Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 FRÉTTIR Fjöldi trúnaðargagna SPRON var á sölubretti slitastjórnar bankans um helgina þegar lausamunir úr þrota- búi bankans voru seldir á útsölu. Um var að ræða pappakassa sem innihéldu trúnaðarskjöl og segir viðskiptavinur að skjölin sýni upp- lýsingar um árangurslaust fjárnám hjá fjölda einstaklinga. Slitastjórn SPRON stóð fyrir út- sölu á ýmsum munum úr þrotabúi bankans um nýliðna helgi en salan fór fram í stóru geymsluhúsnæði á Kjalarnesi. Þar voru seldar ýms- ar vörur búsins, til að mynda borð, skápar, stólar, ísskápar og tölvu- búnaður. Vörurnar voru ýmist nýj- ar eða notaðar og komu úr útibú- um SPRON á höfuðborgarsvæðinu. Nóg var að gera hjá starfsfólki söl- unnar og gerðu margir viðskipta- vinir þar góð kaup. Ætlaði að kaupa pappír Gestur Grjetarsson kerfisfræðing- ur er einn þeirra sem varð var við trúnaðarskjölin á sölubretti og segir þetta hafa verið nokkra kassa troð- fulla af gögnum. Hann segir þetta lýsandi fyrir skrautleg vinnubrögð bankanna. „Mér finnst það fárán- legt að þetta geti gerst, mér blöskr- ar alveg og ég á eiginlega ekki orð yfir þetta. Starfsfólkinu var mjög brugðið þegar ég benti því á þetta og þessu var síðar kippt snögglega í burtu. Pappírarnir lágu þarna fyrir allra augum, á sölubretti innan um húsgögnin sem þarna voru til sölu, og hver sem er gat skoðað þetta. Ég hélt að þarna væri verið að selja ljósritunarpappír á góðu verði,“ seg- ir Gestur. „Ég ætlaði að skoða hvort ekki væri í lagi með pappírinn og þá komu í ljós fleiri skýrslur um fólk sem lent hafði í árangurslausu fjár- námi hjá bankanum. Á þessum pappírum komu fram nöfn og all- ar upplýsingar um fólkið. Ef þarna hefðu legið upplýsingar um mig þá hefði ég orðið ósáttur.“ Óheppilegt Aðspurður segir Gestur stemn- inguna á útsölunni hafa verið sér- kennilega. Hann telur ljóst að hluti íslensku þjóðarinnar sé enn kaup- óður. „Fólkið var alveg tryllt í að kaupa og stundum náði starfsfólk- ið ekki einu sinni að losa bílana því fólk fór inn í þá og hirti dótið beint úr bílunum,“ segir Gestur. Jóhann Pétursson, héraðsdóms- lögmaður og fulltrúi slitastjórnar SPRON, staðfestir að gögn frá bank- anum hafi legið á bretti en segir að aðeins hafi verið um að ræða einn kassa. Hann telur atvikið óheppi- legt en bendir á að engar viðkvæm- ar upplýsingar um fjárhag einstakl- inga hafi þarna legið á glámbekk. „Það var þarna einn kassi og við höfum skoðað þetta sérstaklega eftir að þetta kom upp. Búið var að brýna fyrir fólki að engin trúnaðar- skjöl ættu að vera þarna en mönn- um hefur yfirsést þessi eini kassi. Í honum voru gamlar umsóknir um greiðslukort þar sem nöfn og kenni- tölur komu fram en þessum gögn- um átti að vera búið að henda. Um leið og látið var vita af þessu var kassinn tekinn því þetta átti ekki að vera þarna og var þetta óheppilegt að mínu mati,“ segir Jóhann. trausti@dv.is Viðskiptavinur sem ætlaði að kaupa ljósritunarpappir á útsölu þrotabús SPRON um síðustu helgi fann pappakassa með fjölda trúnaðarskjala. Hann segir þetta hafa verið skjöl sem sýni upplýsingar um árangurslaust fjárnám en fulltrúi slitastjórnar segir þetta hafa verið kreditkortaumsóknir. TRÚNAÐARSKJÖL SPRON Á ÚTSÖLU Pappírarnir lágu þarna fyrir allra augum, á sölubretti inn- an um húsgögnin sem þarna voru til sölu, og hver sem er gat skoðað þetta. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Skjölin fjarlægð Eftir að starfsfólki var bent á skjölin á útsölubrettinu voru þau fjarlægð samstundis. Viðkvæm gögn Í kössunum á sölu- brettum SPRON var að finna skjöl sem sýndu upplýsingar um árangurslaust fjárnám hjá einstaklingum. Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskr- ar erfðagreiningar, hefur verið stefnt fyrir að greiða ekki reikning lagnafyrirtækisins Hreinsibíla ehf. sem sá um að hreinsa rotþró við sumarbústað forstjórans. Reikning- urinn er upp á 93 þúsund krónur og verður málið þingfest fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur á föstudaginn. Eiríkur Gunnsteinsson lögmað- ur flytur málið fyrir Hreinsibíla og segir hann verkið snúa að vinnu fyrirtækisins við rotþró við sumar- hús Kára. Hann segir Kára fullyrða að greitt hafi verið fyrir verkið nú þegar. „Fyrirtækið var að hreinsa rotþró við sumarbústað. Afstaða okkar er sú að ekki sé búið að greiða fyrir þetta verk en þetta eru ekki stórar tölur,“ segir Eiríkur. Einar Kristján Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hreinsibíla, segir fyrirtækið hafa þurft að fara dóm- stólaleiðina þar sem ekki hafi feng- ist greiddur reikningur vegna vinnu fyrirtækisins fyrir Kára. Hann full- yrðir að forstjórinn hafi ekki greitt fyrir þá vinnu sem unnin var. „Við unnum verk fyrir hann en höfum ekki fengið reikninginn greiddan og málið snýst um ágreining þess efnis. Í okkar huga liggur þetta al- veg ljóst fyrir, við unnum verkið og eigum að fá borgað fyrir það,“ segir Einar Kristján. trausti@dv.is Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í deilumáli við lagnafyrirtækið Hreinsibíla: Kári fyrir dóm út af rotþró Fyrir dóm Kári deilir við lagnafyrirtæki, sem hreinsaði rotþró við sumarbústað hans, fyrir dómstólum. Frestun bagaleg „Það eru sterk sjónarmið uppi um það að skýrslan þurfi að vera komin fram, ef í henni eru upplýsingar sem tengjast þessu máli. Þá væri afar óheppilegt að kosning- in hefði far- ið fram rétt áður,“ sagði Steingrím- ur J. Sigfússon fjármálaráð- herra að loknum ríkisstjórnar- fundi á þriðjudag. Hann segir það bagalegt að útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hafi verið frestað. Steingrímur sagðist vera á þeirri skoðun að ef mikilvægar upplýsingar væru á leiðinni sem almenningur ætti að hafa rétt á að skoða væri ótækt að hafa þjóðaratkvæða- greiðsluna strax.  Risasekt fyrir skattabrot Héraðsdómur Reykjavíkur hef- ur dæmt karlmann í fjórtán mánaða fangelsi og til greiðslu 120 milljóna króna í sekt til ríkissjóðs fyrir stórfellt brot gegn skattalögum. Þá var annar karlmaður dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í sama máli og til greiðslu 7,4 milljóna króna í sekt. Var mönnunum gefið að sök að hafa hvorki staðið skil á virðisaukasattsskýrslum þriggja einkahlutafélaga á lögmæltum tíma né staðið skil á skilagrein- um vegna staðgreiðslu opin- berra gjalda á lögmæltum tíma. Áfram höft Svo gæti farið að gjaldeyrishöft- in verði ekki afnumin í fyrirsjá- anlegri framtíð og eru líkur á að þau heyri ekki sögunni til fyrr en krónan hefur verið gefin upp á bátinn sem gjaldmiðill Íslendinga. Þetta kemur fram í pistli sem Ólafur Ísleifsson, lektor í Háskólanum í Reykja- vík, skrifar í Háskólablaðið. „Enda þótt engum þurfi að blandast hugur um skaðsemi haftanna virðast þau óum- flýjanleg í ljósi þess að engar forsendur eru fyrir að úr landi renni í erlendum gjaldeyri fé erlendra aðila sem streymdi inn fyrir hrun í leit að hærri ávöxtun en annars staðar bauðst.“ 365 borgar lánin Fjölmiðlafyrirtækið er farið að borga af lánum sínum á nýjan leik eftir að félagið samdi við lánveitend- ur sína um að ekki yrði borgað af lánum þess árið 2009. „Núna greið- um við af lánum samkvæmt þeim samningum sem við höf- um,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, í samtali við DV. Ari segir að nú hafi birt til í rekstr- inum og hefur félagið nú greitt hátt í tvö hundruð milljónir af lánum það sem af er árinu. Þeg- ar hafa verið greiddar 200 millj- ónir af lánum á þessu ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.