári.
Þar sögðust bræð-
urnir ekki hafa átt í
óeðlilegum viðskipt-
um við Kaupþing
en himinháar lán-
veitingar bank-
ans til
fyrirtækja þeirra höfðu vakið mikla
gremju og gagnrýni í samfélaginu.
Þeir skrifuðu að „skipulagður undir-
róður“ færi fram gegn þeim.
„Fáir myndu
fagna meira
birtingu
rannsókn-
arskýrslu
um að-
draganda
að falli
bank-
anna
en við
bræð-
ur, enda
höfum við
tapað gíf-
urlegum
FRÉTTIR 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 17
SIÐBLINDA ÞRISVAR SINNUM
ALGENGARI HJÁ STJÓRNENDUM
n Nanna Briem geðlæknir skrifaði
nýlega grein um siðblindu í Geðvernd,
tímarit Geðverndarfélags Íslands. Í
greininni bendir Nanna á rannsóknir
sem sýna að siðblinda er þrisvar sinnum
algengari hjá fólki í stjórnunarstöðum
en hjá almenningi.
„Fyrirtækin líta í hina áttina ef
harðsvíruð og siðlaus aðgerð er arðbær,
verðlauna hana jafnvel. Þeir sem
auka gróða fyrirtækisins eru gerðir að
stjörnum, þó að aðferðirnar hafi verið
mjög áhættusamar og jafnvel siðlausar.
Við slíkar aðstæður standa allar dyr
opnar hinum siðblindu,“ segir hún.
Nokkur umræða hefur verið um
geðræna siðblindu í viðskiptalífinu í
alþjóðlegri umræðu í kjölfar atburðanna
á fjármálamörkuðum heimsins und-
anfarin tvö ár. En hvernig er siðblindur
einstaklingur? Í grein Nönnu segir:
„Vægðarlaust ryður hann sér braut
gegnum lífið og skilur eftir sig slóð af
brostnum hjörtum, væntingum og
tómum veskjum. Hann svífst einskis í
eigin þágu, enda samviskulaus og ófær
um að setja sig í spor annarra. Reglur
mannlegra samskipta og samfélagsins
eru fótum troðnar án minnstu sektar-
kenndar eða eftirsjár.
Með dáleiðandi persónutöfrum
dregur hann fórnarlömb sín á tálar en
undir niðri er kaldlyndur svikhrappur,
sem ráðskast með fólk á lævísan hátt og
tekur ekkert tillit til tilfinninga annarra.
Hann er ófær um eðlilegt tilfinningalegt
samband við aðra manneskju. Þegar
það hentar þykist hann vilja breyta sér
eða bæta, en í raun er það lítið annað
en leikaraskapur […] Mest áberandi
eiginleikar siðblindra geta verið
persónutöfrar og sjálfsöryggi sem eru
frekar jákvæðir eiginleikar. Fólk fellur
oft fyrir siðblindum við fyrstu kynni, en
áttar sig fyrst seinna á dökkum hliðum
persónuleikans.“
fjármunum á ákvörðunum í aðdrag-
anda og í kjölfar bankahrunsins.
Eignir okkar eru að mestu tapaðar,
þótt við berum það ekki saman við
vanda þeirra sem standa frammi fyr-
ir atvinnumissi eða gjaldþroti. Sem
stjórnendur og forsvarsmenn stórra
fyrirtækja tökum við ábyrgð á okkar
þætti í þessari atburðarás. Sú ábyrgð
verður hins vegar ekki leidd í ljós af
þeim öflum sem nú beita óvönduð-
um meðulum til þess að hylja eigin
Ertu siðblind(ur)?
Skilgreining sálfræðingsins Robert D.
Hare á siðblindu:
n Ertu undirförul(l)?
n Býrðu yfir yfirborðskenndum
sjarma?
n Ertu gífurlega sjálfsörugg(ur)?
n Ertu sjúklegur lygari?
n Beitirðu kænskubrögðum og
svikum til að vefja fólki um fingur
þér?
n Er þér ómögulegt að finna til
eftirsjár eða sektarkenndar?
n Rista tilfinningar ekki djúpt í þér?
n Ertu harðbrjósta?
n Finnurðu aldrei til samúðar?
n Geturðu aldrei viðurkennt ábyrgð
á eigin gjörðum?
mistök og freista þess að gera einstak-
linga sem tengjast Kaupþingi að saka-
mönnum í augum almennings. Það
sem við öll þurfum mest á að halda
er heiðarlegt uppgjör sem byggist á
raunverulegum rannsóknargögnum.
Á þeim vettvangi mun ekki standa á
okkur bræðrum að svara til þeirrar
ábyrgðar sem að okkur snýr.“
Bað flokkinn afsökunar
Geir H. Haarde, fráfarandi formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, baðst við
upphaf landsfundar flokksins í mars
2009 afsökunar á einkavæðingu
bankanna og öðru sem miður fór:
„Hefðum við sjálfstæðismenn hald-
ið fast við okkar upphaflega mark-
mið um dreifða eignaraðild eru líkur
á því að bankarnir hefðu ekki verið
jafn sókndjarfir og áhættusæknir og
raunin varð. Ég ber mína ábyrgð á
því að svona var búið um hnútana á
sínum tíma og á þeim mistökum er
rétt að biðjast afsökunar. Geri ég það
hér með.
Sama er að segja um annað sem
miður fór og var í okkar valdi og hefði
mátt gera betur.“
Jóhanna bað þjóðina afsökunar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra baðst afsökunar á vanrækslu
og andvaraleysi stjórnvalda sem hún
taldi að leitt hefði til bankahrunsins.
Þetta kom fram í máli hennar þegar
hún flutti skýrslu um efnahagshrunið
og endurreisn á Alþingi í október.
„Hver sem niðurstaða rannsókn-
arnefndar Alþingis verður um ábyrgð
einstakra aðila blasir við að ríkis-
valdið, raunar allt frá einkavæðingu
bankanna 2004, brást í því verkefni
að koma í veg fyrir hörmungarnar
sem yfir okkur dundu eða að minnsta
kosti draga verulega úr högginu.
Þess vegna tel ég mér sem forsæt-
isráðherra, rétt og skylt fyrir hönd
ríkisins og stjórnsýslunnar að biðja
íslensku þjóðina afsökunar á van-
rækslu og andvaraleysi stjórnvalda
að þessu leyti.“
Jóhanna bætti við að þjóðin væri
í sárum, hún hefði liðið þjáningar og
skaða sem enn sæi ekki fyrir endann
á. Þess vegna ætti hún heimtingu á
afsökunarbeiðni.
„Það er síðan rannsóknaraðila og
dómstóla að leggja grunn að, og sjá
svo til, að þeir sem ábyrgð bera, axli
hana.“
„ANNARRA AÐ BIÐJAST AFSÖKUNAR“
Smjörklípa annarra Lýður og Ágúst
sökuðu ákveðin öfl um að ráðast á
Exista og Kaupþing til að hvítþvo sig
sjálf af ábyrgðinni á bankahruninu.
Skrifaði Illuga bréf Björgólfur Thor
Björgólfsson sagði í bréfi til Illuga
Jökulssonar að hann hugsaði um
Icesave á hverjum degi.
Menn viðurkenni mis-
tökin Bjarni Ármannsson
sagðist vilja líta í eigin barm.
MYND GÚNDI
Kannaðist ekki við mistök
Björgólfur Guðmundsson
kenndi Seðlabankanum um fall
Landsbankans.
MYND RÓBERT REYNISSON